Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Marga daga tekur að gera við skemmdir á rafmagnslínum Gífurlegt tjóná raflínum á Norðurlandi og Yestfjörðum Morgunblaðið/Kristinn VIÐGERÐARMENN unnu að því á Skaga.strönd að hreinsa ísingu af raflínum. Þar var línuslá brotin. Síðdegist tókst að koma straum á línuna. Mesta tjón á Vestfjörðum frá því Orkubú Vestfjarða tók til starfa Á ÞRIÐJA hundrað rafmagns- staurar brotnuðu í óveðri sem gekk yfir Norðurland í gær og fyrra- dag. A.m.k. 68 staurasamstæður brotnuðu í Arnarfirði og Onundar- firði og enginn orkuflutningur á sér stað frá Orkubúi Vestfjarða. Tug milljóna króna tjón hefur orð- ið og er Ijóst að marga daga tekur að koma rafmagni á alls staðar. Líkur eru á að viðgerð á Vestfjörð- um ljúki ekki fyrr en líður á næstu viku. Vararafstöðvar eru keyrðar á öllum þéttbýlisstöðum á Vest- fjörðum og víða á Norðurlandi. Tjónið á raflínum hjá Orkubúi Vestfjarða er gríðarlegt. Að sögn Kristjáns Haraldssonar orkubús- stjóra er þetta mesta tjón sem orðið hefur síðan Orkubú Vest- fjarða hóf starfsemi sína. Hann sagði að ekki væri búið að fara með öllum línum og því ekki ljóst hvað tjónið væri mikið, en það skipti tugum milljóna. Keyrt á varaafli á Vestfjörðum Tvær línur eru frá Mjólkárvirkj- un og eru þær báðar stórskemmd- ar og þess vegna á sér ekki stað neinn flutningur á rafmagni frá Orkubúinu. Kristján sagði að 15 staurastæður væru brotnar í Arn- arfirði í 66 kW raflínunni og 9 staurastæður í línunni í Önundar- fírði. A.m.k. 30 staurastæður væru brotnar í Arnarfirði í 30 kW línunni og 14 í Önundarfírði. Krist- ján sagði að viðgerðarmenn hefðu ekki getað komist í að gera við línumar í gær. Unnið hefði verið að því að kanna ástandið, undirbúa viðgerðir og gera við sveitalínur. Þá hefði talsverður tími farið í að aðstoða við rafmagnsmál á Flat- eyri. Vestfirðir eru sá landshluti sem er best búinn hvað varðar varaafl. Varaaflstöðvar eru keyrðar á Pat- reksfirði, Bíldudal, Tálknafirði, Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Bol- ungarvík, ísafírði og Súðavík. Kristján sagði að nú væri leitað leiða til að gera við til bráðabirgða þannig að hægt væri að hætta keyrslu varaaflstöðva, enda fylgdi keyrslu þeirra mikill kostnaður. Hann sagði með öllu óljóst hvenær viðgerð lyki, en sagðist allt eins eiga von á að það yrði ekki fyrr en í lok næstu viku. 40 staurar brotnir á Norðurlandi vestra Ástæðan fyrir skemmdunum er sú að mikil ísing hlóðst á raf- magnslínurnar í fyrrinótt og staur- ar brotnuðu undan þunganum. Frost er ekki í jörðu og þess vegna er mikið um að staurar hafí hall- ast undan veðrinu. Um 40 staurar brotnuðu á Norðurlandi vestra, þar af 30 í Skagafirði og 10 í A-Húnavatns- sýslu. Línan til Skagastrandar datt út snemma í fyrradag og gátu viðgerðarmenn ekki hafið viðgerð fyrr en í gær vegna veð- urs. Rafmagn var skammtað á Skagaströnd þar til viðgerð lauk síðdegis í gær. Miklar skemmdir urðu á Fellslínu, en allir staurar brotnuðu á nærri tveggja kíló- metra kafla. Gert var við til bráða- birgðar. Ekki tókst að ljúka við- gerð í Skagafirði og eins var raf- magnslaust í Fljótum og á Skaga. Haukur Ásgeirsson, umdæmis- stjóri hjá Rafmagnsveitu ríkisins á Blönduósi, sagði að um 35 manns hefðu unnið að viðgerð á Norðurlandi vestra. Viðgerðar- menn hefðu komið frá Borgar- nesi, Hvolsvelli og Reykjavík. í dag yrðu menn frá Norðurlandi vestra sendir áfram til aðstoðar á Norður- landi eystra þar sem mikil viðgerð- arvinna er óunnin. Haukur