Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sænskur bæklunarskurðlæknir á Landspítalanum vegna meðfæddrar hryggskekkju barna Morgunblaðið/Rax HALLDOR Jónsson, yfirlæknir bæklunarskurðdeildar Landspítalans, og Stig Aaro, sænski skurð- læknirinn sem framkvæmdi aðgerðirnar á Alexander og Sonju Rut. Nauðsynleg þjálfun fæst aðeins í stórum samfélögum Stig Aaro, sænskur sér- fræðingur í aðgerðum á hrygg, segir að læknar á sínu sviði þurfi að búa í milljónasamfélagi til að halda sér í þjálfun. Gunnar Hersveinn ræddi við Stig Aaro, ís- lenska lækna og for- eldra barna sem Aaro gerði hryggaðgerðir á í síðustu viku. SÆNSKI skurðlæknirinn Stig Aaro, framkvæmdi skurðað- gerðir á Landspítalanum í síð- usu viku og er talið að þær hafi tek- ist vel. í fyrri aðgerðinni rétti hann hryggskekkju barns, en tilgangur seinni aðgerðarinnar var að stoppa ofvöxt í hrygg öðrum megin. Stig Aaro, sem er heimsþekktur bæklunarskurðlæknir og einn sá reyndasti á Norðurlöndunum í bækl- unaraðgerðum, gerði fjórar aðgerðir á tveimur bömum núna, en þetta er í annað sinn sem hann kemur hing- að. í vor framkvæmdi hann aðgerðir á þremur bömum. Vinnur erfiðustu tilfellin á Norðurlöndum Stig Aaro segir að hann fái mörg erfiðustu tilfelli á Norðurlöndunum í sínar hendur. Hann hefur 21 árs reynslu og gerir um 80 erfiðar að- gerðir á ári, þrjá daga vikunnar. Hver aðgerð tekur 3 til 12 tíma. Hann gerir einnig fjölda annarra bakaðgerða, eins og ti Idæmis vegna brota og verkja. Hann starfar við Háskólasjúkra- húsið í Linköping í Svíþjóð og ann- aðhvort koma sjúklingarnir til hans eða hann fer á milli landa. Hann vinnur líka aðgerðir fyrir sjúkrahúsið i Varsjá í Póllandi og fyrir ríkin á Balkanskaga. ísland of fámennt fyrir lækna eins og Stig Aaro Bæklunardeilð Borgarspítalans sendi frá sér athugasemd vegna fréttar í Morgunblaðinu um komu Stigs Aaro til landsins. í athuga- semdinni kemur fram undran á því að leitað skuli út fyrir landsteinanna eftir bæklunarskurðlækni til að gera aðgerðir á sjúklingum_ með með- fædda hryggskekkju. Ástæðan var samkvæmt athugasemdinni, sem birtist hér í blaðinu, að bæklunarað- gerðir vegna meðfæddrar hrygg- skekkju hefðu verið gerðar á Borgar- spítalanum frá 1992. Álit þeirra var að ekki þyrfti að leita til útlanda eftir þekkingu til að framkvæma þær. Hvernig svara Stig Aaro og Hall- dór Jónsson, yfírlæknir bæklunar- skurðdeildar Landspítalans sem fékk Stig hingað, þessu? „ísland er of fámennt til að bækl- unarskurðlæknir geti fengið næga reynslu," segir Stig Aaro, „Hér eru aðeins 250 þúsund íbúar, en skurð- læknir á þessu sviði þarf að minnsta kosti 4-5 milljóna samfélag til að geta haldið sér í þjálfun. Islenskur læknir gerir varla meira en 5 svona aðgerðir á ári, en þær þyrftu að vera 5 á viku til að hann geti talist þraut- reyndur. Enginn íslenskur skurð- iæknir á þessu sviði getur fengið næga reynslu í svo fámennu landi. Halldór Jónsson læknir segir að það sé einfaldlega enginn á Islandi með næga reynslu til að ráða við þær aðgerðir sem Stig Aaro var að gera. „Ég leitaði til þess besta sem ég þekki og það var Stig. Mér finnst athugasemdin frá bæklunardeild Borgarspítans orðuð eins og að þeir hefðu ekki kynnt sér hvað var að þessum sjúklingum sem hann var fenginn til að gera aðgerð á,“ segir Halldór og tekur undir að læknar þurfí að vera í mjög góðri og stöð- ugri æfíngu til að geta framkvæmt svona aðgerðir. Stig Aaro gerir fastlega ráð fyrir því að koma aftur til íslands ti! að framkvæma bakaðgerðir. „Skurð- stofan á Landspítalanum er sú besta sem ég hef starfað í. Ég var mjög hissa þegar ég sá hana vegna þess að hún er svo nútímaleg, en tækja- búnaðurinn er náttúrlega sá sami og alls staðar annars staðar.“ Var óþarfi að fá Stig Aaro hingað? Dr. Brynjólfur Mogensen, yfír- læknir bæklunarlækningardeildar Borgarspítalans telur að fjármun- unum sem ætlað er til heilbrigðis- mála sé betur varið með því að leita fyrst til þeirra sem kunni umrædd læknisverk hér á landi. ;,Ragnar Jónsson er eini læknirinn á Islandi sem kann þessa tegund af skurðlækningum og hefur náð góð- um árangri," segir Brynjólfur. „Það er sjálfsagt að leita til hans áður en farið er að leita út fyrir landstein- anna, sérstaklega ef það kostar aukafjármuni að gera það.