Morgunblaðið - 27.10.1995, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 23
MAKLEG
MÁLAGJÖLD
Nemenda-
tónleikar í
Bústaða-
kirkju
TÓNLISTARSKÓLI íslenska
Suzukisambandsins efnir til
nemendatónleika á íslenskum
tónlistardegi laugardaginn 28.
október. Sjö nemendur á aldr-
inum 7-12 ára koma fram sem
einleikarar með strengjasveit
sem skipuð er nemendum og
kennurum.
Tóríleikar af þessu tagi eru
orðnir fastur iiður í skólastarf-
inu ár hvert. Fluttir verða kafl-
ar úr fiðlukonsert í a-moll eft-
ir Antonio Vivaldi, 1. kafli úr
fiðlukonsert í a- moll eftir J.S.
Bach, þáttur úr fiðlukonsert
eftir Seitz og Sonatina Conc-
ertata fyrir strengjasveit og
píanó eftir Clementi -
MacSpadden. Einnig leikur
strengjasveit yngri nemenda
tvö lög.
Tónleikarnir eru í Bústaða-
kirkju og hefjast kl. 15.30.
Öllum er heimill ókeypis að-
gangur.
Tónlistarfélag
Akraness
Islensk
sönglög og
óperuaríur
í TILEFNI þess að í ár eru
liðin 40 ár frá stofnun Tónlist-
arfélags Akraness gfnir félag-
ið til tvennra tónleika á næst-
unni. Fyrri tónleikarnir verða
haldnir á laugardaginn kemur
í safnaðarheimilinu Vinaminni
og hefjast þeir kl. 15. Á þess-
um tónleikum koma fram þau
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran-
söngkona, Martial Nardeau
flautuleikari og Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari.
Á efnisskránni eru íslensk
sönglög og ýmsar óperuaríur.
Seinni tónleikar félagsins
verða svo 15. nóvember, en
þá koma fram þær Sigrún
Eðvaldsdóttir fiðluleikari og
Selma Guðmundsdóttir píanó-
leikari. Þær munu leika verk
eftir Beethoven og fleiri.
Að lokum má geta þess að
aðalfundur Tónlistarfélagsins
verður haldinn mánudaginn
30. október kl. 20.30 í húsa-
kynnum tónlistarskólans.
Unglist
frestað
VEGNA snjóflóðanna á Flat-
eyri gefa breska dansrokk-
sveitin Transcendental Love
Machine, Hljómalind, Unglist
og fleiri aðilar frá sér svohljóð-
andi yfirlýsingu:
í virðingarskyni við fólkið á
Flateyri og aðstandendur þess
hafa Transcendental Love
Machine, Lhooq, Hljómalind,
Unglist, Ingólfskaffi, FB og
Gaukur á stöng ákveðið að
fresta fyrirhuguðu tónleika-
haldi hér á íslandi helgina 27.
- 30. október.
Tónleikarnir áttu að fara
fram sem hér segir:
Föstudaginn 27. október,
Hitt húsið, föstudaginn 27.
október, Ingólfskaffi, laugar-
daginn 28. október, Undir-
heimar FB, og sunnudaginn
29. október Gaukur á stöng.
Ákveðið hefur verið að
fresta tónleikahaldi til loka
nóvembermánaðar.
BOKMENNTIR
Skáldsaga
AUGA FYRIR TÖNN
eftir Kormák Bragason.
Hekluútgáfan 1995 —151 síða.
„AUGA fyrir tönn“ er skáldsaga
þar sem höfundur notar dulnefnið
Kormákur Bragason. Áður hefur
hann gefið út „Djúpfryst ljóð“,
„Spíruskip" (uppstilling) og skáld-
söguna „Sjávarbörn".
I upphafi sögunnar er birt
„ágrip“ sem lýsir helstu þáttum
sögunnar, bæði persónum, sögu-
sviði og tíma. Þannig eru nefndar
til „aðalpersónurnar“ hjónin Víól-
etta og Jónsteinn sem búa ásamt
tveimur börnum sínum í „reisu-
legu“ húsi við Tjarnargötuna. Sag-
an segir síðan frá þeim hjónum,
bakgrunni þeirra, ættingjum, vin-
um og börnum, þar sem þunga-
miðja viðfangsefnisins er kynferð-
isleg misnotkun föður Víólettu eða
Símonar flugs og afleiðingar þess
þar sem hann hlýtur makleg mála-
gjöld.
TONLIST
Háteigskirkja
KAMMERTÓNLEIKAR
Bachsveitin í Skálholti lék verk eftir
Scarlatti, Telemann og Quantz. Ein-
leikarar voru Camilla Söderberg,
Sarah Buckley og Martial Nardeau
Sunnudagurinn 22. október, 1995.
