Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 27.10.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 35 MINNINGAR i i I ] I \ I S I I I I 4 4 4 4 4 0 4 4 ið þið að kynnast þjáningunni. Og ef þið sæjuð hin daglegu kraftaverk lífsins, yrði þjáningin ykkur undursamleg engu síður en gleðin. Minningarnar hrannast upp í hug- ann. Gerður giftist eldri bróður mín- um Gunnari og eignaðist með honum þijú böm. Elínu, Gunnar og Rúnar. Fyrir átti Gerður árs gamlan son, Hjálmar, sem Gunnar gekk í föður- stað. Sjaldan hef ég séð bróður minn jafn hamingjusaman og þann dag, þegar hann sagði mér frá unnustu sinni. Hún er svo falleg, Björk, og hún er svo yndisleg manneskja. Þá rifjaðist upp fyrir mér þegar ég sá hana fyrst. Ég var 12 ára og Gerður 16 ára. Gerður var að vinna í Sunnu- búðinni, sem þá var „búðin okkar á Laugateignum". Móðurbróðir Gerð- ar rak þá verslun og hún vann hjá frænda sínum. Það var ekki ofsögum sagt hjá bróður mínum; hún var stórglæsileg stúlka og eins og seinna kom á daginn, falleg innst sem yst. Oft og mörgum sinnum stóðum við vinkonurnar mínar í Sunnubúð- inni og horfðum á Gerði afgreiða, því við ætiuðum að verða af- greiðslukonur eða flugfreyjur, og þarna fannst okkur við hafa svo fallega fyrirmynd sem Gerður var, en við þekktum engar flugfreyjur á þessum tíma. Seinna rættist svo draumur vinkvenna minna, þær komust í flugið. Hetjuleg barátta Gerðar í veikind- um hennar væri efni í heila bók, æðruleysi hennar, kjarkur og vit, er mér hugleikið nú, þegar ég sit í hominu mínu og minnist hennar. Fyrir tveimur árum, þegar reynt var sem mest að ná fram lækningu og ég heimsótti hana á Landspítal- ann, sagði hún mér að læknavísindin væru á fullu að þróa lyf sem þau byndu svo miklar vonir við og hún gæti tekið í tímans rás. Hún væri full vonar. Svona var Gerður. Sann- kallað ljóssins barn. Sorgin er mikil hjá bróður mínum og fjölskyldu. En dásamlegast er, elsku Gunni minn, að hafa eignast annan eins vin og Gerður var þér. Að vera vinur, vegna þess fagnaðar að eignast vin á móti, þegar þú kveð- ur þína elskulegu konu. Barátta ykkar hefur verið mörgum sam- ferðamönnunum strangur skóli. Á árum áður, þegar við vorum með börnin lítil, áttum við svo margar ógleymanlegar stundir, aðeins ár er á milli Gunnars Bjarka og Elínar. Þið voruð að byggja og við sömuleið- is í Hveragerði. Þá var oft glatt á hjalla. Ljúfust er minningin 4. ágúst 1973, er þið heimsóttuð okkur í Kámbahraunið í nýja húsið okkar og við vorum nýflutt inn, pappakass- ar og dót út um allt, ég átti von á barni og var alveg komin á tíma, þið brettuð upp ermamar og fóruð ekki fyrr en klukkan var langt geng- in í tvö að nóttu. Að finna samhug, samveru og elsku ykkar er mér svo dýrmætt í minningunni nú, er ég kveð þig, elsku Gerður mín. Á sjötta tímanum hinn 5. ágúst fæddist okkur Hrafni drengur, og var þar kominn Björn Ingi. Ekki fór ég á sjúkrahús í það skiptið og lá ég hjá tengdamóður minni í góðri nærveru. Ógleymanlegar eru mér páska- dagsferðir ykkar til okkar. Eld- snemma fómð þið til messu og heim- sóttuð okkur. Gleði hátíðarinnar fór um og mikið var rabbað. Þjóðhátíðardagurinn 17. júní rann upp, síminn hringdi, það var mamma að bjóða okkur í mat, þar yrðu Gerð- ur og Gunnar og Gunnar yngri, elsku- leg stund í faðmi góðra vina, og ekki vantaði matinn. EÍsku mamma hafðu þökk fyrir þessa yndislegu stund. Síðustu minningar mínar með þeim hjónum vom þegar þau heimsóttu okkur austur í Tintu. Þar var fjöl- skyldan öll saman komin í sumarhús- inu við Gíslholtsvatn. Við vomm búin að bjóða Gunnari og Gerði að koma, og viti menn; Gunnar hringdi og boðaði komu þeirra. Það var 16. ág- úst og Gerður átti afmæli kvöldið áður og hafði verið með gesti. Þarna var þeim Gunnari og Gerði rétt lýst, fólk