sagði að á undanförnum fimm árum hefðu um 100 kflómetrar af raflín- um verið lagðar í jörðu. Enginn vafi léki á að tjón hefði orðið margfalt meira ef þetta hefði ekki verið gert. Línur í Aðaldal og við Þórshöfn ónýtar Tryggvi Þór Haraldsson, um- dæmisstjóri Rafmagnsveitu ríkis- ins á Norðurlandi eystra, sagði að tjón á raflínum í landshlutanum væri gífurlegt. Ástandið á svæðinu væri verra en árið 1991, en þá varð mikið tjón á raflínum á Norðurlandi. Hann sagði að líklega væru yfír 200 rafmagnsstaurar brotnir. Verst væri ástandið í N- Þingeyjarsýslu. í Aðaldal væru um 70 staurar brotnir og línan til Þórshafnar væri stórskemmd og líklega tæki marga daga að gera við hana. Varaaflstöðvar voru keyrðar á Þórshöfn, Kópaskeri og Raufar- höfn. Sídegis í gær stóðu vonir til að viðgerð á línunum til Kópa- skers og Raufarhafnar lyki fyrir kvöldið, en ljóst þykir að langan tíma taki að byggja línuna til Þórs- hafnar upp. Miklar skemmdir eru í Öxarfirði og Kelduhverfi og var unnið að því að setja upp díselraf- stöð í Kelduhverfí, en hún var flutt frá Suðurlandi. Raflínan milli Ólafsíjarðar og Skeiðsfossvirkjunar er straumlaus og benti flest til þess í gær að viðgerð myndi ekki ljúka fyrr en í dag. Tryggvi sagði að óljósar fregnir hefðu borist af því að snjó- flóð hefði fallið á línuna milli Dal- víkur og Ólafsfjarðar. Hann sagði að ástandið væri skárra í Eyja- fírði. Viðgerð myndi væntanlega ljúka á Svalbarðsströnd og Hjalt- eyri fyrir nóttina. Aðstæður til viðgerða á Norður- landi voru sæmilegar í gær. Víða var þó mjög hvasst. Morgunblaðið/Kristinn Sauðfé fennti í kaf á Norðurlandi FLEST bendir til að margar kindur hafi drepist í óveðrinu sem gekk yfír Norðurland í fyrrinótt. í gær unnu bændur að því að grafa fé úr fönn. Búið er að fínna eitthvað af dauðum kindum og fjölda fjár er enn saknað. Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu bændur við leitina í gær. Bændur voru almennt ekki farnir að taka fé á hús þegar veðrið skall á, en að jafnaði gerist það ekki fyrr en í nóvem- ber. Margir reyndu þó að ná fé inn í fyrradag þegar spáð var illviðri, en fæstir voru búnir að ná öllu inn. Sverrir Björnsson, bóndi í Brautarholti í Hrútafirði, náði ekki öllu sínu fé inn í fyrradag vegna þess að hann var að Ijúka við slátrun í sláturhúsinu á Borðeyri. í gær vann hann hörð- um höndum við að bjarga því sem eftir var úti. Hann fann í gær 15 dauðar kindur og saknar enn a.m.k. 6 gemlinga. Hann sagðist ekki eiga von á að finna þá á lífi. Sækja í skurðbakka Hulda Einarsdóttir, bóndi á Reykjum í Hrútafirði, sagði að kindurnar leituðu í skjól í skurð- bökkum og færu þar á kaf 1 fönn. Hún sagði að bændur á Reykjum hefðu dregið um 100 kindur Iifandi úr fönn i gær. Aðkoman hefði verið slæm. í girðingu nærri bænum hefði verið stór skafl og þar hefðu bara hausar kindanna staðið upp úr snjónum. Síðdegis í gær sagði Hulda að enn væri margra kinda saknað, en ástandið væri þó mun betra en hún hefði þorað að vona þegar leit hófst í gær. Björgunarsveitarmenn frá Blönduósi aðstoðuðu bændur við að grafa fé úr fönn. Þeir fóru t.d. að Stóruborg í Vestur- hópi. Síðdegis hafði þeim tekist að finna z/s fjárins á bænum. Áður en leit að kindunum gat hafist barðist heimilisfólkið á Stóruborg við að bjarga hlöðu, sem mikil hætta var talin á að fyki. Ekki er búist við að það skýr- ist fyrr en eftir nokkra daga hvað mikið tjón hefur orðið á búfé á Norðurlandi í óveðrinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.