Morgunblaðið - 05.10.1995, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Neytenda-
skrifstofa
opnuðá
ísafirði
NEYTENDAFÉLAG Vestfjarða og
Neytendasamtökin hafa opnað
neytendaskrifstofu á ísafirði.
Skrifstofan mun starfa í þágu
neytenda á öllum VestQörðum og
var hún opnuð með stuðningi
þriggja sveitarfélaga; Isafjarðar,
Tálknafjarðar og Árneshrepps og
verkalýðsfélaga á Vestfjörðum.
Á skrifstofunni verður boðið upp
á kvörtunar- og upplýsingaþjón-
ustu auk þess sem gerðar verða
markaðs- og verðkannanir hjá selj-
endum vöru og þjónustu um alla
Vestfirði.
Starfsmaður neytendaskrifstof-
unnar verður Aðalheiður Steins-
dóttir, formaður Neytendafélags
Vestfjarða. Skrifstofan er í húsa-
kynnum verkalýðsfélaganna að
Pólsgötu 2 og er opin alla virka
daga frá kl. 13-16.
.-.. ----------
Bandarísk-
ar yörur
kynntar um
ailt land
ÁRLEG kynning á bandarískum
vörum stendur nú yfir í verslunum
víðs vegar um landið undir yfir-
skriftinni Amerícana. í fréttatil-
kynningu frá Menningarstofnun
Bandadríkjanna kemur fram að
Parker W. Borg, sendiherra
Bandaríkjanna muni taka þátt í
kynningum á Selfossi á morgun, í
Vestmannaeyjum 9. október næst-
komandi og á Egilsstöðum 11.
október. Einnig segir að sértilboð
á bandarískum vörum sé í mörgum
verslunum í tengslum við kynning-
ardagana, sem standa til 15. októ-
ber nænstkomandi.
Sendiráð Bandaríkjanna, ís-
lensk-ameríska félagið og íslensk-
ameríska verslunarráðið standa
fyrir hátíðarkvöldverði að Hótel
Loftleiðum 7. október í tilefni
Americana. Verða ferðamöguleik-
ar kynntir og boðið upp á krabba-
veislu að hætti Maryland-búa.
Miðasala fyrir kvöldverð er á Hótel
Loftleiðum og í bandaríska sendi-
ráðinu.
SKIPTING heimilisverka er
algengt deiluefni
Þvo veggi.
Hreinsa gólfteppi, áklæði og
gluggatjöld.
Hreinsa skorsteina.
Þurrka af eða ryksuga bækur og
þurrka úr bókahillum.
Yfírfara og gera við raftæki.
Hreinsa eldhúsviftu.
Brýna hnífa, skæri, klippur o.fl.
Bera olíu á hjarir og hurðir.
Hreinsa ljósastæði og útiluktir.
Matvæli geymd
við rétt hitastig
MIKILVÆGT er að matvæli séu
geymd við rétt hitastig til að þau
haldi gæðum sínum og neytendur
kaupi ekki köttinn í sekknum. í
reglugerðum um eftirlit með mat-
vælum, hollustuhætti við fram-
leiðslu og dreifingu matvæla og um
hraðfryst matvæli eru ákvæði um
hitastig matvæla og eftirlit með
því. Þá verður, frá 14. desember
næstkomandi, gerð krafa um innra
eftirlit í matvælafyrirtækjum og er
eftirlit með hitastigi matvæla ein-
mitt mikilvægur þáttur þar.
Til að hægt sé að uppfylla þessar
kröfur og tryggja gott eftirlit með
matvælum er m.a. hægt að nota
svokallaðan hitamælingabúnað.
Slíkur búnaður mælir lofthitastig í
kæli og frystiskápum og skráir
hann með ákveðnu millibili. Auk
þess gefur búnaðurinn frá sér við-
vörun ef hitastigið (kæli- eða frysti-
skáp fer út fyrir kjörhitastig þannig
að starfsfólk verslana getur sam-
stundis gert ráðstafanir til að mat-
vælin skemmist ekki.
