Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 15 FRÉTTIR Fólk og fénaður lenti í hrakningum á Jökuldal Jökuldal. Morgunblaðið. VONT veður gekk yfir Jökuldal og nágrenni aðfaranótt þriðjudags og á miðvikudag. Vegfar- endur lentu í erfiðleikum á Möðrudalsfjallgörðum og á miðvikudag voru sjö manns veðurtepptir í Möðrudal. Að sögn Vemharðs Vilhjálmssonar, bónda í Möðrudal, festist fyrsti bíllinn rétt við bæinn í Möðrudal á miðvikudagskvöld. Var það fólksbíll sem lenti út af veginum vegna lélegs skyggnis. Aðfaranótt þriðjudags voru þrír bílar tepptir á Vestari fjallgarði skammt austan Möðrudals, tveir vel búnir jeppar og vörúbíll. Jepparnir kom- ust ekkert áfram vegna veðurofsans og skyggni var ekkert. Ökumaður annars jeppans tók það til bragðs að aka honum út í næsta skafl og spóla hann niður svo hann fyki ekki. Um þetta leyti voru 11 vindstig í Möðrudal og enn hvass- ara uppi á Fjallgarði. Ung börn eyddu nótt í jeppa Fólkið beið í bílunum frá því á þriðjudags: kvöld fram undir kl. 6 á miðvikudagsmorgun. í öðmm jeppanum voru hjón með tvö börn, tveggja mánaða og fimm ára. Að sögn Vernharðs fór vel um fólkið í bílunum, enda voru bílamir vel búnir og vanir menn á þeim. Fólkið kom síðan á jeppunum heim í Möðmdal, en vömbíllinn var skilinn eftir austur í Fjallgarði. Veðrinu slotaði um stund á miðvikudagsmorgun, en herti svo að nýju, en ferðalangamir em nú við besta yfírlæti í Möðmdal hjá Vemharði og Önnu Bimu Snæ- þórsdóttur, bændum þar, og bíða ferðaveðurs. Röskun í sláturhúsinu Nokkur röskun varð á vinnu í sláturhúsinu að Fossvöllum. Að sögn Jónasar Guðmundsson- ar, sláturhússtjóra, var ekki hségt að byija að vinna strax á miðvikudagsmorgun vegna þess að fólk komst ekki til vinnu á réttum tíma og var það að tínast til vinnu fram undir hádegi. Akstur sláturlamba til hússins riðlaðist nokkuð, en með tilfærslum var hægt að fá nóg fé til að lóga á miðvikudag. 500 lömb bíða hins vegar flutnings frá Borgarfirði og er fjárflutningabíll veðurtepptur þar. Var vonast til að hægt yrði að ryðja veginn svo hægt verði að koma lömbun- um uppfyrir, en takist það ekki er fyrirsjáanleg nokkur röskun á lógun á Fossvöllum, að sögn Jónasar. í Hróarstungu fór rafmagn af aðfaranótt þriðjudags og komst ekki á fyrr en seint á mið- vikudag. Hjörtur Friðriksson, bóndi í Skóghlíð, sagði að veðrið hefði farið að versna til muna um miðnættið og verið mjög vont alla nóttina. Lömb, sem Hjörtur var með í girðingu, lentu í hrakningum, brynjuðu mikið og fuku til. Sagði Hjörtur að aðkoman hefði verið þannig að lömb- in líktust einna helst stórum snjóboltum með fjórum prikum uppúr þar sem fæturnir voru, en lömbin sneru allavega. Ekkert lamb drapst þó og var hægt að koma þeim öllum í hús. Skólahald úr skorðum í skoddunni Skólahald fór úr skorðum á Skjöldólfsstöðum á miðvikudag þar sem ekki var hægt að koma öllum bömunum til skóla vegna veðurs, en dag- legur akstur bama er til skólans um þessar mundir, fram að næstu mánaðamótum. Ekki em líkur til að veðrið gangi niður í dag, því veðurspá gerir ráð fyrir svipuðu veðri áfram. Fólki, sem fréttaritari talaði við, fínnst veturinn leggjast að allt of snemma og betra hefði verið að geyma þessa skoddu fram í nóvember, þegar fé er allajafna komið á hús og fólk betur búið undir svona óveðurskafla. Mílljóna Ijóná Bakka- firði Bakkaflrði. Morgunblaðið. MIKLAR skemmdir urðu á hafnarmannvirkjum á Bakka- fírði í stórbrimi þar sem öldu- hæð var allt að fímm metrar á miðvikudaginn. Brimið tók af allt ysta gijót- lagið á ytri helmingi brim- varnargarðs um 50-70 metra langt, en í ysta laginu er gijót sem vegur 2-5 tonn. Nú er lítið eftir nema endinn á garð- inum og öll innri klæðningin. Það sést víða í gegnum efri hluta garðsins. Ólíklegt er að garðurinn muni þola nokkur átök án mikilla endurbóta að sögn Steinars Hilmarssonar oddvita og er hann mjög uggandi um höfnina fyrir veturinn og verð- ur bátaeigendur hvattir til að hafa ekki báta sína í höfnini, þá sem ekki verða í notkun. Árið 1993 var gert við brim- varnargarðinn fyrir 20,9 millj- ónir og er þetta tjón meira að sjá. Flæddi yfír trébryggjur Þegar brimið gekk yfir brimvarnargarðinn hækkaði yfírborð sjávar í höfninni mjög mikið svo flæddi yfír báðar trébryggjunar og varð dýpið niður á þær allt að 1 fet. Slitn- uðu tvær 8/4“ keðjur sem héldu flotbryggjunni við land þannig að hún losnaði, sett voru nælontóg til að halda henni út á höfninni með alla bátana 13 á. Byijað var að festa flotbryggjunni aftur í gærmorgun og kom kafari til verksins frá Vopnafirði. Egn- ar skemmdir urðu á bryggj- unni né á bátunum sem við hana voru. Einnig varð tjón á gólfþekju hafskipabryggjunn- ar við uppkeyrslumar af henni en þær hafa lítið verið skoðað- ar. Menn frá Vita- og hafna- málastofnun koma til að meta tjónið strax og hægt er. