Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ + Aðalsteinn Sæ- mundsson fæddist í Stóra-Bóli í Austur-Skafta- fellssýslu 20. sept- ember 1915. Hann lést á Vífilsstöðum 14. október síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Sæ- mundur Halldórs- son bóndi og póstur og Guðrún Þor- steinsdóttir. Aðal- steinn var þriðji elstur af tíu systk- inum sem upp kom- ust og lifa hann fimm. Árið 1947 kvæntist Aðalsteinn Elín- rós Hermannsdóttur frá Leyn- ingi í Eyjafirði. Börn þeirra eru: 1) Hermann, f. 14.10. 1945, d. 1.7.1988. Maki, Hrönn Helgadóttir. Þau eiga synina Helga Steinar og Heimi Þór. 2) Áslaug Guðrún, f. 26.9.1950, maki Erlingur Tómasson. Þau eiga Tómas og Elínrós. 3) Benedikt, f. 12.4. 1953. Hann á Guðrúnu Völu, Hildi Karen og Ragnar Aðalstein. 4) Heim- ir, f. 19.8. 1953, maki Herdís Snorradóttir. Þau eiga Hörpu og Hörð. 5) Sæmundur, f. 7.8. TENGDAFAÐIR minn, Aðalsteinn Sæmundsson vélstjóri, er látinn. Okkar leiðir lágu saman fyrir 25 árum þegar ég og elsta dóttir hans, Áslaug Guðrún, hófum búskap í litlu húsi á Vesturgötu 54, sem hann átti í félagi við annan. Aðal- steinn rak þá vélsmiðju á Granda- garði og var okkar heimili á leið hans til og frá vinnu. Þetta varð til þess að hann kom oft við hjá okkur á leiðinni heim. Okkur kom mjög vel saman og breyttust kynni okkar fljótlega í góða vináttu sem entist meðan hann lifði og var mér ákaflega mikils virði. Aðalsteinn átti og rak vélsmiðj- una Steinar á Grandagarði í mörg ár og seinast í Örfirisey. Á þessum árum var Grandinn iðandi af lífi frá morgni til kvölds og þar þreifst fjörugt og litríkt samfélag verka- manna, sjómanna, iðnaðarmanna auk annarra sem þangað áttu er- indi. Þarna eignaðist hann mikinn fjölda kunningja og vina og voru landsins gagn og nauðsynjar og pólitíkin rædd af mikilli sannfær- ingu enda kalda stríðið í algleym- 1957, maki Hall- dóra Valgarðsdótt- ir. Þau eiga Guð- björn, Aðalstein og Garðar. 6) Mar- grét, f. 3.8. 1961, maki Örn Hilmars- son. Þau eiga Ernu Margréti og Krist- in Orn. 7) Gyða Kristín, f. 5.10. 1963, maki Ragnar Bjarnason. Þau eiga synina Her- mann Bjarna og Kristófer. Aðalsteinn fór til sjós frá Norðfirði 15 ára gam- all og reri frá ýmsum verstöðv- um á Austfjörðum fram að stríði. Öll stríðsárin sigldi hann til Bretlands. Hann lauk vél- stjóraprófi 1937 og framhalds- námi í þeirri grein 1944. Hann var hjá Bæjarútgerð Reykja- víkur fram til 1960 en þá stofn- setti hann Vélsmiðjuna Steinar ásamt fleirum og rak hana fram yfir sjötugt. Aðalsteinn fór sem vélstjóri til sjós af og til meðan heilsan entist. Utför Aðalsteins fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 15. ingi og lítið um málamiðlanir. Þetta átti ákaflega vel við Aðalstein sem var félagslyndur og ákaflega póli- tískur. Þó að vinnudagur væri iðu- lega langur og erfiður var oft staldrað við og málin rædd og naut Aðalsteinn þess þá hvað hann var feiknalega minnugur á menn og atburði. Hann gat rakið mistök og svikin kosningaloforð krata og framsóknarmanna áratugi aftur í tímann. Þótt orðaskipti hafi stund- um verið snörp held ég að flestir hafi notið félagsskaparins og haft gaman af enda aldrei langt í húm- orinn. Þau ár sem ég þekkti hann vann hann langan vinnudag og yfírleitt eitthvað alla daga vikunnar. Vél- smiðjan var vel þekkt og hikuðu menn ekki við að fara fram á þjón- ustu hvenær sem var. Yfirleitt var Aðalsteinn boðinn og búinn að að- stoða og gera mönnum greiða, þó ekki væri alltaf mikið upp úr þessu að hafa. Á móti ætlaðist hann til að aðrir gerðu það sama en á því var stundum misbrestur og sárnaði honum það. Eftir að hann hætti MINNINGAR rekstri