Morgunblaðið - 26.09.1995, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.09.1995, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Steinunn Sigurðardóttir til Máls og menningar STEINUNN Sigurðardóttir rit- höfundur sem um árabil hefur verið gefin út af bókaforlaginu Iðunni hefur ákveðið að söðla um og ganga til samstarfs við Mál og menningu. I samtali við blaðamann sagði Steinunn enga eina ástæðu liggja að baki þess- ari ákvörðun og vildi ekki láta hafa neitt frekar eftir sér um hana. Steinunn hefur nýja skáld- sögu í smíðum sem Mál og menning mun gefa út fyrir jól. Sagan heitir Hjartastaður og er að sögn Steinunnar talsvert frábrugðin fyrri skáldsögum hennar; „Þessi saga er allt öðru- vísi að formi til en fyrri sögurn- ar, hún er að minnsta kosti helmingi lengri en þær og er að vissu leyti margar sögur í einni. Að því leyti svipar henni kannski til Síðasta orðsins. Þetta er eins konar ferðasaga, segir frá ferðalagi um innri og ytri heima en ramminn er flótti móður með dóttur sína úr sollin- um í Reykjavík austur á firði. Þetta er líka saga um átök þriggja kvenna, ömmu, mömmu og dóttur. Sumir myndu ef til vill kalla þetta kvennasögu en karlar sem hafa lesið hana yfir Bókverk IJST OG IIÖNNIJJN Norræna húsið BÓKVERK Ýmsir listamenn Opið alla daga á opnunartíma Norræna hússins. Til 1. október. Aðangur ókeypis. í TENGSLUM við Alþjóðlegu bókmenntahátíðina sem nú er ný- afstaðin, var sett upp sýning á bókahönnun og bókakápum í and- dyri hússins. Jafnframt var vinnslu- ferlið sýnt að nokkru, þannig að á veggjum eru sýnd drög að bóka- kápum svo og listaverk sem yfir- færð eru á bókakápur, stundum einungis að hluta til. Þetta er lítil en tímabær sýning, vegna þess að vægi þessara atriða í gerð bóka hefur aldrei verið meira, skiptir því miklu að halda þeim fram og vekja til umhugsunar og umræðu. Við lifum á merkilegum tímum, er svo virðist sem útgáfu- starfsemi sé ofurseld háskalegri þróun og að sjónvarpið hafi tekið við hlutverki lestrarefnis og bókar- innar að stórum hluta til. I stað draumsins um að maðurinn öðlaðist meiri frítíma með aukinni hagræðingu og gæti í ríkari mæli helgað sig áhugamálum sínum, hef- ur þróunin hjá alltof mörgum orðið þveröfug. Aldrei hefur timinn verið dýrmætari, þannig að minni og minni tími gefst til að opna bók, og þá er eðlilegt að í stað þess að eyða heilu kvöldi í lestur bókar, freistist viðkomandi til að horfa á leikinn efnisþráð hennar í sjónvarp- inu á margfalt styttri tíma. Hraðinn er ískyggilegur, því eins og þróunin hefur verið skilgreind, þá er ferlið þannig að bók er þrykkt i gær, lesin í dag og gleymd á morgun! Á flótta undan steingeldum af- þreyingariðnaði sem í síbylju dynur á manninum, hefur andlega sinnað Litróf til- finningamia ÍIIKIIST Lcikfélag Reykjavíkur HVAÐ DREYMDI ÞIG, VALENTÍNA? Eftir Ljúdmílu Razúmovskaju. ís- lensk þýðing eftir Árna Bergmann. Leikendur: Guðrún Ásmundsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir og Ásta Arnardóttir. Leikstjóri: Hlín Agn- arsdóttir. Leikmynd: Steinþór Sig- urðsson. Búningar: Stefanía