Morgunblaðið - 06.10.1995, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995 31
Morgunblaðið/RAX
ent vænt?
Forsætisráðherra um frumvarp til laga um
breytingu á gildistöku ákvæða lyfjalaga
Allir vissu að
gildistökunni
yrði frestað
•
Heilbrigðisráðherra lagði í gær fram á Al-
þingi frumvarp um breytingu á lyfjalögum
þar sem kveðið er á um frestun gildistöku
tveggja kafla. Sætti ráðherra harðri gagnrýni
þriggja þingmanna Alþýðuflokksins.
íefur færst í vöxt hér á
irtan Magnússon kann-
irinnar og komst að því
im gildi lífræns búskap-
r um framkvæmdina.
Morgunblaðið/Kjartan Magnússon
cu á móti vottorðum um lífrænar
rtofunni Soil Association fyrir
iigurjónsson og Siguijón Eyjólfs-
, Grétar og Guðni Einarssynir,
tursson, fulltrúi Neytendasamtak-
ar Túns, sem afhenti vottorðin.
"amleiðslu
nautgripa- og sauðfjárrækt og
garðyrkju- og
gróðurhúsaframleiðsla. Hið
helsta, sem kemur í veg fyrir
að hún teljist vera lífræn, er
notkun tilbúins áburðar við
hana.
Hefðbundin
Undir þessa skilgreiningu
heyrir stór hluti landbúnaðar í
Evrópu og hluti íslensks
landbúnaðar. Við hann er notað
mikið af tilbúnum áburði,
lyfjum og ýmsum öðrum efn-
um.
Verksmiðja
Við svokallaða verksmiðju-
framleiðslu eru ýmis
hjálparefni notuð á flestum
stigum framleiðslunnar, svo
sem lyf og hormónar, en þó
ekki hér á landi. Þröngt er um
búféð, einkum í alifugla- og
svínarækt, og það nýtur engrar
útivistar. Slíkur landbúnaður er
lengst frá því að teljast
sjálfbær.
máli, enda er hún staðfesting þess
að um ósvikna vöru sé að ræða.
Fyrr á þessu ári gaf landbúnaðar-
ráðuneytið út reglugerð um lífræna
landbúnaðarframleiðslu í samræmi
við lög um sama efni sem samþykkt
voru um áramót. Samkvæmt henni
er gert ráð fyrir að einkareknar skoð-
unarstofur annist vottunina. Hingað
til hafa lífrænir bændur farið þá leið
að verða sér úti um vottun frá breskri
skoðunarstofu, Soil Association og
hefur Vottunarstofan Tún annast
milligöngu.
Gunnar Á. Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Túns, segir það ástand
vera tímabundið enda sé stofan nú
að búa sig undir að sækja um fag-
gildingu og starfsleyfi til ráðuneytis-
ins. „Um leið og slíkt leyfi hefur
fengist væntum við þess að ekki
þurfi lengur að skipta við Soil Assoc-
iation. íslensk vottunarstofa er mikil-
vægur liður í því að lífrænn landbún-
aður geti eflst og dafnað hér á landi.“
Ágreiningur og
samstarfsörðugleikar
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur verið um nokkrar deil-
ur að ræða á milli ýmissa forráða-
manna lífrænu hreyfingarinnar ann-
ars vegar og þeirra aðila hjá land-
búnaðarráðuneytinu og Bændasam-
tökunum sem fjalla um lífrænan
landbúnað.
Að nokkru leyti virðist vera um
persónulegan ágreining að ræða en
deiluefnin snúast helst um stefnu og
starfshætti varðandi framgang líf-
ræns landbúnaðar. Þá virðist sú leið
nokkurra lífrænna bænda, að láta
breska vottunarfyrirtækið Soil
Association votta framleiðsluna,
hafa vakið litla hrifningu
hjá Bændasamtökunum,
sem telja að einungis eigi
að votta samkvæmt ís-
lenskum lögum og reglu-
gerðum.
