Morgunblaðið - 05.10.1995, Síða 50
50 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
>
95
Afbestugerð
FÖSTUDAGUR KL 14:00- 16:00
í VERSLUNUM KÁ SUÐURLANDI
SCANDIC HÓTEL LOFTLEIÐUM UM KVÖLDIÐ
0
KÁ VERSLANIRNAR
SCANPIC
LOPTLIIDtR
*j- ^.rr.•'.-'#*!$■ **t-- •■ ■# - - 4* ’ti ■". ■-»- "8-V* —4*1 i£—
ai«E^S»58i»ii^SOT»aa«a»^SS«M»a»BB^£w»wffiw^j&<JK«5iCi^>ÆS«5SBS^*fe5:^TOS«»»ÆiSS^LMfe^53wÆ«iSS5SStw&aÆaMMwi^a<SSSS58
, INTERNET
NAMSKEIÐ, 12 klst.
Kynning á uppbyggingu og sögu Inter-
netsins, tölvupósti og veraldarvefnum.
Farið í helstu þætti Netscape fyrir vefinn
og Eudora fyrir póstinn. Farið í skráarflutning
með FTP og IRC samtalsrásirnar.
Farið í notkun Telnet til að tengja saman tölvur.
Finger notað til að leita að tölvum og notendum.
Gagna leitað. Með námskeiðinu fylgir bók um
Internetið og frí áskrift í einn mánuð að Trekneti
sem veitir alhiiða Internet þjónustu.
Upplýsingar og skráning í síma 561 6699.
Hvaða litur
hentar
þér?
Dagana 5. og 6. október
kynnum við nýjung
í húð- og litgreiningu frd Clinique
Líttu inn ogfáðu leiðbeiningar þérað kostnaðarlausu
eða hringdu og pantaðu tíma.
Sny/itisto{cm ^/tund
Grænatúni I, Kópavogi, sími 554 4025.
> CLiNIQUÉ
I00% ilmefnalaust
IDAG
SKAK
Umsjón Marjjcir
Pétursson
HVITUR leikur og vinnur
Staðan kom upp í B flokki
á Haustmóti Taflfélags
Reylqavikur sem nú stendur
yfir. Bragi Þorfinnsson
(2.185) var með hvítt og
átti leik, en Kjartan A.
Maack (1.880) hafði svart.
20. Rf5+! - Kf6 (Eftir 20.
gxf5 21. Dh6+ er svartur
mát í næsta leik) 21. Dh4+
- Rg5 22. dxe5+ - dxe5
23. Hd6+ og svartur
gafst upp því 23. - He6
stoðar ekki vegna 24.
Dh8 mát.
Bragi, sem er 14 ára
og á meðal okkar efnileg-
ustu skákmanna, er tal-
inn sigurstranglegastur í
B flokki. Hann gerði það
gott um helgina með fé-
lögum sínum í Æfinga-
skóla Kennaraháskóla
Islands, en þeir sigruðu
með yfírburðum á Norð-
urlandamóti grunnskóla í
Danmörku.
Vegna deildakeppni
Skáksambandsins er ekki
teflt um helgina á haustmót-
inu. Sjötta umferðin fer fram
næsta miðvikudag í félags-
heimili TR, Faxafeni 12.
B h
Með morgunkaffinu
Nei, ég er bara í eld-
húsiriu. Eg skal gefa
þér samband við
þann sem ræður hér.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til fðstudags
Tapað/fundið
Týnt hjól
BLEIKT og gult stelpu-
hjól af gerðinni Jazz Trek
hvarf úr Frostafold 45 í
september. Hafi einhver
orðið var við hjólið er
hann vinsamlega beðinn
að láta vita í síma
587-1964.
HerrafraJkki
tapaðist
GLÆNÝR svartur herra-
frakki tapaðist á Sólon
Islandus sl. laugardags-
kvöld. Finnandi er vin-
samlega beðinn að
hringja í síma 562-5713
eða 565-9168.
Seðlaveski
tapaðist
UÓSBRÚNT seðlaveski
tapaðist úr tösku sem
gleymdist í strætisvagni,
leið 3, sl. mánudag. Task-
an, sem veskið var í,
fannst í strætisvagninum
en þá var peningaveskið
horfið úr henni. Ekki voru
miklir peningar í veskinu
en ýmis skilríki og aðrar
alveg bráðnauðsynlegar
upplýsingar sem koma
engum nema eigandanum
til góða, m.a. frá læknum.