Adolfs- dóttir. Lýsing: Elfar Bjarnason. Borgarleikhús 24. september. GUÐRÚN Ásmundsdóttir held- ur upp á 40 ára leikafmæli sitt með glæsibrag á fjölum litla sviðs- ins í Borgarleikhúsinu. Hún fer á kostum í hiutverki Nínu Petrovnu, ömmunnar í leikriti Ljúdmílu Raz- úmovskaju, Hvað dreymdi þig, Vaientína? sem lýsir einum degi í lífi þriggja mæðgna. Og ekki verð- ur annað sagt en mótleikarar Guð- rúnar, Sigrún Edda Björnsdóttir og Ásta Arnardóttir, leggi sitt af mörkum til að gera afmælisleik Guðrúnar sem glæsilegastan, því það er sjaldgæft að sjá leik og samleik í þeim gæðaflokki sem leikkonurnar allar lögðu af mörk- um síðastliðið sunnudagskvöld. Þetta er ekki síst sagt með það í huga að hlutverkin þrjú sem um er að ræða eru ekki af auðveldara taginu heldur er hér um að ræða hlutverk sem krefjast óvenju mik- ils _af leikendunum. Óhætt er að taka undir með þeim leikhúsgesti sem andvarpaði grátklökkri, en sælukenndri röddu: „Þetta er alvöru leikrit!“ og strauk tár af hvörmum á leiðinni út úr salnum í hléi. Hvað dreymdi þig, Valentína? er leikrit sem er svo vel skrifað að maður stendur á önd- inni af hrifningu yfir textanum (þýðing Árna Bergmann er vönduð og áheyrileg) og uppbyggingu fléttunnar. Þetta er verk sem hríf- ur mann auðveldlega til hláturs og gráturs, og flestir ættu að kannast við eitthvað af sjálfum sér í konun- um þremur, draumum þeirra, kenj- um og klikkuðu háttalagi á köflum. Leikritið hefur undirtitilinn „gamanleikur", en gamanið er fremur grátt og má skilja þennan undirtitil á íronískan hátt framar öðru. Ekki svo að skilja að leikrit- ið eigi ekki sína gamansömu vídd. Vissulega er textinn oft á tíðum fyndinn og leikur kvennanna þriggja með þeim hætti að um stund getur áhorfandinn upplifað þá blekkingu að hann sé staddur á kostulegum gamanleik. En bara í augnablik í senn, því óðara hefur leikurinn snúist upp í andhverfu sína og grimmdin og örvæntingin tekið yfirtökin í samskiptum mæðgnanna þriggja. Allt verkið, LISTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg STEINUNN Sigurðardóttir. hafa jafnvel verið hrifnari af henni en konur sem það hafa gert.“ fólk flúið inn á hvers konar söfn sem stöðugt taka betur á móti gest- um sínum. Einnig á náðir lista sem blómstra sem aldrei fyrr, þótt bak- föllin finnist þar einnig. Óg vel að merkja, streyma stöðugt fleiri bæk- ur á kaupstefnur, fleiri og fleiri söfn og tónlistarhús eru byggð, fleiri risasýningar eru í gangi og sömu- leiðis stærri og mikilfenglegri kon- sertar. I ljósi alls þessa, skipta sjón- rænu atriðin í gerð bóka meira máli en nokkru sinni fyrr, og því er rétt staðið að málum að virkja sköpunina í útlitshönnun og gerð bóka. Prýði er að sýningunni í anddyr- inu og ómaksins vert að staldra þar við og huga að þróuninni. Engin sýningarskrá fylgir framkvæmd- inni, sem er mjög misráðið, en lista- mennirnir standa flestir fyrir sínu og vel það, þeir eru; Valgarður Gunnarson, Jón Reykdal, Þórður Hall, Sigrún Eldjárn, Ingibjörg Ey- þórsdóttir, Robert Guillemette, Guð- jón Ketilsson, Margrét Einarsdóttir Laxness, Steingrímur