Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 9 FRÉTTIR Morgunblaðið/Sverrir ÞRÍR ráðherrar kynntu sér stöðu mála í gærmorgim í sljórnstöð Almannavarna ásamt þingmönn- um Vestfjarða og stjórnarmönnum Almannavarna. INGÓLFUR ELDJÁRN tannlæknir Hef opnað tannlæknastofu mína að Vegmúla 2, 5. hæð, Reykjavík. Viðtalstími eftir samkomulagi. Sími: 588 2110 GSM farsími: 896 9711 Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra Fumlaust skipulag bj örgunaraðgerða ÞORSTEINN Pálsson dómsmála- ráðherra segir að skipulag björgun- araðgerða á Flateyri hafí verið gott og tekist hafi með skjótum hætti að koma björgunarliði á vettvang. „ Við erum harmi slegin eftir þess- ar hamfarir. Þarna hefur átt sér stað mikill harmleikur og hugur okkar og samúð er hjá þeim sem hafa misst ástvini sína. Þá er okkur ofarlega í huga mikið þakklæti til allra þeirra sem hafa unnið að björg- un fólks frá því að slysið varð. Það er gífurlegur fjöldi heimamanna og aðkomumanna sem hafa ekki aðeins lagt mikið á sig heldur sýnt mikið hugrekki. Öllu þessu fólki færum við miklar þakkir,“ sagði Þorsteinn. Hann sagði að Almannavamir og björgunaraðilar hefðu verið með gott skipulag og tekist hefði að skipuleggja hjálp eins hratt og nokkur föng voru á. Spurningar vakna „Orka manna fór í það að koma fyrstu hjálp eins fljótt og hægt var. Ég kom í stjórnstöð Almanna- varna skömmu eftir að aðgerðir hófust og það var greinilegt að þeir sem þar voru unnu mjög skipu- lega og fumlaust og vissu hvað þeim bar að gera. Það sýndi sig að það var hægt með mjög skjótum hætti að koma björgunarliði á vett- vang,“ sagði Þorsteinn. Þegar Þorsteinn var spurður hvort ekki væri ástæða til að auka viðbúnað á Vestfjörðum í ljósi þess hvað þessir atburðir gerast snemma vetrar, sagði hann ljóst að ýmsar spurningar vöknuðu þegar stað- reyndir yrðu metnar. „Það er þegar ljóst að snjóflóðið fór verulega yfir þau mörk, gömul og ný, sem menn hafa talið vera hættumörk. Allt þetta þarf því að skoða af yfirvegun þegar fyrstu björgunaraðgerðum lýkur, en á þessu stigi er of fljótt að kveða upp úr um það í einstökum atriðum," sagði Þorsteinn. TIL FÉLAGSMANNA í SAMTÖKUM IÐNAÐARINS í nóvember verða haldin eftirtalin námskeið fyrir félagsmenn SI. Námskeiðin verða sérstaklega sniðin að þeim hópum sem sækja þau hveiju sinni. Frekari upplýsingar og skráning hjá skrifstofu SI, s. 511 5555. Markaðsmál iítilla fyrirtækja Markmið námskeiðsins er að kynna stjórnendum lítilla fyrirtækja möguleika að kynna starfsemi sína með sem minnstum tilkostnaði. Leiðbeinandi er Guðný Káradóttir hjá Útflutningsráði. Tími: Fös. 3. nóv. kl. 13-18 og lau. 4. nóv. kl. 10-15. Verð: 6.850 kr. f. félagsmenn SI, 9.500 kr. fyrir aðra. Verkhókhald fyrir bakarameistara Markmið námskeiðsins er að kynna verkbókhald og þjálfa notkun þess. Með verkbókhaldi er óbeinum kostnaði, sem ekki er hægt að tengja ákveðnum verkum eða verkþáttum, dreift. Leiðbeinandi er Þorlákur Björnsson hjá Samvinnuháskólanum Bifröst. Tími: Fim. 16. nóv. kl. 13-17. Verð: 3.500 kr. f. félagsmenn SI, 6.500 kr. fyrir aðra. Gæóastjórnun í hyggingariðnaði Markmið námskeiðsins er að kynna vaxandi kröfur opinberra aðila um að verktakar sýni fram á gæðastjórnun við verkframkvæmdir. Leiðbeinandi er Ólafur Jakobsson hjá íslenskri gæðastjórnun sf. Tími: Fim. 9. nóv. kl. 10-13 og fös. 10. nóv. kl. 9-13. Verð: 7.000 kr. f. félagsmenn SI, 9.500 kr. fyrir aðra. Námskeið fyrir Ijósmyndara Markmið námskeiðsins er að kynna undirstöðuatriði í förðun er nýtast Ijósmyndurum í daglegu starfi þeirra. Leiðbeinandi er Kristín Stefánsdóttir, snyrtifræðingur. Tími: Fös. 24. nóv. kl. 13-15. Verð: 3.000 kr. f. félagsmenn SI, kr. 5.500 kr. fyrir aðra. <§) SAMTOK IÐNAÐARINS Vandaðar dömubuxur. Verð frá kr. 8.900. Sendum í póstkröfu. ■■n Opib laugardag fra kl. 10—14 I n55v« - Veríð velkomin - neðst \úð °P‘ð virka da8a . kl.9-18, Dunhaga, laugardaga sími 562 2230 kl. 10-14. Fólk er alltaf að íGuilnámunni: 69 milljónir Vikuna 19. til 25. okt. voru samtals 69.574.070 kr. greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þar bar hæst Gullpottinn en einnig voru greiddir út veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öðrum vinningum. Gullpottar í vikunni: Dags. Staður Upphæð kr. 21. okt. Háspenna, Laugavegi......4.599.661 Silfurpottar í vikunni: 19. okt. Rauða Ijónið............... 254.780 19. okt. Pizza 67, Egilsstöðum.... 67.439 19. okt. Ölver....................... 75.344 20. okt. Ölver....................... 96.116 22. okt. Ölver.................... 308.212 23. okt. Hanastél, Kópavogi......... 186.010 23. okt. Mónakó...................... 72.069 24. okt. Ölver...................... 140.305 25. okt. Háspenna, Hafnarstræti... 135.726 Staöa Guilpottsins 26. október, kl. 12:00 var 2.463.927 krónur. Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr. og hækka síðan jafnt og þétt þar til þeir detta. vinna - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.