Morgunblaðið - 05.10.1995, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sýning á íslenskri framleiðslu og þjónustu á ræðismannaráðstefnu
Ahugi og margar
nýjar hugmyndir
FJÖRUTÍU og fimm íslenskir
framleiðendur og þjónustuaðilar
kynna starfsemi sína á sýningu í
tengslum við ráðstefnu ræðis-
manna á Loftleiðum 2.-6. október.
Helgi Ágústsson, ráðuneytisstjóri í
utanríkisráðuneytinu, segir að ræð-
ismennimir hafi sýnt mikinn áhuga
á sýningunni og komið með margar
athyglisverðar hugmyndir í tengsl-
um við viðskipti milli landanna.
Helgi sagði að fyrri ráðstefnur
hefðu verið almennari eðlis. „Nú
hefur verið bryddað upp á því að
halda sýningar með kynningarbás-
um frá íslenskum fyrirtækjum.
Ræðismönnunum gefst því inn á
milli fyrirlestranna tækifæri til að
ræða við fulltrúa fyrirtækjanna
eins og þeir hafa nýtt sér. Með því
hafa myndast tengsl á milli ræðis-
mannanna og fyrirtækjanna. Við
hjá utanríkisráðuneytinu vinnum
svo að því með fyrirtækjunum að
nýta ræðismennina í viðskiptaleg-
um tilgangi,“ sagði hann.
Hann sagðist ekki hafa fundið
fyrir öðru en afar jákvæðu viðhorfi
hjá ræðismönnunum. „Sumir hafa
meira að segja komið fram með
athyglisverðar hugmyndir. Ég held
að ekki sé rétt að greina frá þeim
áður en farið hefur verið yfir þær,“
sagði hann. Af fyrirtækjum á sýn-
ingunni má nefna Hugvit, Össur,
Odda, Hafnarfjarðarhöfn, Foldu,
Flugfélagið Atlanta, Lýsi, Marel,
Eyjaferðir og Miðlun. Á ráðstefn-
unni eru m.a. haldnir fyrirlestrar
um íslenskan sjávarútveg, ferða-
þjónustu og erlenda Qárfestingu.
íslendingarnir áhugasamari
Hjá Helga kom fram að margir
ræðismannanna hefðu stundað við-
skipti við íslandi. „Ég nefni Einar
Akrann, aðalræðismanninn í Lúx-
emborg, og aldursforseta ráðstefn-
unnar. Hann kom upphaflega á
tengslum Loftleiða í Lúxemborg
og var umboðsmaður um áratuga-
skeið. Svo hafa menn verið í saltfis-
kviðskiptum, skipaiðnaði, fiskiút-
flutningi. Þannig að í hópnum eru
margir í einhvers konar viðskiptum
við Island,“ sagði Helgi og hann
tók fram að íslendingar væru farn-
ir að sýna viðskiptunum enn meiri
áhuga og honum hefði ekki heyrst
annað en fulltrúar fyrirtækjanna
væru afar ánægðir með framtakið.
Átta sendiherrar á
ráðstefnunni
Hundrað og tíu ræðismenn
sækja ráðstefnuna á Hótel Loftleið-
um. Af þrettán sendiherrum Islend-
inga á erlendri grundu sækja átta
ráðstefnuna á eigin vegum og eiga
fundi með ræðismönnum í sínum
umdæmum. Fimm, sendiherrar,
sem ekki koma til íslands í tengsl-
um við ráðstefnuna, eru ýmist
sendiherrar hjá Alþjóða stofnunum
eða fastanefndum íslendinga er-
lendis.
Morgunblaðið/Kristinn
FRÁ Umbúðamiðstöðinni eru sýndar margs konar umbúðir.
BLÁA lónið kynnir starf-
semi sína.
EYJAFERÐIR eru einn
ferðaþjónustuaðila sem sýna.
Fréttabréf Samvinnu-
bréfa Landsbankans
Hættu-
merkií
verðlags-
málum
í NÝÚTKOMNU fréttabréfi Sam-
vinnubréfa Landsbankans er fjallað
um verðhækkunarskriðu að undan-
fömu sem teflt gæti verðstöðugleik-
anum í hættu. Höfundur greinarinn-
ar sér ýmis hættumerki framundan
og telur að launaþróunin á næstu
mánuðum muni sennilega ráða úrslit-
um um hvort æskileg markmið í verð-
lagsmálum náist.
Bent er á að gengi dollarans hafi
verið að hækka að undanförnu eftir
mikið fall á fyrri hluta ársins og að
verðhækkunaráhrifin séu að byija
að koma fram hér á landi, m.a. í
hækkuðu bensínverði. Þá virðist
hækkunartilefni af ýmsum toga vera
að safnast upp hjá hinu opinbera.
