Morgunblaðið - 06.10.1995, Síða 4
| r.QPÍ flStíd'l'XO HUÍUitVJ’fa&Í
4 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995_____________________________________
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Tillögur starfshóps á vegum borgarsljóra um úrbætur í miðbæ Reykjavíkur
BORGAKYFIRVÖLD hafa
skipað framkvæmda-
nefnd um málefni mið-
bæjarins sem hafi víð-
tækt umboð til þess að hrinda í
framkvæmd ákvörðunum sem tekn-
ar verða til úrbóta á ástandinu i
miðbænum að næturlagi um helg-
ar. Meðal tillagna sem starfshópur
skipaður af borgarstjóra hefur skil-
að í samnefndri skýrslu og fram-
kvæmdanefndinni er ætlað að
hrinda í framkvæmd er að sjálfræð-
isaldur verði hækkaður úr 16 árum
í 18 ár, reglum um opnunartíma
vínveitingahúsa verði breytt, settar
verði upp eftirlitsmyndavélar í mið-
bænum og löggæsla aukin.
Framkvæmdanefndin er skipuð
til tveggja ára og er ætlað að sam-
ræma aðgerðir einstakra aðila,
fylgja eftir samþykktum borgarráðs
og fylgjast með ástandi mála í mið-
borginni. Nefndin er skipuð félags-
málastjóra Reykjavíkurborgar,
fsamkvæmdastjóra íþrótta- og tóm-
stundaráðs, framkvæmdastjóra
Þróunarfélags Reykjavíkur og lög-
reglustjóranum í Reykjavík.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að búið sé að
kortleggja vandann og nú þurfi að
samhæfa krafta og samræma að-
gerðir margra aðila. Sumar af þeim
— aðgerðum sem grípa þurfi til séu á
vald- og verksviði borgarinnar en
annað á sviði dómsmálaráðuneytis
og enn annað á sviði löggjafarvalds-
ins. „Þar er ég ekki síst að tala um
löggjöf varðandi áfengismál og
reglugerðir um vínveitingaleyfi og
sjálfræðisaldur,“ sagði Ingibjörg
Sólrún.
Lágur sjálfsræðisaldur
veldur vanda
Unglingar á íslandi öðlast sjálf-
ræði 16 ára gamlir og lögræði 18
ára. Ingibjörg Sólrún segir að þessi
staðreynd skapi mikinn vanda fyrir
yfirvöld og foreldra. Hún segir að
allir sem að gerð skýrslunnar komi
leggi áherslu á það að það þurfi
að hækka sjálfræðisaldurinn úr 16
árum í 18 ár. ísland sé líklega eina
land Norður-Evrópu þar sem því
er svo háttað að unglingar öðlist
sjálfræði 16 ára gamlir.
Meðal forgangsmála í tillögum
nefndarinnar er að settar verði upp
eftirlitsmyndavélar í Austurstræti,
Lækjartorgi og Lækjargötu, en
áætlun um slíka uppsetningu liggur
fyrir hjá lögreglunni. Aðgerðum
Morgunblaðið/Júlíus
tiM helgar flykkjast unglingar þúsundum saman í miðborg Reykjavíkur,
Sjálfræðisaldur
hækki í átján ár
löggæslu, félagsmálayfirvalda og
íþrótta- og tómstundaráðs til að
halda börnum 15 ára og yngri frá
miðborginni verði haldið áfram og
markvisst verði stefnt að því að
fækka ungu fólki 16-19 ára frá
miðborginni um helgar, t.d. með
skipulagningu unglingadansleikja
og lengri opnunartíma félagsmið-
stöðva.
84 vínveitingastaðir
í miðborginni
Samtals er 91 veitingastaður
starfræktur í miðborginni og af
þeim hafa 84 vínveitingaleyfi.
Nefndin telur það forgangsmál að
opnunartíma vínveitingahúsa verði
breytt. Tvær leiðir eru nefndir.
