Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÍMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 9
FRÉTTIR
Sýnd
veiði, en
ekki gefin
í HAUST hafa skotveiðimenn fengið
að reyna að það er ekki á vísan að
róa þegar um gæsaveiði er að ræða.
Mönnum ber saman um að mikið sé
af fugli, en gæsin hefur fremur kos-
ið beijamóinn og mýrargróður en
grösug tún.
Haustið hefur verið gott víðast
hvar og ber ósprungin lengi frameft-
ir. Veiði hefur því almennt verið
dræm, en mun nú vera að glæðast.
Það er ekki seinna vænna því hvað
úr hveiju fara gæsaflotarnir að svífa
til Bretlands.
Aflaskýrsla forsenda
nýs veiðikorts
Að sögn Ásbjörns Dagbjartssonar
veiðistjóra er nú búið að gefa út
9.500 veiðikort. Ekki hefur orðið
vart neinnar skriðu umsókna vegna
ijúpnaveiðitímans sem að óbreyttu
hefst 15. október og stendur til 22.
desember. Ásbjörn átti ekki von á
neinum breytingum á veiðitímabilinu
að þessu sinni.
I lok ársins fá handhafar veiði-
korta sent eyðublað þar sem þeir
verða beðnir að skila upplýsingum
um heildarveiði sína á þessu ári.
Ásbjörn veiðistjóri sagði að nánari
upplýsingar, t.d. um veiðistað og
veiðitíma, yrðu vel þegnar. Jafnframt
verður spurt hvort veiðmaðurinn ósk-
ar eftir að fá veiðikort endurútgefíð.
Það er skilyrði fyrir nýju veiðikorti
að rnenn skili aflaskýrslu.
Ásbjörn sagði jafnframt að á
næsta ári verði veiðimönnum send
handbók með ýmsum hagnýtum upp-
lýsingum er íúta að veiðum villtra
dýra og veiðidagbók. Þá verður kraf-
ist nákvæmari upplýsinga um veiðar
en í ár.
Vængir óskast
Þess hefur verið farið á leit við
veiðimenn að þeir sendi hægri væng
af öndum og gæsum til Náttúru-
fræðistofnunar. Arnór Sigfússon
fuglafræðingur notar vængina til
aldursgreiningar.
Arnór sagði að það sem af er
hausti hefði lítið borist af sýnum, en
hann vissi um nokkra veiðimenn sem
hafa safnað vængjum og ætla að
senda síðar. Arnór byijaði á þessum
rannsóknum í hitteðfyrra og vængj-
unum hefur flölgað ár frá ári. Til-
gangur rannsóknanna er að greina
hlutfall unga frá sumrinu í veiðinni.
Af því má ráða hvemig varpið hefur
heppnast og hvort ársbundnar sveifl-
ur í viðkomu hafa áhrif á stofnstærð.
SKOTVEIÐIFÉLAG íslands
hefur hafið útgáfu á fagriti
um skotveiðar og útivist.
Stofnar í hámarki
Þegar gæsirnar koma til vetrar-
dvalar í Bretlandi eru þær taldar og
hlutfall ungfugla greint. Með saman-
burði á hlutfalli ungfugla hér og í
Bretlandi má finna dánartölur ung-
fugla og fullorðinna. Eftir nokkurra
ára rannsóknir má segja fyrir um
breytingar á stofnstærð á grundvelli
ungahlutfallsins.
Að sögn Arnórs fjölgaði gæsum
mjög frá 1950 að talningar hófust í
Bretlandi og allt fram yfir 1980.
Grágæsastofninn hefur verið í há-
marki og talið um 100 þúsund fugla
undanfarin haust. Heiðargæsastofn-
inn hefur haldið áfram að stækka
og tvöfaldaðist á síðasta áratug. í
fyrrahaust taldi stofninn um 260
þúsund fugla.
Veiðimenn eru beðnir að koma
hægri væng af gæsum og öndum tii
Náttúrufræðistofnunar, Hlemmi 3,
Pósthólf 5320, 125 Reykjavík. Ef
veiðimenn á höfuðborgarsvæðinu eru
með 50 fugla eða fleiri er Arnór fús
að heimsækja þá og aldursgreina
fuglana á staðnum.