Loks er bent á að launaþróunin kunni
að stefna verðstöðugleikanum í tví-
sýnu og telur höfundur greinarinnar
að hún geti ráðið úrslitum um hvort
verðbólga fari úr böndunum. Fram
kemur að þó ekki bætist meira við
launin en umsamin 3% um næstu
áramót sé hækkun þeirra þegar kom-
in að efri mörkum þess sem sam-
rýmst geti viðunandi verðstöðug-
leika. „Annars vegar gæti komið til
uppsagnar kjarasamninga fyrir lok
ársins og hins vegar, þótt þeim verði
ekki sagt upp, gæti launaskrið færst
í aukana. Niðurstaðan yrði óhjá-
kvæmilega sú sama; verðbólga
magnaðist," segir m.a. í greininni.
nylon gallar
mjög slitsterkir,
hrinda vel frá sér
Tvískiptir
Verð: 6.990.-
Stærðir 4-8
Samfestingar
Verð: 5.990.-
Stærðir: 4-8
Litir: Rautt - Blátt - Gult
5% staðgreiðsluafsláttur
Sendum í póstkröfu
whummél^
SPORTBÚÐIN
Ármuli 40 sími 581 3555
Morgunblaðið/Kristinn
Hring slegið um FB
NEMENDUR, kennarar og ann-
að starfsfólk Fjölbrautaskóla
Breiðholts slógu hring um skól-
ann í gærmorgun undir stjórn
íþróttakennara skólans, en FB
fagnaði því í gær að 20 ár eru
liðin frá því skólinn var settur
í fyrsta sinn. Með því að slá
hring um skólann var sýnt í
verki að skólinn er stærsti fram-
haldsskóli landsins. Þegar því
verki var lokið var haldin grill-
veisla á leiksvæði vestan við
skólann og boðið upp á afmæl-
istertu, en í gærkvöldi hélt svo
afmælið áfram með dagskrá í
hátíðarsal skólans og veislu-
höldum.
Stórglæsileg
4ra herb. íbúð í Jörfabakka 22. Ný eldhúsinnr. Parket.
Verð 7,2 millj. Áhv. 4 millj., greiðslub. ca 25 þús. á mán.,
hagst. lán. Mögul. að taka bíl og/eða hesthús og/eða
minni íbúð uppí og/eða hagstæða greiðsluskilmála.
Jón Egilsson, hdl.,
Knarrarvogi 4, sími 568 3737.
Sameining sveitarfélaga á
norðanverðum Vestfjörðum
Sveitarstjórn-
ir taka afstöðu
í vikunni
Isafirði. Morgunblaðið.
UNDIRBÚNINGSVINNA að sam-
einingu sex sveitafélaga á norðan-
verðum Vestfiörðum er nú á loka-
stigi. Sveitarstjórnir taka afstöðu til
sameiningarinnar fyrir 7. október og
ef tillaga um sameiningu verður sam-
þykkt er stefnt að því að kosið verð-
ur um hana meðal íbúa 11. nóvem-
ber. Sveitarféiögin sem hér um ræð-
ir eru Þingeyrarhreppur, Flateyrar-
hreppur, Mosvallahreppur, Mýrar-
hreppur, Suðureyrarhreppur og ísa-
ij arðarkaupstaður.
Samstarfsnefnd um sameinginu
sveitarfélaga á þessu svæði hélt
fund með sveitarstjórnarmönnum
viðkomandi sveitarfélaga að Holti í
Önundarfirði á þriðjudag þar sem
tillögur nefndarinnar um samein-
ingu voru kynntar. Fundinn sóttu
36 sveitarstjórnarmenn og fengu
tillögur nefndarinnar mjög góðar
undirtektir.
Megintilgangur með hugsanlegri
sameiningu er að styrkja byggð á
norðanverðum Vestfjörðum, snúa
vörn í sókn, renna traustari stoðum
undir félagslega þjónustu og efla
samstöðu byggðarlaganna. Mark-
miðið er að ná fram hagræðingu með
því að samnýta þá þjónustu sem fyr-
ir er á svæðinu. Ljóst er að fjárhags-
leg staða margra sveitarfélaga á
þessu svæði er það slæm að ekki er
unnt að mæta kröfum um aukna
þjónustu fyrir íbúa og er hætt við
að sum sveitarfélög þurfi jafnvel að
skerða núverandi þjónustu verði ekk-
ert að gert. Beinn fjárhagslegur
ávinningur af sameiningunni gæti til
dæmis orðið 18-20 milijónir króna
á ári, eða um 70-80 milljónir króna
á einu kjörtímabili, vegna minni yfir-
byggingar, segir í frétt frá nefndinni.
Með bættum samgöngum skapast
nýjar forsendur fyrir samvinnu fyrir-
tækja og einstaklinga á norðanverð-
um Vestfjörðum en sameining sveit-
arfélaga ýtir undir þá þróun. Ibúar
hins nýja sveitarfélags yrðu 4.850
miðað við íbúafjölda þann 1. desem-
ber 1994. íbúar á ísafirði voru þá
3.531, á Flateyri 379, á Þingeyri
480, í Mosvallahreppi 72, í Mýra-
hreppi 68 og 320 á Suðureyri.
Drög að bæjarmálasamþykkt hins
nýja sveitarfélags liggja fyrir. Þar..
er gert ráð fyrir að bæjarfulltrúar
verði 11, bæjarráðsmenn 5 og 7
menn sitji í hverri nefnd. Einnig er
gert ráð fyrir verulegri uppstokkun
á nefndaskipan, því einungis er gert
ráð fyrir fjórum nefndum í hinu nýja
sveitarfélagi. Með þessu móti er ætl-
unin að auka skilvirkni í stjórn sveit-
arfélagsins og flýta fyrir afgreiðslu
mála.
Samstarfsnefnd um sameiningu
sveitarfélaga var skipuð í júní 1994
af sveitarstjómum á svæðinu til að
gera tillögu um sameiningu sveitar-
félaga. í nefndinni eiga sæti tveir
fulltrúar frá hveiju sveitarfélagi.
Formaður nefndarinnar er Þorsteinn
Jóhannesson, formaður bæjarráðs á
ísafirði.