Morgunblaðið - 06.10.1995, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995 27
011 ævintýri
enda vel
Möguleikhúsið frumsýnir Ævintýrabókina,
nýtt bamaleikrit, á morgun, laugardag.
Þröstur Helgason fylgdist með æfíngu og
ræddi við höfund og leikstjóra verksins.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FRÁ æfingu á Ævintýrabókinni.
Grimmileg
Hefnd
sýnd í MÍR
„GRIMMILEG hefnd Stakhs
konungs" nefnist kvikmynd
sem sýnd verður í bíósal MÍR,
Vatnsstíg 10, næstkomandi
sunnudag kl. 16.
Myndin var gerð í Hvíta-
Rússlandi um 1980 undir leik-
stjóm Valeríjs Rúbintsiks og
fjallar um dularfulla atburði
sem gerðust í skógarhéruðum
Hvíta-Rússlands í lok 19. ald-
ar.
Kvikmyndin hlaut aðal-
verðlaunin á alþjóðlegri hátíð
kvikmynda um dularfulla at-
burði á Ítalíu 1980, verðlaun
dómnefndar á hátíð í Montre-
al á sama ári og sérstaka
viðurkenningu á tíundu al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni
í París.
Skýringar með myndinni
eru á ensku, aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
ÓLAFUR Liljurós.
Olía á striga. 1995.
Fyrir fjörð
VIGNIR Jóhannsson opnar
sýningu í Listasetrinu Kirkju-
hvoli, Akranesi á morgun
laugardag kl. 14.
•A sýningunni verða skúlp-
túrar (uppstillingar) og mál-
verk, þar sem meginþemað
er rómantísk hugleiðing -
fyrir ijörð -. Verkin eru öll
ný og unnin á þessu ári.
Þetta er fyrsta sýning
Vignis eftir sýninguna sem
haldin var á Gallerí Borg síð-
astliðinn vetur.
Við opnun munu Steinunn
Birna Ragnarsdóttir og Auður
Hafsteinsdóttir leika á píanó
og fiðlu. Þá mun Jakob Þór
Einarsson leikari lesa upp.
Sýningin stendur til 22.
október.
Listasetrið er opið virka
daga frá kl. 16-18 og um
helgar frá kl. 15-18.
Fagleg
ráðgjöf
UM helgina mun Davíð Art
Sigurðsson verða unnendum
sígildrar tónlistar til ráðgjafar
og leiðbeiningar í verslunum
Skífunnar. Davíð hefur með
höndum umsjón með Lista-
manni mánaðarins í verslun-
um Skífunnar.
Viðvera Davíðs verður sem
hér segir; Stórverslun Skíf-
unnar Laugavegi 26, laugar-
daginn 7. október kl. 13-16,
Verslun Skífunnar í Kringl-
unni, sunnudaginn 8. október
kl. 14-17.
Árni sýnir
í Galleríi
Sævars Karls
ÁRNI Ingólfsson opnar sýn-
ingu í Galleríi Sævars Karls
í dag, föstudag.
Árni hefur tekið þátt í fjöl-
mörgum samsýningum bæði
erlendis og hérlendis og má
nefna að þetta er 13. einka-
sýning hans.
HVAR LIGGJA mörkin á milli veru-
leika og ævintýris? Er veruleikinn
kannski bara ævintýri? Eða er ævin-
týrið veruleiki? Leikritið Ævintýra-
bókin svarar ef til vill ekki þessum
spurningum en það gefur bömum
(og fullorðnum) tækifæri til að upp-
lifa sig á mörkum þessara heima,
hverfa úr vemleikanum inn í ævin-
týrið án nokkurra vandkvæða.
Úlfur eltur
í leikritinu segir frá stelpuhnát-
unni Dóru sem hefur lesið stóru
ævintýrabókina sína svo oft að hún
kann hana utanað. Dag einn þegar
hún situr og les bregður hins vegar
svo við að ævintýrin breytast og
taka á sig óvænta mynd. Úlfurinn
neitar að taka þátt í sögunni um
Rauðhettu, hann vill upplifa ný
ævintýri og fer á flakk um bókina
hennar Dóru. Þessi ævintýra-
mennska úlfsins setur auðvitað allt
á annan endann í bókinni; þið get-
ið rétt ímyndað ykkur að Prinsess-
unni á bauninni þykir ekki
skemmtilegt að fá úlf í heimsókn.
Dóra ákveður því að fara sjálf inn
í bókina og leita úlfinn uppi og
koma honum á sinn stað. Úr þessu
verður æsispennandi eltingarleikur
þar sem við sögu koma Mjallhvít,
Óskubuska, Stígvélaði kötturinn,
Prinsessan á bauninni og fleiri góð-
kunnar ævintýrapersónur.