augnabliksins. Elsku Gunnar, Hjálmar, Sirrí, Róbert, Davíð, Elín, Óttar, Jóhannes Gauti, Gunnar og Rúnar. Megi al- góður Guð varða ykkur veginn og veita ykkur styrk. Björk Gunnarsdóttir, Hrafn Björnsson, Björn Ingi og Jakob. Tilvera okkar er .undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er Jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. (Tómas Guðmundsson.) Við vottum ykkur öllum dýpstu samúð á sorgarstundu, við verðum með ykkur í huganum. Gunnar Bjarki Hrafnsson og fjölskylda, Sviþjóð; Margrét Hrafnsdóttir og fjölskylda, Bandaríkjunumv Og því varð allt svo hljótt við helfrep þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðmundsson.) Svo hógvær, svo hlý, voru fyrstu viðbrögð mín er ég hitti Gerði í fyrsta sinn á vinnustað. „Sæl vinan“. Ég horfði í þessi stóru, bláu, fallegu augu og skynjaði að þessi orð komu beint frá hjartanu. Hlýleikinn og vinsemdin leyndu sér ekki. Ég vissi þá að hún hafði átt við langvarandi veikindi að stríða og nú var enn ein sjúkrahúsvistin framund- an. Ég undraðist hvað hún var yfir- veguð og sigurviss í baráttu sinni. Fallega brosið hennar gleymist mér aldrei. Þegar ég kynntist Gerði betur fann ég hvað hún hafði þroskaða sál. Hún var hlýleg og góð mann- eskja, sem virti eðli hvers og eins. Aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkrum manni. I hennar huga virt- ist hvert andartak vera sem dýrmæt perla og þess virði að eiga hreint og óflekkað. Eitt sinn sagði hún við mig, að hún hefði þá trú að allt sem maður gerði öðrum eða fyrir aðra fengi maður til baka síðar á ein- hvern hátt, í einhverri mynd. Ég hugleiddi þessi orð hennar þá og reyndar hafa þau oft síðan komið upp í huga minn. Sannleikskorn. Eitt af mörgum gullkornum sem hún lét frá sér fara. Gerður var sú manngerð sem skynjaði þörf mannsins fyrir kær- leika. Hún leitaði dýpra en flestir' og tjáði kærleikann með augunum, brosinu sínu bjarta eða jafnvel með blíðri snertingu ef henni fannst það eiga við. Að vinna störf sín vel var hennar aðalsmerki. Allt sem hún gerði var faglega gert og rithönd hennar listaverk. Allir hlutir áttu sinn stað, ailt svo hreint og fágað. Líf hennar síðustu árin var bar- átta. Hún háði hana reyndar ekki ein. Hún vissi að Gunnar stóð alltaf sem klettur við hlið hennar. Börnin hennar veittu henni einnig mikinn styrk og þor í hverri þraut. Þau voru henni dýnnæt og þá ekki síður barnabörnin. Ég minnist gleði henn- ar þegar hún á síðasta ári eignaðist sitt þriðja bamabarn. Hvað hún geislaði af gleði þegar hún sagði mér frá því. Hún var öllum svo þakklát sem veittu henni lið. Oft minntist hún á Mörtu systur sína í því sambandi. Hún var henni mikils virði. Nú er Gerður ei lengur meðal okkar. Ég heyri ekki oftar rödd hennar hljóma, þessa þýðu, mildu rödd. Við ræðum ei oftar saman. Söknuður. Ég mun ávallt minnast hennar sem gleðigjafa og muna allt það sem hún gaf af sér til góðs í blíðu, umhyggju og kærleika. Ég veit, Gunnar minn, að missir þinn er mikill. Við skulum biðja að góður Guð æ vemdi þessa fógru rós er gaf hann þér. Þakka fyrir allt sem hún oss kenndi og gaf okkur af fegurð sinni hér. (S.A.M.) Við skulum huga að orðum Ka- hlil Gibrans: „Þegar þú ert sorg- mæddur skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ Ég votta eiginmanni Gerðar, Gunnari Gunnarssyni, börnum þeirra, bamabömum, foreldmm, systkinum, tengdamóður, tengda- börnum og öðrum ættingjum og vin- um .mína dýpstu samúð. Megi Guð styrkja ykkur öll í sorginni. Blessuð sé minning Valgerðar Kristínar Jónsdóttur. Sigrún Alda Michaelsdóttir. