Morgunblaðið - 05.10.1995, Side 49
;
í
<
i
(
(
(
<
<
I
I
|
)
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 49
BREF TIL BLAÐSINS
Frá Eyjólfi R. Eyjólfssyni:
ÞEGAR ég var að lesa Vikublaðið
í morgun rakst ég á stuðningsyfir-
lýsingu frá Helga Seljan og þrem
öðrum Alþýðubandalagsmönnum,
við Steingrím Sigfússon til for-
manns í Alþýðubandalaginu, útaf
fýrir sig var ég ekki hissa á þessari
yfirlýsingu sem slíkri, ég hef lesið
margar og hafa þær skipst á báða
bóga. Það sem mér hefur fundist
best við flestar þessar yfirlýsingar
er hvað þær hafa verið málefnaleg-
ar, og menn hafa forðast að
skemmta skrattanum með skitkasti
og óhróðri. Ég get skrifað undir flest
af því sem Helgi og félagar skrifa,
þó var tvennt sem ég hnaut um í
greininni sem mér fínnst ég verða
að gera athugasmed við, annað er
það sem sagt er, og hitt er það sem
ósagt er og þykir mér það síðar-
nefnda öllu verra.
Snúum okkur að því fyrra, Helgi
segir í sinni grein: Það sem Alþýðu-
bandalagið þurfti öðru fremur var
samstaða og friður og það var al-
menn skoðun að þarna væri kominn
frambjóðandi, sem hægt væri að
sameinast um átakalaust (þ.e.a.s.
Steingrímur). Það er hinsvegar stað-
reynd, sem ekki verður umflúin að
strax og fleiri frambjóðendur koma
fram á sjónarsviðið, skapast tog-
Stuðn-
ingsyf-
irlýsing
streita og metingur, tilvitnun lýkur.
Hvað eru fjórmenningamir að fara,
er nokkuð óeðlilegt við að tveir frá-
bærir stjómmálamenn gefí kost á
sér til formennsku í flokknum sín-
um, og láta þau sér detta í hug að
ef Margrét hefði verið fyrri til að
gefa kost á sér, þá hefði Steingrím-
ur látið þar við sitja, og ekki látið
á sér kræla, bara til að halda frið
í flokknum.
í grein sinni segja Helgi og félag-
ar: Sá málaflokkur sem okkur ligg-
ur þyngst á hjarta er trygginga-
og hagsmunamál öryrkja. Hvergi
er niðurskurðarhnífnum beitt af
meiri óbilgimi en á þeim vett-
vangi. Alþýðubandalaginu treyst-
um við þar best til varnar og nýrr-
ar sóknar, tilvitnun lýkur. Þarna
er ég Helga og félögum innilega
sammála, en gleyma þau ekki einu.
Var ekki Margrét Frímannsdóttir
fulltrúi Alþýðubandalagsins í heil-
brigðis- og trygginganefnd Alþing-
is, og hver hefur unnið þar betri
störf en hún, varla eru Helgi og
félagar að hegna Margréti fyrir að
vinna verk sín af jafnmikilli sam-
viskusemi og hún hefur gert á þeim
vettvangi með því að styðja Stein-
grím í formannsslagnum, þar hlýt-
ur eitthvað annað að liggja á bak
við.
Ég hef unnið að málum áfengis-
og vímuefnasjúklinga í 16 ár, eftir
þvi sem vit og geta hafa leyft, á
þeim vettvangi hef-ég kynnst mann-
eskjunni Margréti Frímannsdóttur
hvað best. Mér er vel kunnugt um
óeigingjarnt starf hennar í þágu
áfengis- og vímuefnasjúklinga, um
störf hennar til að bæta aðstöðu
þess ógæfufólks sem situr í fangels-
um landsins, og ómetanlega aðstoð
hennar við aðstandendur þessa
fólks.
í framboði til forystu í Alþýðu-
bandalaginu eru tveir einstaklingar
sem standa jafnfætis, og beijast á
jafnréttisgrundvelli það er vel, og
ég mun hiklaust styðja þann sem
sigrar til góðra verka. En ég kýs
Margréti.
EYJÓLFUR R. EYJÓLFSSON
frá Hvammstanga,
Dúfnahólum 4, Reykjavík.
/
Ertu bundin á klafa vanans? Finnst þér eitthvað skorta í líf þitt?
Hefur þú gefist upp á að leita hamingjunnar í ytri gæðum?
Langar þig að sleppa höftunum og gefa þér frelsi til að njóta þess að
vera sú sem þú ert?
Vilt þú tengjast sköpunarkrafti þínum og taka þátt í að skapa veröld
kærleika, gleði og friðar?
Vilt þú læra að þekkja mörk þín og gera öðrum grein fyrir hver þau eru?
Vilt þú láta rödd þína heyrast?