FLUTNINGUR barokktónlistar
getur verið nokkurt vandamál, sér-
staklega er varðar gerðir hljóðfæra
og leikaðferðir en einnig er varðar
túlkun slíkrar tónlistar og þá ekki
síst hraðaval. í raun er margt óljóst
um flutning eldri tónlistar og oft
ekki annað til að styðjast við en
tónritun, jafnvel á stundum óná-
kvæma, og ritaðar frásagnir. Þau
hljóðfæri sem tekin vor'u í notkun
síðar eru bæði tónmeiri og tónstöð-
ugri en eldri hljóðfæri og það er
meginástæðan fyrir því að barokk-
hljóðfærin voru lögð til hliðar. Upp-
tökutæknin á mikinn þátt í endur-
komu hinna hljóðlátu barokkhljóð-
færa en á þeim vettvangi hafa
menn lært að endurmeta tónsér-
kenni gömlu hljóðfæranna.
Þrennir tónleikar eru fyrirhugað-
ir á flutningi barokktónlistar undir
yfirheitinu „Norðurljós“, sem
Musica Antiqua gengst fyrir, í sam-
vinnu við Bachsveitina í Skálholti
og Ríkisútvarpið. Á efnisskrá fyrstu
tónleikanna voru fjórir konsertar
og hófust þeir á konsert eftir Ales-
sandro Scarlatti, fyrir blokkflautu,
tvær fiðlur og fýlgirödd.Flytjendur
voru Camilla Söderberg á blokk-
flautu, fiðluleikararnir Rut Ingólfs-
dóttir og Lilja Hjaltadóttir, en fylgi-
röddina léku Helga Ingólfsdóttir á
sembal og Sigurður Halldórsson á
selló. Konsertinn er í fimm þáttum
og sérstaklega áhugaverður var sá
SÝNINGU Bubba - Guðbjörns Gunn-
arssonar - á skúlptúrum í Galleríi
Fold við Rauðarárstíg lýkur nú á
sunnudag.
Á sýningunni eru verk unnin með
blandaðri tækni, úr bronsi, steini,
gleri, járni og tré. Ennfremur eru
skýringarmyndir sem sýna lauslega
saman einhveijum röddum og
sálarflækjum til að úr verði eitt-
hvað meir heldur en hrá skýrsla.
„Auga fyrir tönn“ dettur beint
ofan í þá grylju og eru hinar ýmsu
lýsingar æði afkáralegar líkt og
þegar „fjölskyldudómstólnum“ er
komið á fót og einnig er skotið
yfir markið í soralegum lýsingum
á kynferðislegri misnotkun þeirra
feðga Símonar flugs og Símonar
Sör. Þar er miklu púðri eytt í lýsing-
ar sem ekki þjóna neinum tilgangi
nema að vekja viðbjóð og án þess
að afhjúpa nokkurn skapaðan hlut
eins og þessi lýsing ber merki:
„Þegar hann var um það bil að fá
fullnægingu teygði hann sig til
Edithar, bleytti fingurna og setti
þá inn í kynfærin á barninu, strauk
henni um lærin og líkamann hátt
þriðji, sem er fúga en stef hennar
er að því leyti til óvenjulegt, að það
byggir á smástígum (krómatískum)
tónbilum. Sá fjórði ber nafnið Pinao,
sérkennilegur þáttur, sem var mjög
fallega leikinn en veigamestu þætt-
ir konsertsins voru Allegro-þættirn-
ir, sá fyrsti og síðasti.
Næst á efnisskránni var konsert
fýrir lágfiðlu, strengjasveit og fylgi-
rödd, eftir Telemann, og var einleik-
ari Sarah Buckley, sem lék konsert-
inn mjög vel, sérstaklega þó loka-
þáttinn. Lágfiðlukonsertinn er eðli-
lega nokkuð dökkur í hljóman en
þriðji konsertinn bætti það upp, því
þverflautukonsertinn í G-dúr, eftir
Quantz, var allur hinn bjartasti og
sérstaklega skemmtilegur lokaþátt-
urinn. Einleikari var Martial Narde-
au og lék hann konsertinn í heild
af mikilli leikni. Til viðbótar við þá
sem fyrr voru taldir höfðu bæst í
hópinn Ásdís Runólfsdóttir á fiðlu
og Páll Hannesson á kontrabassa.
Lokaverk tónleikanna var tví-
leikskosert í e-moll, fyrir blokk-
flautu, þverflautu, strengjasveit og
fylgirödd, eftir Telemann, og þar
léku saman einleikinn Camilla Söd-
erberg og Martial Nardeau með
Bachsveitinni í Skálholti. Konsert
þessi er hin skemmtilegasta tónlist
og lokaþátturinn er hrein skemmti-
músik, leikandi létt rókokkóglað-
værð.