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, . og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp .runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem.) í dag er kvödd hinstu kveðju Valgerður Kristín Jónsdóttir, sem er látin eftir langa baráttu við erfið- an sjúkdóm, þann sjúkdóm sem svo allt of marga leggur að velli langt fyrir aldur fram. Leiðir okkar hafa legið saman síðasta áratuginn. Okk- ur langar með fáeinum kveðjuorðum að þakka þau kynni og þá hlýju og það alúðlega og vingjamlega viðmót sem við höfum jafnan orðið aðnjót- andi. Valgerður var um margt sérstak- ur persónuleiki. Ríkur þáttur í fari hennar var umhyggja hennar fyrir öðrum, fómfysi og hógværð í allri framgöngu. Aðdáunarvert var hvernig hún studdi bömin sín í hverju því sem þau tóku sér fyrir hendur, hvort heldur var í námi eða starfi. Barnabörnin fóm heldur ekki varhluta af umhyggju hennar og hlýju. Eiginmanni sínum var hún alla tíð styrk stoð í atvinnurekstri hans og mat hann það mikils. Veikindum sínum mætti Valgerð- ur af æðruleysi og þeirri reisn sem jafnan einkenndi framgöngu hennar alla. Nú þegar hún er kvödd viljum við þakka henni tryggð hennar og vináttu og biðjum henni alirar bless- unar á þeirri vegferð sem nú er hafin. Eftirlifandi eiginmanni hennar, börnum, tengdabörnum, bamabörn- um, foreldrum og öðmm ástvinum sendum við okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Þeirra er missirinn mestur, þeirra er sorgin mest. Þeir sem mikið hafa átt hafa mikils að sakna. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Inga og Bergur. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐNI VILMUNDARSON frá Löndum, Grindavik, Búðagerði 7, lést í Borgarspítalanum 23. október. Otförin auglýst síðar. Nína Oddsdóttir, Rósmundur M. Guðnason, Helga Sigurðardóttir, Vilmundur G. Guðnason, Guðrún Nielsen, Oddur Th. Guðnason, Dýrfinna H. Sigurðardóttir, Gunnar Gísli Guðnason, Guðlaug Magnúsdóttir, og barnabörn. t Móðir mín, ANNA Þ. SÆMUNDSDÓTTIR, Grund, Reyðarfirði, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupsstað 25. október. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Óskar Ágústsson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI BJÖRGVIN MAGNÚSSON frá Eyvindarholti, Vestmannaeyjum, lést miðvikudaginn 25. október. Friðgeir Björgvinsson, Sigríður Árnadóttir, Jóhann Björgvinsson, Birna Björgvinsdóttir, Pálmi Pétursson, Helga Björgvinsdóttir, Gunnsteinn Ársælsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, ÞORBJÖRG JAKOBSDÓTTIR, lést í Landspítalanum 26. október. Páll J. Danfelsson, Daníel J. Pálsson, Linda Garðarsdóttir, Ólöf Pálsdóttir, Gunnar A. Ottósson, Unnur Pálsdóttir, Oddur Helgason, Sigurþór Dan Jónsson. t Ástkær eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, KRISTJÁN EINARSSON bóndi, Enni, Viðvíkursveit, Skagafirði, verður jarðsunginn frá Viðvíkurkirkju laugardaginn 28. okt. kl. 14.00. Laufey Magnúsdóttir, Guðný Kristjánsdóttir, Eindís Kristjándóttir, Haraldur Þór Jóhannsson, Ragnhildur Kristjánsdóttir, Jóhann Stefánsson, Sigurberg Hraunar Daníelsson, Oddrún Guðmundsdóttir, Kristján Geir Jóhannesson, barnabörn, barnabarnabörn, systkini og aðrir aðstandendur. t Ástkær móðir mín, dóttir, systir og mágkona, LAUFEY MARTEINSDÓTTIR, Skúlabraut 10, Blönduósi, sem lést af slysförum 22. október sl., verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 28. október kl. 14.00. Auðunn Ágúst Hjörteifsson, Marteinn Agúst Sigurðsson, Páll Marteinsson, Kristín Marteinsdóttir, Hannes Sigurgeirsson, Jakob Daði Marteinsson, Einar Marteinsson, Þór Marteinsson, Valgerður Laufey Einarsdóttir, Baldur Fjölnisson. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför sambýlismanns míns, föður okkar og sonar, SIGVARÐAR HARALDSSONAR, Borgarsandi 4, Hellu. Dýrfinna Kristjánsdóttir, Ingi Freyr Sigvarðsson Atli Snær Sigvarðsson, Dýrfinna Ósk Sigvarðsdóttir, Sigrfður Sigyn Sigvarðsdóttir, Ingveldur Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.