Morgunblaðið - 27.10.1995, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 27.10.1995, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 5 FRETTIR Meira en 600 manns ræstir til aðstoðar á Flateyri. 340 björgrmar menn sendir áleiðis auk lækna og hjúkrunarliðs. 230 björgunarmenn í biðstöðu. TF-LÍF, nýja þyrla Landhelgisgæslunnar, sannaði gildi sitt og flaug milli Rifs og Flateyrar í allt að 12 vindstigum. 04.07 SNJOFLOÐ fellur úr Skollahvilft á Flateyri. 04.28 HEIMAMENN hefja strax björgunarstörf. Almannavarnir ríkisins kallaðar út. Almanna- varnarráð var komið saman fyrir þann tíma. Fljótlega fundust sex manns á lífi sem lent höfðu í flóð- inu og einn maður látinn. 04.30 YARÐSKIPIÐ Óðinn er kallað inn til Grundafjarðar að taka björgunarsveitarmenn. Varð- skipið Ægir fer frá Reykjavík kl. 07.42 með 105 fimm innanborðs til Flateyrar. 04.49 BJÖRGUNARSVEITIR ræstar út með hópkalli. 05.11 LANDSSTJÓRN björg- unarsveita tekur til starfa og skipuleggur flutning björgunar- manna. 06.00 30 MANNA hópur leitar- manna frá ísafirði leggur af stað áleiðis til Flateyrar. 07.02 ÁHAFNIR beggja þyrlna Landhelgisgæslunnar, TF-LIF og TF-SIF, kallaðar út. 08.20 BJÖRGUNARMENN frá ísafirði fara um borð í skip í Holti sem flytur þá yfir fjörðinn. 08.30 RÍKISSTJÓRNIN kemur saman til neyðarfundar. 08.47 ÞYRLUR Landhelgisgæsl- unnar fara til Grundarfjarðar með björgunarmenn. 12 farþegar, læknar, hjúkrunarlið og sýslu- maður á ísafirði, fara með TF-LÍF og 6 björgunarmenn með TF-SIF. 09.30 ÍSFIRSKU leitarmennirnir koma til Flateyrar. Varðskipið Óðinn kemur til Grundarfjarðar. 09.37/09.55 ÞYRLUR Land- helgisgæslunnar lenda í Grundar- firði. Hvor þyrla fer tvær ferðir að flytja björgunarmenn sem komið höfðu með íslandsflugi til Rifs til Grundarfjarðar. 11.10 TVÆR varnarliðsþyrlur fara í loftið með 10 sérþjálfaða björgunarmenn áleiðis til Flateyr- ar. 11.30 VARÐSKIPIÐ Óðinn legg- ur af stað frá Grundarfirði með 69 hjálparmenn. 11.46 TF-LÍF fer frá Rifi áleiðis til Flateyrar með 3 leitarmenn og 3 leitarhunda sem flugvél Flug- málastjórnar hafði sótt til Aust- ijarða. Þyrlan flýgur í allt að 12 vindstigum og snjókomu. Ekki er talið þorandi að senda TF-SIF áleiðis vegna skilyrða. 12.00 MAÐUR finnst á lífi í flóð- inu. 24 manna er enn saknað. 13.00 ALMANNAVARNIR fá til- kynningu um að fjórir hafi fundist á lífi 13.13 ÞYRLAN TF-LÍF lendir á Flateyri. 13.35 VARNARLIÐSÞYRL- URNAR lenda á Flateyri. 13.53 TILKYNNT er að tveir menn hafi fundist látnir. 14.50 TILKYNNT að samtals hafí 12 manns fundist látnir í flóð- inu. 15.02 TF-LÍF leggur öðru sinni frá Rifi að Flateyri með 12 far- þega; lækna og hjúkrunarfræð- inga, leitarmenn og hunda. 15.03 ÞYRLA varnarliðsins lend- ir í annað sinn á Flateyri, að þessu sinni með hjálparlið frá Rifi. 15.11 TILKYNNT að fjórir hafi fundist látnir til viðbótar en fjög- urra sé enn saknað. 15.50 STAÐFEST að 220 manns séu komnir til starfa á Flateyri, þ.