Nýtt fagrit um skotveiðar
SkotVís er heitið á nýju tímariti
um skotveiðar .og útivist. í 1. tölu-
blaði er m.a. íjallað um vor- og sum-
arveiði á ijúpu, andaveiðar, siðfræði
sportveiði, matreiðslu á villibráð,
veiðihunda og meðferð skotvopna.
Ritið er 72 síður, litprentað í A4
broti. Ritstjórar eru Sigmar B.
Hauksson og Einar Kr. Haraldsson,
útgefandi er Skotveiðifélag íslands.
Ný, stór og glæsileg
sending
Hverfisgötu 78, sími 552-8980.
NÝ SENDING
Dragtir, peysur,
blússur, buxur og bolir.
U (LL
Skólavörðustíg 4A
Sími 551 3069
STRETCHBUXUR • STRETCHBUXUR • STRETCHBUXUR •
3
3
i
co
X
C
7>
éardeur
Qhimu
n
i
03
_ c
STRETCHBUXUR • STRETCHBUXUR • STRETCHBUXUR^*
tískuvcrslun
Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
ÞORPSTILBOÐ
<o
o
’fici
eúuvi cficUvi
<z
á*. 1.490
oy fa&icL
acUtan, áúxw
Kynningartilboð á snyrtivörum
frc í bri° daga
fimmtudag, föstudag
og laugardag.
Allar vörur á veröi frá kr. 250 til kr. 400
(heildsöluverð) veröa seldar á kr. 189
é
ÞORPII)
BORGARKRINGLUNNI
Fimmtud.— föstud. —laugard.
>2 U l^^a^9re^slu'
afsláttur
af öllum bajrnafafnaði
Glæsilegur
3 benelíon
ítalskur
vetrarfctnaður
í miklu Úrvali Laugavegi 97, sími 552 2555
Luxembourg — ísland
Fyrirtæki í Luxembourg, þekkr í EU fyrir vöruúrval í
hágæða silkiblómum og trjám með ekta viðarstofni,
býður íslensku fyrirtæki að gerast einkaumboðsaðili.
Rekum eigin framleiðslufyrirtæki í Austurlöndum.
Framleiðsla með nýjustu leysi-ljósmyndunartækni
tryggir einstaklega góða eftirlíkingu lifandi plantna
á mjög samkeppnishæfu verði.
Fleildsölum býðst að skoða sýningarsal okkar, sem
tengist „tilrauna“-smásöluverslun, þar sem hægt er að
skoða hvernig selja má vöruna á árangursríkan hátt.
Eftir samkomulagi er einnig hægt að skoða um helgar.
Meðmæli óskast. Umsóknir sendist: ARTFLORA
International SA Zone Industrielle L-8399 WINDHOFF
(GDL), sími 00 352 397 475, símbréf 00 352 397 497.
GRAM gerð Rými Itr. Kwst Hæð x Dýpt xBreidd Afb. verð Staðgr.
HF-234 kista. 234 1,14 850 x 695 x 800, 47.360,- 44.990,-
HF-348 kista 348 1,44 850 x 695 x 1100 54.680,- 51.950,-
HF-462 kista 462 1,70 850 x 695 x 1400 62.980,- 59.830,-
HF-576 kista 576 1,79 850 x 695 x 1700 68.400,- 64.990,-
FS-100 skápur 102 0,79 715 x 601 x 550 42.090,- 39.990,-
FS-133 skápur 129 0,96 865 x 601 x 550 48.400,- 45.980,-
FS-175 skápur 176 1,01 1065 x 601 x 550 54.700,- 51.960,-
FS-150 skápur 145 0,97 865 x 601 x 595 49.990,- 47.490,-
FS-250 skápur 237 1,17 1342 x 601 x 595 68.400,- 64.980,-
FS-290 skápur 284 1,44 1542 x 601 x 595 79.830,- 75.980,-
FS-340 skápur 330 1,49 1742 x 601 x 595 86.300,- 81.990,-
Gefðu gæðunum gaum! fyrsta JOiaÉHb
ClinAJkÆ flokks /rUniA
frá III#. HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420