Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 43 Skemmtilegasta skákin skAk World Tradc Ccntcr, Ncw York: HEIMSMEISTARAEIN- VÍGI ATVINNUMANNA 11. sept.-13. október 1995 ÚRSLITIN eru ráðin í heimsmeist- araeinvígi atvinnumanna í New York. Kasparov vann enn einn sigur í fyrra- kvöld þegar hann sneri á Anand í tímahraki og sneri erfiðri stöðu í fjórt- ándu skákinni sér í vil. Staðan er þá orðin 8 'A-5 ‘A og Kasparov þarf aðeins þijú jafntefli í sex skákum til að halda titlinum. Síðustu skákir hef- ur hann náð að tefla af fullum styrk- Ieika, en Anand gefíð eftir. Það eru því hverfandi horfur á að Indveijinn nái að snúa dæminu við. En skákáhugamenn fögnuðu æsi- spennandi baráttuskák í fyrrakvöld. Anand fékk gott tækifæri til að minnka muninn er hann náði að koma Kasparov á óvart með því að beita skandinavískri vöm. Áskoratidinn var kominn með ívið betri stöðu með svörtu eftir 15 leiki og hafnaði síðan jafntefiisboði heimsmeistarans. En Kasparov varðist af hugkvæmni og í 28. leik kom hann öllum á óvart með því að blása til gagnsóknar. Það reyndist vendipunktur skákarinnar og kom Anand úr jafnvægi. Indveijinn hugsaði lengi um 29. leik sinn, komst að rangri niðurstöðu og var þar að auki kominn með lakari tíma. Lokin tefldi Kasparov afar vel, en grófur afleikur Anands í 40. leik kom í veg fyrir að skákin yrði lengri. Mikil og skemmtileg baráttuskák. 14. einvígisskákin: Hvítt: Kasparov Svart: Anand > Skandinavísk vörn 1. e4 - d5 2. exd5 - Dxd5 3. Rc3 - Da5 4. d4 - Rf6 5. Rf3 Skandinavíska vömin hefur ekki verið hátt skrifuð innan fræðanna vegna þess að það brýtur gegn kenni- setningum að svartur fer út með drottninguna í upphafi tafls. Eini kosturinn er sá að hvíti riddarinn á c3 stendur í vegi fyrir hvíta c peðinu og kemur í veg fyrir að hvítur geti leikið c2-c4 og aukið þrýsting sinn á miðborðið. Anand tekst sérlega vel að nýta sér þetta. 5. - c6 6. Re5 - Be6 7. Bd3 - Rbd7 8. f4!? Hér hefur áður verið leikið 8. Rxd7 eða 8.”Bf4, en Kasparov vill tefla hvassar. 8. - g6 9. 0-0 - Bg7 10. Khl - Bf5! 11. Bc4 - e6 12. Be2 - h5 13. Be3 - Hd8 14. Bgl Eftir fjóra vandræðalega biskups- leiki í röð hefur hvítur glatað frum- kvæðinu. 14. - 0-0 15. Bf3 - Rd5! Svartur stendur nú ívið betur vegna veikleika hvíts á e4. Heimsmeistaran- um er ekki sérlega lagið að koma með áætlanir í miðtaflinu frá eigin bijósti og það hefur sýnt sig í þess- ari skák. 16. Rxd5 - exd5 Hér kom ekki síður til greina að leika 16. - cxd5. 17. Bf2 - Dc7 18. Hcl - f6 19. VIÐ upphaf einvígisins. Rd3 - Hfe8 20. b3 - Rb6 21. a4!? Kasparov gerir sér grein fyrir því að baráttan um e4 reitinn er töpuð og reynir að skapa sér mótspil á öðr- um vígstöðvum. 21. - Rc8 22. c4 - Df7 23. a5 - Bf8 24. cxd5 - cxd5 25. Bh4 - Rd6 26. a6 - b6! ur Kasparov að freista þess að grugga vatnið: 27. Re5!? - De6?! Leikið að bragði og Anand átti nú 22 mínútur eftir. En hann hefði ein- faldlega átt að taka riddarann. Sú óljósa staða sem þá kemur upp er án efa hagstæðari svarti. Kasparov hugsaði sig nú um þangað til hann átti aðeins 12 mínútur, en fann snjalla leið til gagnsóknar. 28. g4! - hxg4 29. Rxg4 - Bg7? Betra var 29. - Re4 strax. 30. Hc7! - Re4 31. Re3 -Bh3 32. Hgl - g5! I2IOMIEGA vítamín og kalk fæst í apótekinu Eini leikurinn. 32. - f5? 