Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 41 + Jón Ingi Jó- hannesson húsa- smíðameistari fæddist í Hafnar- firði 21. maí 1912. Hann lést á Sólvangi í Hafnarfirði 28. september síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Jóhann- es Vilhelm Pétur Einarsson bryggju- vörður í Hafnar- firði, f. 5. desember 1870 í Hafnarfirði, d. 10. apríl 1942 í Hafnarfirði, og Steinunn Pálma- dóttir, f. 3. mars 1882 á Skinna- stöðum, Torfulækjarhreppi í A-Hún., d. 4. apríl 1946 í Hafnar- firði. Jóhannes var sonur Einars Jóhannessonar Hansen, f. 2. október 1845 í Hafnarfirði, d. 16. febrúar 1921, og konu hans Jensínu Árnadóttur Mathiesen, f. 28. maí 1852 í Hafnarfirði, d. 28. júní 1925. Foreldrar Stein- unnar voru Pálmi Pálmason, kennari í Reykjavík, f. 2. ágúst 1848 í Miðgili í Langadal í A- Hún., d. 2. ágúst 1920, og Guð- finna Sigurðardóttir, f. 27. maí 1855 í Reykjavík, d. 12. mars 1931. Systkini Jóns eru: Jón Ingi, f. 31. janúar 1909 í Hafnar- firði, d. 24. febrúar 1912, Einar, f. 24. júlí 1915 í Hafnarfirði, d. 19. nóvember 1992, skipstjóri og útgerðarmaður, og Guðfinna, f. 3. apríl 1922 í Hafnarfirði, foringi í Hjálpræðishernum í MEÐ nokkrum orðum langar okkur systkinin að minnast pabba okkar sem er látinn 83 ára að aldri. Það er undarleg tilfinning að pabbi skuli ekki lengur vera á meðal okkar. Það er eins og hluti af okkur hafi verið tekinn burt. Eftir sitja minningar um góðan pabba. Pabbi var óvenju tilfinninganæm- Noregi. Jón Ingi kvæntist 19. desember 1936 eftirlifandi eigin- konu sinni, Kristj- önu Elíasdóttur, f. 26.6. 1914 á Vaðli, Barðastrandar- hreppi í V-Barð. Bjuggu þau allan sinn búskap í Hafn- arfirði, síðustu árin á Hjallabraut 33. Börn þeirra eru: 1) Birgir, f. 26. desem- ber 1936 í Reykja- vík, skipstjóri og útgerðarmaður, kona hans er Margrét Arnbjörg Vilhjálmsdóttir og eiga þau sjö börn og 17 barnabörn. 2) Jó- hannes, f. 8. ágúst 1941 í Hafn- arfirði, skipstjóri og útgerðar- maður, kona hans var Margrét Þorláksdóttir, hún er látin. Þau áttu fjögur börn og átta bama- börn. Seinni kona Jóhannesar er Þórunn Gísladóttir. 3) Stein- unn, f. 27. maí 1951 í Reykjavík, hjúkrunarfræðingur, var gift Ragnari Danielsen og eiga þau eitt barn. Jón Ingi stundaði nám í tré- smíði við Iðnskólann í Reykjavík og starfaði ávallt við húsa- og skipasmíðar. Hann lærði á píanó og söng í kirkjukór í Hafnar- firði. Útför Jóns Inga Jóhannesson- ar fer fram frá Fíladelfíukirkj- unni, Hátúni 4, í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30* ur maður og átti mjög auðvelt mað að tjá tilfinningar sínar. Hann fór aldrei dult með það hversu vænt honum þótti um okkur systkinin. Hann átti svo auðvelt með að taka utan um okkur og láta okkur virki- lega finna hlýju og kærleika. Pabbi bar hag okkar alltaf fyrir bijósti og allar hans ákvarðanir varðandi okk- ur sem börn og unglinga miðuðu að því að vernda okkur og að við kæm- umst heil til manns. Sem unglingar fannst okkur hann helst til strangur í sambandi við útvistartíma og ákveðin boð og bönn voru í gildi. Pabbi átti auðvelt með að setja okkur mörk og setja skýrar línur í sambandi við áfengi og