Morgunblaðið - 05.10.1995, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 47
FRÉTTIR
Haustlita-
ferð Nes-
kirkju
FÉLAGSSTARFIÐ í Neskirkju hefst
7. október kl. 14.30. Þá verður farið
til Þingvalla til að njóta litadýrðar
haustsins. Á heimleiðinni verður
komið til Hveragerðis þar sem
snæddur verður kvöldverður á
Heilsustofnun Náttúrulækningafé-
lagsins.
Vetrarstarfið verður með svipuðu
sniði og undanfarin ár. Farið verður
í stuttar kynnisferðir í og um ná-
grenni borgarinnar. Þátttöku í þær
þarf ávallt að tilkynna kirkjuverði
milli kl. 14 og 16 í síma 551-6783
í síðasta lagi á föstudegi. Einnig
verða öðru hvoru fræðslu- og
skemmtistundir í safnaðarheimilinu.
Fyrirlestraröð
í Reykjavíkur-
prófastsdæmi
eystra
Á NÆSTU vikum og mánuðum
munu verða flutt erindi í Reykjavík-
urprófastsdæmi eystra um kristna
trú. Öllum er heimill ókeypis aðgang-
ur að fræðslufundum þessum. Erind-
in, sem verða flutt á fímmtudags-
kvöldum kl. 20.30, eru sem hér segir:
í Grafarvogskirkju verður haldin
fyrirlestraröð undir yfirskriftinni „Að
móta líf sitt“:
5. október: Eftirfylgdin við Krist;
Sr. Valgeir Ástráðsson sóknarprest-
ur í Seljasókn. 12. október: Miskunn-
semi og umburðarlyndi; Hólmfríður
Pétursdóttir kennari.
19. október: Þakklæti; Sr. Guðmund-
ur Karl Ágústsson sóknarprestur í
Hólabrekkusókn.
26. október: Kærleikur og kærleiks-
þjónusta; Sigrún Gísladóttir fram-
kvæmdastjóri Ellimálaráðs Reykja-
víkurprófastsdæma.
í Fella- og Hólakirkju mun verða
haldin fyrirlestraröð undir yfirskrift-
inni „Kristin siðfræði":
9. nóvember: Skiptir breytni mín
máli? Um hið góða og réttlætið. 16.
nóvember: Grundvöllur kristins sið-
ferðis; Um kærleikann. 23. nóvem-
ber: Ábyrgð og ábyrgðarleysi. Um
guðsmynd mannsins. 30. nóvember:
Glíman við sjálfan sig. Samviskan
og verk okkar, Fyrirlesari dr. Sigur-
jón Árni Eyjólfsson héraðsprestur.
í Digranessöfnuði verður haldin
fyrirlestraröð undir yfírskriftinni
„Fyrirlestrar á föstu“:
7. mars: Hvaða spumingu setur
dauðinn við mannlegt líf?; Próf. dr.
Einar Sigurbjömsson. 14. mars:
Kross og upprisa Krists; Próf. dr.
Bjöm Bjömsson. 21. mars: Eilífðin
og eilífa lífið; Sr. Vigfús Þór Áma-
sson sóknarprestur í Grafarvogs-
sókn. 28. mars: Endurkoma Krists;
Sr. Kristján Einar Þorvarðarson
sóknarprestur í Hjallasókn.
Umsjón með fræðslustundunum
hefur dr. Siguijón Ámi Eyjólfsson,
héraðsprestur í Reykjavíkurprófasts-
dæmi eystra.
Málþing um
ættfræði og
rannsóknir
FÉLAG um átjándu aldar fræði held-
ur málþing sem ber yfirskriftina
Ættfræði og rannsóknir laugandag-
inn 7. október nk. í stofu 101 í Odda,
húsi Háskóla íslands. Málþingið
hefst kl. 13.
Sex erindi verða flutt á málþinginu
og tekur hvert þeirra um 20 mínút-
ur. Þau eru: Halldór Ármann Sig-
urðsson, prófessor í almennum mál-
vísindum við Háskóla íslands: Ætt-
fræðin og akademían, Guðfínna
Ragnarsdóttir, menntaskólakennari,
ritari Ættfræðifélagsins: Ættfræð-
innar ýmsu hliðar. Ættfræði í gamni
og alvöru, Ögmundur Helgason, for-
stöðumaður handritadeildar Lbs.-
Hbs.: Ættfræðiheimildir í handrita-
deild Landsbókasafns íslands - Há-
skólabókasafns, Gísli Gunnarsson,
dósent í sagnfræði við Háskóla Ís-
lands: Af stöndugu fólki og óstönd-
ugu. Um ættir og samfélag á átjándu
öld, Haraldur Ólafsson, dósent í
mannfræði við Háskóla íslands:
Ættfræði og mannfræðirannsóknir,
og Hrafn Tulinius, prófessor í læknis-
fræði við Háskóla Islands: Ættfræði
og sameindaerfðafræði.