33. Bh5! leiðir til vinningsstöðu á hvítt. Báðir teflendur áttu nú innan við 10 mínút- ur eftir og Anand var með nokkru iakari tíma. 33. Bg4 - Bxg4 34. Dxg4 - Dxg4 35. Hxg4 - Rd6 36. Bf2 - Rb5 37. Hb7 - He4 38. f5! - Hxg4 39. Rxg4 - Rc8 40. Hd7 a t> c d • f B h 40. - Hc2?? Óskiljanlegur afleikur í síðasta leik fyrir tímamörkin. Það liggur í augum uppi að 40. - Hc3 er eini möguleik- inn til að halda baráttunni áfram. Hvítur stendur að vísu betur, en úr- slitin eru ekki ráðin. 41. Hxd5 Anand hefur misst peð og er ennþá með slæma stöðu. Hann kaus því að gefast upp. Margeir Pétursson KJÖTVÖRUR + Móðir mín og fósturmóðir, JÓRUNN GUÐMUNDSDÓTTIR frá Urriðakoti, Kleppsvegi 124, verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 6. október kl. 15.00. Ragnar Júliusson, Hildur Jónsdóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HANSÍNA HANNIBALSDÓTTIR, Þinghólsbraut 28, Kópavogi, sem lést 27. september, verður jarð- sungin fró Bústaðakirkju í dag, fimmtu- daginn 5. október, kl. 13.30. Óskar Jensen, Aðalheiður Óskarsdóttir, Gústaf Óskarsson, Kristbjörg Markúsdóttir, Málfriður G. Óskarsdóttir, Anna Júlia Óskarsdóttir, Guðmundur Vestmann, Ómar Óskarsson, Ólafía K. Sigurgarðsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN ÖRNINGVARSSON vélstjóri, Njörvasundi 18, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 6. október kl. 10.30. Guðbjörg Guðmundsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Guðmundur Jónsson, Birna Garðarsdóttir, Ingvar S. Jónsson, Hjördís Sigurbergsdóttir, Þór Örn Jónsson, Bjarnf riður Vilhjálmsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, SIGURKARL STEFÁNSSON stærðfræðingur, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 6. október nk. kl. 15.00. Anna Sigurkarlsdóttir, Stefán Sigurkarlsson, Guðjón Sigurkarlsson, Sigurður Karl Sigurkarlsson, Gísli Kristinn Sigurkarlsson, Sveinn Sigurkarlsson, Magnús Guðjónsson, Anna Guðleifsdóttir, Unnur Baldvinsdóttir, Amalía Svala Jónsdóttir, Arnheiður Ingólfsdóttir, Ragnhildur Jóhannesdóttir. / Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför bróður okkar og mágs, STEFÁNS GÍSLA GUÐMUNDSSONAR. Sérstakar þakkir viljum við færa starfs- fólki á endurhæfingardeild Landspítal- ans, Kópavogi. Brynhildur Guðmundsdóttir, Ingvi B. Guðmundsson, Agnes Kjartansdóttir, Pétur Guðmundsson, Björn J. Guðmundsson. ATVINNUA UGL YSINGAR Hafrannsókna- stofnunin Staða rannsóknamanns á nytjastofnasviði er laus til umsóknar. Starfið er einkum fólgið í innslætti, umsjón og frumúrvinnslu gagna. Leitað er eftir starfskrafti með reynslu og góða skipulagshæfileika. Umsóknir, er tilgreini menntun og fyrri störf, sendist stofnuninni fyrir 20. október nk. Nánari upplýsingar um starfið veita Sigfús A. Schopka og Björn Ævar Steinarsson. Hafrannsóknastofnunin, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, sími 552-0240. REYKJALUNDUR Þroskaþjálfar/ hjúkrunarfræðingar Deildarstjóra vantar að Hlein, sem er sam- býli fyrir fatlaða á Reykjalundi. Ennfremur vantar hjúkrunarfræðinga á hinar ýmsu deildir. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 566 6200. Hársnyrtisveinn Óskum eftir hársnyrtisveinum hálfan eða allan daginn. Upplýsingar í síma 554 6097 eftir kl. 19.00. Salon Bezt, Laugavegi 45A, 2. hæð. Vélstjóri Vélstjóra vantar á togara frá Vestfjörðum. Upplýsingar í síma 456 3870.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.