Morgunblaðið - 27.10.1995, Side 6

Morgunblaðið - 27.10.1995, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ h FRETTIR Páll Guðmundsson leitaði að vinum sínum í snjóflóðinu í allan gærdag • • Ormagna en ekki líkamlega þreyttur „LEITIN er mjög erfið og menn eru gjörsamlega örmagna. Ég er þó ekki likamlega þreyttur, en aðstæður reyna mjög á menn,“ sagði Páll Guðmundsson, mat- sveinn á Gylli frá Flateyri, sem leitaði í snjóflóðinu frá kl. 5 í gærmorgun og fram á kvöld. „Ég var ræstur út kl. 5 og þá fór hópur manna strax að leita. Við vorum með allt of fá sendi- tæki á okkur og því gátum við ekki dreift okkur eins vel og æski- legt hefði verið. Það var kolvit- laust veður og ég sá ekki menn 4-5 metra frá mér.“ Páll sagði að leitin hefði fyrst byrjað af krafti þegar aðstoð barst frá ísafirði, enda leitarhópurinn á Flateyri í fyrstu aðeins skipaður 15 manns, þó ræst hafi úr svo hópurinn taldi 20-30 manns áður en ísfirðingar bættust i hópinn. Þá hefði farið að lægja upp úr kl. 8 og það hefði auðveldað leit. Páll sagði að leitin hefði á stundum verið honum um megn. „Ég treysti mér ekki til að leita í rústum húss Haraldar Eggerts- sonar, skipstjórans míns á Gylli,“ sagði Páll, en Haraldur, eiginkona hans og tvö börn fórust í flóðinu. Yngsta barnsins, eins árs stúlku, var enn saknað seint í gærkvöidi. Páll hélt leit áfram fram á kvöld, eftir stutta hvíld, en mjög var af honum dregið. „Ég var á sjó með Haraldi og Þorsteini Sig- urðssyni, sem bjó í næsta húsi við Harald. Og það er ekki lengra síð- an en á miðvikudagskvöld að ég heimsótti Þorleif Yngvason og Lilju Ásgrímsdóttur, sem ég þekkti mjög vel. Auðvitað reynir þetta á, auðvitað eru leitarmenn gjörsamlega miður sín. Þetta eru vinir okkar.“ Páll er Skagamaður og hefur verið á Flateyri undanfarna sex mánuði. Hann kvaðst ekki geta sagt til um hvort hann yrði þar áfram. „Ég verð bara að sjá hvað setur. Hérna er gott fólk og gott að vera og ég er með þessa vinnu. Það er ekki hlaupið að því að fá góða vinnu.“ Tvö hús t standa á leitar- svæðinu \ 45 manns voru í húsun- ) um nítján á Flateyri, • sem snjóflóðið féll á. Helgi Bjarnason kom þangað í gærkvöldi. SNJÓFLÓÐIÐ féll á 19 íbúðarhús á í Flateyri, Esso stöðina, fjarvarma- |) veitu, spennustöð og Minjasafnshús. i í húsunum voru alls 45 manns. Tutt- ” ugu og einn bjargaðist af sjálfsdáð- um eða var bjargað áður en skipu- lagt björgunarstarf hófst. 24 lentu í flóðinu, 4 hafa bjargast, eins er sakn- að,_og nítján eru fundnir látnir. Ég kom til Flateyrar með varð- skipinu Ægi og var kominn að snjó- flóðasvæðinu um kl. 20 í gærkvöldi. Blaðamönnum var ekki hleypt á sjálft f snjóflóðasvæðið þar sem öll hús ofan | Ránargötu höfðu verið yfirgefin og _ svæðið lýst hættusvæði. Hins vegar P sáust ljós leitarmanna sem voru að grafa eftir litlu stúlkunni sem enn var saknað. Óþreyttir leitarmenn, sem komið höfðu með Ægi, voru að taka við af leitarmönnum frá Flat- eyri og nágrannahéruðum sem sumir höfðu verið að frá því snemma um morguninn. Á annað hundrað björg- unarsveitarmenn voru komnir til | Flateyrar. Hundar gegndu lykilhlut- ^ verki við leitina. Tvö hús sjást uppistandandi á snjó- p flóðasvæðinu, en leitarmenn sögðu að flest önnur hús væru rústir einar. Mikið spýtnabrak og þykkt snjólag er yfir öllu. Þeir geta sér þess til að gríðarleg höggbylgja á undan flóðinu hafi leikið húsin svona illa. 34 snjóflóð fallið í og við Flateyri Á síðustu 60 árum hafa 34 snjóflóð fallið í og við Flateyri við Önundarfjörð samkvæmt skráningu >» 1 ' Veðurstofu Islands sem gefín var út