Að erindunum loknum verða um-
ræður um efni málþingsins. Fundar-
stjóri verður Kári Bjarnason, hand-
ritavörður. Veitingar verða á boðstól-
um í kaffistofu á 2. hæð í Odda.
Öllum er heimill ókeypis aðgangur.
Thorvaldsensfélagið
Sýning’ í tilefni
120 ára afmæiis
THORVALDSENSFÉLAGIÐ í
Reykjavík er nú að hefja 120. starfs-
ár sitt en það var stofnað 19. nóvem-
ber 1875.
í tilefni þessa merkisafmælis efnir
félagið til sýningar, í máli og mynd-
um, á sögu félagsins dagana 7. og
8. október nk. Sýningin verður hald-
in í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur
og verður opin frá kl. 12-18 báða
dagana. Aðgangur er ókeypis.
Athugasemdir við leiðara
Morgunblaðsins
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá Apótekarafélagi ís-
lands:
Fjölmiðlar hafa slegið upp sem
stórfrétt áformum tveggja lyfjafræð-
inga um stofnun nýs apóteks mið-
svæðis í Reykjavík.
I leiðara Morgunblaðsins „Aukið
frelsi í lyfsölu", sem birtist í blaðinu
27. september sl., er lagt út af þess-
ari frétt og þar segir m.a., að hér
sé um nýja tegund lyfjabúðar að
ræða, þar sem nýjungar við við-
skiptavini verði hafðar að leiðarljósi
meðal annars með því, að þeir hafí
greiðari aðgang að lyfjafræðingi en
nú er. Þá segir ennfremur, að sam-
keppni sé jafnsjálfsögð á þessu sviði,
þ.e. lyfjasölu, sem öðrum og eigi að
leiða til lægra verðs og bættrar þjón-
ustu.
I leiðaranum er ruglað saman
tvenns konar frelsi, sem Danir
greindu skýrt á milli í sinni umræðu
um lyfjadreifingu.
Athugasemd
VEGNA fréttar í Morgunblaðinu í
gær um uppsögn forsvarsmanna
Lyfju vill stjórn Apótekarafélags ís-
lands taka fram að apótekarar áttu
engan þátt í því að þeim var sagt
upp störfum hjá Astra íslands, eins
og skilja mátti á þvi sem haft er
eftir Róbert Melax.
1. Frelsi til að keppa á almennum
markaði um lyfjaverð og þjónustu.
2. Frelsi til að stofna lyfjabúðir.
Fyrra frelsið er nú þegar til staðar
hér að vissu marki, en aukning á
seinna frelsinu hefur aðeins þá afleið-
ingu, að lyíjabúðum fjölgar, en það
þarf ekki endilega að hafa í för með
sér lægra verð og bætta þjónustu.
Þá leyfa hin nýju lög rekstur
sjúkrahúsapóteka, þ.e. ríkisrekstur í
samkeppni við einkarekstur, sem er
ekki í anda heilbrigðrar samkeppni,
sem kemur neytendum til góða, sbr.
umræðu í fjölmiðlum um samkeppni
Pósts og síma við einkaaðila.
Leiðarahöfundur fullyrðir, að Al-
þingi geti ekki komið í bakið á þeim,
sem byggt hafa fjárfestingar á gild-
andi lögum með því að breyta öllum
forsendum á síðustu stundu, en heii-
brigðisráðherra hefur lýst því yfir,
að það sé vilji sinn að fresta gildis-
töku þeirra ákvæða laganna, þar sem
m.a. er fjallað um ný lyfsöluleyfi.
Þá hefur forsætisráðherra staðfest,
að um frestun frumvarpsins hafí
verið samkomulag í vor, þannig að
það ætti ekki að koma neinum á
óvart.
í leiðaranum er höfuðbreytingin
sögð sú, að lyíjafræðingar geti sjálf-
ir tekið ákvörðun um stofnun lyfja-
búða, en þurfí ekki að sæta úthlutun
á leyfi frá ríkisvaldinu. Það er veru-
legt áhyggjuefni, að leiðarahöfundur
skuli ekki vera betúr að sér um þau
málefni, sem hann skrifar um í
stærsta dagblaði landsins, því í lög-
unum segir, að umsóknir um lyfsölu-
leyfi skuli senda ráðuneytinu, sem
leitar umsagnar viðkomandi sveitar-
stjórnar. Við mat þeirra skuli m.a.
stuðst við íbúafjölda að baki lyfjabúð-
arinnar og fjarlægð hennar frá næsta
lyfjabúð.
Nýju lyfjalögin tóku gildi 1. júlí
1994, nema þau ákvæði, sem enn
er talað um að fresta, en þeim var
frestað til 1. nóvember nk. Ekki var
Alþingi fyrr búið að samþykkja lög-
in, en setja þurfti bráðabirgðalög
vegna þeirra, síðan er enn búið að
breyta þeim tvisvar. Þetta segir
meira en mörg orð um hin nýju lög
og vinnubrögð við samningu frum-
varpsins.