Pétur Eggerz, höfundur og leik-
stjóri verksins, segir að fólk gangi
iðulega út frá því að ævintýri endi
alltaf á sama hátt. „Við vitum að
úlfurinn gleypir ömmuna í ævintýr-
inu um Rauðhettu en svo kemur
veiðimaðurinn og allt endar vel.
En í þessu leikriti setjum við spurn-
ingarmerki við þetta, hvort ævin-
týrið fari eins og það á að fara.
Vandinn sem verkið snýst um er
sem sé sá hvort úlfurinn fer aftur
á sinn stað svo að sögunni um
hann og Rauðhettu vindi fram eins
TÓNLEIKARÖÐ Leikfélags
Reykjavíkur verður hleypt af stokk-
unum þann 10. október næstkom-
andi. Þá hefst dagskrá sem verður
í leikhúsinu hvert þriðjudagskvöld
kl. 20.30. Tónleikaröðin mun standa
í allan vetur fram á vor. Flestir
tónleikarnir munu fara fram á Stóra
sviði leikhússins en nokkrir verða á
því litla.
Tónleikarir eru af öllu tagi og
spannar þannig allt litróf tónlistar,
allt frá klassík yfir i popp með öllu
þar á milli. Lögð hefur verið áhersla
á að hafa metnað og fjölbreytni í
öndvegi.
Dagskrá Tónleikaraðar
fram að áramótum:
10. október 3-5 hópurinn. Níu
góðkunnir tónlistarmenn flytja
kvintetta og eitt tríó. Litla svið.
17. október Sniglabandið. 10 ára
afmælistónleikar. Popptónleikar á
Stóra sviði.
24. október Rannveig Fríða Braga-
dóttir, Pétur Grétarsson og Chal-
umeaux tríóið. Nútímatónlist á
Stóra sviði.
SALA á bók með myndum af
listaverkum impressjónista sem
sýnd hafa verið að undanförnu í
Pétursborg, hefur farið fram úr
björtustu vonum. Um er að ræða
um 74 listaverk sem sovéski her-
inn hafði á brott með sér frá
Þýskalandi í lok hcimsstyrjaldar-
innar síðari og hafa verið hulin
sjónum almennings þar til nú.
Nú þegar hafa um 170.000 eintök
verið prentuð og 50.000 eintök
bætast fljótlega við. Sýningin,
sem átti að renna sitt skeið í
næsta mánuði, hefur verið fram-
lengd um fjóra mánuði vegna
mikillar aðsóknar.
og henni ber að gera. En auðvitað
fer þetta allt vel að lokum. Öll
ævintýri enda vel. Þetta er kannski
frekar spurning um það hvernig
ævintýrið fer að því að enda ems
og það endar.“
Pétur segir að einfaldleiki ein-
kenni stílinn á uppfærslu leikrits-
31. október Kristinn Sigmundsson
og Jónas Ingimundarson. Svana-
söngurinn á Stóra sviði.
7. nóvember Caput-hópurinn.
Skandinavísk nútímaverk flutt af
20 manna hljómsveit.
14. nóvember Mezzoforte ásamt
Kombóinu á Stóra sviði.
21. nóvember Skref - tónleikar
ungra listamanna í tilefni af útkomu
9 geisladiska með nýjum upptökum
þeirra. Klassísk tónlist á Stóra sviði.
28. nóvember Bubbi Mortens ásamt
hljómsveit. Popptónleikar á Stóra
sviði.
5. desember Jazzía. Meðal hljóð-
færaleikara eru Ragnar Bjarnason,
Egill Ólafsson, Sigurður Flosason
og Stórsveit Reykjavíkur. Á Stóra
sviði.
12. desember Trio Nordica. Tríóið
hefur haslað sér völl á innlendum
sem og erlendum vettvngi á undan-
förnum misserum.
19. desember Páll Óskar og Kósí.
Jólastemnming í Borgarleikhúsi.
Dagskrá seinni hluta tónleika-
raðar verður kynnt síðar en meðal
þátttakenda eftir áramót verða:
Signý Sæmundsdóttir, Söngsveitin
Fílharmónía, Stórsveit Reykjavíkur,
Gunnar Guðbjörnsson, Ingveldur
Ýr Jónsdóttir, Blásarakvintett
Reykjavíkur, Pétur Grétarsson og
margir fleiri.
Miðaverði á alla tónleikana verð-
ur stillt í hóf.