Þessir örðugleikar
komu meðal annars í ljós í tengslum
við heimsókn stjórnarmanna IFOAM
hingað til lands. Var ákveðið að hin-
ir erlendu gestir myndu skoða lífræn
bændabýli á Suðurlandi að loknum
aðalfundi og ráðstefnu samtakanna
á Hótel Sögu. Bændasamtökin og
landbúnaðarráðuneytið voru gest-
gjafar fundarins og ráðstefnunnar
en Fagráðið stóð að skoðunarferð-
inni. Landbúnaðarráðuneytið og
Bændasamtökin óskuðu eftir að fá
að hafa þijá fulltrúa sína með í ferð-
inni en var synjað um það rneð bréfi,
sem undirritað var af Úlfi Óskars-
syni, formanni Fagráðsins.
Úlfur staðfesti þetta í samtali við
Morgunblaðið en tók skýrt fram að
umræddir samstarfsörðugleikar
ættu rót sína að rekja til þeirra
starfsaðferða, sem gætt hefði hjá
ákveðnum einstaklingum innan
stjórnkerfisins, sem um lífrænan
landbúnað hafi fjallað.
„Ákveðnir einstaklingar í stjórn-
kerfinu vilja ráðskast með lífrænan
landbúnað og koma stefnumótun,
stjórnun, vottun og eftirliti þar að
lútandi undir ríkisvaldið eða stjórn-
kerfi hins hefðbundna landbúnaðar.
Ég tel hins vegar að frumkvæðið eigi
að koma frá bændunum sjálfum,“
segir Úlfur. _
Gunnar Á. Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Vottunarstofunnar
Túns hf., telur einnig að afskipti
stjómkerfis landbúnaðarins hafi farið
í rangan farveg. í því sambandi nefn-
ir hann sérstaklega stefnu og starfs-
hætti átaksverkefnisins Áforms og
ráðunautar Bændasamtakanna.
„Lífrænn landbúnaður á ekki að
snúast um meira skrifræði og aukna
valdstjórn, heldur um aukna ábyrgð
einstaklinganna á eigin umhverfi og
tilveru. Til þessa hefur frumkvæðið
að meginhluta verið hjá bændunum
sjálfum. Samtök þessara bænda
völdu sjálf þá leið að efna til sam-
starfs við neytendur, verslun og sveit-
arfélög um stofnun óháðrar vottunar-
stofu með aðstoð virtrar skoðunar-
stofu í Bretlandi. En á meðan við
erum að byggja upp, hægt og örugg-
lega, framleiðslu, eftirlit, vottun og
markaðsmál lífrænna vara, virðast
þessir aðilar ætla að bregða fæti fyr-
ir uppbyggingarstarf lífræna geirans
með því að koma upp öðru kerfi í
samkeppni við okkur og það með
tilstyrk almannaijár.
Jafnvel má sjá merki þess að
ýmsir vilji koma á ríkiseinokun í
vottunarmálum. Nær væri að nota
ljármuni átaksverkefnisins Áforma
til að stofna sjálfstæðan sjóð, sem
einstakir aðilar gætu sótt í á fagleg-
um grunni. Hins vegar ber að fagna
því að landbúnaðarráðuneytið hefur
nú sett lög og reglugerð um lífræna
landbúnaðarframleiðslu," segir
Gunnar.
„Nauðsynlegt að leysa hnútinn“
Jón Erlingur Jónasson, aðstoðar-
maður landbúnaðarráðherra, segir
að ráðuneytið kannist ekki við að
stjórnvöld séu að reyna að ná frum-
kvæðinu í lífrænum landbúnaði af
bændum.
