Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Sverrir VIGDÍS Finnbogadóttir huggar syrgjanda við athöfn í Hallgrímskirkju í gær. Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands Okkur er orða vant, Islendingum öllum VIGDÍS Finnbogadóttir for- seti íslands ávarpaði þjóðina í ríkisfjölmiðiunum í gær. Hún sagði meðal annars í Sjónvarpinu í gær: „Okkur er orða vant, íslendingum öllum, þegar við í dag enn horfumst í augu við afleiðingar mis- kunnarlausra náttúruhamf- ara, en um leið finnum við hvað við erum nákomin hvert öðru, hve þétt við stöndum saman þegar raunir ber að höndum. Við erum öll nú hveija stund með hugann hjá þeim sem hafa orðið fyrir þungbærum raunum. Sorg þeirra er okkar sorg.“ í lokin sagði Vigdís: „Ég bið blessunar öllum þeim sem fyr- ir áföllum hafa orðið og megi blessun fylgja þeim sem nú leggja sig fram við björgun.“ Gífurlegt snjóflóð féll í Súgandafjörð Náði yfir 4 km svæði BIRKIR Friðbertsson bóndi í Birkihlíð við Súgandafjörð segir, að snjóflóð- ið sem féll í gær og olli mikilli flóðbylgju sem gekk yfír þveran fjörðinn, virðist hafa fallið úr svo til allri fjallshlíðinni, allt frá Norðureyri á móts við Suðureyri og inn undir Selárdal, en það er um fjögurra kílómetra svæði. Steypujám gekkinní háls drengs TÍU ára gamall drengur slasaðist mikið þegar hann féll fjóra metra ofan í húsgrunn í Árbænum í gær. Þegar hann lenti ofan í grunninum stakkst steypustyrktaijám inn í háls drengsins. Drengurinn var að leik við hús- grunninn þegar hann féll þar niður. Steypustyrktarteinninn stóð upp úr snjónum á botni grunnsins og mun hann hafa gengið 5 Vi sentimetra inn í háls drengsins. Hann var flutt- ur á á gjörgæsludeild Borgarspítal- ans. Vakthafandi læknir þar sagði að líðan drengsins væri eftir atvik- um og hann væri úr lífshættu. Gerð- ar hafa verið ráðstafanir til þess að gengið yrði frá teinunum á þann hátt að þeir stæðu ekki upp úr grunninum. Feðgarnir í Birkihlíð og á Botni misstu fjölda fjár þegar flóðbylgjan flæddi upp á land við sunnanverðan fjörðinn, en féð var þar á fjörubeit og hafði leitað skjóls í gamalli sund- laug. Flóðaldan gekk svo til beggja hliða, að sögn Birkis. Flóðbylgjan var gífurlega kröftug og fór yfír stóra steinsteypta veggi á sund- lauginni. „Við svokallaða Kleif náði flóðaldan langt upp fyrir þjóðveg- inn, en hann liggur í tíu metra hæð. Flóðið fór um tíu metra upp fyrir veginn. Vegurinn frá Kleif, sem er tveim kílómetrum fyrir innan Suðureyri og alla leið út að Suður- eyri, er þakinn gijóti hálfa leiðina," sagði hann. Klæðning flettist einnig af veginum á stórum hluta. Flóðald- an brotnaði svo á brimvarnargarð- inum á Suðureyri. Annað snjóflóð féll í gær í botni Súgandafjarðar og drápust þar nokkrar kindur að sögn Birkis. Náð- ust nokkrir tugir fjár lifandi úr flóð- inu. ■ Hættuástand/12 Komust ekki vegna veðurs HJÓNIN Magnús E. Karlsson og Fjóla Aðalsteinsdóttir létust í snjó- flóðinu á Flateyri og einnig dóttir þeirra Linda Björk. Þau hjón áttu þijú börn, auk Lindu Bjarkar, og eru þau öll uppkomin; Margrét Þórey, Karl Jóhann og Anton Már. Karl býr á Seyðisfirði en fór til Reykjavíkur á sunnudag til að fara vestur og róa með föður sínum. Hann var veðurtepptur í Reykjavík, komst ekki vestur og var því ekki staddur í húsi foreldra sinna í fyrri- nótt. Þá var Anton Örn ekki heldur heima, þar sem hann skrapp til Þing- eyrar á miðvikudag og leist svo illa á veður þegar hann ætlaði að halda heim, að hann tók þann kostinn að gista hjá kunningjafólki. Harmleikurinn á Flateyri NÍTJÁN manns létust í snjóflóð- inu á Flateyri í fyrrinótt, tíu karlar, sex konur og þijú börn. Lítillar stúlku var enn saknað í gærkvöldi. Fjórir voru grafnir lifandi úr flóðinu, en auk þeirra bjargaðist 21 íbúi úr húsum, sem flóðið lenti á. Þau, sem létust, eru: Þórður Júlíusson, 58 ára, Hjallavegi 6. Hann lætur eftir sig eiginkonu og sex uppkomin stjúpböm. Sigurður Þorsteinsson, 39 ára, og sonur hans, Þorsteinn Sigurðsson, 18 ára. Þeir vom til heimilis að Hjallavegi 8. Eftir lifa eiginkona Sigurðar og þijú börn þeirra, þar á meðal yngri sonurinn, Atli Már Sigurðsson, 14 ára, sem bjargaðist úr snjó- flóðinu. Kristinn Jónsson, 42 ára. