Morgunblaðið - 06.10.1995, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995l 23
Trausts-
yfirlýsing
samþykkt
ÍTALSKA stjórnin hlaut mik-
inn meirihluta er þingmenn í
öldungadeildinni greiddu at-
kvæði um tvær traustsyfirlýs-
ingar við stjórnina í gær. At-
kvæðagreiðslurnar voru til-
komnar vegna frumvarps
stjórnar Lambertos Dinis um
einkavæðingu ríkisfyrirtækja
en marxistar hafa tafið málið
svo mánuðum skiptir. Málið fer
nú til fulltrúadeildarinnar.
Bretar afsaki
hungursneyð
LEIÐTOGI stærsta stjórnar-
andstöðuflokks írlands krafðist
þess í gær að bresk yfirvöld
bæðust afsökunar á hung-
ursneyðinni sem varð um einni
milljón íra að aldurtila fyrir
réttum 150 árum. Hungurs-
neyðin var vegna uppskeru-
brests á kartöflum og vegna
afskiptaleysis breskra stjórn-
valda að mati sagnfræðinga.
Vinsældir
Chiracs dala
VINSÆLDIR Jacques Ciracs
Frakklandsforseta dala enn,
samkvæmt tveimur skoðana-
könnunum sem birtar voru í
gær. Er almenningur ósáttur
við kjarnorkutilraunir í Suður-
Kyrrahafi og skattahækkanir.
Samkvæmt annarri könnunni
nýtur 41% stuðnings kjósenda
en fylgi hans var 54% fyrir
mánuði. Samkvæmt hinni
könnuninni voru 54% ósáttir
• við stefnu forsetans, en voru
44% í síðasta mánuði.
*
Irösk olía á
markað?
MIKILL sjálfti fór um olíu-
markaðinn í gær er fréttist _að
Saddam Hussein, leiðtogi ír-
aks, hygðist leyfa sölu á olíu
að nýju. Samkvæmt ályktun
Sameinuðu þjóðanna mega ír-
akar selja takmarkað magn af
olíu til að kaupa mat og hjálp-
argögn fyrir. Aður en við-
skiptabann SÞ var sett á, voru
írakar næststærsti olíufram-
leiðandi heims.
Styðja ekki
einhliða af-
vopnun
BRESKI Verkamannaflokkur-
inn felldi í gær á flokksþingi
sínu úr gildi ákvæði um að
flokkurinn væri fylgjandi ein-
hliða afvopnun. Sagði leiðtogi
hans, Tony Blair að þetta væri
enn eitt merki þess að Verka-
mannaflokkurinn væri nútíma-
legur vinstrifiokkur, sem gerði
sér grein fyrir hagsmunum
bresks almennings.
Listaverkasala
aldarinnar
BÚIST er við að allt að 1,3
milljarðar ísl. kr fáist fyrir lista-
verkasafn þýsks aðalsmanns
en uppboð á munum úr því
hófust í gær. Um er að ræða
25.000 listmuni, þar af 750
málverk eftir gömlu meistar-
ana og frá síðustu öld. Sögðu
uppboðshaldararnir hjá Sothe-
by’s að um listaverkasölu ald-
arinnar væri að ræða.
Stækkun NATO til austurs
Rússar sefaðir
með frestun?
Wasliington, Williamsburg. Reuter.
RÁÐAMENN Atlantshafsbanda-
lagsins, NATO, íhuga að fresta í
reynd fram til 1997 öllum ákvörð-
unum um stækkun bandalagsins til
austurs. Heimildarmenn segja að
þetta verði samþykkt á tveggja daga
fundi varnarmálaráðherra NATO
sem hófst í Williamsburg í Banda-
ríkjunum í gær. Rússar hafa lýst
mikilli andstöðu við að fyrrverandi
leppríki Sovétríkjanna gömlu fái
aðild að bandalaginu og segja tals-
menn Moskvustjórnarinnar að af-
leiðingin gæti orðið nýr klofningur
í Evrópu milli austurs og vesturs.
Nýlega var samin skýrsla á vegum
NATO um þau skilyrði sem ný aðild-
arríki yrðu að uppfylla og jafnframt
var þar farið í saumana á því sem
þyrfti að huga að vegna væntanlegr-
ar stækkunar.
Vestrænir ráðamenn hafa lagt
áherslu á að reyna að sefa Rússa
en jafnframt sagt að Moskvustjórnin
megi ekki hafa neitunarvald hvað
snerti stækkun bandaiagsins.
Nýju löndin sem einkum er rætt
um eru Pólland, Tékkland, Slóvakía
og Ungveijaland. Heimildarmenn
hjá NATO sögðu að einhver þessara
ríkja myndu fá aðild ekki síðar en
1999. Reynt yrði að koma til móts
við áhyggjur Eystrasaltsríkjanna
þriggja með því að efla svonefnt
friðarsamstarf NATO en ólíklegt er
talið að fyrrverandi Sovétlýðveldi fái
aðild fyrr en síðar þar sem Rússar
eru enn viðkvæmari gagnvart þeim
en leppríkjunum fyrrverandi.