í ágúst síðastliðn- um. Á árunum 1936 til 1989 féllu átján snjóflóð, en 16 flóð á síðustu sex árum, frá 1989 til 1995. í SKÝRSLU Veðurstofunnar, sem unnin er fyrir Almannavamir ríkisins, segir að skráning snjóflóða mætti vera markvissari. Síðustu ár hafi enginn snjóeftirlitsmaður starfað þar, en meðal verkefna slíkra manna er að skrá niður á markvissan hátt þau snjóflóð sem falla í viðkomandi byggðarlagi. Þetta þýði þó ekki að snjóflóð hafi alls ekki verið skráð á Flat- eyri þennan tíma því nefndarmenn í Almanna- varnanefnd staðarins hafí'sett niður á blað útlínur allra flóða sem komið hafa nærri byggð, en þar vanti þó oftast nánari upplýsingar, t.d. um eðli flóðanna, upptök, magn snævar, veður o.s.frv. • 20. mars 1936. Fyrsta flóðið sem greint er frá í skýrslu Veðurstofunnar féll úr Skolla- hvilft og féll milli kirkjugarðsins og Sólbakka. Flóðið var um 300 m breitt og sópaði burt tveimur stórum fískþurkkunarhjöllum, braut fimm símastaura, rauf girðingar og braut eina hlið grafreitsins þar. • 27. október 1938. Hugsanleg upptök í Miðhryggsgili eða Litlahryggsgili. Flóðið, sem var um 300 m breitt, féll á milli Sólbakka og Hvilftar og náði í sjó fram. Flóðið tók símalínu á 200 m kafla og braut fímm símastaura og skemmdi vatnsgeymi Síldarverksmiðja ríkisins á Sólbakka. • 27. október 1938. Nokkur snjóflóð hlupu einnig úr Eyrarfjalli ofan við Flateyrarkauptún en þau ollu ekki teljandi tjóni. • 2. apríl 1953. Flóð hljóp líklega úr Skollahvilft og olli spjöllum á kirkjugarðinum. • 2. apríl 1952. Nokkur flóð hlupu úr gilj- um í utanverðu Eyrarfjalli. • 4. febrúar 1968. Snjóflóð féll líklega úr Miðhryggsgili eða Litlahryggsgili á Sól- bakkaengjar. • 10. nóvember 1969. Um 300 m breitt flóð féll úr Skollahvilft milli Sólbakka og kirkjugarðsins. Það féll í sjó fram og olli nokk- urri flóðbylgju. Ytri jaðar flóðsins var í um 100 m fjariægð frá næstu íbúðarhúsum. Innri jaðar flóðsins lenti á hænsnahúsi, fór í gegnum það og drap um 100 hænsni. Flóðið sleit há- spennulínuna á þessum slóðum og teppti veg- inn inn í þorpið. • 11. febrúar 1974. Þijú flóð féllu í þremur giljum í utanverðu Eyrarfjalli. Flóðin náðu í sjó fram og löskuðu raflínuna Flateyri/Suðureyri. • 11. febrúar 1974. Flóð féll úr Innra- Bæjargili eða Skollahvilft til sjávar í Eyrar- bót. Innri jaðar flóðsins var skammt utan við barnaskólann. Flóðið braut þijá staura í raflín- unni Flateyri/Suðureyri og tók stóran fiskhjall. • 11. febrúar 1974. Tvö flóð, eða eitt sem klofnaði í tvær tungur, féllu úr Skollahvilft. Önnur tungan fór yfir utanverðan Eyrar- hrygg, yfír kirkjugarðinn og í sjó fram. Hin tungan féll yfír innanverðan Eyrarhrygg. • 11. febrúar 1974. Um 400 m breitt flóð féll úr Miðhryggsgili og/eða Litlahryggsgili á milli Sólbakka og Hvilftar. Ytri jaðar tungunn- ar var um 20 m innan við Sólbakkahúsið. Flóð- ið sleit raflínu og tók sjónvarpshús. • 5. febrúar 1977. Um 400 m breitt flóð féll líklega úr Ytra-Bæjargili í utanverðu Eyr- arfjalli. Flóðið braut fimm staura í raflínunni Flateyri/Suðureyri. • 29. nóvember 1979. Flóð úr Skollahvilft stöðvaðist á snjóflóðavamarkeilum. • 8. nóvember 1980. Flóð úr Innra-Bæj- argili stöðvaðist ofarlega á Innri-Bæjarhrygg. • 24.