Morgunblaðið - 05.10.1995, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 45
Dagur frímerkisins 1995
FRIMERKI
Starfscmi FF
FRÍMERKJASÖFNUN
ER SKEMMTILEG
Félög safnara eru gagnleg
DAGUR frímerkisins verður
haldinn hér á landi næstkomandi
mánudag, 9. október. Tilgangur
hans er að kynna almenningi þessa
tómstundaiðju, sem hófst fyrir um
150 árum og tugmilljónir manna
víðs vegar um heim stunda sér til
ánægju og ekki sízt til fróðleiks
um lönd og álfur. Við höfum hald-
ið þennan dag síðan 1960. Fyrstu
árin eða jafnvel áratugi var þessi
dagur ærið líflegur í höndum frí-
merkjasafnara með ágætri sam-
vinnu við íslenzku póststjórnina.
En eins og oft vill verða með margs
konar tómstundastörf, dofnar
áhuginn nokkuð, þegar frá líður.
Þannig var einnig komið hjá okk-
ur, þar til fyrir fáum árum, að reynt
var að blása nýju lífí í Dag frí-
merkisins með sameiginlegu átaki
Landssambands íslenzkra frí-
merkjasafnara og Félags frí-
merkjasafnara, en það er lang-
stærsta félagið innan Landssam-
bandsins.
Sögu Dags frímerkisins má rekja
nær 70 ár aftur í tímann, og með
íj'ölmennum þjóðum hefur hann
víða vakið mikla athygli bæði með
sérstökum frímerkjum og ekki síð-
ur sérstimplum til þess að vekja
almenning til umhugsunar um frí-
merkjasöfnun og gildi hennar.
Frændur okkar á öðrum Norður-
löndum hafa vel og lengi notfært
sér þennan dag til þess að freista
þess að efla frímerkjasöfnun, ekki
sízt meðal unglinga. Tilgangur
okkar hér á landi beinist að sjálf-
sögðu í sömu- átt, þótt allt verði
eðlilega í smærri sniðum en meðal
félaga okkar í nágrannalöndunum.
Hraunfossar®
%J
Qr
«
o cl 'i
SÉRSTIMPILL á Degi
frímerkisins.
Á almennum fundi í FF í síðustu
viku ræddi formaður félagsins um
frímerkjasöfnun almennt og þá
samkeppni, sem hún á við að etja
í heimi fjölmiðla af ýmsum toga,
en hún hefur vitaskuld áhrif á
margs konar unglingastarf. Jafn-
framt lýsti hann yfir því um leið,
að núverandi stjórn félagsins hefði
ákveðið að hefja verulegt átak til
að kynna frímerkjasöfnun meðal
almennings og þá ekki sízt meðal
unglinga. Tóku fundarmenn vel
undir þau áform, enda ríkir mikill
einhugur i röðum frímerkjasafnara
um þessi mál. í þeim umræðum
kom m. a. fram, að þeir, sem verzla
með frímerki í Kolaportinu, hefðu
SMAORK 9. október.
iðulega orðið varir við áhugasama
safnara, sem eru að bauka við söfn-
un sína hver í sínu horni, en þekkja
jafnvel ekki til Félags frímerkja-
safnara eða annarra samtaka frí-
merkjasafnara. Til þeirra verður
ekki sízt höfðað að þessu sinni á
Degi frímerkisins. Beini ég þess
vegna orðum mínum sérstaklega
til þeirra og bið þá um að gefa
þessum degi gaum og um leið öllu
því, sem fram fer í sambandi við
hann
Þennan dag verður lítil frí-
merkjasýning haldin í húsakynnum
LÍF í Síðumúla 17, en FF efnir til
hennar. Ekki er unnt að greina frá
öllu því efni, sem sýnt verður, en
þó má stikla á nokkrum atriðum.
Svonefnd mótíf- eða minnasöfnun
verður einkum kynnt þarna, enda
fer áhugi á henni mjög vaxandi
um heim allan. Þarna má sjá frí-
merki frá ferðum páfa um heiminn
og eins Rauða kross frímerki víðs
vegar að. Þá geta áhugamenn um
bifreiðar séð margs konar tegundir
þeirra á frímerkjum, og eins verða
þarna skipafrímerki. Af íslenzku
efni verða sýndar fjórblokkir frá
lýðveldistímanum. Af erlendu hefð-
bundnu efni má nefna sovézkar
smáarkir og svo safn af þýzkum
frímerkjum. Þá má benda á safn,
sem nefnist Frímerkjalandafræði.
Frá því greini ég ekki nánar, enda
sjón sögu ríkari.
Söfnun póstst-
impla hefur orðið
vinsæl meðal
margra safnara,-
og má á þessari
sýningu bæði sjá
söfn með svo-
nefndum lapidar-
stimplum og eins
brúarstimplum.
Þótt ýmsum þyki
það e.t.v. undar-
legt, hafa safnar-
ar áhuga á frí-
merkjum, sem
sloppið hafa út á
markað með alls kyns göllum eða
villum. Hér geta menn séð safn
með villum á frímerkjum.