“ Brynjólfur telur að það hefðu ver- ið eðlileg vinnubrögð að láta Ragnar Jónsson meta hvort leita þyrfti til erlendra sérfræðinga eða hvort hægt væri að gera aðgerðirnar hér heima. Halldór Jónsson, sem einnig er sérhæfður í hryggjaskurðlækning- um, segist hinsvegar hafa metið hryggskekkjur barnanna svo, að rétt væri að leita til Stigs Aaro. Morgunblaðið/Kristinn SONJU Rut Rögnvaldsdóttur leið vel í gær. En hún var átta tíma á skurðarborðinu. RÖGNVALDUR Einarsson við rúm dóttur sinnar. , , Morgunblaðið/Ásdls „MER LIÐUR VEL,“ sagði Alexander Ríkharðsson, 4 ára gamall, hjá mömmu sinni Hrafnhildi Siguijónsdóttur. Galdramenn í okkar augum BÖRNIN sem sænski læknirinn Stig Aaro gerði aðgerðir á heita Alexander Ríkharðs- son, sem er 4 ára gamall og Sonja Rut Rögnvaldsdóttir, 8 ára. Þeim líður vel og verða fljót að komast á fætur, að sögn for- eldra þeirra. Ef allt gengur vel ættu þau að komast heim eftir eina til tvær vikur. Alexander og Sonja liggja á Landspítal- anum, barnaspítala Hringsins, og heimsótti blaðamaður þau þangað. Hrafnhildur Sig- uijónsdóttir, móðir Alexanders, og amma hans, Anna Bjarnadóttir, voru hjá honum. Hrafnhildur sagði að hún hefði fengið að vita að eitthvað væri að barninu sem hún bæri á 17 viku meðgöngunnar en það var ekki fyrr en eftir fæðingu sem hægt var að segja til um hvað það var. „Það var fylgst með drengnum á 6 mán- aða fresti og röntgenmyndir, blóð-og þvag- sýni send reglulega til Svíþjóðar til grein- ingar,“ segir Hrafnhildur. „Sérfræðingur hér sagði okkur að ekki væri hægt að gera aðgerð á honum fyrr en eftir kynþroskaald- ur,“ segir hún. „Við áttum erfitt með að sætta okkur við þessa niðurstöðu, og svo fréttum við af Halldóri Jónssyni lækni og að hann hefði fengið Stig Aaro til að gera aðgerðir á þremur börnum vegna meðfæddrar hrygg- skekkju," segir Hrafnhildur. „Við settum okkur í samband við Halldór og hann sagði að það yrði að gera aðgerð á honum strax og að enginn væri færari til þess en Stig Aaro. Og nú er hann búinn að gera það. Hann skar á tveimur stöðum, á öðrum til að ná rifbeini og hinum til að nota rifbeinið til að stöðva skekkjuna. Drengurinn mun ekki bogna meira og þroskast eðlilega í framtíðinni ef allt geng- ur að óskum. Okkur finnst sem Halldór og Stig Aaro hafi gefið honum lífið aftur. Læknarnir eru galdramenn í okkar augum," segir Hrafn- hildur en hún og maður hennar Ríkharður Reynisson búa í Vogum á Vatnsleysuströnd og eiga annan son, sem er eins árs. „Við viljum koma þakklæti til starfsmanna Landspítalans sem hafa verið okkur frá- bærlega góðir.“ Sagt að Stig Aaro væri sá besti í heiminum Stig Aaro læknir spengdi saman hrygg- jarliði í baki Sonju Rutar Rögnvaldsdóttur. Foreldrar hennar eru Rögnvaldur Einars- son og Elísabet Jónasdóttir. Rögnvaldur segir að þau hafi vitað frá því hún var 2 ára að hún væri með meðfædda hrygg- skekkju. Sjúkdómurinn hafði samt ekki þjakað hana mikið fyrr en í vetur. „Við bjuggum lengi í Danmörku en þar fékk hún ekki lækningu," segir Rögnvald- ur. „Við búum núna i Reykjavík og hittum Halldór Jónsson í vor. Hann benti strax á Stig Aaro. Ég vildi samt leita víðar og fór til Bandaríkjanna. Þar hitti ég dr. John Hall viðurkenndan sérfræðing á þessu sviði við Children Hospital ofBoston. Hann var tilbúinn til að framkvæma aðgerðina á Sonju en þegar ég sagði honum að við hefð- um völ á Stig Aaro, sagði hann strax að Stig væri sá besti í heiminum og við skyld- um ekki hika við að láta hann gera aðgerð- ina.“ Rögnvaldur segist vera nyög ánægður núna. Aðgerðin hafi tekið átta klukkustund- ir og verið hættuleg vegna þess að unnið er nálægt mænunni. „Þetta lítur mjög vel út núna,“ segir hann. Sonja er í 3. bekk í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði, Rögnvaldur og Elísabet eiga einnig sex ára dreng. Rögnvaldur segir að lokum, að það hafi verið mjög gott að vera á Landspítalanum. Sonja sagðist hlakka til að byija aftur í skólanum. Hún er að ná sér á strik. Alex- ander litli sagði áður en að hann sofnaði að honum liði vel. Þau hafa bæði staðið sig einstaklega vel og miklu betur en margur fullorðinn, að sögn foreldra þeirra. Það þarf ekki lítið hugrekki til að takast á við svona erfiðar skurðaðgerðir. r I > \ i \ t L I I ( i I t s (
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.