Morgunblaðið - 05.10.1995, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 27
LISTIR
Morgunblaðið/Kristinn
VILHJÁLMUR G. Vilhjálmsson: Vífilsstaðir I, pastelolía.
HÁKON O. Hákonarson: Brennisteinsalda, olía.
Árstíðirnar
Myndlist er heyrnarlausum mikilvægt mál.
Þóroddur Bjarnason leit inn á sýningu fjögurra
heyrnarskertra listamanna.
I LISTHÚSINU í Laugardal sýna
þau Sunna Davíðsdóttir, Arnþór
Hreinsson, Hákon 0. Hákonarson
og Vilhjálmur G. Vilhjálmsson verk
sín. Þau eru heyrnarskert og sýn-
ingin er sett saman í tilefni af
degi heyrnarlausra sem var helgina
22. - 24. september síðastliðinn.
Sýningin nefnist tónlist augans og
dregur heiti sitt af þeirri skilgrein-
ingu aðstandenda sýningarinnar
að heyrnarlausir upplifi sérstaka
tónlist með augunum. Fyrir heyr-
andi gesti er kannski erfitt að upp-
lifa verkin sem tónlist því þau eru
í engu frábrugðin annarri myndlist
sem sýnd er hvort sem hún er
gerð af heyrandi eða heyrnarlaus-
um.
Þrjár mynda Arnþórs Hreins-
sonar heita Árstíðirnar, nr. 1, 2
og 3. Nærtækt er að hugsa til
árstíða annars listamanns sem var
uppi fyrir um 300 árum og hét
Vivaldi. Hann var tónskáld og túlk-
aði þær með tilþrifum eins og Arn-
þór gerir líka en þó saknar maður
fjórðu árstíðarinnar. Myndir Arn-
þórs eru fullar af lífi og hreyfingu
og fjölskrúðugt litaspilið er yfir-
leitt bjart og skrautlegt þó dimm-
asta árstíðin sé þung í vöfum eins
og við íslendingar könnumst við
hana. Mynd hans, Náttúran hljóð-
lausa er óneitanlega hljóðlaus fyrir
blaðamann einnig og táknið í miðri
mynd minnir á undarlega tónkvísl,
hljóðlausa líka.
Einmana staur
Árstíðirnar eru ekki bara í
myndum Arnþórs heldur líka hjá
hinum listamönnunum. Vilhjálmur
teiknar landslag á vetri sem sumri
þar sem ætíð er að finna einhver
mannanna verk hvort sem það eru
hús við sjónarrönd eða einmana
staur sem einhver hefur rekið nið-
ur og skilið eftir fyrir listamanninn
að teikna.
Vetrarmyndir eru ekki algengar
hjá landslagsmálurum hér á landi
því okkur er tamara að dásama
sumarið sem staldrar alltaf stutt
við eins og fyndinn frændi sem
kemur í heimsókn einu sinni á ári.
Korpúlfsstaðir eru eitt mynd-
efna hans. Falleg mynd og verður
ósjálfrátt áhugaverð í ljósi deilna
um framtíð byggingarinnar.
Kannski væri best að listamenn
festu húsið rækilega á blað, striga
eða annað og þar með væri húsið
orðið ódauðlegt, hvað sem henti.
Borgarlandslagið er honum
einnig efniviður og breytist Breið-
holtið með húsaröðunum efst á
holtinu í eins konar virkisvegg og
kvöld í Reykjavík má skoða í sam-
hengi við sólarlag við tjörnina sem
Þórarinn B. Þorláksson málaði hér
um árið.
Ur iðrum jarðar
Tilhneiging manna til að sjá eitt-
hvað út úr myndum sem „heita“
Án titils er rík. Ég stóð mig að
því að reyna það líka og landslag-
ið kom þá upp í hugann þó mynd-
irnar séu kannski án titils til að á
þær sé litið sem sjónarspil fyrir
augað og vinnslustöðvar heilans.
Þó kvenlegt sé ekki rétta lýsingar-
orðið yfir sumar myndanna eru
þær ljúfar og unnar með natni.
Þunnur pappírinn sem settur er
yfir litaspilið hitti mínar fínustu
taugar.
Hákon 0. Hákonarson, eða H.