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson REYKJAFOSS, skip Eimskipafélags íslands, á strandstað í Sundunum á ísafírði aðfaranótt miðvikudags. Reykjafoss losnaði af strandstað eftir 12 tíma ísafirði. Morgunblaðið. REYKJAFOSS, skip Eimskipafé- lags íslands, sem strandaði í inn- siglingunni til ísafjarðarhafnar á þriðjudagskvöld losnaði af strandstað kl. 10 morgunin eftir, tólf klukkustundum eftir að skip- ið tók niðri. Eins og greint var frá í blaðinu í gær tók Reykjafoss niðri í Sund- unum á ísafirði er skipið var á leið til hafnar í aftakaveðri. Er skipið kom fyrir Suðurtangann náði það ekki að beygja fyrir roki og rak því upp að kanti inn- siglingarinnar og festist að fram- an. Ekki tókst að losa skipið fyr- ir eigin vélarafli og var skuttog- arinn Þorsteinn EA fenginn til aðstoðar, en það verk tókst ekki fyrr en morguninn eftir. Áhöfn skipsins var aldrei í hættu. Eftir að Reykjafoss hafði verið losaður af strandstað lagðist hann að bryggju og lestaði vör- ur. Síðdegis í gærdag beið skipið átekta á Isafirði vegna veðurs en leið þess mun síðan liggja til Akureyrar. EINN þeirra farþega sem komu með Reykjafossi til ísafjarðar og fékk far í land með lóðsbátnum í nótt var bæjarstjórinn á ísafirði, Kristján Þór Júlíusson, sem hafði verið veðurtepptur í Reykjavík síðan á sunnudag. Ekkí talin snjóflóða- hætta í Bol- ungarvík Bolungarvík. Morgunblaðið. ÓVEÐRIÐ náði hámarki hér uppúr miðnætti aðfaranótt fimmtudags og gekk á með miklum vindhviðum og tals- verðri snjókomu. Uppúr hádegi fór veðrinu að slota og í gær gekk vindur nið- ur en nokkuð hefur sett niður snjó. Engin óhöpp hafa orðið á þessum síðasta sólahring hér í bæ en vegna veðursins var allt skólahald fellt niður í dag. Almannavarnanefnd Bol- ungarvíkur kom saman til fundar um klukkan átta í gær- morgun og komst að þeirri nið- urstöðu eftir að tekist hafði að kanna fjallið ofan við bæjinn að ekki væri ástæða til að rýma hús eða gera sérstakar ráðstaf- anir, en áfram verður fylgst náið með og málið endurskoðað ef aðstæður breytast. Starfsmenn Orkubús Vest- fjarða geta framleitt um 3,4 MW með díselvélum og er það rafmagn jafnframt nýtt á orku- netinu á ísafírði þannig að nokkuð hefur verið um að raf- magn hafí verið skammtað og má gera ráð fyrir að það ástand vari jafnvel fram yfir helgi. Sæmilega fært er um flestar götur bæjarins. Nokkuð greiðfært í flestar áttir Húsavík. Morgunblaðið. HÚSAVÍK hefur sloppið vel í því veðraáhlaupi, sem gengið hefur yfír síðustu daga í síð- ustu viku sumars. Úrfelli hefur verið mikið en rigning og slydda þar til að- faranótt miðvikudags að kólna tók og festi þá nokkurn snjó svo að ekki varð greiðfært um götur bæjarins fyrr en búið var að yfirfæra þær með snjóruðn- ingstækjum. Mikið brim hefur fylgt veðrinu en engir skaðar orðið í höfninni. Rafmangstruflanir hafa engar orðið á Húsavík og línan frá Laxárvirkjun hefur staðið sig vel og ekki orðið fyrir áföil- um. Vegir voru illfærir og ófær- ir í báðar áttir í gær. Kúludrátt- ur var á þeim víða en nú er verið og búið að hreinsa þá og nokkuð greiðfær í flestar áttir. Sjónvarps- og útvarpssending- ar féllu niður nokkrum sinnum á miðvikudag. Reykhólasveit Snjóflóð yf- ir veginn við Hrafnanes Reykhólasveit. Morgunblaðið. JÁRNPLÖTUR hafa fokið af einu íbúðarhúsi á Reykhólum og hurðir fokið af geymslum. Rafmagnsstaurar brotnuðu með þeim afleiðingum að raf- magnslaust var í Gufudals- sveit í gær. Vegurinn er ófær út að Reykhólum en snjóflóð hefur fallið yfir veginn á Hrafna- nesi, rétt fyrir innan bæinn Barma. Rafmagnslaust er á nokkrum bæjum hér um slóðir og m.a. fauk spennir niður á einum bæ í Geiradal. Fólk hef- ur verið flutt af tveimur bæjum á Reykjanesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.