-26. mars 1987. Að minnsta kosti fímm flóð féllu úr gili í Eyrarfjalli utan Flateyr- ar og úr Skollahvilft. Flóðin utan Flateyrar stöðvuðust á og við veg sem liggur á sjávar- bökkunum. Flóðið úr Skollahvilft var mjög lít- ið. Háspennustaurar skemmdust og vegurinn til Suðureyrar varð ófær. • 1. apríl 1987. Flóð úr Innra-Bæjargili fór niður snjóvarnarkeiluna utanverða, að horni íbúðarhússins nr. 14 við Ólafstún, yfir gotuna og stöðvaðist skammt frá húsi nr. 14 við Goðatún. Breidd tungu flóðsins var um 200 m. Fjárgirðingu tók af á 2-300 m kafla ofan við bæinn. • 1. apríl 1987. Um 200 m breitt flóð úr Skollahvilft fór yfir Eyrarhrygg og snjóflóða- varnarkeilurnar. Það stöðvaðist í um 40 m fjarlægð frá húsi nr. 2 við Ólafstún. • 2. apríl 1987. Flóð féll neðarlega úr Innra-Bæjargili. • Einhvern tíma á árunum 1989-1990. Flóð rétt utan við Innra-Bæjargil féll utan í aurkeilunni neðan gilsins. Snjóflóðið var mjög aurblandað og var aðeins um 50 m breitt. Flóðið féll við húshorn Goðatúns 14 án þess að skemma húsið. • Dagana 25. til 30. janúar 1990. Snjó- flóðahrina gekk yfir við Flateyri. Mörg snjó- flóð féllu úr hlíðinni ofan kauptúnsins en ekk- ert þeirra olli skaða. Skráning snjóflóðanna var erfið sökum veðurs og skafrennings. Skráð eru fjögur flóð úr þessari hrinu en sjálfsagt hafa þau verið fleiri. • 25. janúar 1990. Um 250 m flóð þar sem það var breiðast féll úr skál ofan Mið- hryggsgils og náði það niður fyrir veginn og lokaði honum um skeið. • 28. janúar 1990. Um 200 m breitt flóð féll neðarlega úr Innra-Bæjargili og stöðvaðist milli snjóflóðavarnarkeilanna. • 29. janúar 1990. Um 200 m breitt flóð féll úr Innra-Bæjargili og náði niður fyrir snjó- flóðavarnarkeilurnar. • 30. janúar 1990. Um 300 m flóð féll úr Innra-Bæjargili og stöðvaðist rétt ofan kirkjugarðs og í 20-30 m fjarlægð frá húsinu Ólafstúni 2. • 17. febrúar 1990. Um 100 m flóð féll úr Eyrarfjalli, utan við Flateyri, innan við Klofningshrygg. • 5. janúar 1991. Þijú flóð, eitt úr Skolla- hvilft og tvö úr hlíðinni sjálfri, fóru niður að snjóvarnarkeilunum. • 17. mars 1991. Mörg smáflóð í sama farvegi féllu úr Innra-Bæjargili, við fjallsbrún og úr hlíðinni og fóru þau niður fyrir snjóflóða- varnarkeilur og niður að raflínu. • 17. mars 1991. Mörg smáflóð í sama farvegi úr Skollahvilft, við fjallsbrún og í hlíð- inni féllu niður á aurkeilu og stöðvuðust 50 m ofan við snjóflóðavarnarkeilur. • 12. nóvember 1991. Um 200 m breitt flóð féll úr Skollahvilft og stöðvaðist um 30 m frá húsum við Ólafstún. • 18. janúar 1995. Um 500 m breitt flóð féll úr Litlahryggsgili og trúlega líka Mið- hryggsgili á milli Hvilftar og Sólbakka. Flóðið náði í sjó fram og olli flóðbylgju sem menn um borð í togara í höfninni á Flateyri urðu varir við. Flóðið skemmdi raflínuna til Flateyrar. • 18. janúar 1995. Um 200 m breitt flóð féll úr Innra-Bæjargili og lenti á snjóflóðagörð- unum, mest á ytri garðinum. Yst náði flóðið að falla yfír garðinn en stór hluti þess féll áfram utan við_ ytri garðinn. Flóðið skemmdi tvö íbúðarhús, Ólafstún 14 og Goðatún 14 sem og vatnstank. • 22. janúar 1995. Flóð féll úr Innra-Bæj- argili og fylgdi það innri brún aurkeilunnar neðan gilsins og stöðvaðist rétt ofan við nýj- ustu snjóflóðavarnarkeilurnar. Snjóflóð sem þetta eru mjög algeng úr Innra-Bæjargili og mörg þeirra hvergi til skráð. • 16. mars 1995. Um 100 m breitt flóð féll úr Innra-Bæjargili og fylgdi innri brún aurkeilunnar neðan gilsins og stöðvaðist rétt ofan við nýjustu snjóflóðavarnarkeilurnar. • 17. mars 1995. Um 100 m breitt flóð féll úr Miðhryggsgili í sjó fram. Flóðið skemmdi gömul útihús við Sólbakka og lokaði vegi. • 18. mars 1995. Um 100 m breitt flóð féll úr Innra-Bæjargili og fylgdi innri brún aurkeilunnar neðan gilsins og stöðvaðist rétt ofan við nýjustu snjóflóðavarnarkeilurnar. ft ft ; i i ft ft ft ft i ft

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.