Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 11 FRÉTTIR Neyðarathvarf og upplýsingamiðstöð sett upp í höfuðstöðvum Rauða krossins í Reykjavík Fjöldi fólks leitaði upplýsinga og áfallahjálpar UM 500 Flateyringar og ástvinir fólks á Flateyri höfðu lagt leið sína í hús Rauða kross íslands (RKÍ) við Rauðarárstíg um kvöldmatarleytið í gær. Yfir 1.000 fyrirspurnir höfðu þá bor- ist í síma. í hópi gesta í RKÍ-hús- inu var skólafólk við nám í Reykjavík, veðurtepj)tir Flateyr- ingar og fleiri. í RKI-húsinu var miðstöð upplýsinga um hvernig leitinni að hinum týndu miðaði, hverra var saknað og hverjir fundust lífs eða liðnir. Starfsfólk RKÍ, hópur presta og sérfræð- ingar í áfallahjálp frá Borgar- spítalanum, alls á fjórðatug starfmanna, voru gestum til hjálpar. I kjallara Hótels Lindar var opnað neyðarathvarf sem rúmaði um 100 manns til að taka á mótí fólkinu og þar var einnig sett upp kapella. Nokkur her- bergi á 3. hæð Hótels Lindar voru notuð vegna áfallahjálpar. Inni loguðu kerti og úti fyrir blöktu viða fánar í hálfa stöng. Erfitt að trúa því að þetta hafi gerst aftur Séra Karl V. Matthíasson var í hópi prestanna í RKÍ-húsinu. Hann hefur viða þjónað á Vest- fjörðum, var vígður til Súganda- fjarðar og þjónaði síðan á Isafirði og er nú á Tálknafirði. Þegar snjóflóðið féll í Súðavík í vetur er leið tók séra Karl mik- inn þátt í áfallahjálp vegna þeirra atburða. Séra Karl er fulltrúi vestfirskra presta á Kirkjuþingi og staddur þess vegna í borginni. Hann var lát- inn vita í gærmorgun af atburð- unum vestra. — Hver er þjónusta prests við aðstandendur við þessar kring- umstæður? „Það er bara að vera með fólk- inu, vera hjá því, sýna því sam- hug og reyna að veita því styrk,“ svaraði Karl. „Það er hérna lítil kapella. Þar getur fólk hugsað og farið með bænir.“ Karl sagði að í RKÍ-húsið í gær hafi bæði komið nánir aðstand- endur þeirra sem lentu í snjó- flóðinu og fjarskyldir, brottflutt- ir Flateyringar sem enn eiga ættingja fyrir vestan og aðrir. Sá háttur var hafður á að færa öllum hópnum fréttir af árangri leitarinnar jafnóðum og þær bárust frá Almannavörnum. Séra Karl sagði þann kost valinn því litið væri á þennan hóp sem samstæða fjölskyldu, þar sem flestir væru í raun á sama báti. — Snjóflóðin í Súðavík eru í fersku minni. Hvað nú þegar þetta bætíst við? „Það liggur við að mér detti í hug að segja að fólk trúi því ekki að svona hafi gerst aftur. Það var komið nýtt hættumat [á Flateyri], þetta sýnir að reglurn- ar ná ekki yfir hamfarir náttúr- unnar.