Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Reynt að bjarga sjón Gligorovs Makedóníuforseta Grikkir óttast af- leiðingar tilræðis Skopje, Aþenu. Reuter. FORSETI þings Makedóníu, Stojan Andonov, gegnir nú embætti for- seta landsins í kjölfar sprengjutil- ræðisins við kjörinn forseta, Kiro Gligorov, á þriðjudag. í gær gekkst Gligorov undir aðgerð til að reyna að bjarga sjóninni en hann slasaðist mikið á höfði í tilræðinu og er talið ótrúlegt að hann skyldi lifa það af. Hefur tilræðið ýtt mjög undir ótta Grikkja um óstöðugleika í Makedó- níu þegar svo virtist sem samskipti ríkjanna væru að batna og hafa Grikkir styrkt varnir sínar við landamærin í kjölfarið. Andonov er leiðtogi Fijálslynda flokksins í Makedóníu sem hallast mjög að markaðshyggju. Fordæmdi hann árásina á forsetann, sem er 78 ára, og sagði að hún mætti ekki verða til þess að raska jafnvæginu í landinu. Samkvæmt fréttum í gær bar ekki á neinni ólgu en landsmenn voru slegnir vegna tilræðisins. Enginn lýst ábyrgð Yfirvöld í Makedóníu báðu á þriðjudag um aðstoð lækna frá Frakklandi, Grikklandi og Serbíu vegna hinna miklu höfuðáverka sem Gligorov hlaut í sprengingunni, sem var 20 kg. Var sagt í gær að brugð- Segja ljóst að ein- hver vilji spilla fyrir samskiptum ríkjanna ið gæti til beggja vona með ástand hans á næstu dögum. Enginn hefur lýst tilræðinu á hendur sér en lögregla yfirheyrir nú tvo menn sem sáust hlaupa frá sprengingunni. Dagblað í Makedóníu sagði að miðum með áletrun þar sem Gligorov var óskað dauða, hefði ver- ið dreift í bænum Kicecvo sem er skammt frá landamærunum að Alb- aníu og eru fjölmargir Albanir bú- settir þar. Gligorov leiddi land sitt til sjálf- stæðis árið 1991. Með stjórnmála- kænsku sinni hefur honum tekist að halda landinu fyrir utan átökin á Balkanskaga, þrátt fyrir að grunnt hafi verið á því góða hjá Makedóníu- mönnum og Grikkjum. Hinir síðar- nefndu óttast að þjóðernissinnar í Makedóníu muni gera kröfu til að samnefnt hérað í Grikklandi verði sameinað landinu. Gligorov hefur hins vegar tekist að reita þjóðernissinna til reiði með stefnu sinni gagnvart albanska minnihlutanum en hann hefur staðið fyrir umbótum á kosningarétti þeirra og stöðu albönskunnar. Auk Albana eru Serbar og Búlgarir hluti hinna 2 milljóna íbúa. Óttast margir að til átaka kunni að koma vegna þjóðernissinna og deilna Makedóníumanna við ná- grannaríki. Gerist það, sé afar hætt við að önnur ríki muni dragast inn í átökin til að vemda fólk af sínu þjóðerni. Tímasetning engiií tilviljun Grikkir lýstu í gær áhyggjum sín- um vegna þess að dagar Gligorovs í stjórn landsins kynnu að vera tald- ir og kváðust óttast uppgang þjóð- ernissinna, sem hafa gagnrýnt Glig- orov mjög vegna undanlátssemi hans við Albani. „Ég óttast að alvarleg breyting verði á þróun mála ef Glig- orov verður þvingaður til að segja af sér,“ sagði Yannis Kapsis, aðstoð- arutanríkisráðherra Grikklands, í útvarpsviðtali í gær. „Þegar stjórn- málaleiðtogar hverfa frá völdum vegna ofbeldis, getur enginn séð fyrir hvað gerist. Hættulegustu, glæpsamlegustu og óábyrgustu öflin kunna að komast til valda... og valda mikium skaða jafnvel þó að þeim verði komið frá.“ Reuter LÖGREGLUMAÐUR skoðar Iík bílstjóra Gligorovs Makedóníuforseta. Bílstjórinn fórst í banatilræðinu við forsetann. Læknar reyna nú að bjarga sjón forsetans sem slasaðist mikið á höfði. Reuter Var eitt sinn líf á Mars? London. Reuter. BANDARÍSKIR vísindamenn sögðust í gær hafa fundið sannanir þess að eitt sinn hafi verið andrúmsloft á reiki- stjörnunni Mars sem hafi svipað til andrúmslofts jarðar. Því sé ekki útilokað að líf hafi verið á Mars. Everett Shock við Wash- ington háskólann í St. Louis og starfsfélagar hans könn- uðu brot úr kletti frá Mars sem féll til jarðar 'sem loft- steinn. Segir Shock það benda til þess þess að steinninn hafi dregið til sín einhveijar af þeim Iofttegundum sem voru í lofthjúpi stjörnunnar endur fyrir löngu. Aðrar rannsóknir sem gerðar hafa verið benda til þess að eitt sinn hafi verið andrúmsloft á Mars en ekki hefur tekist að færa á það sönnur, sökum þess að ekki hefur fundist nægilegt magn koltvísýrings í ísnum á plánet- unni eða þeim leifum af loft- hjúpi sem þar eru nú. Við rannsóknir á brotunum tóku Shock og félagar hans mið af steintegundum á Is- landi, þar sem töluvert magn koltvíoxíðs hefur losnað úr læðingi