Ef sá sem tók veskið les
þessar línur er hann vin-
samlega beðinn að skila
veskinu í Félagsmiðstöð-
ina í Aflagranda 40 eða
senda það heim til við-
komandi, því öll skilríki
voru í veskinu með upp-
lýsingum um nafn og
heimilisfang, eða hringja
í síma 551-8569.
Mittisúlpa fannst
MITTISÚLPA á ungling
fannst á Brekkugötu í
Hafnarfírði sl. mánudags-
kvöld. Upplýsingar í síma
565-4387.
Gæludýr
Köttur í
heimilisleit
ÁTTA mánaða mjög fal-
leg bröndótt læða fæst
gefins. Upplýsingar í
síma 424-6638.
Síamshögni í
óskilum
UNGUR síamshögni hef-
ur verið í óskilum í Ár-
bæjarhverfi í u.þ.b. þijár
vikur. Kannist einhver við
að hafa týnt slíku dýri er
hann beðinn að hafa sam-
band í síma 587-1260.
HÖGNIHREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
DEILURNAR um aldur Mið-
húsasilfursins kölluðu fram
margar sögur og vísur. í þeim var
lagt út af hinum ýmsu kenningum,
þ.á m. þeirri, að enginn sjóður sé
eldri en yngsti gripur hans og þá
engin þjóð eldri en yngsti þegn
landsins.
Víkverji heyrði í þessum umræð-
um sagt frá elztu skóflu í sveit
norðanlands. Skófla þessi var í eigu
afa sögumanns og hafði fylgt búi
hans svo langt sem minni manna
náði. „Hann afi minn,“ sagði sögu-
maðurinn, „á elztu skóflu sveitar-
innar. Það var afi hans sem keypti
hana í kaupfélaginu á sínum tíma
og aðrar skóflur eru ekki eldri fyr-
ir norðan. Reyndar er búið að
skipta fimm sinnum um skaftið og
fjórum sinnum um blaðið. En það
breytir auðvitað ekki því, að eftir
sem áður er þetta langelzta skófla
sveitarinnar. Og þótt víðar væri
leitað"!
XXX
UNNINGI Víkverja lenti í
miklum svaðilförum á fjöl-
skyldubílnum á dögunum. Ferðin
er ekki í frásögur færandi fyrir
aðrar sakir en afleiðingar hennar.
Kunninginn þurfti nefnilega að
þrífa bílinn rækilega að innan og
utan eftir bílferðina. Hann hafði
hins vegar nóg á sinni könnu og
ákvað því að fara með bílinn á bón-
og bílaþvottastöð og varð Bón- og
bílaþvottastöðin á Bíldshöfða 8 fyr-
ir valinu þó langt væri að fara.
Heppnin var hins vegar ekki með
kunningja Víkveija því þegar enn
var langt ófarið á bílaþvottastöðina
punkteraði á bílnum (kunninginn
er akureyrskur) og hann gat ekki
með nokkru móti skipt um dekk
því hann var í betri fötum og bíllinn
haugdrullugur.
Enginn gerði sig líklegan til að
aðstoða kunningjann og ákvað hann
að ekki væri annað til ráða en að
ganga til baka í vinnuna, sem og
hann gerði. Þegar þangað var kom-
ið velti hann því fyrir sér til hvaða
ráða hægt væri að grípa en ákvað
síðan, af rælni, að hringja í bíla-
þvottastöðina og lýsa vandræðum
sínum. Hann sló á þráðinn og var
þegar í stað boðið að skipt yrði um
dekk, bíllinn þrifinn og honum skil-
að aftur á tilteknum tíma. Andaði
kunninginn léttar og taldi málum
sínum borgið.
xxx
EGAR leið á daginn fór hins
vegar að sækja á hann sú
hugsun að líklega væri hann að
steypa sér í heljarinnar kostnað
með því að þiggja þjónustu bíla-
þvottastöðvarinnar. Hann tók hins
vegar þá ákvörðun að láta eins og
ekkert væri og bíða örlaga sinna.
Bifreiðin renndi í hlað vinnustaðar-
ins á fyrirfram ákveðnum tíma,
spegilgljáandi og fögur, og starfs-
maður bílaþvottastöðvarinnar af-
henti kunningjanum lyklana ásamt
reikningi.
Kunninginn var heldur undrandi
þegar hann leit á reikninginn því
hann hljóðaði aðeins upp á 3.300
kr. eða heldur lægri upphæð en
hann hafði reiknað með og var í
því innifalinn kostnaður vegna
skiptingarinnar, þrifa, og aksturs
fram og til baka. Kunninginn var
yfir sig ánægður og hrósaði fyrir-
tækinu í hástert þegar hann sagði
Víkveija söguna.