Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ 46 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 nun MIÐNÆTURFORSYNING APOLLO ÞRETTANDI HAN BACO TOJ yjj' j . VATNAVEROLD K b V I N WATE Sýnd kl. 5, 7.30, 9.10 og 11. JARÐARBER OG SUKKULAÐI T‘>i C O S T N E R HWORLD ★** A. Þ. Dagsljós W5. H. T. ' Rás 2. Kr. 400. Sýnd kl. 5, 7 og 9. I kvöld kl 11.30 forsýnum við óvæntasta smell sumarsins í Bandaríkjunum. Alicia Silverstone er mesta megabeib dagsins í dag. Bettíar og Baldwinar landsins, fylgist með giórulausum leik á X-inu í Lögum unga fólksins! Skógardýrið Húgó er komið á sölumyndband. / ‘ Fæst í næstu verslun. Sýnd kl. 5. ega eftir að setja mark i Oskarsverðfjíuna- iar... hvergi er veikan nna." S.V. MBL FRUMSYNNG: AÐ LIFA AÐALKEPPMN í CANNES1994 ' HASKOLABIO SÍMI 552 2140 Háskólabíó STÆRSTA BÍÓIÐ. ALLIR SALIR ERU FYRSTA FLOKKS. „Þetta er ég væri að fá hi ★★★★ e.H. Helgarpósturinn. Sýnd kl. 5, 6.40, 9 og 11.30. Frá frægtasta leikstjóra Kínverja Zhang Yimou kemur ný perla en með aðalhlurverk fer hin gullfallega Gong Li. Að lifa rekur sögu Kína á þessari öld í gegn um lífsskeið hjóna sem taka þátt í byltingu Maós en verða eins og fleiri fórnarlömb menningarbyltingarinnar. Aðalverðlaun dómnefndar í Cannes 1994. Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15. i i I I Nýtt í kvikmyndahúsunum Háskólabíó forsýnir myndina Glórulaus HÁSKÓLABÍÓ forsýnir nú um helgina kvikmyndina Glórulaus eða „Clueless“. Mað aðalhlutverk fer Alicia Silverstone, Stacey Dash, Brittany Murphy og Paul Rudd. Höfundur og leikstjóri er Amy Heckerling. Ef það er einhver í Beverly Hills sem fylgist með þá er það Cher. Hún er alveg að verða 16 ára, hún er rík, meiriháttar vinsæl og finnst æðislega gaman að láta heiminn njóta sérfræðiþekkingar sinnar í öllu því sem skiptir máli. Eins og ástarmálum, tísku og að vera sæt. Og Cher gerir fullt fyr- ir aðra. Auk þess að stjórna heimilishaldinu fyrir pabba sinn (mamma hennar dó í miðri fitu- sogsaðgerð) er hún með tvö ný verkefni: Verkefni númer 1 er að kveikja ástareld á milli herra Hall, félagsfræði- kennarans, og ungfrú Geist sem er reyndar eng- in dís en hefur eitthvað við sig. Auðvitað er Cher ekki að þessu af tómum mannkærleika. Ef hún getur gert herra Hall og ungfrú Geist yfir sig ham- ATRIÐI úr kvikmyndinni Glórulaus. ingjusöm myndi hann kannski hækka einkunnir hennar úr C og ungfrú Geist myndi kannski eitthvað minnka heima- vinnuna sem hún setur alltaf fyrir. Verkefni númer 2 er að taka Tai, nýja nemendann að sér. Tai mætir á svæðið í vonlausri flónel- skyrtu og ótrúlega víðum buxum og Cher ákveður að búa til nýtt útlit fyrir hana. Þetta skólaár lærir Cher samt að hún hefur ekki stjórn á hlutun- um og að heimurinn er í of mik- illi óreiðu til að hægt sé að ráðsk- ast með hann, jafnvel fyrir mann- eskju sem fylgist jafn vel með og hún. Hún á eftir að komast að því að í málefnum hjartans er hún gjörsamlega glórulaus. SUPERSIAR Rokkóperan Súperstar hefur gengið fyrir fullu húsi síðan um miðjan júli, en nú fer hver að verða síðastur að sjá þessa frábæru sýningu, þar sem hún verður að hverfa af fjölunum vegna annarra verkefna hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Sýningardagar sem eftir eru: Föstudagur 27, okt. kl. 20:30 Laugardagur 28. okt. kl. 23:30 Miðvikudagur OL nóv. kl. 20:30 Laugardagur lLnóv. kl. 23:30 Fimmtudagur 16. nóv. kl. 20:30 Fimmtudagur 23. nóv. kl. 20:30 SÍÐASTA SÝNING: Fimmtudagur 30. nóv. kl. 20:30 <9j<9 LEIKFÉLAG M4B REYKjAVIKUR wFW* Borgarleikhús ’ Sími: 568 8000 Frumsýning fyrstn íslensku teiknimyndarinnar í fullri lengd SKÍFAN hf. frumsýnir teiknimynd- ina Leynivopnið, sem er fyrsta ís- lenska teiknimyndin í fullri lengd, í Regnboganum og í Borgarbíói Akureyri í kvöld, föstudaginn 27. október. Teiknimyndin Leynivopnið er framleidd af Skífunni hf. í samstarfi við danska og þýska meðframleiðendur. Hug- myndasmiður og leikstjóri myndarinnar er Daninn Jannik Hastrup sem einnig var maður- inn á bak við hina feikivinsælu teiknimynd Fuglastríð Lumbruskógi, sem útnefnd var besta myndin í samkeppni barna- og unglingamynda í Cannes 1991 (Cannes Junior). Skífan hf. Vinsældir Fuglastríðsins hérlendis vöktu athygli víða um lönd. Þegar Jannik Hastrup og framleiðandinn Per Holst hófu undirbúning að framleiðslu Leynivopnsins könnuðu þeir áhuga Jóns Ólafssonar í Skíf- unni hf. á að taka þátt í framleiðsl- unni og varð það úr. Hilmar Örn Hilmarsson hafði að mestu veg og vanda af tónlist myndarinnar og Egill Ólafsson samdi eitt lag sér- staklega fyrir myndina. Þá var teiknarinn Ásta Sigurðardóttir sem búsett er í Danmörku, í hópi mynd- listarmanna sem unnu að teikni- myndinni. Ólafur Haukur Símonar- son rithöfundur þýddi textann yfír á íslensku og Þórhallur Sigurðsson var fenginn til að leikstýra íslensku talsetningunni. Leikraddir eru í hödnum valinkunnra leikara en þar koma við sögu Jóhann Sigurðsson, Öm Ámason, Magnús Ólafsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Vigdís Gunnarsdóttir, Stefán Jónsson, Þór Sigurðsson, Álfrún Örnólfsdóttir, Anita Briem og Guð- laug María Bjamadóttir. Leynivopnið segir af tveimur apafjölskyldum í frumskóginum. Fjölskyldurnar tvær' hafa vægast sagt illan bifur hvor á annarri. Ástarsaga Rómeos og Júlíu endur- tekur sig er tveir ungir apar, Hekt- or og Elvíra, verða ástfangin en þar sem þau koma úr sitt hvorri fjöl- skyldunni er þeim meinað að eigast. Attila, höfuð annarrar fjölskyldunnar, bannar Hekt- or allt samneyti við Weiss- muller fjölskylduna þ.á m. Elvíru en þá minnist manna Attila sögunnar af Leyni- vopninu sem hún telur falið einhvers staðar á yfirráða- svæði Weismuller fjölskyld- unnar. Fjör færist í leikinn er Attila tekur Elvíra í gísl- ingu og neitar að leysa hana úr prísundinni nema að fá Leynivopnið í staðinn. Maja, systir Elvíra, finnur Leyni- vopnið, boga og ör, sem er ekkertvenjulegt vopn. Styrk- ur vopnsins breytir innræti Maju til hins verra því hún vill fara með stríði á hendur Attila fjölskyldunnar og leggja skóginn undir yfirráð sín. Upphefst mikill darraðardans og svo fer að Leynivopnið ógurlega lendir í hönd- unum á Elvíru. Fyrr en varir tekur boginn ógnvænlegi að skjóta Amors-örvum. Því þegar allt kemur til alls er fín línan á milli ástar og haturs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.