Morgunblaðið - 06.10.1995, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1995 37
MINNINGAR
hann mér við að mæla þvermál
matardisksins og ummál hans.
„Deildu svo þvermálinu í ummálið,
Ingi minn,“ sagði Sigurkarl bros-
andi. Þegar út kom
3.14159253589793... bætti hann
við og sagði „þetta er pí og hlutfall-
ið gildir um alla hringi." Eftir það
hafði ég pí á hreinu gegnum allan
menntaskólann og síðan.
Ég sendi öllum börnum Sigur-
karls og Sigríðar dýpstu samúðar-
kveðjur mínar og konu minnar,
Rögnu.
Ingi R. Helgason.
Þakkir frá Menntaskólanum
í Reykjavík
Vorið 1902 fæddist hjónunum á
Kleifum í Gilsfirði, Önnu og Stef-
áni, sonur, sem þau nefndu Sigur-
karl. Drengurinn ólst upp á stóru
heimili foreldra sinna í návist afa
síns og ömmu, sem vissi allt, kunni
allt. Attatíu og þriggja ára sagðist
Sigurkarl alltaf eiga heima á Kleif-
um, og hann hefði farið þangað fimm
sinnum það sumarið. Sigurkarl átti
líka heima í Menntaskólanum í
Reykjavík, þó að hann kenndi víðar.
Sigurkarl settist í stærðfræði-
deild Menntaskólans hgustið 1920,
ári eftir að hún var stofnuð. Hann
lauk stúdentsprófi 1923 og hlaut
hæstu einkunn í stærðfræðideild.
Hann sigldi til Kaupmannahafnar
og lagði stund á stærðfræði, eðlis-
fræði, efnafræði og stjörnufræði.
Cand. mag.-prófi í stærðfræði lauk
hann 1928, og um haustið varð
hann stundakennari við Mennta-
skólann. Hann var kennari við skól-
ann 1930-45 og yfirkennari til árs-
ins 1970, er hann varð dósent við
Háskóla íslands.
Sigurkarl sagði ekki skilið við
Menntaskólann, þó að hann hefði
fengið lausn frá embætti. Hann var
stundakennari 1970-75 og prófdóm-
ari í stærðfræði í máladeild 1977-82.
Ég er ein þúsunda nemenda Sig-
urkarls. Við bekkjarsysturnar viss-
um það eitt um Sigurkarl, þegar við
hófum nám, að hann var merkur
stærðfræðingur og hafði kennt lengi
við Menntaskólann. Hann var okkur
mildur og góður kennari, og við
fundum fljótt, að hann var mannvin-
ur. Hins vegar kom okkur á óvart,
að þessi hægláti kennari bauð okkur
eitt sinn út í leikfimihús með sér í
stærðfræðitíma og reyndist þá vera
prófdómari í leikfimi og íþróttamað-
ur.
Sigurkarli var margt annað til
lista lagt. Hann var mikill málamað-
ur og húmanisti. Hann flutti
skemmtilegar tækifærisræður og
orti enn skemmtilegri tækifæris-
kvæði. Sigurkarl var ekki aðeins
orðhagur, hann var hagur á tré,
bókband og sitthvað fleira.
Það var gott að vera með Sigur-
karli á kennarastofunni. Hann var
einstaklega dagfarsprúður maður.
Ég heyrði hann aldrei byrsta sig og
aldrei brýna raustina. Eg sá hann
heldur aldrei flýta sér. Sigurkarli
þótti vænt um fólk, og fólki hlaut
að þykja vænt um hann. í erli dag-
anna nutum við kennarnir þess að
fínna friðinn og hlýjuna, sem frá
honum stafaði, og heyra hann segja
frá eða kasta fram stöku með þeirri
góðlátlegu glettni, sem honum var
eiginleg.
Sigurkarl átti heima í Mennta-
skólanum, þó að hann hætti þar
störfum. Þau Sigríður voru jafnan
með okkur kennurunum á hátíða-
stundum í skólanum, og Sigurkarl
kom á kennarastofuna, hvenær sem
hann átti erindi í Miðbæinn. Hann
sótti árshátíðir okkar, þó að hann
væri orðinn einn, hélt stundum ræðu
eða lagði fýrir okkur vísnagátur.
Hann lét sig ekki vanta, þó að hátíð-
in væri haldin austur í Skíðaskála á
þorranum og hann væri kominn
hátt á níræðisaldur.
Nú er þessi öðlingur allur.
Menntaskólinn í Reykjavík þakkar
honum mikið og farsælt starf. Við
kennaramir þökkum órofa tryggð
og vináttu. Ég get ekki stillt mig
um að þakka honum hlýhug til míns
fólks í fímm ættliði.
Börnum Sigurkarls votta ég ein-
læga hluttekningu.
Ragnheiður Torfadóttir.
• Fleiri minningargreinar um
Sigurkarl Jónsson bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Nýtt gamanleikrit eftir Ágúst Guðmundsson. \
Leikstjóri: Ágúst Guðmundsson • Meðleikstjóri: Árni Pétur Guðjónsson
Úts. og tónlistarstjórn: Ríkarður örn Pálsson • Söngstjórn: Óskar Einarsson
Leikmynd: Stígur Steinþórsson • Búningar: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
Dansar og hreyfingar: Helena Jónsdóttir • Lýsing: Ögmundur Þór Jóhannesson
Sýningarstjórn: Jón S. Þórðarson • Leikarar: Felix Bergsson, Margrét Vilhjálmsdóttir,
Magnús Jónsson, Jóhanna Jónas, Sóley Elíasdóttir, Eggert Þorleifsson, Quðmundur Ólafsson
og Theodór Júlíusson • Kór: Birna Hafstein, Daníel Ágúst Haraldsson, Guðrún Gunnarsdóttir,
Harpa Harðardóttir, Kristbjörg Clausen, Pétur Guðlaugsson og Þórunn Geirsdóttir.
Borgarleíkhús S: 568 8000
LBKFRAG
REYKJAVIKUR
Matrei&slu-
meistari órsins
Sturla Birgisson
sér um
matrei&sluna.
Fordrykkur
heims-
meistarans
ó tilb.ver&i,
550 kr.
anape
Villigæsa „Terrin“
með trönuberjasósu
Humarsúpa
Dverg—appelsínufrauð
með Grand Marnier-sósu
ullið tár eftir
Bárð Guðlaugsson
hlaut 1. verðlaun
í Heimsmeistarakeppni
barþjóna. ____
►V^astahlaðborð virka daga á
4. hæð. Verð aðeins kr. 690.
Lambahryggur á kartöflubeði
með skógarsveppum
og munkasósu
fég ekki má gleyma heima-
lagaða ítalska ísnum í Perlunni.
að er þess vegna sem
Perlan stendur uppúr.
BORÐAPANTANIR
í SÍMA: 562 0200
Sorbet
A'