Annars vegar að vínveitingastaðir
loki á miðnætti eða kl. 1 og veitt
verði leyfi fyrir 4-5 næturklúbba á
mismunandi stöðum í Reykjavík til
að hafa opið til kl. 4 eða 5 á morgn-
ana. Hin leiðin er sú að opnunartími
vínveitingastaða verði frjáls en sett
mun strangara skilyrði um stað-
setningu, hávaða, aðkomu og rekst-
ur.
Starfshópurinn leggur til að veit-
ingamönnum verði gert skylt að
hafa á áberandi stað í anddyri skilti
þar sem greint er frá hámarksfjölda
gesta. Reglum um leyfi til vínveit-
inga verði breytt þannig að í þeim
verði ströng skilyrði varðandi stað-
setningu vínveitingastaða. Skilyrði
til reksturs vínveitingastaða verði
hert með tilliti til búsetu, ábyrgðar
og sakaskrá leyfishafa og reglur
um hávaða frá vínveitingastöðum
verði hertar. Starfshópnum þykir
eðlilegt að skoðað verði hvort út-
gáfa vínveitingaleyfa eigi að vera
í höndum sveitarfélga en ekki lög-
reglu eins og nú er. Reykjavíkur-
borg gefi út vínveitingaleyfi en lög-
reglan verði umsagnaraðili. Eftirlit
með vínveitingahúsum verði á veg-
um sveitarfélaga. Lagt er til að
borgaryfirvöld og lögregla taki
höndum saman um að beina því til
ríkisvaldsins að viðurlög við fram-
leiðslu og dreifingu á landa verði
hert og aðgangur unglinga að
skemmtistöðum þar sem áfengi er
selt verði hert.
Aukin löggæsla
Lögreglan í Reykjavík leggur til
að sérstakir lögreglumenn verði
ráðnir til þessara sérstæðu eftirlits-
starfa og komi þeir m.a. í stað
núverandi vínhúsaeftirlitsmanna.
Nauðsynlegt er talið að eftirlits-
menn hafi lögregluvald til þess að 1
hægt verði á markvissari hátt að |
halda uppi lögum og reglu hvað j
þennan þátt löggæslustarfans varð-
ar og lögreglunni gert kleift að
grípa fyrr inn í mál sem þurfa
skjótra úrlausna við.
Starfshópurinn leggur til að
Austurstræti verði haldið opnu fyrir
bílaumferð eins lengi og kostur er
að kvöld- og næturlagi. í skýrslu
starfshópsins kemur fram að ,
fimmtungur af fjárveitingu lög- *
reglustjóraembættisins í Reykjavík |
vegna yfirvinnu sé varið til að halda k
uppi gæslu í miðborginni um helg-
ar. Lagt er til að löggæsla verði
aukin í miðborginni og að lög-
gæsluáætlun frá 1991 verði fylgt
eftir. í þeirri áætlun lagði lögreglan
til að tvær lögreglubifreiðar, hvor
mönnuð 3 lögreglumönnum, yrðu
staðsettar á Lækjartorgi og í Aust-
urstræti við Pósthússtræti. Jafn- i
framt sé nauðsynlegt að fjölga óein-
kennisklæddum lögreglumönnum á )
vakt í miðborginni um helgar. |
Starfshópurinn gerir tillögur um
að öll þjónusta við almenning í mið-
borginni verði bætt, t.a.m. síma-
þjónusta, næturakstur strætis-
vagna úr miðborginni, skipulag á
akstri leigubíla, komið verði upp
viðunandi hreinlætisaðstöðu, snyrt-
ingum fjölgað og öll umgengni í
miðborginni verði bætt. |
Borgarráð samþykkti jafnframt w
í byrjun vikunnar tillögur að stefnu
Reykjavíkurborgar i vímuvörnum |
og hefur verið skipuð framkvæmda-
nefnd um vímuvarnir sem í eiga
sæti fulltrúar Reykjavíkurborgar
og forvarnardeildar lögreglunnar í
Reykjavík.