vélsmiðjunnar, kominn fast að sjötugu, kom hann sér upp tækj- um og aðstöðu til að steypa handfærasökkur og var við það meðan heilsan entist, auk tilfall- andi vélstjórnar og vélgæslu bæði á sjó og landi. Aðalsteinn var ágætlega lesinn. Seinni árin hafí hann mestan áhuga fyrir ævisögum og sögulegum fróð- leik. Tími til lestrar var ekki mikill nema helst þegar hann tók að sér að leysa af sem vélstjóri á skipum og fannst honum það vera hvíld frá erlinum á verkstæðinu. Ekki voru þetta alltaf bestu skip flotans og því stundum nóg að gera um borð. Eina slíka ferð fórum við saman til Portúgals, Spánar og Túnis, en þá réð hann mig sem vélstjóra með sér og er sú ferð mörgum sem hana fóru minnisstæð. Aðalsteinn var greindur og hafði ríkt ímyndunarafl og sá oft hlutina í öðru samhengi en aðrir og fyrir bragðið var gaman að vera með honum. Þannig átti hann auðvelt með að vera í félagsskap bæði yngri sem eldri og hann náði góðu sam- bandi við barnabörn sín. Hann fékk reglulega nýjar hugmyndir um hvernig hægt væri að græða pen- inga en sjaldan voru aðstæður til að láta reyna á þær. Aðalsteinn var lánsamur að því leyti að hann hélt vel andlegu atgervi sínu alveg fram á síðustu daga. Hans helsta afþreying þegar hann var kominn á Vífilsstaði, síðustu mánuðina sem hann lifði, var að rekja ættir starfs- fólksins og best gekk ef það var ættað frá einhveiju af sjávarpláss- um landsbyggðarinnar. Vinum sínum og fjölskyldu var Aðalsteinn ákaflega trúr og raun- góður. Hann tók mjög nærri sér ef einhver veiktist eða átti í öðrum erfíðleikum og gerði allt sem hann gat til að hjálpa. Þótt hann væri ósérhlífnasti maður sem ég hef kynnst og hefði oft lent í erfíðum aðstæðum bæði til sjós og lands var hann það viðkvæmur að hann treysti sér yfirleitt ekki að sjúkra- beði en var óþreytandi að senda aðra, hringja og fylgjast með. Eins og margir af kynslóð Aðal- steins bytjaði hann að vinna fyrir sér á barnsaldri og var hann alls ekki sáttur við það. Hann minntist þess stundum þegar hann, langt innan við fermingu, var sendur í vinnu frá heimili sínu á nærliggj- andi bæ til að gæta fjár. Það var niðamyrkur á kvöldin og þarna varð hann svo myrkhræddur að það fylgdi honum alla ævi. Aðalsteinn var róttækur sósíalisti og voru skoðanir hans sprottnar af ríkri réttlætiskennd og mikilli andúð á fátækt og misskiptingu. Aðalsteinn lifði að verða áttræð- ur og má það teljast hár aldur ef litið er til þess að aðbúnaðar sem menn, sem unnu við vélstjóm og jámiðnað, af hans kynslóð urðu að búa við. Einnig hlífði hann sér hvergi og fór langt í frá vel með sig. Hann var heilsuhraustur ef undan em skilin allra síðustu miss- erin sem voru honum erfíð. Vinir hans og ijölskylda kveðja hann í dag og minnast þessa hlýja og sérstæða manns með söknuði. Sársaukinn sem fylgir því að horfa upp á góðan vin beijast við erfíðan sjúkdóm mun dofna og hverfa en minningarbrotin, sem við eigum hvert um sig meðan Aðalsteinn var eins og hann átti að sér, geymum við okkur til gleði. Blessuð sé minn- ing Aðalsteins Sæmundssonar. Erlingur Tómasson. Mig langar í fáum orðum að minnast pabba míns sem er látinn eftir baráttu við krabbamein. Hann var í góðri umönnun hjúkrunarfólks og hafi það þökk fyrir. Pabbi hafði ætíð gaman að að vita hvaðan fólk væri og hverra manna. Mínar fyrstu minningar af pabba voru í vélsmiðju hans á Vesturgöt- unni í litlum skúr. Pabbi var fædd- ur á Stóra-Bóli á Hornafírði og fylgdist hann alltaf með fréttum þaðan bæði til sjós og lands og hafði hann alltaf gaman af að vita hvernig fiskaðist hjá systkinabörn- um sínum fyrir austan. Minnist ég ferðalags sem pabbi, mamma og fjölskylda