á m. 21 manns hópur með skipi frá Patreksfirði. 16.14 TF-LÍF lendir í annað sinn á Flateyri með fleiri leitarmenn frá Rifi. 17.10 TF-LÍF fer frá Flateyri til ísafjarðar með 12 manns. Þar er lent 17.33. Þyrla vamarliðsins fer skömmu áður með fólk til Reykja- víkur. 17.55 TILKYNNT er að einn maður hafi fundist látinn. Þriggja er enn saknað. 19.10 TILKYNNT að tveir hafi fundist látnir en barns sé enn saknað. 19.30 ÆGIR kemur til Flateyrar. 21.05 ÓÐINN leggst að bryggju á Flateyri. Klukkan 8.50 eru komnir til Flateyrar trá ísafirði og Bolungarvík Snorri Hermannsson vettvangsstjóri ásamt 23 manna liði, þar á meðal 2 læknum og hjúkrunartræðingum. Farið var um nýju jarðgöngin yfir að Holti í Önundarfirði þaðan sem þeir voru ferjaðir yfir að Flateyri. I/ið flutning trá Holti að Flateyri komu upp vandkvæði þar sem bryggjan við Holt brotnaði vegna sjávargangs. Skömmu síðar kom 20 manna liðsauki frá ísafirði og Bolungarvík. Klukkan 11.10 voru komnir 187 manns til Flateyrar eða að Holti í Önundarfirði og einnig tveir leitarhundar. Flestir voru þeir frá Isafirði og Bolungarvík, 30 voru frá Þingeyri. 17 manns til viðbótar voru á leiðinni frá Suðureyri. Að auki voru á leiðinni 161 björgunarsveitarmaður og fjölmennt lækna- og hjúkrunarlið með varðskipum eða beið llugs I Grundarfirði. Hjálparstöð var sett upp í hús- r.æði Kambs. Laust eftir hádegi voru komnir til starfa þrír læknar og fjórir hjúkrunarfræðingar frá ísafirði, Flateyri og Þingeyri. Stjórnstöð almannavarnaaðgerða var á hreppsskrifstofunum á Flateyri. I/ettvangsstjóri Snorri Hermannsson. Olafur Helgi Kjartansson, yfirmaður neyðar- aðgerða Almannavarna, kom með þyrlu frá Grundarfirði síðdegis. Togarinn Sléttbakur EA fór trá Patreksfirði klukkan 10.43 með 21 mann og snjóflóðaleitarhund. Breiðíifjörður Varðskipið Oðinn fór frá Grundar- firði klukkan 11.30. Um borð voru 85 manns, þar á meðal 69 björg- unarsveitarmenn frá svæðinu milli Akraness og Snæfellsness, svo og sex manna greiningarsveit lækna og hjúkrunarfólks (læknir. og fjórir hjúkrunarfr.) og menn úr neyðar- sveit slökkviliðsins í Reykjavík. jggglj Húnnflói Klukkan 13.13 lenti TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, á Flateyri og kom með þrjá sérþjálfaða snjó- flóðaleitarhunda ásamt þjálfurum frá Grundarfirði. TF-LÍF hélt áfram ferðum, flutti m.a. sýslumanninn á ísafirði, sem eryfirmaður neyðaraðgerða almannanvarna og læknalið. Þyrlur varnarliðsins voru einnig í flutningum með menn og búnað til Flateyrar. ’ Búðardalur Hefflssandur**Pi< r ólaTsvík G^ndarfÍÖrður Komiö var upp biðsvæði á Rifi og síðar Hellissandi þar sem 50 manns, þar á meðal læknar og hjúkrunarfólk úr greiningarsveitum frá Borgarspítala og Landsspítala biðu átekta. VarðskipiðÆgir fór frá Reykjavík klukkan 7.42 með 105 menn og tvo sérþjálfaða hunda til leitar í snjóflóðum. Þar af 71 björgunarsveitarmaður úr björgunarsveitum á svæði 1, 2 frá Rauða krossi Islands, 6 lögreglumenn. 