Þá verður hér safn, sem geta
verður sérstaklega um. Það er safn-
ið Ránfuglar í útrýmingarhættu,
sem Gunnar Garðarsson hefur sett
saman og hlotið hefur verðskuldaða
athygli og margs konar viðurkenn-
ingu. Þetta safn er á leið til Chicago
í Bandaríkjunum, þar sem Gunnari
hefur verið boðin þátttaka í ungl-
ingadeild „North American Stamp
Exhibiting Championship", sem
fram fer þar á hveiju ári. Er þetta
í fyrsta skipti, sem frímerkjasafn í
eigu íslenzks unglings hefur náð
þeim árangri að vera boðið að keppa
við hið bezta, sem þekkist í Norður-
Ameríku. Er þetta að sjálfsögðu
mikill heiður fyrir Gunnar, en einn-
ig um leið mikil viðurkenning fyrir
það unglingastarf, sem hér fer
fram.
Frímerkjasýningin í Síðumúla 17
verður opin mánudaginn 9. október
frá kl. 10-21. FF mun einnig kynna
þar starfsemi félagsins á komandi
vetri, en hún fer fram í húsakynnum
þess í Síðumúlanum. Húsið verður
opið öll fímmtudagskvöld. Fyrsti
fundur hvers mánaðar hefst á svo-
nefndum byijendafundi. Þá verða
einnig rabbfundir um frímerki og
söfnun þeirra og svo skiptifundir,
svo að dæmi séu nefnd. Félagsfund-
ir verða eftir venju síðasta fímmtu-
dag hvers mánaðar. Opið hús verð-
ur einnig á laugardögum, svo sem
verið hefur um ijölda ára. Annars
fá menn nánari upplýsingar um
þetta á sýningunni.
Ný frímerki 9. október.
Svo sem venja hefur verið um
nokkur ár á Degi frímerkisins,
gefur Póst- og símamálastofnunin
út smáörk; að þessu sinni með
tveimur frímerkjum. Myndefnið er
Hraunfossar í Borgarfirði, sem eru
alkunnir og sérkennilegt náttúru-
fyrirbrigði í Hvítá skammt fyrir
neðan Barnafossa. Örkin verður
seld á 200 krónur, en verðgildi frí-
merkjanna er 10 og 150 krónur.
Yfirverðið, 40 krónur, rennur til
NORDIA 96, sem haldin verður
hér á landi í október á næsta ári.
Að sjálfsögðu verður sérstakur
útgáfudagsstimpill notaður þennan
dag. Að auki hefur póststjórnin
heimilað notkun sérstimpils, sem
notaður verður á frímerkjasýning-
unni í Síðumúla 17. Myndefnið er
sótt í líkneskið af Leifi Eiríkssyni
hinum heppna, sem stendur á
Skólavörðuhæð. 9. október hefur
einmitt um langt skeið verið helg-
aður Leifí hér á landi og eins vest-
an hafs.
Silfurstimpill
Um nokkur ár veitti LÍF því
pósthúsi, sem talið var stimpla
bezt póstsendingar, svonefndan
„Silfurstimpil“. Verður þessi við-
urkenning að nýju tekin upp og
veitt ákveðnu pósthúsi á Degi frí-
merkisins.
Ný bók um íslenzk frímerki.
Á Degi frímerkisins kemur út
sem handrit fyrsti hluti verks, sem
formaður FF, Garðar Jóhann Guð-
mundarson, hefur unnið að, Nefnist
hún Landnámsmenn, ásatrú, frí-
merki og stimplar. Þessi bók tengir
saman við ásatrú og landnámsmenn
íslenzk frímerki og dagstimpla frá
upphafí til miðs árs 1994. Verður
bókin bæði fáanleg á sýningunni í
Síðumúla og hjá frímerkjakaup-
mönnum frá 9. október.
Jón Aðalsteinn Jónsson.
BRIPS
IJmsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bikarkeppni
Rey kj anesumdæmis
VERIÐ ER að hleypa af stokkunum
bikarkeppni Reykjanessumdæmis
og verður keppt um titilinn Bikar-
meistari Reykjaness.
Keppnin verður 40 spila útslátt-
arkeppni og spilað um silfurstig.
Skráning stendur til 13. október og
verður þá dregið í fyrstu umferð
en henni skal lokið 18. nóvember.
Skráning er hjá Karli Einarssyni
í síma 423-7595 eða Siguijóni
Harðarsyni í síma 565-1845
Bridsfélag Breiðfirðinga
Fimmtudaginn 28. septenaber var
spilað annað kvöldið af fl'órum í
hausttvímenningskeppni Bridsfélags
Breiðfírðinga. Tuttugu og tvö pör
spiluðu mitchell tvímenning með for-
gefnum spilum og tölvuútreikningi.