reyk- ingar. Það voru hlutir sem við áttum að forðast. Allir þeir sem ala upp unglinga vita að þetta er ekki auð- velt verk, en pabbi var góð fyrir- mynd, því hvorki reykti hann né drakk áfengi. Hann lagði mikið upp úr heilbrigðum lífsháttum. Pabbi var mjög músíkalskur og var næmur fyrir fallegri klassískri tónlist. Hann spilaði á píanó og gerði það af svo mikilli innlifun og næmi að unun var að hlusta á. Hann kenndi okkur að hlusta á tónlist og vakti athygli okkar á því, sem honum fannst sérstaklega hrífandi. Það var aldrei nein lognmolla í kringum pabba. Hann hafði ákveðnar skoðan- ir á öllum hlutum og hafði sérstak- lega gaman af að ræða stjórnmál hvort heldur voru innlend málefni eða utanríkismál. Oft hafði hann þungar áhyggjur af því sem var að gerast í heimspólitíkinni og tengdi það við hvaða áhrif það gæti haft á Island eða heiminn í heild. Eldheit- ari sjálfstæðismann var vart hægt að hugsa sér enda flokksbundinn sjálfstæðismaður í tugi ára. Pabbi var mjög trúaður maður og mjög einlægur í sinni trú. Hann var í hvítasunnusöfnuðinum og eignaðist marga trausta og góða vini þar í gegnum árin. Þar ríkti gagnkvæm virðing milli þeirra. Við systkinin þökkum þér, elsku pabbi, fyrir alla umhyggjuna og kærleikann sem þú sýndir okkur. Guð blessi minningu þína. Birgir, Jóhannes og Steinunn. Mér er ljúft að minnast með nokkrum fáum orðum míns kæra bróður, Jóns Inga Jóhannessonar. A unga aldri misstum við systkin- in þijú, foreldra okkar með stuttu millibili. Eðlilega urðu sérsaklega náin tengsl milli okkar systkinanna sem héldust allt okkar líf. Ég mun ávallt minnast hve hug- ljúfur og fórnfús bróðir Nonni var. Þar sem ég dvalið árum saman er- lendis hefí ég notið góðs af gestrisni hjónanna, Kristjönu og Nonna bróð- ur, ekki hvað síst mörgu skemmti- legu ferðanna sem var farið í er ég kom heim í sumarleyfi frá Noregi. Ég minnist með innilegu þakklæti allra góðra stundanna sem við áttum saman. Margar og góðar eru minn- ingarnar frá bernskuárum okkar. Það er ríkt í huga mér hve söngur og hljómlist áttu ríkan þátt í fjöl- skyldu okkar. Nonni bróðir sýndi mikla hæfi- leika er hann byijaði í píanónámi. Hann fékk sérstaka viðurkenningu frá kennara sínum er beindi athygli að, að æskilegt væri að Nonni lyki framhaidsnámi og fullnumaði sig í píanóleik. Ekki varð úr að Nonni héldi áfram á iistabrautinni. Eins og mörgu ungmenninu á þeim árum fannst honum brýn nauðsyn að koma sér sem fyrst út í atvinnulífið. Allan sinn aldur átti tónlistin ríkan þátt í lífi hans. Nonni var mörgum gáfum gædd- ur. Vandvirkni og samviskusemi voru einkenni í öllum hans störfum. Hann var mjög vel látinn í atvinnu- grein sinni, trésmíðinni. Einnig má nefna hans heilsteypta persónuleika. Nonni var í sannleika vinur vina sinna. Áhrifin frá trúuð- um foreldrum voru grundvöllur, sem setti svip á líf hans. Nonni eignaðist persónulega trú á Jesúm Krist sem sinn frelsara. Hann varð virkur með- limur í Hvítasunnusöfnuðinum. Síð- ustu ár átti Nonni við mikla van- heilsu að stríða, trúin var styrkur í hans veikindum. Er ég í dag kveð góðan bróður er það með þakklæti fyrir indælar og ógleymanlegar