mín fórum fyrir rúmu ári. Eg spurði pabba hvort hann ætlaði að vera lengi þarna fyrir' austan og hann sagðist ekki vita það því hann þyrfti nú að heim- sækja Óla, Gunna, Rósu, Lóu, Sig- rúnu systur, Munda bróður (Guð- mund), Gógó og Jón og fleira fólk sem ég man ekki að lengur telja. Pabbi og mamma gistu hjá Öllu og Guðmundi, bróður pabba, og veit ég að pabbi hafði gaman af þessari síðustu ferð sinni austur á Hornafjörð. Pabbi hafði vissar skoðanir á pólitík og ekki þær sömu og maður- inn minn. Man ég í fyrsta skipti sem ég kaus að hann sagði við mig: „Magga mín, ég veit að þú munt kjósa rétt.“ Það er svo margt sem kemur í hugann þegar maður hugsar til baka. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti til allra sem heimsóttu pabba á Vífilsstöð- um. Elsku pabbi, ég veit að vel verð- ur tekið á móti þér því þú kvaddir þeta Iíf á 50 ára afmælisdegi Hemma heitins bróður þíns. Hvíl þú í friði. Þín dóttir, Margrét. En í kvöld lýkur vetri sérhvers vinnandi manns og á morgun skín maísól,. það er maísólin hans, það er maísólin okkar, okkar eimningarbands, fyrir þér ber ég fána þessa framtíðarlands. (Halldór Laxness.) I dag verður til moldar borinn vinur minn, Aðalsteinn Sæmunds- son. Ég kynntist Alla fyrst fyrir meira en þijátíu árum, þegar hann stofn- aði Vélsmiðjuna Steinar sf. ásamt föður mínum, Þorsteini Guðmunds- syni. Ég var þá unglingur að byija að kynnast atvinnulífinu. Mér er það minnisstætt hversu létta lund Alli hafði og hvað ég hafði gaman að því að vera í návist hans og hlusta á hann segja frá. Seinna vann ég í nokkur ár í fyrirtæki föður míns og Alla og með okkur tókust góð kynni. Alli var dæmigerður fulltrúi hins vinnandi manns. Hann hafði sem ungur maður þurft að hafa fyrir lífínu. Hann gerði sér því alla tíð grein fyrir að án mikillar vinnu ganga fæstir hlutir upp. Hann var atorkusamur og ósérhlífínn og kunni því illa að sjá verklausa menn. Alli var einlægur og sagði það sem honum brann í bijósti. Sýndar- mennska og látalæti voru ekki að hans skapi. Fátt þoldi hann ver í mannlegum samskiptum en óheið- arleika og hræsni. Alli var sjálfstæður maður í hugsun og verki. Hann vildi standa á eigin fótum og ekki vera neinum háður. Ef hann lenti í vandamálum reyndi hann til hins ítrasta að leysa þau áður en hann fór fram á aðstoð. Alli hafði ákveðnar pólitískar skoðanir. Hann var skemmtileg blanda af atvinnurekanda og verkamanni. Um leið og hann vildi óheft frelsi til athafna þá var hann sterkur talsmaður þeirra sem minna mega sín. Það voru ófáir trillukarlarnir sem komu í smiðjuna og fengu Alla til að vinna fyrir sig og þurftu ekki að borga fyrir. Álli átti góða og skilningsríka konu. Ella stóð alltaf með honum í öllu sem hann tók sér fyrir hend- ur og var hans stoð og stytta. Hún bjó honum og börnum þeirra gott heimili á Holtsgötunni. Með þessum fátæklegu línum vil ég kveðja athafnamanninn Aðal- stein Sæmundsson og þakka hon- um fyrir ánægjulegar samveru- stundir. Án kynna af slíkum manni hefði lífíð orðið fátæklegra. Ég sendi eiginkonu og fjölskyldu innilegustu samúðarkveðjur. Ragnar Þorsteinsson. AÐALSTEINN SÆMUNDSSON JÓHANNES JÓSEPSSON + Jóhannes Jós- epsson fæddist á Melstað í Miðfirði 13. apríl 1911. Hann lést á Akureyri 8. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Þóra Guðrún Jóhannsdóttir, f. 19. mars 1889 á Hofi í Hjaltadal, d. 5. febr- úar 1973, og Jósep Jóhannesson, f. 6. september 1886 á Hörgshóli í Línakradal, d. 23. maí 1961. Systkini Jóhannesar voru Ingibjörg, f. 12. mars 1912, Katrín, f. 28. febrúar 1914, sem nú er látin, Jóhann Hjalti, f. 28. maí 1916, Zóphon- ías, f. 19. janúar 1920, Þóra Guðrún, f. 2.’ mars 1924, og tvíburarnir Dýrunn og Aðalsteinn, f. 27. júní 1930. Jóhannes kvænt- ist Helgu Arnþóru Geirmundsdóttur, f. 1. mars 1918, eftir- lifandi konu sinni, 7. október 1939 og eignuðust þau þijú börn, sem eru: Freyja, f. 10. júlí 1941; Bjarki, f. 10. júlí 1949; og Elísa- bet; f. 11. maí 1962. Utför Jóhannesar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. LÁTINN er Jóhannes Jósepsson, 84 ára að aldri. Ég vil í fáeinum orðum minnast þessa sómamanns. Hann. ólst upp í foreldrahúsum í Múla, Vatnshól, Stórhóli og á Bergsstöðum til 1929, fór það haust í 3. bekk Hvítárbakkaskóla og lauk prófi þaðan vorið 1930. Las utanskóla undir gagnfræðapróf sem hann tók við MA 1931. Hann vann við síldveiðar og landbúnað eftir að skóla lauk og dvaldist síðan við nám í Moskvu 1934- 1935. Eftir heimkomu vann hann um skeið hjá Leðuriðjunni í Reykjavík og var formaður Félags ungra kommúnista og síðar Æsku- lýðsfylkingarinnar í Reykjavík á árunum 1935-38. Á árunum þar á eftir vann hann ýmsa vinnu, svo sem við síldveiðar, setuliðsvinnu, verkamannavinnu og afgreiðslustörf hjá Bifreiðatöðinni Stefni á Akureyri. Einnig var hann skrifstofustjóri Kaupfélags Sigl- firðinga 1944-46. Jóhannes var meðal stofnenda Verkamannaféalgs Akureyrar- kaupstaðar 1943 og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum, þar á meðal ritari þess félags, síðar varaformaður og formaður 1954. . Hann var í byggingarnefnd Ak- ureyrar, varamaður í stjórn Út- gerðarfélags Akureyringa og Slipp- stöðvarinnar, í stjórn Sparisjóðs Akureyrar og í byggingarnefnd Sjálfsbjargar. Einnig var hann í yfirkjörstjórn Norðurlandskjör- dæmis eystra 1971-87. Jóhannes hóf störf hjá Möl og sandi hf. 1963, en nokkru áður hafði hann tekið að sér launaút- reikning starfsmanna, þá starfandi á skrifstofu Sverris Ragnars. Starf- aði Jóhannes með föður mínum, Hólmsteini Egilssyni, í yfir tvo ára- tugi og var samstarf þeirra alla tíð traust og gott. Ég kynntist Jóhannesi strax á unglingsárum mínum í sumarvinnu hjá Möl og sandi hf. og enn betur þegar ég hóf störf hjá fyrirtækinu að námi loknu á miðjum 8. áratugn- um. Jóhannes var hæglátur og yfir- vegaður, sama á hveiju gekk og þótt skoðanir væru skiptar í pólitík kom það aldrei niður á samstarfinu. Mér eru minnisstæðir útborgun- ardagarnir, föstudagar, þegar Jó- hannes greiddi út laun. Fannst honum það ákveðin athöfn og kveikti hann sér þá í vindli í stað pípunnar sem hann reykti daglega á þeim árum. Ávallt vann Jóhannes af mikilli samviskusemi og trúmennsku fyrir fyrirtækið. Það heyrði til algjörra undantekninga að Jóhannes mætti ekki til vinnu vegna veikinda, þó að hin síðari ár hafi hann verið mjög slæmur í mjöðmum og geng- ist undir aðgerðir þess vegna. Eftir að hann hætti störfum hélt hann mikilli tryggð við okkur sem unnum með honum. Á morgungönguferð- um sínum heimsótti hann okkur oft til þess að spjalla og fylgjast með hvað væri að gerast í fyrirtæk- inu. Eftir að Jóhannes lét af störfum hjá Möl og sandi hf. 1983 gegndi hann ýmsum störfum fyrir félagið, því við vildum ekki missa Jóhannes alveg frá okkur. Hann var meðal annars ritari stjórnar og sat alla stjórnarfundi félagsins og félags- kjörinn endurskoðandi var hann allt til dauðadags. Það er óhætt að segja það að Jóhannes átti sinn þátt í því að byggja þetta fyrirtæki upp, sem hann vann svo vel fyrir, og gera það að því sem það er í dag. Þakka ég fyrir að hafa átt sam- leið með þessum sómamanni. Bless- uð sé minning hans. Eiginkonu, börnum, tengdabörn- um og öðrum aðstandendum votta ég samúð mína. Hólmsteinn T. Hólmsteinsson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.