Eftirtalin pör skoruðu mest:
N/S-riðill
Páll Þór Bergsson - Helgi Hermannsson 373
Hrafnhildur Skúladóttir—Jörundur Þórðarson 308
Guðlaugur Sveinsson - Magnús Sverrisson 297
Baldur Bjartmarss. - Steindór Ingimundarson 291
Hæsta skor:
A/V-riðill
StureLarsen-PeterLindquist 326
Halldór Þorvaldsson - Kristinn Karlsson 282
Rósmundur Guðmundsson - Rúnar Hauksson 281
Gróa Guðnadóttir - Guðrún Jóhannesdóttir 278
Næsta fimmtudag, 5. október,
verður einnig spilaður mitchell með
forgefnum spilum og eru allir spilar-
ar velkomnir. Veitt verða verðlaun
fyrir það par sem nær besta árangr-
inum á þremur spilakvöldum af fjór-
um.
Dregið í undanúrslit
Bikarkeppni BSA
Eftirtaldar átta sveitir spiluðu sam-
an í annarri umferð í Bikarkeppni
Bridssambands Austurlands og úrslit
urðu sem hér segir:
Malarvinnslan, Egilsstöðum -
Hótel Höfn, Hornafirði 130/56
Lifeyrissjóður Austurlands, Neskaupstað -
K.H.B., Egilsstöðum 93/86
Sparisjóður Norð§arðar -
Árni Hannesson, Homafirði 117/145
Loðnuvinnslan, Fáskrúðsfirði -
Herðir, Egilsstöðum 81/135
Saman drógust í undanúrslit (sveit
með heimaleik talin á undan):
Ámi Hannesson, Homafirði -
Malarvinnslan, Egilsstöðum
Herðir, Egilsstöðum -
Lífeyrissjóður Austurlands, Neskaupstað.
50 ára bæjarkeppni Selfoss -
Hafnarfjörður
Laugardaginn 23. september sl.
komu félagar í Bridsfélagi Hafnar-
ijarðar í heimsókn og kepptu við
okkur í árlegri bæjakeppni félag-
anna. Keppni þessi var spiluð í fímm-
tugasta skipti, og óslitið frá vetrinum
1945-1946. í keppninni í ár spiluðu
tveir félagar sem voru í fyrstu keppn-
inni, en það eru Guðmundur Geir
Ólafsson heiðursfélagi hjá Selfyss-
ingum og Árni Þorvaldsson í liði
Hafnfírðinga. Keppt var á níu borð-
um í ár í tilefni tímamótanna, sam-
tals 72 keppendur, en það er þremur
borðum fleira en venjulega. Keppt
var um nýjan bikar þar sem sá síð-
asti vannst í fyrra af Selfyssingum.
Hafnfirðingar ætla greinilega að
gera tilkall til þess næsta og unnu
þessa keppni örugglega með 152
stigum gegn 112, en vinna þarf fímm
sinnum til að eignast bikarinn. Eftir
keppnina komu makar spilaranna i
hópinn og var farið á tveimur rútum
frá SBS, alls 100 manns, pg ekið
að Nesjavöllum og staðurinn skoðað-
ur. Eftir vel heppnaða ferð beið okk-
ar kvöldverður í Hótel Selfoss og að
lokum var stiginn dans til miðnættis
en þá kvöddu Hafnfirðingar og héldu
heim á leið. Að ári keppum við síðan
í Hafnarfírði.
Nezeril* losar um nefstífflur
mm Nezeril* er lyf sem losar um nefstlflur
af völdum bólgu í nefslímhúö, t.d. vegna kvefs.
Einnig er Nezeril’ notaö sem stuðningsmeðferö
viö miöeyrnabólgu og ofnæmisbólgum í nefi.
Nezeril’ verkar fljótt og minnkar bólgur I nefi
sem gerir þér kleift að anda eðlilega. Mikilvægt
er að lesa vandlega leiðbeiningar um skömmtun
sem eru á fylgiseðli með lyfinu.
Nezeril®0,5 mg^’
•ttwpray
ftrvuxna och bamf*
^sprayningar i varderank
Wofler perdag vid ÍW-
Grœnt Nezeril® fyrir ung böm
Blátt Nezeril® ffyrir fulloröna
Bleikt Nezeril® ffyrir böm
Nezerií fæst
iapótekhu
Apóteh
Nezerll* (oxymQlazolín) er lyf sem
losar nefstfflur af völdum kvefs Verkun
kemur Ujótl og varir i 6-8 klst.
Aukaverkanir: Staðbundin erting
kemur fyrir. Varúö: Ekki er ráðlagt að
taka lyttð oftar en 3svar ð dag nó
lengur en 10 daga f senn. Aö ðörum
kosti er hætta á myndun lyfjatengdrar
nefslímhimnubófgu. Ne2eril ó ekki aö
nota viö ofnæmisbólgum f nefi eða
langvarandi nefsUflu af öðrum toga
nema í samráði við læknl. Leitið til
læknis ef Hkamshiti er hærri en 38,5° C
lengur en 3 daga. Ef mikill verkur er til
staðar. t d eyrnaverkur. ber oinnig að
leita læknis.
Skömmtun: Skömmtun or
einstakfingsbundin. Lesið leiðbeiningar
sem tylgja hverri pakkningu lyfsins
Umboð og dreifing: Pharmaco hf.
ASTKA
MMiAstia ísland BBHk