endurminningar. Guð blessi minningu þína. Guðfinna Jóhannesdóttir. Nú hefur elsku, besti afi minn kvatt þennan heim og alla þá er þótti svo vænt um hann. Það eina sem er eftir eru allar góðu minning- arnar er hann skildi eftir í hugum og hjörtum allra er voru svo lánsam- ir að fá að kynnast honum. Helstu minningar mínar um hann eru hvað hann var alltaf góður við mig þegar ég var lítil. Hann var allt- af að sýna mér eitt og annað JONINGI JÓHANNESSON + Hansína Hanni- balsdóttir fædd- ist á Flateyri við Önundarfjörð 22. október 1905. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 27. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Hannibal Hálf- dánarson, f. 2. ágúst 1880 á Gelti við Súg- andafjörð, og Guð- rún Sveinsdóttir, f. 1. janúar 1874 á Víf- ilsmýrum í Mo- svallahreppi I Ön- undarfirði. Systkini Hansínu voru Helga Soffía, f. 5. sept- ember 1901, d. 5. desember 1901, Hálfdán, f. 30. nóvember 1903, d. 9. júni 1981, Kristín Lilja, f. 17. ágúst 1907, Áðalheið- ur, f. 10. nóvember 1909, d. 18. júlí 1994, Bóas, f. 7. apríl 1912, d. 10. febrúar 1977, Sveinfríður Guðrún, f. 3. október 1913, Brynjólfur, f. 29. maí 1915, d. 14. mars 1963, Sólrún, f. 2. apríl 1917, Óskar, f. 6. maí 1919, d. 25. nóvember 1985. Hansína átti heima á Flateyri til ársins 1911 er hún flutti með fjölskyldu sinni að Kotum í Mos- vallahreppi. Innan við tvítugs- Kveðja Úti er þetta ævintýr. Yfir skuggum kvöldið býr. Vorsins glóð á dagsins vöngum dvín. Þögnin verður þung og löng aldur var hún farin að vinna fyrir sér í kaupavinnu og fisk- vinnu. Árið 1930 kynnist hún eftirlif- andi manni sínum, Óskari Jensen, f. 18. ágúst 1906, á ísafirði. Stofnuðu þau fyrst heimili á Isafirði og bjuggu þar til 1946 er þau tóku á leigu jörðina að Kotum er for- eldrar Hansínu fluttu til Reykjavík- ur og var heimili íjölskyldunnar þar til vorsins 1952. Eftir það bjuggu þau eitt ár í Reykjavík, fluttu þá til Danmerkur og voru þar í þrjú ár. Komu aftur til Islands sumarið 1956 og settust að í Kópavogi. Þar hefur verið heimili þeirra síðan. Börn þeirra eru Aðalheiður, f. 24. nóvember 1931, búsett í Bandaríkjunum, Gústaf, f. 3.júlí 1933, býr á ísafirði, Málfríður, f. 5. febrúar 1936, búsett í Danmörku, Anna Júlía, f. 28. mars 1940, býr í Kópavogi, Ómar, f. 25. júlí 1949, býr í Kópavogi. Útför Hansínu fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. þeim, sem unnu glöðum söng og trúað hafa sumarlangt á sól og vín. Ó, hve heitt ég unni þér - Allt hið besta i hjarta mér vaktir þú og vermdir þinni ást. Æskubjart um öll mín spor aftur glóði sól og vor, og traust þitt var það athvarf, sem mér aldrei brást. Óska ég þess, að angur mitt aldrei snerti hjarta þitt. Til þess ertu alltof ljúf og góð. - En ég vil þú vitir það, vina mín, þó hausti að, að þú varst mín sumarþrá, mitt sólskinsljóð. (Tómas Guðm.) Guð varðveiti ömmu. Við munum ætíð geyma minningu hennar í hjört- um okkar. Ingibjörg Lilja, Ninja og Sóley. Mig langar til að kveðja hana Hansínu ömmu með nokkrum orð- um, en hún lést í síðustu viku tæp- lega níræð að aldri. Ég hef alla tíð dáðst af því fólki sem þraukaði af hér á íslandi í byijun tuttugustu