Morgunblaðið - 06.10.1995, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995 21
FRÉTTIR: EVRÓPA
Bjerregaard
boðið til
Mururoa
París. Reuter.
FRAKKAR hafa boðið Ritt Bjer-
regaard, sem fer með umhverfis-
mál í framkvæmdastjórninni, að
heimsækja kjarnorkutilraunastöð
sína í Suður-Kyrrahafi. Bjerrega-
ard hefur sakað Frakka um að
leyna eftirlitsmenn Evrópusam-
bandsins upplýsingum.
Talsmaður franska utanríkis-
ráðuneytisins sagði Michel Barni-
er, Evrópuráðherra Frakka, hafa
komið þessu boði áleiðis til Bjer-
regaard.
Hann tók þó ekki fram hvort
Bjerregaard fengi að heimsækja
þau tilraunasvæði er eftirlits-
mönnum ESB var meinað að heim-
sækja í síðustu viku. Þeir fengu
að heimsækja tilraunastöðuna í
Mururoa en ekki þá við hliðina, í
Fangataufa, þar sem Frakkar
framkvæma stærstu sprengingar
sínar.
Þegar Bjerregaard kvartaði yfir
því á sínum tíma svöruðu Frakkar
að boðið til eftirlitsmannanna hefði
aldrei náð til Fangataufa, þar sem
viðkvæm hernaðarmannvirki væru
staðsett.
í bréfi sem hún ritaði til frönsku
stjómarinnar þann 29. september
sagðist Bjerregaard vera óánægð
með þær upplýsingar sem hún hefði
fengið um ástand Mumroa. Fór hún
þess á leit við Frakka að frekari
tilraunasprengingum yrði frestað.
Jacques Rummelhardt, talsmað-
ur franska utanríkisráðuneytisins,
vísaði ásökunum hennar á bug.
Framkvæmdastjórnin hefði fengið
allar þær upplýsingar sem hún
þyrfti á að halda.
• • •..........• ................................... : " "ii'iiBB
Reuter
HAFFLÖTURINN hvítnaði er Frakkar sprengdu aðra kjarn-
orkusprengju sína neðanjarðar við Fangataufa á mánudag.
Kennara-
þjálfun
gegnkyn-
þáttahatri
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRAR
Evrópusambandsins sam-
þykktu í gær að hvetja að-
ildarríkin til að berjast gegn
kynþáttahatri og útlendinga-
hræðslu, meðal annars með
þjálfun kennara og annarra
opinberra starfsmanna og
með stuðningi við lýðræðisleg
borgarasamtök.
Ráðherrarnir sögðu í sam-
þykkt sinni að þjálfunin ætti
að leggja áherzlu á virðingu
fyrir fjölbreytni kynþáttanna
og „anda umburðarlyndis“.
Þá hvöttu félagsmálaráð-
herrarnir þau aðildarriki, sem
ekki hefðu staðfest alþjóðlega
sáttmála gegn kynþáttahatri,
ættu að vinda bráðan bug að
slíku.
Nýtt vikublað
um Evrópumál
Brussel. Reuter.
THE ECONOMIST Group í Bret-
landi hleypti í gær af stokkunum
nýju fréttablaði um Evrópumál,
European Voice. Blaðið verður til
sölu í öllum höfuðborgum aðildar-
ríkja Evrópusambandsins í dag.
Markmið The Economist Gro-
up með útgáfunni er að gefa út
blað fyrir þá, sem starfa í stofn-
unum Evrópusambandsins og þá,
sem þurfa að hafa mikil sam-
skipti við þær, til dæmis kaup-
sýslumenn, blaðamenn, sljórn-
málamenn, embættismenn og
talsmenn hagsmunasamtaka.
European Voice verður viku-
blað og er sniðið lauslega eftir
blaði The Economist Group, Roll
Call, sem gefið er út í Bandaríkj-
unum á tveggja vikna fresti.
Blaðið hyggst bjóða upp á ítar-
legar fréttaskýringar og bak-
grunnsefni, sem ristjórn þess tel-
ur að ekki sé að finna annars
staðar.
Samkeppni við Bildt
CARL Bildt, sáttasemjari Evrópu-
sambandsins í fyrrum Júgóslavíu,
sækist eftir því að verða yfirmaður
þess verkefnis að endurreisa lýð-
veldi þau er illa hafa orðið úti í
stríðinu.
Utanríkisráðherrar Evrópusam-
bandsins ræddu í vikunni hvernig
standa ætti að endurreisninni og
eru menn þegar farnir að velta
því fyrir sér hver muni leiða það
starf.
Svenska Dagbladet segir í gær
að franskir embættismenn hjá
ESB leggi mikla áherslu á að það
verði Valéry Giscard d’Estaing,
fyrrum Frakklandsforseti, en Bildt
er þó samkvæmt heimildum blaðs-
ins enn þá talinn líklegastur til
að hreppa hnossið.
Verið velkomin á Ostadaga um helgina þar sem kynntar verða ýmsar nýjungar í ostagerð.
Boðið verður upp á osta og góðgœti úr tilraunaeldhúsi Osta- og smjörsölunnar auk þess sem
gestum gefst tœkifœri til að kaupa íslenska gœðaosta á sérstöku kynningarverði.
Birtar verða niðurstöður íslenska gœðamatsins á ostunum sem teknir voru til mats nú í vikunni.
mm
9HP
■»S11M1WARI ISLANC
Um helgina verður Ostameistari Islands útnefndur.
u:>T*
Ostameistaramir verða á staðnum og sitja fyrir svörum um allt það sem lýtur að ostum og
ostagerð og bjóða þér að bragða á ostunum sínum.
OSTARÁ KYNNINGARVERÐl
Gríptu tœkifærið og kauptu þér íslenska afbragðsosta!
að Bitruhálsi,
laugardaginn 7. og sunnudaginn 8. okt.,
milli kl. 13 og 18.
OSTA OG
SMJÖRSALAN SE