“ Fjárhagsaðstoð til Flateyringa Allt tiltækt starfsfólk RKÍ var kallað til starfa í gær auk sjálf- boðaliða, að sögn Kristjáns Sturlusonar, yfirmanns innan- landsdeildar RKÍ. f höfuðstöðv- um RKÍ við Rauðarárstíg í Reykavík voru 22 að störfum, auk þess fóru 9 starfsmenn RKÍ vestur á Flateyri til að setja upp fjöldahjálparstöð. Strax í gærmorgun var sett upp símaupplýsingaþjónusta í RKÍ-húsinu. Til að byija með voru mannaðir þrír upplýsinga- símar en þeim fljótlega fjölgað í fimm. Stjórn RKÍ ákvað í gær að veita 20 milljónir króna til hjálp- ar Flateyringum. „Þessi fjárhæð er ætluð til að veita fyrstu að- stoð,“ sagði Kristján. „í svona slysi er ekkert eftír. Það fer allt. Þessi aðstoð er ætluð tíl að hjálpa fólki að fata sig, létta undir á heimilum þar sem það fær inni eða hjálpa því að útvega sér hús- næði. Ef fólk þarf áfallahjálp til lengri tíma getur hún verið kostnaðarsöm," sagði Kristján. Morgunblaðið/Sverrir SÉRA Birgir Ásgeirsson, sem veitti neyðarathvarfinu forstöðu, og séra Helga Soffía Konráðsdóttir í kapellunni í RKÍ-húsinu. NÍNA Helgadóttír, starfsmaður RKI, við símann. Um allt húsið mátti sjá logandi kerti. SÉRA Karl V. Matthíasson, prestur á Tálknafirði, var staddur í Reykjavík vegna Kirkjuþings og tók þátt í áfallahjálp í RKÍ-húsinu. KRISTJÁN Sturluson, yfir- maður innanlandsdeildar RKI, hafði yfirumsjón með upplýsingaþjónustu á vegum RKÍ vegna snjóflóðsins. Þingeyri Páll Pétursson félagsmálaráðherra Engan óraði fyrir að flóð gæti fallið svona langt Rýmt á 4 bæj- um og Núpi SMÁÉUAGANGUR og þokkalega bjart var í Þingeyri um miðjan dag í gær. Rafmagn var skammtað í bænum og skólahald féll niður vegna veðurs. Jónas Ólafsson, sveitarstjóri, sagði að prestur, hjúkrunarfólk og 16 manna björgunarlið hefði farið til Flateyrar milli kl. 7 og 8 gær- morguninn. Sextán björgunar- sveitarmenn til viðbótar fóru til Flateyrar kl. 11. Snjóruðningstæki héldu heiðinni yfir í Önundarfjörð til Flateyrar opinni og tók um 30 mínútur og komast yfir hana. Þeg- ar gott er tekur um 20 mínútur að fara sömu leið. Engin snjóflóðahætta er á Þing- eyri. Hins vegar var snjófljóða- hætta í norðanverðum Dýrafirði og voru þrír bæjir, Fremri-Hjarðar- dalur, Fremstuhús og Gil, rýmdir í fyrrakvöld og fyrrinótt. Núps- skóli var rýmdur vegna snjóflóða- hættu. Ein fjölskylda var í skóla- húsinu. EKKI er búið að ganga frá nýju snjóflóðahættumati fyrir Flateyri, en unnið hefur verið að því að und- anförnu skv. nýrri reglugerð sem sett var í sumar. Páll Pétursson félagsmálaráðherra er þegar búinn að staðfesta nýtt hættumat fyrir Súðavík, Hnífsdal og Tungudal. Nýtt siy'óflóðahættumat er ófrágengið „Það var ekki búið að ganga frá nýju snjóflóðamati fyrir Flateyri, en ég undirritaði reglugerðina um hættumat vegna snjóflóða í júní. Ég hygg að engan hafi órað fyrir að snjóflóð myndi geta farið svona langt,“ sagði Páll. Félagsmálaráðherra kvaðst ekki þekkja í smáatriðum þau drög að hættumati fyrir Flateyri sem unnin hafa verið að undanförnu. Nefndin Stuðst við kana- dískt og norskt reiknilíkan í hættumatinu sem vinnur að hættumatinu styðst bæði við kanadískt og norskt reiknilíkan auk sögulegra gagna, að sögn Páls. „Það eru ekki frá- sagnir um að snjófloð hafi nokkru sinni gengið svona langt,“ sagði hann. Ráða átti snjóflóðaeftirlitsmann á Flateyri í gær „Ég skrifaði lögreglustjórum