Eyfjörð Krist- mundsson, Pétur Halldórsson og Sigurborg Stefánsdóttir. Bragi Ásgeirsson Lokayfirlýsing Hjálmar H. Ragnarsson, forseti Bandalags íslenskra listamanna. VEGNA ummæla þinna í Morgunblaðinu sunnudaginn 24. september vil ég, undirrit- aður, taka fram eftirfarandi. Ég stend við hvert orð, sem ég hef ritað í Morgunblaðið, varðandi óheimila notkun radd- setningar/útsetningar minnar á Vísum Vatnsenda-Rósu í kvik- myndinni Tár úr steini og þar af leiðir, að ég mun ekki draga fullyrðingar mínar til baka. Fyrir mér voru lok málsins sú niðurstaða sem undirrituð var af mér og þér, Hjálmar H. Ragnarsson, á skrifstofu STEF, 18. september sl., að viðstödd- um Eiríki Tómassyni hæsta- réttarlögmanni, forstjóra STEF, og Áskeii Mássyni, for- manni STEF. í þessu undirritaða plaggi liggur fyrir eftirfarandi niður- staða. I fyrsta lagi: „Hjálmar gerir ekki athuga- semdir við það sem Jón heldur fram, að hann eigi höfundarétt að stefi í miðhluta verksins sem útsetjari skv. 5. grein höfunda- laga“ (tilvitnun lýkur). Orðaleikurinn raddsetn- ing/útsetning er smíð Áskels Mássonar, formanns STEF, í framhaldi af þýðingu hans á greinargerð, sem unnin var af KODA, hinu danska STEF, fyr- ir um það bil tveimur árum. Með bréfi til stjórnar STEF, dagsettu 21. september sl., bendi ég á, að sérhver höfundur hefur fullt leyfi til að kalla list- gerning sinn hvaða nafni sem hann vill, án þess að hann missi höfundarétt á hugverki sínu. Það sem skiptir máli er hvers eðlis breytingin er, sem tón- skáld gerir á tónverki, en ekki hvað hann kýs að kalla hana. I öðru lagi: „í ljósi þessa fellur Jón frá öllum fjárkröfum á hendur Hjálmari og framleiðanda kvik- myndarinnar" (tilvitninu lýk- ur). Slíkt gerist ekki nema að ég hafi fyrir samkomulagið átt fjárkröfurétt á hendur þér og framleiðanda kvikmyndarinn- ar. í þriðja lagi: „Áðilar eru sammála um að fara fram á að upplýsingum á geislaplötu með tónlist úr myndinni verði breytt, svo og í afkynningartexta á kvik- myndinni sjálfri verði því við komið án verulegs kostnaðar fyrir framleiðanda hennar“ (til- vitnun lýkur). Slíkt samkomulag er^óhugs- andi nema að aðilar séu sam- mála um að ranglega sé greint frá útsetjara umræddrar lag- gerðar. Nú þegar hefur útgefandi geislaplötunnar, Islensk tón- verkamiðstöð, breytt upplýs- ingum þeim er fylgja nefndum geisladiski en undirritaður veit ekki hvort stendur til að breyta afkynningartexta á kvikmynd- inni. Viljir þú, Hjálmar H. Ragn- arsson, með lögformlegum hætti, rifta þessu samkomulagi mun ég að sjálfsögðu athuga það mál en við slíkan gerning, öðlast ég sömu stöðu og ég hafði fyrir þetta samkomulag, er varðar fjárkröfur og eða að umrætt lag sé fellt út úr kvik- myndinni Tár úr steini. Reykjavík, 24. september 1995 Jón Asgeirsson HVAÐ dreymdi þig, Valentína? eftir Ljúdmílu Razúmovskaju hefur alla burði til að fylgja velgengni Kæru Jelenu eftir. frá upphafi til enda, er þannig byggt upp að persónurnar sveiflast frá ýktri kátínu til dýpstu örvænt- ingar. Það þarf vissulega færar leikkonur til að halda utan um slík hlutverk, að sýna