Vilt þú kynnast hinni líkamlegu og andlegu munúð sem þú öðlast þegar
jarðorkan tengist þínu æðra sjálfi?
Jóga, leikir, dans og gleði.
Námskeiðið er frá 9.-25. október á mán./mið. kl. 20-23.
Leiðbeinendur Áslaug HSskuldsdóttir og Ása Jóhannesdóttir.
____________ Kynning laugardaginn 7. okt. kl.13.
Jógastöðin Heimsljós, Armúla 15. 2. hæö, s. 588 4200.
Móðurstöð Kripalujóga á íslandi.
II
Mannfræði og
sannfræði
Frá Þorstein Guðjónssyni:
ÞAKKAVERT er það, og reyndar
sjálfsagt, að fjömiðlar hafa sýnt hinu
nýfundna kumli í Skriðdal eystra
áhuga og skýrt frá ýmsu um fund
þess og upptöku, eftir að loks var
hafist handa um rannsókn. Áhuga-
verðari þykir slík rannsókn nú en
áður. Furðu mína vakti hins vegar
sú staðhæfíng, sem víða kom fram
í þessu sambandi, að forn-íslending-
ar („víkingar") hefðu verið svo litlir,
ég endurtek litlir, að meðalhæð karl-
manna hefði mælst um 165 cm.
(Hæð kvenna um 10 cm minni).
Nokkrum dögum síðar var meðal-
hæðin komin niður í 160 cm, en hin
fundna beinagrind talin 190 cm og
talað um „risa“ í því sambandi. Ég
fór nú að hringja í fræðinga til að
spyija eftir heimildum um mælingar
á fornbeinum, sem þetta sýni, en
um þær vissi enginn.
Talið hefur verið af góðum mann-
fræðingum og mælingamönnum, að
meðalhæð karlmanna á goðaveldis-
tíma hafi verið um 172 cm. en þó
kan sumt að benda til meiri líkams-
hæðar. (Sbr. til dæmis Kristján Eld-
jám: Saga íslands 1. bindi 1974.)
„Risinn" í Skriðdal mun eftir bein-
unum að dæma hafa verið a.m.k.
180 cm hár, en allt það sem framyf-
ir það hefur verið nefnt er óstað-
fest. Það getur verið, en er ekki víst
ennþá.
Ætla mætti eftir lýsingu, að Eg-
ill Skallagrímsson hafí varla verið
lægri en 190 cm en ef til vill mun
hærri.
Ruglið um 160 cm líkamshæð
mun eiga rætur sínar í dálítið sér-
stöku hugarfari nokkurra lærdóms-
manna, sem eiga erfítt með að sætta
sig við það, sem sannara reynist.
Eins og til dæmis þessir, sem ætla
að telja mönnum trú um að kvæði
Egils Skallagrímssonar — sem eru
meðal gimsteina heimsbókmennt-
anna — séu skálduð inn í tilbúna
sögu til þess að láta líta svo út að
hún væri sönn. (!) Það er samræmið
milii sögunnar annars vegar og
kvæða og vísna hins vegar sem
mest hefur angrað þá sem ekki
mega hugsa til þess, að sagan sé
sönn: Egill er hinn sami í eigin kveð-
skap og í lýsingu sögunnar. En þetta
ber auðvitað þannig að skilja að
söguhöfundurinn, sem hefur verið
þaulkunnugur kveðskapnum, hefur
gert hann að uppistöðu í mannlýs-
ingu sinni eða a.m.k. fágað lýsing-
una eftir honum.
Ártalið á hinu hugsaða tiltæki er
uppgefíð 1240, svo að ætla mætti,
að vinnubrögðin væru nákvæm. En
það eru þau ekki, því vitnað er í
kvæði Egils um 1225 í Skáidskapar-
málum, enda er allur þessi mála-
rekstur gegn sögunni næsta brosleg-
ur.
Furðuleg er hræðsla sumra ís-
lendinga við allt sem betur varpar
ljóma yfír foma sögu lands og lýðs.
Ég held að hún hljóti að vera algert
einsdæmi, þessi barátt sumra íslend-
inga gegn eigin sögu þjóðarinnar.
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 14, Reykjavík.
sFrilel
djúpsteikingarpoftana
Sérhannaðir pottar fyrir heimili sem
steikja eins og pottar á
veitingastöðum.
Helstu kostir:
Olian brennur ekki og hún endist
þrisvar sinnum lengur.
18/10 stál í potti - engin tæring frá áli.
Frönsku kartöflurnar verða
stökkar og fallegar.
Auðveld þrif.
Ytra byrði hvítt eða stál.
Stærðir: 2, 3, 3.5 og 4lítra.
Verð frá aðeinskr. 9.900.
Kfí Einar
Kr Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 © 562 2901 og 562 2900
i alain
: mikli :
LIN5AN
Aöalstræti 9
\