„Ráðuneytið hefur tvímælalaust
hvatt til þess að einkaframtakið fái
að njóta sín á þessu sviði. í reglu-
gerð um lífræna landbúnaðarfram-
leiðslu er til dæmis gert ráð fyrir
því að einkareknar skoðunarstofur
með löggildingu og starfsleyfi frá
landbúnaðarráðuneytinu annist vott-
un afurðanna. Enn hefur engin stofa
sótt um slík leyfi en við teljum brýnt
að af því verði sem fyrst.“
Jón Erlingur segir að ráðuneytinu
hafi þótt það mjög miður að fá ekki
að senda fulltrúa með í skoðunarferð
erlendu gestanna um lífræn býli á
Suðurlandi. „Þetta er ekkert stórmál
í sjálfu sér en okkur kom þó á óvart
hve harkalegt svar við fengum við
sjálfsagðri og saklausri beiðni um
slíkt frá Fagráði í lífrænni fram-
leiðslu. Það er nauðsynlegt að leysa
þennan hnút sem málið er komið í
svo það skaði ekki framtíð lífræns
búskapar á íslandi og ráðuneytið er
tilbúið að leggja sitt af mörkum svo
af því megi verða.“
Ólafur R. Dýrmundsson
ráðunautur kannast ekki
við að aðilar í stjórnkerfi
landbúnaðarins vilji ráðsk-
ast með lífrænan landbún-
að.
„Lífrænn búskapur er enn sem
komið er merkilegt þróunarverkefni,
sem nauðsynlegt er að hlúa að. Við
hjá Bændasamtökunum teljum okk-
ur vera að gera það enda er mikið
um að bændur hafi samband til að
fá upplýsingar og ráðleggingar um
lífrænan búskap. Starf frumkvöðl-
anna er merkilegt en ég minni á að
þessi þróun má aldrei verða einka-
mál fáeinna manna heldur er grund-
vallaratriði að unnið verði að henni
í góðu samráði allra bænda og sam-
taka þeirra.“
VIÐ setningu lyfjalaga í
júní 1994 var ákveðið að
fresta gildistöku kafla
laganna um stofnun
lyfjabúða og lyfsöluleyfi og um
lyfjaverð til 1. nóvember næstkom-
andi, en samkvæmt frumvarpi heil-
brigðisráðherra, sem lagt var fram
í gær, frestast gildistakan til 1.
júlí á næsta ári.
Ingibjörg Pálmadóttir, heil-
brigðisráðherra, sagði m.a. þegar
hún fylgdi frumvarpinu úr hlaði að
lyfjalög væru í grundvallaratriðum
byggð á skuldbindingum sem ís-
lendingar hefðu undirgengist með
aðild að samningnum um Evrópska
efnahagssvæðið. Við setningu lag-
anna hafi verið ákveðið að fresta
gildistöku umræddra kafla til 1.
nóvember 1995, en markmiðið með
frestun hafi verið að skapa svigrúm
til að meta áhrif laganna að öðru
leyti á lyfjaneyslu og lyfjadreifingu
í landinu. í þeim tilgangi hafi heil-
brigðisráðherra skipað nefnd 29.
júlí 1994, sem í eiga sæti fulltrúar
allra þingflokka, en nefndinni var
ætlað að skila ráðherra skýrslu fyr-
ir 1. september 1995.
Ingibjörg sagðist hafa beðið
nefndina 26. apríl að hraða störfum
og skila skýrslu um stöðu mála
fyrir 1. júlí sl., en meirihluti nefnd-
arinnar hafi þá sagt að áhrifa lyfja-
laganna væri ekki enn farið að
gæta í þeim mæli að hægt væri að
meta áhrif þeirra. Ástæðan væri
m.a. sú að dregist hefði að setja
ýmsar reglugerðir sem fylgja ættu
lögunum um nánari útfærslu og
framkvæmdir. Það væri því mat
nefndarinnar að áhrifa nýrra lyfja-
laga og EES-samningsins á lyfja-
notkun og lyfjakostnað almennings
og hins opinbera hér á landi fari
fyrst að gæta að einhveiju marki
á næsta ári.
Sagði Ingibjörg að af þessum
sökum hefði hún lagt fram frum-
varp til laga sl. vor þar sem gerð
var tillaga úm að gildistöku um-
ræddra kafla laganna yrði frestað
til 1. júlí 1996, en samkomulag
hafi orðið um að fresta afgreiðslu
frumvarpsins nú til haustþings, og
þvi væri það nú lagt fram að nýju.