neðanjarðar vegna jarðhita og eldvirkni. Komust þeir að þeirri niðurstöðu að töluvert magn kolefna, hefði getað skilist að neðanjarðar vegna mikils jarðhita, að því er segir í Nature. Bókasafn á einum diski FRANSKA tölvufyrirtækið Cyg- net hefur sett á markað harðan disk, þann stærsta í heimi, og skotið um leið keppinautum sín- um í Bandaríkjunum og Japan ref fyrir rass. Geymslurými disksins er 16 gigabæti en það svarar til 8.000 bóka, sem eru hver 500 blaðsíður. ------» » ♦---- Banna mót- mæli kvenna í Papeete Papeete. Reuter. FRAKKAR bönnuðu í gær hópi kvenna frá löndum í Suður-Kyrra- hafi að efna til mótmælafundar í Papeete á Tahítí gegn kjarnorkutil- raunum þeirra. Fulltrúi Frakka á Tahítí sagði að bann væri lagt við mótmæla- fundi kvenna í kvöld, fimmtudag, af ótta við ofbeldisverk. Talin er hætta á, að stjórnmálamenn reyni að notfæra sér þau til framdráttar vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara í mars á næsta ári. Franska dagblaðið Le Monde birti á forsíðu sinni í gær kort sem það sagði sýna sprungumyndun í berginu við Mururoa, þar sem Frakkar framkvæma kjarnorkutil- raunir sínar. Sagði blaðið kortið hafa verið gert af franska hernum árið 1980. Hervé de Charette, utanríkisráð- herra Frakka, sagði á þinginu í gær að kortið væri fölsun og að aldrei hefðu fundist neinar sprungur. Sagði ráðherrann stjórnina íhuga málshöfðun á hendur blaðinu fyrir að dreifa röngum upplýsingum. Tony Blair hefur töglin og hagldirnar á ársþingi breska Verkamannaflokksins Fjölmiðlarnir líkja honum við Kennedy Brighton. Reuter. RÆÐA Tony Blairs, leiðtoga Verkamannaflokksins, á ársfundi flokksins í fyrradag fékk mikið lof í breskum fjölmiðlum í gær. Var honum víða líkt við John Kennedy heitinn Bandaríkjaforseta en í ræð- unni boðaði Blair endurnýjun í bresku þjóðlífi með tæknibyltingu og nýjar siðferðikröfur að vopni. Raddir þeirra vinstrimanna í Verka- mannaflokknum, sem væna Biair um að hafa brugðist sósíalismanum, virðast nú vera hljóðnaðar. Blair segist nú viss um, að flokk- urinn standi sameinaður að baki hugsjónum og stefnumálum „Hins nýja Verkamannaflokks" og sé þess albúinn að taka við völdum eftir kosningar, sem verða í síðasta lagi um mitt ár 1997. Ríkisstjórnin gagnrýnd „Þetta þing hefur ekki aðeins sýnt okkur agaðan og sameinaðan flokk, heldur flokk, sem á sér mark- mið. íhaldsmenn haga sér nú eins og þeir væru í stjórnarandstöðu,“ sagði Blair í viðtali við BBC, breska ríkisútvarpið. I ræðu sinni á þinginu sakaði Blair ríkisstjórnina um að hafa grafið undan homsteinum samfé- lagsins á 16 ára valdatíma sínum. Vísaði hann á bug ásökurium um, að barátta sín hefði fremur byggst á ákveðinni ímynd en málefnum og lofaði dagheimilisplássi fyrir öil þriggja og fjögurra ára gömul börn og færri nemendum í hvetjum skólabekk. Miklu skipti fyrir Blair, að hon- um tækist vel upp á flokksþinginu því að sumarið hefur verið honum TONY Blair, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, ásamt konu sinni, Cherie. dálítið erfitt. Mikið forskot á íhaldsflokkinn í skoðanakönnunum hefur minnkað og vinstrimenn í flokknum voru í uppreisnarhug vegna „hægristefnu" Blairs, sem þeir kalla svo. Bresku dagblöðin luku öll lofs- orði á Blair í gær og líka þau, sem ávallt hafa stutt íhaldsflokkinn. „Enginn stjórnmálamaður frá því John F. Kennedy leið hefur komið með jafn innblásið ákall til ungu kynslóðarinnar, sem er framtíðin,“ ságði í Sun, sem studdi John Major forsætisráðherra 1992, og Daily Mirror, sem styður Verkamanna- flokkinn, kallaði ræðuna „herhvöt“. Daily Mail, sem styður íhaldsflokk- inn, sagði ræðuna „afar kraftmikla" og flutningnn „næstum gallalaus- an“. Farinn að sljórna Eitt meginatriðið í ræðu Blairs var tilkynning um, að hann hefði samið um það við BT, eitt stærsta fjarskiptafyrirtæki í Bretlandi, að það kapalvæddi hvern einasta skóla, sjúkrahús og bókasafn ! land- inu ókeypis gegn aðgangi að beinl- 'ínumarkaðinum. Dálkahöfundurinn Andrew Marr sagði í Independent, að tilkynningin hefði ekki aðeins dregið upp þá mynd, að Verka- mannaflokkurinn væri „tilbúinn til að stjórna, heldur væri farinn að gera það“. Kunnir vinstrimenn og gagnrýn- endur Blairs, til dæmis Bill Morris, formaður í félagi flutningaverka- manna, hétu því í gær að vinna með Blair að sigri í næstu kosning- um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.