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þijá syni. Kristinn var gest- komandi að Hjallatúni 8. Hann hafði yfirgefið heimili sitt að Ólafstúni 9 kvöldið áður en snjó- flóðið féll, vegna þess að þar var þá talin hætta á snjóflóði. Húsið stendur óskemmt. Haraldur Eggertsson, 30 ára, kona hans Svanhildur Hlöðversdóttir, 30 ára, og böm þeirra tvö Haraldur Jón Har- aldsson, 4 ára, og Ástrós Birna Haraldsdóttir, 3 ára. Yngsta barnsins, Rebekku Rutar Har- aldsdóttur, eins árs, er saknað. Fjölskyldan var til heimilis að Hjallavegi 10. Benjamín Oddsson, 59 ára, Hjallavegi 12. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjórar upp- komnar dætur. Kona Benjamíns gisti annars staðar í bænum. Þorleifur Ingvason, 38 ára, og sambýliskona hans Lilja Ás- geirsdóttir, 34 ára, Hafnar- stræti 41. Þau áttu ekki böm saman en Lilja lætur eftir sig tvær dætur. Svana Eiríksdóttir, 19 ára, Unnarstíg 2. Hún var búsett í Kópavogi en dvaldi um helgina á heimili foreldra sinna. Systir Svönu, Sóley, 11 ára, var grafín lifandi úr snjónum. Eftir lifa einnig foreldrar þeirra, Eiríkur Guðmundsson og Ragna Ólafs- dóttir, sem stödd voru í Reykja- vík, og bræður þeirra tveir. Halldór Ólafsson, 20 ára, var gestkomandi að Unnarstíg 2. Hann var búsettur í Hnífsdal, en veðurtepptur á Flateyri. Hall- dór var ókvæntur og barnlaus. Sólrún Ása Gunnarsdóttir, 14 ára, Unnarstíg 4. Hún lætur eftir sig foreldra, Gunnar Guð- mundsson og Elínu H. Jónsdótt- ur, sem björguðust af eigin rammleik úr flóðinu, og tvær eldri systur, sem búsettar eru á höfuðborgarsvæðinu. Magnús E. Karlsson, 53 ára, kona hans Fjóla Aðalsteins- dóttir, 50 ára, og dóttir þeirra Linda Björk Magnúsdóttir, 24 ára. Þau bjuggu í Hafnarstræti 45. Þijú uppkomin böm lifa for- eldra sína og systur. Magnea Guðmundsdóttir, oddviti og starfandi sveitarstjóri Sé ekkí niikla mögu- leika á uppbyggingu og nærri má geta. Ann- ars hef ég verið föst við störf hér í stjórnstöð Almannavarna og ekki haft tækifæri til að hitta fólkið sem á um sárt að binda. Ég sendi því mínar bestu kveðj- ur,“ segir Magnea Guð- mundsdóttir. Hún vildi nota þetta tækifæri til að koma á framfæri þakklæti við alla þá sem hefðu veitt hjálp í gær, bæði heimamönnum og öllu aðkomufólki, svo og hlýjan hug og óskir sem hreppsskrifstof- unni hefðu borist í gær. og folk hafi einnig vakið hvert ann- að. Björgunarsveitin kom upp stjórnstöð í björgunarmiðstöð sinni og brauðgerðinni. Tekið var á móti fólki sem bjargaðist úr flóðinu á heilsugæslustöðinni, en síðan þurfti að flytja það í mötuneyti frystihúss- ins Kambs þegar rafmagnið fór af heilsugæslustöðinni. Aðstöðu var einnig komið upp í samkomuhúsinu. Lítið byggingarland eftir Magnea segir að of snemmt sé að meta það hvernig til hafí tekist með björgunarstarfið en segist vona að það hafi gengið eins vel og hægt var að ætlast til miðað við aðstæð- Bjargað úr flóðinu BJORGUNARMENN grófu fjóra unga Flateyringa lifandi úr snjó- flóðinu í gær. Þau eru: Atli Már Sigurðsson, 14 ára, var grafínn úr rústum heimilis síns á Hjallavegi. Faðir hans og þróðir fórust í snjóflóðinu. Sóley Eiríksdóttir, 11 ára, til heimilis að Unnarstíg 2, bjargað- ist. Systir hennar, Svana, fórst í snjóflóðinu. Anton Smári Rúnarsson, 11 ára, var gestkomandi á Hjalla- vegi 4, en hann er til heimilis á Drafnargötu 11. Honum var bjargað úr snjónum. Guðný Margrét Kristjáns- dóttir, 27 ára, bjargaðist úr rústum Tjarnargötu 7, en þar hafði hún verið gestkomandi. Hún er til heimilis á Drafnargötu 9. Kraftaverk hafa þó oft verið unnin og ekkert er ómögulegt í þessu efni „ÉG FÉKK tvö símtöl strax upp úr klukkan fjögur og síðan barði fjórtán ára gamall vinur minn á gluggann, en hann hafði lent í snjóflóðinu og hlaupið mjög langa leið á nærklæð- unum til þess að sækja hjálp,“ segir Magnea Guðmundsdóttir oddviti og starfandi sveitarstjóri Flateyrar- hrepps. Magnea segir að strax hafí björg- unarsveitin verið kölluð út og síðan komið upp stjórnstöð Almannavarna á skrifstofu hreppsins. Þá segist hún hafa hringt í allmörg hús til að kanna ástandið og leita eftir hjálp ur. Hún er einnig spör á yfirlýsingar um fram- tíð byggðarinnar. Seg- ist ekki sjá mikla möguleika á uppbygg- ingu eftir að snjóflóð hefur fallið á þetta svæði, lítið byggingar- land væri eftir, miðað við núverandi ástaljd. Hins vegar hefðu kraftaverk oft verið unnin og ekkert væri ómögulegt í þessu efni. „Fólk er slegið, eins Magnea Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.