bréf 10. október þar sem rekið var á eftir þeim að ráða snjóflóðaeftir- litsmenn og óskuðum við eftir að það fengi algera flýtimeðferð. Það stóð til að ganga frá ráðningu snjó- flóðaeftirlitsmanns á Flateyri í dag (fimmtudag). Uggur í brjósti „Þetta eru miklar hörmungar. Svo virðist sem mönnum gangi illa að átta sig á náttúruöflunu,“ sagði Páll. „Maður ber ugg í brjósti. Venjulega hafa snjóflóðin á Flat- eyri fallið úr Ytra-Bæjargili en þetta flóð féll úr Skollahvilft og háskinn sem Flateyri hefur verið talinn stafa af snjóflóðum hefur verið af flóðum úr Ytra-Bæjargili en ekki úr Skollahvilftinni. Það má reikna með að þar sé mikil snjósöfnun sem geti hlaupið fram líka. Það er ekkert öruggt,“ sagði Páll. Arósaháskóli gefur hálfa milljón Féð renni til áfalla- hjálpar STJÓRNENDUR Árósahá- skóla í Danmörku hafa fært íslendingum 550 þúsund ís- lenskra króna að gjöf vegna snjóflóðsins á Flateyri. Skólayfirvöldum bárust fregnir af atburðinum í gær- morgun því fjórir íslendingar stunda framhaldsnám í sál- fræði við skólann, þar af tvær stúlkur með áfallahjálp sem sérgrein. Koma þær til lands- ins með gjöfina á mánudag. Magnús Erlendsson á dóttur og tengdason við sálfræðideild Árósaháskóla og segir hann að stúlkumar tvær, sem tóku við þessari gjöf, hafi fengið 170 þúsund króna styrk frá skólanum til að sérhæfa sig í áfallahjálp í'kjölfar hörmung- anna í Súðavík í janúar fyrr á þessu ári. „Þegar prófessor deildar- innar frétti af því sem gerst hafði á Flateyri kom hann að máli við stúlkurnar og sagði að háskólinn myndi reiða fram jafnvirði 550 þúsunda ís- lenskra króna. Ættu þær að taka gjöfina með sér strax til íslands og veita þá aðstoð sem þeim væri unnt. Þær höfðu síðan samband við Gylfa Ás- mundsson lækni á geðdeild Landspítalans og eru væntan- legar á mánudaginn," sagði Magnús. Samúðar- kveðjur frá Færeyjum Færeyjum. Morgunblaðið. FÆREYSKA landstjórnin sendi ríkisstjórn íslands sam- úðarskeyti vegna slyssins á Flateyri. í skeytinu segir: „Fyrir hönd landstjórnar Færeyja vil ég tjá íslenzku þjóðinni djúpa samúð færeysku þjóðarinnar í garð þeirra, sem eiga um sárt að binda vegna snjóflóðsins á Flateyri í nótt. Beztu kveðjur, Edmund Joensen, lögmaður.“ í gærkvöldi var haldin bænastund í Vesturkirkjunni í Þórshöfn, þar sem biskup Fær- eyja, Hans Jákup Joensen, og tveir aðrir prestar efndu til fyrirbænar fýrir Flateyringum. Fánar í hálfa stöng FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ hefur ákveðið að föstudaginn 27. október skuli fáni dreginn í hálfa stöng við opinberar byggingar vegna snjóflóðsins á Flateyri. Jafnframt er til þess mælst að almenningur geri slíkt hið sama. 20 milljónir í aðstoð STJÓRN Rauða kross íslands kom saman í gær vegna snjó- flóðsins á Flateyri. Stjórnin ákvað að veita nú þegar 20 milljónum króna í fyrstu aðstoð við þá sem eiga um sárt að binda vegna ham- faranna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.