Morffunblaðlð/myndasafn
ÍSLENSKUR
LANDBÚNAÐUR
ALMENNIR
BÆNDAFUNDIR
Bændasamtök íslands og landbúnaðarráðuneytið
gangast fyrir almennum bændafundum til kynningar
á endurskoðuðum búvörusamningi.
Fundirnir verða sem hér segir:
Staðurldagsetning/tími: Á fundina mæta:
Fimmtudaginn 5. október
Ýdalir, S-Þingeyjarsýslu, kl. 20:30 Ari Teitsson, Jón Erlingur
Jónasson, aðst.m. landb.ráð.
Hótel Selfoss, Selfossi, kl. 20:30 Arnór Karlsson, Hrafnkell
Karlsson, Guðmundur
Sigþórsson
Föstudaginn 6. október
Hótel KEA, Akureyri, kl. 20:30 Ari Teitsson, Guðmundur
Sigþórsson, Jón Erlingur
Jónasson, aðst.m. landb.ráð.
Heimaland, V-Eyjafjallahr„ kl. 20:30 Halldór Ásgrímsson, starfandi
landbúnaðarráðherra,
Guðmundur Sigþórsson,
Arnór Karlsson, Hrafnkell
Karlsson, Þórólfur Sveinsson
Laugardaginn 7. október
Miðgarður, Skagafirði, kl. 13:30 Halldór Ásgrímsson, starfandi
landbúnaðarráðherra,
Guðmundur Sigþórsson,
Ari Teitsson
Hótel fsafjörður, (safirði, kl. 13:30 Þórólfur Sveinsson, Jón Erl.
Jónasson, aðst.m. landb.ráð.
Sunnudaginn 8. október
Félagsh. Asbyrgi, Miðfirði, kl. 14:30 Ari Teitsson, Jón Erlingur
Jónasson, aðst.m. landb.ráð.
Dalabúð, Búðardal, kl. 20:30 Ari Teitsson, Jón Erlingur
Jónasson, aðst.m. landb.ráð.
Golfskálinn Ekkjufell,
Fellahreppi, kl. 14:00 Halldór Ásgrímsson, starfandi
landbúnaðarráðherra,
Guðmundur Sigþórsson,
Sigurgeir Þorgeirsson
Mánagarður, Höfn Hornaf., kl. 20:30 Halldór Ásgrímsson, starfandi
landbúnaðarráðherra,
Guðmundur Sigþórsson,
Sigurgeir Þorgeirsson
Mánudaginn 9. október
Hótel Borgarnes, Borgarn., kl. 20:30 Guðmundur Bjarnason,
landbúnaðarráðherra,
Jón Erlingur Jónasson,
Þórólfur Sveinsson
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 19
23. okt.
40 sœti
London
•gsa
°s
mnidas
á kr.
Flug og hótel
kr. 19.930
1.549 manns bókaðir til London
Við bætum við sætum
Við hjá Heimsferðum þökkum traustið og bætum nú við sætum í
nóvember í þær brottfarir sem uppselt var í. Við höfum nú
fengið nýtt hótel í London á hreint frábæru verði, sem við
bjóðum nú á kynningarverði 23. október. Great Eastem Hotel,
einfalt en snyrtilegt hótel í hjarta London. Kynntu þér
helgarrispu Heimsferða til London, mestu heimsborgar Evrópu á
ótrúlega hagstæðu verði. Glæsileg hótel, spennandi kynnisferðir,
besta verslunarborg Evrópu og íslenskir fararstjórar Heimsferða
tryggja þér ánægjulega dvöl í heimsborginni.
16.930
Verð kr.
Verð með flugvallarsköttum 23. október
Verð kr.
19.930
M.v. 2 í herbergi, Great Eastem Hotel, 3 nætur.
Verð með flugvallarsköttum, 23. október
Viðbótar
sæti til
London í
nóvemberl
álága
verðinu
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600,-