Oddgeir, sver sig óneitanlega í
flokk sígildra landslagsmálara og
tekur landslagið kunnuglegum
tökum þó krafturinn fyrir neðan
landslagið sem hann málar í mynd
sinni Úr Krýsuvík sé þarna með í
mynd og sýnir sig með gufu-
blæstri. Myndlist úr iðrum jarðar
komin til okkar og alla leið inn í
Laugardal í Reykjavík.
Sýningin stendur til 6. október
og er opin alla daga frá kl. 14 - 18.
SEVERIN CAFE CAPRICE kaffivélin
sýður vatniðjyrir uppáhellingu.
Hefur hlotið ótal viðurkenningar
Lagar 8 stóra bolla eða 12 litla.
Vapotronic suðukerfi.
Innbyggð snúrugeymsla.
1400 W.
Sér rofi fyrir hitaplötu.
Dropastoppari.
Yfirhitavörn.
Glæsileg
nútímahönnun
- engri lík.
Tllboðsverð
nú aðeins
kr. 9.975 stgr.
REYKJAVÍKURSVÆÐI: Byggt og Búið, H.G. Guðjónsson, Suðurveri. Glóey, Ármúla 19, Rafbúðin, Álfaskeiði 31, Hafnarf.
Miðvangur, Hafnarfirði.SUÐURNES: Stapafell hf., Keflavík. Samkaup, Keflavík. Rafborg, Grindavík. VESTURLAND:
Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi.Trésmiðjan Akur, Akranesi.Kf.Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi.
Versl.Hamar, Grund.arfirði. Versl.E.Stefánssonar, Búðardal. VESTFIRÐIR: Kf. Króksfjarðar, Króksfjarðarnesi. Skandi hf.,
Tálknafirði. Kf. Dýrfirðinga, Þingeyri. Laufið, Bolungarvík. Húsgagnaloftið ísafirði, Straumur hf., ísafirði. Kf. Steingríms-
fjarðar, Hólmavík. N0RÐURLAND: Kf. Hrútfirðinga, Borðeyri. Kf. V-Húnvetninga, Hvammstanga. Kf. Húnvetninga,
Blönduósi. Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki. KEA, Akureyri, og útibú á Norðurlandi. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Kf. Lang-
nesinga, Þórshöfn, Versl. Sel, Skútustöðum. AUSTURLAND: Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði.Kf. Fram, Neskaupsstað,
Kf. Héraðsbúa, Seyðisfirði. Kf. Héraðsbúa, Egilsstöðum. Rafalda, Neskaupstað. Kf. Héraðsbúa, Reyðarfirði. Kf. Fáskrúðs-
fjarðar. Kf. A-Skaftfellinga, Djúpavogi. Kf. A-Skaftfellinga, Höfn. SUÐURLAND: Kf. Árnesinga, Vík. Kf. Rangæinga,
Hvolsvelli. Kf. Rangæinga, Rauðalæk. Versl, Mosfell, Hellu.Reynistaður, Vestmannaeyjum. Kf. Árnesinga, Selfossi.
Mggff Einar
MmM Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28, símar 562-2901 og 562-2900.
LEIRSTYTTUR Margrétar.
Leirstyttur á Akranesi
MARGRÉT Jónsdóttir opnar
vinnustofu sína á ný að Melteigi
4 á Akranesi, laugardaginn 7.
október kl. 14 með sýningu á
leirstyttum tengdum íslenskum
þjóðsögum.
Sýningin verður opin frá kl.
16-19 virka daga en frá kl. 14-18
um helgar. Lokað á miðviku-
dögum.
Sýningunni lýkur 21. október
og eftir það verður vinnustofan
opin frá kl. 17-19 frá mánudegi
til föstudags, eða eftir sam-
komulagi.
Þessi auglýsing er birt í upplýsingaskyni ogfelur ekki í sér tilboð um sölu hlutabréfa.
EIGNARHALDSFELAGIÐ ALÞYÐUBANKINN HF.
kt. 420171-0139
Suðurlandsbraut 30
108 Reykjavík
Hlutabréf Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf.
liafa verið skráð á Verðbréfaþingi Islands.
Skráningarlýsingar, ársreikninga og samþykktir Eignarhaldsfélagsins
Alþýðubankinn hf. má nálgast hjá Verðbréfamarkaði Islandsbanka,
Ármúla 13a.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími: 560-8900. Myndsendir: 560-8910.