allt litróf tilfinn-. inganna en vera um leið trúar per- sónusköpun sinni, detta ekki út úr rullunni eitt augnablik. Þetta tekst þeim öllum. Guðrún Ásmundsdóttir er rússnesk frenja, eins og maður ímyndar sér þær helst: hijúf á yfirborðinu og einnig þó nokkur harðstjóri undir niðri ef hún telur á þurfa að halda. Minningar úr stríðinu skipa heið- urssess í huga hennar og þar er hennar viðkvæmu hlið að finna. Hún er höfuð heimilisins, stjórnar lífi dóttur sinnar kannski meira en mann grunar í fyrstu, og er mikil eiturtunga ef þannig liggur á henni. Guðrún er bæði fyndin og ógnvekjandi í hlutverki sínu. Sigrún Edda Björnsdóttir er í hlutverki hinnar mótsagnakenndu Valentínu sem lifir á draumum sín- um og tálsýnum úr fortíð, nútíð og framtíð. Valentína er sú kvenn- anna þriggja sem hvað margföld- ust er í roðinu. Hún á sér marga drauma um öðruvísi líf en það sem hún lifir, og stangast þeir hver á við annan. I öðru orðinu er hún menntamaðurinn sem les bækur og „fílósóferar“ og hefur hið and- lega líf upp yfir allt annað, í hinu víkur andlega lífið fyrir þránni eft- ir athygli karlmanna („Þótt ekki væri nema eiginmaður...“) Va- lentína er viðkvæm og auðsærð (þótt hún reyndar ýki þessa eigin- leika sína af list þegar við á) og hún hefur þann makalausa eigin- leika að geta „horfið“ inn í drauma sína þegar veruleikinn verður henni ofviða. Sigrún Edda spilaði af mikilli næmni á alla þá strengi sem þetta erfiða hlutverk krefst. Ásta Arnardóttir er yngst og óreyndust þessara þriggja leik- kvenna, en einnig hún skilaði sínu hlutverki svo aðdáun vakti. Hún túlkaði hina sautján ára gömlu Ljúbu á sannfærandi hátt, sýndi okkur viðkvæma og feimna stúlku sem hefur alist upp á milli tveggja elda, svo að segja, og reynir sífellt að gera gott úr öllu, ber klæði á vopnin þegar mamma hennar og amma eru „í ham“. En á afmælis- degi hennar, sem leikritið gerist á, gengur frekja þeirra og stjórn- semi þeirra svo fram úr hófi að þessi blíðlynda stúlka reynir af unglingslegum vanmætti og skilj- anlegri vanþóknun að segja þeim til syndanna. Ástu tókst að vekja samúð áhorfenda með persónu- sköpun sinni. Úmgjörð sýningarinnar var vel heppnuð. Leikmyndin var útsjónar- samlega hönnuð og svæði „utan sviðs“ vel nýtt. Fagmannlega var farið með ljós og búningar undir- strikuðu persónuleika kvennanna á viðeigandi hátt. Líklega er þetta metnaðarfyllsta verkið sem Hlín Agnarsdóttir hefur fengið í sinn hlut sem leikstjóri og hún sýnir að hún er vandanum vaxin. Hinn framúrskarandi leikur og samleikur leikkvennanna þriggja eru auðvitað góð meðmæli með leikstjóranum. Hlín er vaxandi leikstjóri og hefur sett upp margar athyglisverðar sýningar á undan- förnum árum. Leikrit Ljúdmílu Razúmovskaju, Kæra Jelena, sló rækilega í gegn á litla sviði Þjóðleikhússins 1992- 1994. Hvað dreymdi þig, Valentína? hefur alla burði til að fylgja þeirri velgengni eftir, og vonandi fá ís- lenskir leikhúsgestir að sjá fleiri verk eftir þennan athyglisverða samtímahöfund á næstu árum. Soffía Auður Birgisdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.