í áðurnefndum leiðara er mikið
rætt um þjónustu. Hefur leiðarahöf-
undur kynnt sér þá þjónustu, sem
apótekin veita viðskiptavinum sín-
um, þ.m.t. aðgengi að lyfjafræðing-
um? Hafi hann hug á því er honum
hér með boðið að skoða hvert það
apótek félagsmanna Apótekarafé-
lags íslands, sem hann kýs, hvenær
sem honum hentar, svo hann geti
kynnt sér þá þjónustu, sem þar er
veitt.
Að lokum lýsir A.í. yfir stuðningi
við heilbrigðisráðherra, Ingibjörgu
Pálmadóttur, sem ætlar greinilega
ekki að flana að neinu að óathuguðu
máli.
Félagið hefur rekið Thorvaldsens-
basar að Austurstræti 4 samfellt í
94 ár. Auk þess gefur félagið árlega
út jólamerki og jólakort.
Állur ágópi af starfmu rennur til
líknarmála og ber þar hæst stuðning
félagsins við barnadeild Landspítala.
Þegar sú deild flutti formlega á Borg-
arspítalann hinn 1. september sl.
færði félagið deildinni fímm milljónir
króna að gjöf og hefur þeirri fjárhæð
verið varið til kaupa á tíu unglinga-
rúmum og náttborðum auk skjás
(monitor) tii gjörgæslu.
Kynning á
alþjóðlegnm
sjálfboðaliða-
samtökum
RANNSÓKNAÞJÓNUSTA Háskól-
ans Rannsóknaþjónusta Háskólans
og Fræðsluskrifstofan Kría efna til
kynningar á alþjóðlegu sjálfboðaliða-
samtökunum Earthwatch í dag,
fimmtudaginn 5. október.
Earthwatch hefur það megin-
markmið að efla skilning manna á
náttúrunni, breidd mannlífsins og
þeim þáttum sem efla fagurt mann-
líf og sjálfbæra þróun. Earthwatch
stefnir að því að efla skilning al-
mennings á vísindum og gera hann
jafnframt virkari með því að styrkja
verkefni þar sem fóiki er gefinn kost-
ur á að borga með sér með sjálfboða-
vinnu og gagnasöfnun.
Samtökin hafa áhuga á að mynda
tengslahóp hérlendis sem gæti haft
milligöngu um að skilgreina verkefni
sem samtökin gætu mögulega styrkt
bæði með fjárframlögum og sjálfboð-
aliðum, segir í fréttatilkynningu.
Sérstakur gestur fundarins verður
Brian Walker, forstjóri Evrópudeild-
ar Earthwatch og einn þekktasti ráð-
gjafí Breta um umhverfi og þróun.
Fyrirlestur Walkers hefst kl. 16:15
og að honum loknum verða leyfðar
fyrirspumir úr sal. Kynningin, sem
haldin verður í Veitingasal Tækni-
garðs, Dunahaga 5, er opin öllum
þeim sem áhuga hafa á málefninu.
Villibráðarhlað-
borð í Naustinu
HIÐ árlega villibráðarhlaðborð
Naustsins hefst í dag, fímmtudaginn
5. október.
Á undanfömum ámm hefur villi-
bráðarhefðin fest sig í sessi í Naust-
inu á haustmánuðum. Á borðum eru
úr ríki villtrar náttúmnnar bæði
kaldir og heitir réttir í miklu úrvali.
Þar er bráðin ný, reykt, grafin eða
í kæfu. Verðið er 2.900 krónur.
Nemendur Mið-
bæjarskólans
koma saman
NEMENDUR Miðbæjarskólans, sem
vom í 12 ára bekk 1960-61 og þeir
sem vom í fyrsta og öðmm bekk og
luku skyldunámi 1962-63, ’48 ár-
gangurinn, ætla að koma saman í
Norðursal á Hótel íslandi föstudags-
kvöldið 6. október kl. 20, til að rifja
upp aldnar minningar. Tónlist ffá
gullaldarámnum 1960-1967 verður
leikin. Aðgangur er ókeypis, nem-
endur em hvattir til að mæta til að
hitta gamla skólafélaga.
■ ÁHVGAHÓPUR um hjólreiðar
á höfuðborgarsvæðinu stendur fyrir
hjólreiðaferð í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 5. október. Farið verður frá
Fákshúsinu við Reykjanesbraut kl.
20 og hjólað niður Fossvogsdalinn og
með Fossvogi að Suðurgötu. Síðan
um Njarðargötu og Hljómskálagarð,
niður á Miðbakka og inn með Sundum
og um Laugardal og Suðuriandsbraut
að hesthúsunum. Ollum er velkomið
að bætast í hópinn hvar sem er á
leiðinni. Ferðin tekur um 1'/? klst.
Lecaf Úlpur
Vind- og vatnsheldar
Barnastærðir st.: 8-14
Verð: 5.990.-
Fullorðinsst.: XS-XXL
Verð: 7.990.-
Margir litir.
Sendum í þóstkröfu
5% staðgreiðsluafsláttur
whummel^
SP0RTBÚÐIN
Ármuli 40 sími 581 3555
SANNUR
KARlJMAOUR