aldarinnar, kom börnum sínum til manns og skilaði ómetanlegu dags- verki til þessa þjóðfélags. Hún amma var ein af þessu fólki. Hún tilheyrir þeirri kynslóð íslendinga sem er fædd og uppalin við kröpp kjör en um leið verður hún vitni að einhveij- um þeim mestu breytingum sem gengið hafa yfír eitt þjóðfélag. Sem dæmi um þær breytingar má taka að Óskar afi, maðurinn hennar, sem var setjari á unga aldri í prent- smiðju á ísafirði, handraðaði í stokk þeim stöfum sem hann var að setja, en í dag vinnur sonur þeirra, sem er einnig menntaður setjari, með tölvu þar sem velta má textanum fram og til baka á alla kanta og gera hluti á örskotsstundu, sem afi hefði verið daga að framkvæma með þeim tólum sem hann hafði. Þessum breytingum hefur líka i'ylgt mikil velmegun og ég er ansi hræddur um að hún amma mín hafi átt erfítt með að skiija krepputal það sem töllriðið hefur íslenskum fjölmiðlum á undanförnum misserum. Hún var í blóma lífs síns í kreppunni miklu í kringum 1930. Þá kom jafnvel fyr- ir að fólk svalt hér á íslandi. Allan þann tíma sem okkar leiðir lágu saman varð maður vitni að því að hennar gildismat var annað en okkar sem yngir erum. Hún fór alla tíð ákaflega vel með það sem hún átti og bruðlaði ekki með neitt. Þó var hún aldrei nísk heldur þvert á móti, ákaflega örlát og gjafmild. Það var ákaflega gott að koma til hennar því hennar heimili stóð manni alltai opið og hún tók manni alltaf opnum örmum. Það er mér því mikill heiðui að hafa fengið að kynnast henni. Þó ég syrgi þig, amma mín, þá er ég einnig glaður yfir öllum þeim góðu minningum sem ég á um þig. Það er mér ákaflega mikils virði að nú í sumar þegar ég gifti mig, gast þú komið og glaðst með mér. Og gleði þín þá var tær og falleg og þannig vil ég líka sjá þig fyrir mér í minningunni. Þegar haustaði var ljóst að komið var að leiðarlokum, þú varst hvíldar þurfi. Er það mér til mikillar huggunar að ég kom í mína síðustu heimsókn til þín aðeins fáum dögum áður en þú lést. Það er mér einnig til huggunar að þú naust síðustu daga ævi þinnar umönnunar frábærra starfsmanna á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Ég veit að líf þitt var oft á tíðum erfitt og þú ert núna hvíld- inni fegin. Ég vona því og bið þess að þínar kringumstæður verði þér góðar í næsta lífi. Ég veit að ég mæli fyrir munn allra barnabarn- anna þinna um leið og ég kveð þig, elsku amma mín, og vil ég því fyrir okkar hönd senda öllum ættingjum þínum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. ' - Þinn sonarsonur, Hans Gústafsson. HANSÍNA HANNIBALSDÓTTIR skemmtilegt og man ég þá sérstak- lega eftir fallegri styttu af fugli er var geymd í stórum skáp er afi hafði smíðað sjálfur. Á hveijum degi er ég dvaldi hjá ömmu og afa bað ég full eftirvæntingar um að fá að sjá fuglinn fallega og tók afi hann þá alltaf út úr skápnum og leyfði mér, fullri hrifningar, að sjá hann. En minningarnar eru svo margar og fjölbreyttar, enda er ekki við öðru að búast þegar maður svo einstakur sem hann afi var á í hlut. Á stundu sem þessari streyma allar minningar fram og hvert atvik, hvert orð og hver tilfinning öðlast nýja merkingu. Ég á svo sannarlega eftir að sakna afa en veit þó að hann var hamingjusamur í lifanda lífí og vil ég minnast hans þannig. Arnbjörg. Við andlát vinar míns Jóns Jó- hannessonar, langar mig að festa á blað örfá kveðjuorð. Vissulega er hvíldin kær þeim er farið hefír langan veg, og farinn er að heilsu og kröftum. Þegar Steinunn dóttir hans hringdi og sagði mér andlát hans, fann ég til þess að langt var síðan ég hafði heimsótt hana, en til þess lágu ástæður, þ.