Morgunblaðið - 27.10.1995, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 17
Sveitarstjórnamenn á Suðurlandi þinga um málefni grunnskólans
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
FRA þingi sveitarstjórnarmanna sem haldið var á Hellu.
Langflestir vilja sam-
einast um Skólaskrif-
stofu Suðurlands
Hellu - Rúmlega eitthundrað sveit-
arstjórnarmenn sóttu málþing um
yfirfærslu grunnskólans til sveitar-
félaganna sem haldinn var á Hellu
sl. laugardag. Sérstök áhersla var
lögð á að ræða til hlítar tillögu Sam-
bands sunnlenskra sveitarfélaga,
SASS, um framtíðarskipan skóla-
skrifstofu á Suðurlandi, sem taka
myndi við þeim verkefnum sem
Fræðsluskrifstofan hefur hingað til
haft með höndum. Af tuttugu og
níu sveitarfélögum í kjördæminu er
áhugi í tuttugu og sjö þeirra að
vinna eftir tillögum starfshóps innan
SASS sem gera ráð fyrir að sveitar-
félögin taki yfir starfsemi Fræðslu-
skrifstofunnar þegar rikið leggur
hana niður í lok júlí á næsta ári.
Á aðalfundi SASS sl. vor lagði
starfshópur á vegum samtakanna
fram skýrslu þar sem m.a. voru
settar fram tillögur um skipan verk-
efna Fræðsluskrifstofu Suðurlands
eftir yfirfærslu grunnskólans til
sveitarfélaganna. Kjarni tillagnanna
var sá að áfram yrði rekin sameigin-
leg þjónustu- og ráðgjafarskrifstofa
á vegum sveitarfélaganna fyrir Suð-
urland. í grunnskólalögunum er
kveðið á um að öllum sveitarfélög-
um, er standi að rekstri grunnskóla,
sé skylt að sjá skólanum fyrir sér-
fræðiþjónustu. Sérfræðiþjónustu
skóla er ætlað að stuðla að því að
kennslufræðileg og sálfræðileg
þekking nýtist sem best í skóla-
starfi, kennurum og skólastjórnend-
um skal standa til boða ráðgjöf og
stuðningur. Hún á að gefa forráða-
mönnum kost á leiðbeiningum um
uppeldi nemenda, svo og skal unnið
að forvarnarstarfi með athugunum
og greiningu á nemendum sem eiga
í sálrænum eða félagslegum erfið-
leikum og koma með tillögur til
úrbóta. Auk þessarar sérfræðiþjón-
ustu leggur starfshópurinn til að
skrifstofan annist eftirtalin verk-
efni: 1. Skýrslugerð og upplýsingag-
jöf til skóla, sveitastjórna og ann-
arra opinberra aðila. 2. Gagna- og
upplýsingamiðstöð fyrir skólana. 3.
Endurmenntun fyrir kennara í sam-
vinnu við háskólastofnanir á uppeld-
issviði og námskeiðahald fyrir
starfsfólk grunnskólanna. 4. Eftirlit
og aðstoð við Sérdeild Suðurlapds.
5. Ráðgjöf fyrir leikskóla sbr. lög
nr. 78/1994. 6. Ráðgjöf varðandi
barnavemdarmál og Verkefni 5 og
6 hér að framan eru ný af nálinni
og byggjast þær tillögur bæði á
óskum sveitarfélaganna og nýjum
lögum um leikskóla. í þeim segir
m.a. að í sveitarfélögunum skuli að
jafnaði starfa leikskólafulltrúar sem
eru starfsmenn sveitarfélaga. Varð-
andi sérfræðiþjónustu við leikskól-
ana eigi börn á leikskólaaldri, sem
vegna fötlunar, tilfinningalegra eða
félerða teknar til afgreiðslu og í
framhaldi af því þurfa sveitarfélögin
hvert og eitt að samþykkja aðild að
skrifstofunni. Á málþinginu kom
fram að bæjarstjórn Hveragerðis og
sveitarstjórn Ölfushrepps hafi sam-
þykkt samhljóða að hafna aðild að
Skólaskrifstofu Suðurlands, en þessi
tvö sveitarfélög reka grunnskóla
saman.
SAMNINGAR um menntanetið undirritaðir; frá vinstri Björn
Arnaldsson formaður Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, SSV,
Guðjón Ingvi Stefánsson framkvæmdastjóri SSV, Jónas Guð-
mundsson, rektor Samvinnuháskólans, og Sigurður Hrafnsson,
forstöðumaður rekstrar- og þjónustusviðs Islenska menntanetsins.
Svæðismið-
stöð mennta-
netsins á
Bifröst
Borgarnesi - Samvinnuháskólinn
á Bifröst hefur gert samning við
íslenska menntanetið um rekstur
svæðismiðstöðvar íslenska
menntanetsins á Bifröst fyrir Vest-
urland. Hlaut Samvinnuháskólinn
einnar milljón króna víkjandi lán
úr Iðnþróunarsjóði Vesturlands
vegna þessa verkefnis.
Við undirritun samninga um
svæðismiðstöðina sagði Jónas Guð-
mundsson, rektor Samvinnuhá-
skólans, að í þessum samningi
fælist að skólinn myndi taka að
sér að vera umboðsaðili íslenska
menntanetsins á Vesturlandi. Þá
myndi skólinn hýsa og sjá um
tölvubúnað og símaþjónustu og sjá
til þess að notendaþjónusta væri
veitt á Vesturlandi. Ennfremur
myndi skólinn taka þátt í að mark-
aðssetja þjónustu Menntanetsins á
Vesturlandi.
í ræðu sinni sagði Jónas Guð-
mundsson rektor meðal annars:
„Með þessad svæðismiðstöð höfum
við komið skólastarfinu örugglega
inn fyrir þröskuld þeirrar framtíðar
sem við sjáum í upplýsingamálum.
Nemendur og kennarar geta not-
fært sér tölvusamskipti og gagna-
banka eins auðveldlega og eins
ódýrt og að hringja í næsta hús.
Þetta er gífurlega mikilvægt fyrir
skóla á borð við okkar og á eftir
að hafa mikil áhrif á alla kennslu
og verkefnavinnu í skólanum. Upp-
lýsingalega held ég að við höfum
fært umheiminn með þessu hingað
upp í sveit.“
Veðurathuganir í
Stykkishólmi 150 ára
Stykkishólmi - Haldin verður
samkoma í Norska húsinu í
Stykkishólmi sunnudaginn 29.
október kl. 15 til að minnast
þess að 1. nóvember 1845 hóf
Ámi Thorlacius reglulegar veð-
urmælingar á íslandi fyrstur
manna.
Trausti Jónsson, veðurfræð-
ingur, flytur erindi sem hann
nefnir: Veðurmælingar á íslandi
í lok 18. aldar og upphafi 19.
aldar og Páll Bergþórsson, fyrr-
verandi veðurstofustjóri, mun
ijalla um Árna Thorlacius og
veðurathuganir hans. Lesið verð-
ur úr ljóðum Sigurðar Breiðfjörð
en Ámi var vinur hans og vel-
gjörðarmaður og gaf m.a. út
Númarímur.
Þetta er merkisafmæli sem ber
að halda á lofti og em allir vel-
komnir í Norska húsið í Stykkis-
hólmi á sunnudaginn kl. 15.
hefst föstudaginn
2 7 . o k t. k 1.13:00
skór
frá 995,-
Opið a I I a virka daga,
laugardag og sunnudag
frá k I . 13:00 - 19:00
Borgartúni 20
(Gamla Paffhúsið)
Sfendur aðeins í örfáa daga