14 úr greiningarsveit Borgarspítala, læknar og hjúkrunarfræðingar, og 9 starfsmenn fjölmiðla. /o' K-//Í J V ' / Faxaflói reykj Seltjarnarnes^íf.* Mosfellsbær >Hafnarfjörður>Tar^Pavoflur ^ JA Tveir leitarhundar fóru með Ægi, tveir voru fluttir með þyrlu til Grundarfjarðar til móts við Óðin, þrír til Grundarfjarðar frá Egilsstöðum með flugvél Flugmálastjórnar og frá Grundarfirði með þyrlu til Flateyrar. Fjórir hundar voru á ísafirði og a.m.k. tveirþeirra fóru með fyrstu björgunarmönnum. ^ Njarövík n / f 230 björgunarsveitarmenn voru íbiðstöðu í Reykjavík, Grindavík á Suðurnesjum, á Hellissandi og í Árnessýslu. 0 50 km Feríll lægðar föstudaginn13. til mánu- dagsins 16. janúar \,\ -i o nn. I/ / ‘' TuM ' / Mánud. kl. 12.00: 948 millibara, og grynnist og A miðnætti, kl. 0.00: 945 mb. Nokkru síðar 940 mb. 7 i;-x J>! Sunnud. kl. 18.00: 956 mb. I \ Sunnud. kl. 12.00: 970 mb. 17” Laugard. kl. 6.00: 1012 millibara Laugard. kl. 18.00: 1000 millibara Sunnud. kl. 6.00: 983 millibara Feríll lægðarínnar frá þriðjudegi 24. til fimmtudags 26. október í'. Fimmtud. kl. 6.00: 964 millibara Fimmtudag á miðnætti: 959 millibara &f Miðvikud. kl. 12.00: 958 millibara M A Miðvikud. kl. 6.00: 961 millibara Miðvikudag á miðnætti: 965 millibara \ / > T Þriðjud. kl. 18.00: 975 millibara Þriðjud. kl. 6.00: 990 millibara \ AÐALORSAKIR óveðursins undanfarna daga er lægðarbylgja, sem myndaðist suð- vestur af írlandi, hreyfðist norður og dýpkaði ört, svo og öflug hæð sem var yfir Grænlandi. Að sögn Unnar Olafsdóttur veðurfræð- ings kom þann 20. október lægð inn á Grænlandshaf úr suðvestri frá Labrador og fór norðaustur yfir land þann 22. októ- ber og hæð settist þá að yfir Grænlandi. Eftir það fóru lægðir að berast til norð- austurs milli Islands og Noregs. Þann 23. dýpkaði lágþrýstisvæði suður af Islandi og nálgaðist, en meginskil þess fóru að hreyfast norður með austurströnd landsins. Lágu þau svo til suðurs með Orsakir óveðursins vesturströnd Bretlands. Smálægðir fóru að myndast á skilunum og berast norður. Lægðarbylgja sem myndaðist suðvestur af Irlandi 23. október dýpkaði á leið sinni norður og var milli Islands og Færeyja að morgni 25. október. Þá var hún orðin að djúpri lægð og var þrýstingur í miðju hennar kominn niður fyrir 960 mb. Hæðin yfir Grænlandi var þá yfir 1.030 mb og gerir það mikinn þrýstingsmun yfir landið en vindhraði eykst í beinu hlutfalli við hann. Fyrri skil lægðarinnar fóru norð- austur yfir landið þann 25. október með mjög hvassri norðaustanátt og ofankomu, en síðar tóku önnur skil við með svipuðum vindstreng og ofankomu á undan sér. Skil þessi hreyfast vestur og eru að eyðast og er reiknað með að vindur gangi smám saman niður og dragi úr úrkomu næsta sólarhring. Á laugardag verður vindur orðinn hægur en þó enn af norð- austri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.