Duttlungar
heilbrigðiráðherra
Þrír þingmenn Alþýðuflokksins,
þeir Sighvatur Björgvinsson, Guð-
mundur Árni Stefánsson og Össur
Skarphéðinsson, gerðu harða hríð
að heilbrigðisráðherra vegna frum-
varpsins, sem þeir sögðu ekki
byggjast á rökum heldur væri það
tilefnislaust og byggðist á duttlung-
um heilbrigðisráðherra.
Gerðu þeir m.a. að umtalsefni
yfirlýsingar heilbrigðisráðherra í
fjölmiðlum um breytingar sem hún
teldi að gera þyrfti á lyfjalögunum,
og einnig létu þeir að því liggja að
ríkið gæti verið skaðabótaskylt
gagnvart þeim sem lagt hefðu í fjár-
festingar á þeim grundvelli að gildi-
staka umræddra kafla laganna yrði
1. nóvember næstkomandi. Lýstu
þeir eftir afstöðu þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins í þessu máli og þá
sérstaklega afstöðu Árna M. Mathi-
esen, en þeir sögðu málið vera próf-
stein á afstöðu hans til frjálsrar
verslunar.
Tilkynnt um frestunina
síðastliðið vor
Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, sagði að síðastliðið vor hefði
legið fyrir að meirihluti væri fyrir
því að samþykkja umrædda frestun
á gildistöku lagaákvæðanna og þá ..
hefði verið tilkynnt að þessu yrði
breytt. Heilbrigðisráðherra væri því
ekki að segja neitt annað en til-
kynnt hefði verið bæði þingi og
þjóð síðastliðið vor. Vakti forsætis-
ráðherra sérstaka athygli á því að
frumvarpið væri ekki um efni máls
heldur tímasetningar og um það
bæri að ræða, og ítrekaði hann að
allir hefðu vitað að gildistökunni
yrði frestað og heilbrigðisráðherra
væri að vinna að málinu með ná-
kvæmlega sama hætti og henni
bæri að gera.
Árni M. Mathiesen sagði að hann
hefði áhyggjur af því ef gildistöku
lagaákvæðanna yrði frestað, og vís-
aði hann í máli sínu til þess að*
þegar frumvarpið hafi verið af-
greitt á þingfundi Sjálfstæðis-
flokksins hafi hann haft um það
fyrirvara þar sem hann væri ekki
sannfærður um að það væri rétt
og nauðsynlegt að fresta því að
umræddir kaflar laganna taki gildi.
Engar grundvallar-
breytingar
Ingibjörg Pálmadóttir, heil-
brigðisráðherra, sagði að hún hefði
engar grundvallarbreytingar boðað
á lyfjalögunum en hún teldi hins
vegar fulla ástæðu til að fara var-
lega í þessu máli. Hún sagði málat-
ilbúnað þingmanna Alþýðuflokks- T~
ins ekkert annað en útúrsnúning,
sem væri fallinn til þess eins að
skemmta skrattanum. Sagði hún
aðalatriðið í málinu vera það að
ganga þannig frá hnútunum að
ekki þyiTti að breyta lyfjalögunum
margsinnis eftir gildistöku þeirra.
í máli Ingibjargar kom fram að
þeir sem hug hefðu á að stofna
lyfsölur samkvæmt lyfjalögunum
þyrftu að sækja um leyfi til heil-
brigðisráðuneytisins, en frá því hún
hefði komið til starfa í ráðuneytinu
síðastliðið vor hefði engin slík um- *
sókn borist.
Ásta R. Jóhannesdóttir, Þjóð-
vaka, Margrét Frímannsdóttir, Al-
þýðubandalagi og Kristín Ástgeirs-
dóttir, Kvennalista, sögðu í umræð-
um um fruinvarpið að þær styddu
frestun gildistöku umræddra kafla
lyfjalaganna. ,
Líf rænar af-
urðir 10-50%
dýrari