Dagskrá Tónleikaraðarinnar var
valin þannig að snemmsumars var
öllu tónlistarfólki gefinn kostur á
, að sækja um þátttöku. Mikill fjöldi
umsókna barst, sem svo var valið
úr. Ráðgjafarnefnd, skipuð tónlist-
arfólki, mat umsóknirnar. Tónleika-
röðin er ákvörðuð og skipulögð af
Leikfélagi Reykjavíkur með sér-
stökum fjárstuðningi Reykjavíkur-
borgar.
ins. „Við byggjum mikið á lýsingu
og litskyggnum. Við vörpum mynd-
um af skóg og öðru á vegg til að
nota sem bakgrunn á sviðinu. Við
höfum líka lagt mikið í búninga
og liti í búningunum. Við reynum
hins vegar að hafa sem fæsta hluti
á sviðinu. Þetta reynir auðvitað
meira á leikarana, þeir hafa lítið
til að styðja sig við. Það reynir því
mikið á látbragð þeirra og tækni
en ég er með úrvalsleikara, heil-
steyptan hóp sem hefur gert mjög
heilsteypta sýningu."
Sex Ieikarar eru í sýningunni,
Erla Ruth Harðardóttir, Ingrid
Jónsdóttir, Alda Arnardóttir, Stef-
án Sturla Siguijónsson, Bjami Ing-
varsson og Guðni Franzson. Tónlist
og dansar eru stór þáttur í sýning-
unni. Guðni Franzson hefur samið
tónlistina en hann sér einnig um
flutning hennar ásamt því að fara
með tvö lítil hlutverk í sýningunni.
Lára Stefánsdóttir hefur samið
'dansa. Leikmynd og búninga hann-
ar Messíana Tómasdóttir og um
Iýsingu sér David Walters.
Fj ölskyldusýning
Leikritið er frumsamið og segir
Pétur að síðan Möguleikhúsið tók
til starfa fyrir fimm árum hafi það
lagt metnað sinn í að sýna ný leik-
rit. „Við værum ekki að gera börn-
unum mikin greiða með því að sýna
alltaf gömul verk en við höfum
orðið vör við að foreldrar vilja helst
fara með börnin sín á verk sem þau
sáu sjálf þegar þau voru krakkar.
Ég býst hins vegar við að það sé
eins hjá börnum og fullorðnum að
þau vilja sjá eitthvað nýtt, upplifa
nýja sögu.“
Að sögn Péturs er sýningin ætl-
uð börnum frá þriggja til tíu ára
aldurs. „Ég hugsa þó að leikritið
höfði jafnt til fullorðinna og barna
og geti því talist til fjölskyldusýn-
inga. Þetta er spennandi leikrit
enda vilja börnin hafa þau þannig,
það verður alltaf að vera eitthvað
að gerast."
Ævintýrabókin er viðamesta
sýning Möguleikhússins til þessa
en sýnt verður í húsnæði þess.
Sýningar verða á laugardögum kl.
16 og á virkum dögum kl. 10 og 14.
FRÚ Vigdís Finnbogadóttir, Tumi
Magnússon og Jens Olesen
ísland í tvíæringi
22. ALÞJÓÐLEGI tvíæringiir-
inn var haldinn í Sao Paulo í
Brasilíu í október til desember
á síðastliðnu ári. Fulltrúi Is-
lands var Tumi Magnússon
myndlistarmaður og fengu
verk hans góðar viðtökur. Ein
milljón manns skoðaði þær
sýningar sem settar voru upp.
Þátttakendur voru frá 70
löndum og voru sýnd yfir
2.000 verk eftir 206 listamenn.
Sljórn tvíæringsins fyrir
árið 1994 veitti þremur alþjóð-
legum listamönnum sérstaka
viðurkenningu fyrir framlag
þeirra til tvíærings. Tumi
Magnússon var einn þessara
þriggja listamanna. Jens Oles-
en, sem situr í stjórn tvíær-
ingsins, kom sérstaklega til
landsins af þessu tilefni til ad
afhenda honum viðurkenning-
una. Um leið afhenti Olesen
forseta Islands heiðurspening
stjórnarinnar en slikan heiður
hafa einungis tveir þjóðhöfð-
ingjar hlotið áður og var ann-
ar þeirra fyrrverandi forseti
Frakklands, Fran^ois Mitter-
and. Jens Olesen afhenti einn-
ig forsetanum boðsbréf á
næsta tvíæting í Sao Paulo
sem opnaður verður haustið
1996.
Island verður meðal þátt-
takenda á næsta tvíæringi að
ári. Fyrir utan framlag þátt-
tökuþjóðanna verða á þessum
tvíæringi stórar alþjóðlegar
sérsýningar á verkum Picass-
os, Klees, Edvards Munch,
Louise Bourgoise, Bruce Neu-
mann, Cy Towmbly svo að ein-
hverjir séu nefndir.
Sýningarnefnd um íslenska
myndlist erlendis, sem starfar
á vegum menntamálaráðu-
neytisins, sér um þátttöku ís-
lands. í nefndinni sitja Bera
Nordal formaður, Halldór Ás-
geirsson myndlistarmaður og
Þorgeir Ólafsson deildarsér- •
fræðingur.
Tónleikaröð
í Borgarleikhúsi