Nefndin leggur til að ítrekuð
verði nauðsyn þess að farið sé eftir
útivistarreglum unglinga. Að mati
starfshóps sem vann tillögurnar fc
hefur vímuefnanotkun aukist meðal |
ungs fólks og umburðarlyndi al- w
mennings gagnvart þeirri þróun ■
virðist einnig hafa aukist. Starfs-
hópurinn telur að þessu verði ein-
ungis snúið við með samstilltu átaki
allra sem tengjast og starfa með
ungu fólki.
Morgunblaðið/Þorkell
BÁTASMIÐIRNIR með framleiðslu sína, frá vinstri: Gunnar Finnur Gunnarsson,
Steini Orri Steingrimsson og Aron Þór Leifsson.
Æ,
íslandsmet í bréfbátagerð
ÞRÍR ungir menn tóku sig til
fyrir skemmstu og bjuggu til
hvorki meira né minna en 123
bréfbáta á einni kiukkustund.
Þessir ungu menn heita Steini
Orri Steingrímsson 11 ára, Aron
Þór Leifsson 10 ára og Gunnar
Finnur Gunnarsson 11 ára og eru
allir úr Kópavoginum.
í samtali við Morgunblaðið
segir Steini að Aron hafi búið
yfir nauðsynlegri kunnáttu til að
búa til bréfbáta. Hann hafi kennt
félögum sínum vinnubrögðin.
„Svo fórum við að gera þetta í
skólanum og stofnuðum félag um
starfsemina. Það lognaðist þó
strax út af, en við fengum þá
tessa hugmynd að reyna að setja
slandsmet í greininni,“ segir
Steini.
Meðfylgjandi mynd er tekin í
stofunni hjá Steina. Aðspúrður
sagði hann að sennilega væru
þeir ekki hættir í bréfbátagerð
og væru að hugsa um að reyna
að bæta metið í framtíðinni.
Óseldar íbúðir í félagslega kerfinu á
Vestfjörðum að sliga sveitarféiögin
Andvirði íbúð-'
annahundruð
milljóna króna >
ísafirði. Morgunblaöið.
SVEITARFÉLÖG á norðanverðum
Vestfjörðum eiga við gríðarlegan
vanda að etja varðandi óseldar ibúð-
ir í félagslega húsnæðiskerfinu. Sölu-
andvirði þeirra hleypur á hundruðum
milljóna króna og er ljóst að til viða-
mikilla aðgerðaþarf að grípa af hálfu
löggjafans og Byggingasjóðs verka-
manna til að leysa vandann sem safn-
ast hefur upp á undanförnum árum.
Eftir áralangar tilraunir sveitar-
stjórans á svæðinu til að fá félags-
málaráðuneytið til að grípa til að-
gerða, hefur nú verið skipuð þriggja
manna nefnd sem fínna á framtíðar-
lausn á þessum málum.
íbúðir hafa ekki elst í 3 ár
ísafjarðarkaupstaður hefur um
200 félagslegar íbúðir á sínum snær-
um, af þeim eru 19 óseldar og hafa
verið lengi, eða allt frá árinu 1992.
Verðmæti íbúðanna er um 168 millj-
ónir króna og þyrfti að afskrifa
nokkrar þeirra verulega til að þær
seldust, en sem dæmi má nefna að
3ja herbergja íbúð er seld á 8—12
milljónir króna í dag. Stærstur hluti
þeirra er í dag á svæði sem hefur
verið lýst sem hættusvæði vegna
snjóflóða. Þingeyrarhreppur er með
10 íbúðir óseldar af þeim 24 sem eru |
í félagslega íbúðakerfinu og er verð 1
þeirra talið um 60 milljónir króna.
Reynt hefur verið að nýta óseldar
íbúðir þar fyrir kennara og hjúkrun-
arfólk.
Sömu sögu er að segja af öðrum
sveitarfélögum á Vestfjörðum, víða
eru íbúðir óseldar í félagslega kerfinu
vegna of hás verðlags. Nefnd þeirri
sem sett hefur verið á laggirnar til
að finna lausn á þessum vanda hafa
ekki verið sett nein tímamörk og er S
því ekki ljóst hvenær raunhæfar til- I
lögur til úrbóta líta dagsins ljós.