á m. mín eigin veik- indi. í huga mínum er innilegt þakk- læti fyrir áratuga vináttu. Margar minningar lifa í hjarta mínu og fjöl- skyldu minnar, allt frá þeim tíma- er heimili mitt stóð við Strandgötu, en heimili Jóns og Kristjönu við Austurgötu. Steinunn dóttir þeirra og telpurnar mínar léku sér alltaf saman eins og systrahópur, og voru þá „heimagangar" á báðum heimil- unum. Synirnir Birgir, sem býr á Akranesi, og Jóhannes, sem býr í Grindavík, voru eldri og fóru fyrr að heiman. Þegar við fluttum úr miðbænum í Hafnarfirði upp á Hringbraut fund- um við fljótt að sú íbúð hentaði okk- ur ekki, og fluttum suður á Móabarð í hálfbyggt hús. Bjuggum við þar um okkur í kjallara hússins í þremur litlum herbergjum. Þar bjuggum við í ár, en þar var þó nokkuð þröngt fyrir sjö manna fjölskyldu. Aldrei mun ég gleyma hjálpsemi þeirra hjónanna er við vorum að gera það hús íbúðarhæft. Jón var húsasmiður að mennt og Kristjana einn sá mesti dugnaðarforkur, sem ég hefi kynnst. Ég var aðflutt í Hafnaríjörð. Flest af mínu fólki bjó þá enn vestur í Barðastrandarsýslu. Því varð það að ráði er systur mína Guðbjörgu Karlsdóttur og mág minn Emil Hallfreðsson, er byggðu nýbýl- ið Stekkjarholt, vantaði smið við byggingu íbúðarhússins að Jón heit- inn var fenginn til verksins ásamt Guðna heitnum Markússyni frá Kirkjulækjarkoti. Guðni lést um ald- ur fram öllum harmdauði er hann þekktu. Hann var mikill áhuga- og dugnaðarmaður og mun frekar hafa beðið Jón að vinna þau verk, þar sem þurfti nákvæmni og nostur. Þeirra samvinna var góð, og húsið á Stekkj- arholti var byggt á mettíma. Við hjónin áttum vissulega marga góða að hér í Hafnarfirði og vil ég þar að sjálfsögðu nefna tengdafólkið mitt, en ,þó síðast en ekki síst vil ég nefna samfélagshópinn okkar. Það sem tengdi okkur saman var trúin á Drottin Jesú Krist. í þeim hópi voru Jón heitinn og Kristjana. Margt af þessu fólki er farið heim til Drottins, en minningarnar lifa. Ég minnist góðra stunda á heimili Jóns og Kristjönu, en þau voru einn- ig nágrannar okkar á Móabarðinu. Jón var mjög „músíkalskur" og spil- aði á píanó. Var undravert hvað hans hijúfu smiðshendur gátu framkallað ljúfa tónlist. I hópnum var margt mjög gott söngfólk og þá var sungið og glaðst. Ekki spillti hlaðborðið hennar Kristjönu ánægjunni. Að síð- ustu langar mig að nefna og þakka hjálp þeirra og samhug er ég missti manninn minn. Slíkt gleymist aldrei. Nú er komið að kveðjustund: Syng þú svanur í friði, syng með englanna liði, (Ingibj. Sumarl.) Kristjana mín, ég votta þér og fjöl- skyldu þinni samúð sem og öðrum vinum og vandamönnum Jóns heitins. Jóhanna Karlsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.