Willy Claes, framkvæmdastjóri
NATO, sagði á blaðamannafundi ,í
Washington á miðvikudag að banda-
lagið legði mikla áherslu á að sann-
færa Rússa um að NATO hefði ekk-
ert illt í hyggju gagnvart þeim. Það
væri hins vegar friði síst til fram-
dráttar að fyrrverandi kommúnista-
ríki á vesturjaðri Rússlands yrðu á
eínhvers konar gráu svæði í öryggis-
málum Evrópu.
Öfug áhrif
Claes sagði að þjóðirnar væru
fijálsar og hefðu lýðræðislegan rétt
á að ganga í bandalagið ef þau teldu
það þjóna hagsmunum sínum. Hörð
andstaða Rússa við stækkun hefði
allt önnut- áhrif en þeir ætluðust til,
hún yki enn frekar áhuga nýfijálsra
ríkja í Mið- og Austur-Evrópu á
aðild.
Pavel Gratsjov, varnarmálaráð-
herra Rússlands, hefur gengið svo
langt að segja að hætta á vopnuðum
átökum myndi stóraukast ef af
stækkuninni yrði. Ákafir þjóðernis-
sinnar og kommúnistar í stjórnar-
andstöðu í Rússlandi reyna mjög að
höfða til almennings með því að leika
á strengi ótta við NATO og meint
samsæri Vesturveldanna gegn Rúss-
um. Þingkosningar verða í Rússlandi
í desember og forsetakosningar á
næsta ári.
Gorbatsjov
íhugar framboð
New York. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov,
síðasti forseti Sovét-
ríkjanna, íhugár enn að
hefla aftur þátttöku í
stjórnmálum og bjóða
sig fram til forseta í
Rússlandi á næsta ári.
Gorbatsjov er 64 ára
gamall. Hann segist
ekki geta hætt að vinna
og vera ófær um að
setjast í helgan stein
strax.
Forsetinn fyrrver-
andi er á fyrirlestraferð
í Bandaríkjunum og
fyrir skömmu var hann
í forsæti ásamt George
Bush, fyrrverandi Bandaríkjafor-
seta, og Margaret Thatcher, fyrrver-
andi forsætisráðherra Bretlands, á
ráðstefnu um alþjóðamál í San
Francisco. Gorbatsjov hefur miklar
tekjur af fyrirlestrum sínum og ráðt-
efnuhaldi erlendis en eftirlaun hans
í Rússlandi eru aðeins sem svarar
um 30.000 krónum á
mánuði.
„Ég verð að segja að
því meir sem ég ferðast
um Rússland þeim mun
meiri áhuga fæ ég á
því að bjóða mig fram
til forseta því að mér
finnst að almenningur
hvetji mig til þess,“
sagði Gorbatsjov í New
York.
Stjórnmálaskýrend-
ur eru þó á öðru máli
og skoðanakannanir
gefa til kynna að fylgi
Gorbatsjovs sé sáralit-
ið. Flestir Rússar virð-
ast kenna honum um félagslega
upplausn og slæmt efnahagsástand,
kommúnistar segja skyndilegt hrun
Sovétríkjanna honum að kenna. Fáir
landar hans virðast telja að endalok
kalda stríðsins og aukið frelsi og
mannréttindi heima fyrir séu Gorb-
atsjov að þakka.
Míkhaíl Gorbatsjov
VINSÆLASTI SÖNGLEIKUR ALLRA TÍMA
ATRIÐI ÚR ROCKY HORROR BRIMBORG KL13:00
OG 10-11 GLÆSIBÆ KL 15:00
Knorr pasta
lasagnette 274 g
IMirist poki 200 g_
I Á. kr.
_1 8íl kr.
Þykkar Leggings
sokkabuxur
(stretch-lycra) svartar og bláar.
998
kr.
Opal negrakossar 6 stk__39 kr.
Kraft dressing
Creamy Italian (2 fyrir 1) . 2stk. 98 kr.
Rautt og hvítt grape
ferskt____________________
_84 kr.
Uncle Ben's Bolognese-sósa
og Barilla-spaghetti
500 gr. saman í pakka 199 kr.
Munið heita matinn
hádeginu alla daga og
á föstudagskvöldum!
VöttakJil .
Kaungarður
L f MJÓDD
llet
1 .098Ar./v<s’
balæri
799 kr./kg
-innanlæri
____1 .298
Svínarifjasteik
398 kr./kg
Rauóvínsleginn
lambahryggur
__________669 kr./kg
Bayonneskinka
998 kr./kg
KJúklingar
598 kr./kg