Tónleikarnir í heild voru sérlega
vel framfærðir, bæði af hálfu ein-
leikaranna og þeirra sem léku með.
Barokkkonsertinn er ekki sá ein-
leikskonsert sem tíðkaðist síðar, að
einleikarinn væri nær einráður, en
miklu nær er að tala um samleik,
eða eins og „concertare" merkti
upphaflega, að keppa eða beijast
hlið við hlið, og það var einmitt
aðall þessa skemmtilega „consert-
are“ hljómleiks.
vinnsluferil við bronssteypu. Megin-
viðfangsefni í verkum Bubba er nátt-
úra íslands. Þetta er fjórða einkasýn-
ing Bubba, en hann hefur einnig
tekið þátt í nokkrum samsýningum.
Opið er í Galleríi Fold daglega frá
kl. 10-18 nema sunnudaga en þá er
opið kl. 14-18.
an Símonar flugs og fíkniefna-
neyslu Edithar sem hafði verið
misnotuð af föður sínum. Þannig
virðist textinn vera fastur í veru-
leika sem ekki nær að rista dýpra
heldur en viðteknar skoðanir og
fyrir vikið ber stíllinn þess merki.
Textinn ber með sér mikla flatn-
eskju., þar sem bæði tungutakið er
einsleitt og þurrt og lítið notað
skáldlegt myndmál í textanum líkt
og lýsingin á Súsý: „Hún var stór
eftir aldri og frekar feitlagin. Hún
var oftast í gallabuxum, sem ekki
var heppilegasti klæðnaðurinn til
að draga úr því hve rassmikil hún
var. Hún var nefnilegan með dæmi-
gerðan kúlurass og þegar hún gekk
datt manni helst í hug jeppi með
kerru aftan í eða eitthvað svoleiðis.
Hún var með brún augu og þykkar
útstæðar varir.“ (112.)
En lýsingin ber einnig með sér
sjónarhorn alviturs sögumanns, en
manni sýnist ofuráhersla vera lögð
á hlutlæga frásögn sem þó er að
vissu leyti lituð af sjónarhorni karls
sem lítur á konur sem kynferðisver-
ur. Þó að þessi frásagnarmaður
láti sjaldnast skoðanir sínar uppi,
þá ávarpar hann lesendur sem ekki
er algengt að finna í skáldsögum
nútildags. Þetta var algegnt bragð
áður fyrr en gerir það að verkum
að viss nálægð verður við lesanda
en að sama skapi viss ijarlægð við
söguefnið.
„Auga fyrir tönn“ skortir því
ansi mikið í skáldskaparlegu tilliti
og kemur það berlega í Ijós í þeim
vaðli sem einkennir textann þar
sem rás atburða kaffærir sköpun
og þróun persóna. Söguhöfundur
virðist vera því marki brenndur að
koma sem mestu til leiðar í lýsing-
um sem eiga að vera einhver „ofur“
_raunveruleiki og fyrir vikið skortir
meiri úrvinnslu. Persónurnar verða
því hálfandlitslausar og renna sam-
an í eitt eins og lýsingin á Símoni
flug og Símoni Sör. Það er helst
að séra Pálína sé gædd einhveiju
lífi.
Þannig skortir textann eitthvert
líf og áreiðanleika, sem kannski
hlýst af því „tabúi“ sem kynferðis-
leg misnotkun er í orðræðunni, en
þá ætti skáldsöguformið að vera
sá vettvangur sem hægt væri að
nálgast þetta efni en það tekst
ekki í „Auga fyrir tönn“.
Einar E. Laxness
□□L DOLBY SURROUND
P R O • L O G I C
FINLUX ♦
Alvöru heimabíó
sjónvarp
4
Verð kr.
139.900.-st
Dolby surround pro logic magnari. (innbyggður)
( 5 sjálfstæðar hljóðrásir með umhverfishljómi,
3 hátalarar í tækinu og 2 lausir sem fylgja með.
Tengimöguleikar fyrir aðra 2 hátalara og verða
þá hátalararnir í tækinu miðju hátalarar.
Nicam og Hi Fi stereo móttaka.
Subwoofer (sérstakur bassahátalari).
Black invar super myndlampi (svartur og flatur).
Kamfilter, klýfur liti og línur betur, sem þýðir
betri mynd.
Hraötextavarp sem finnur síður strax.
Allar aðgerðir upp á skjáinn.
Fjarstýring mjög einföld í notkun.
Tvö scart tengi, einnig RCA tengifyrir tökuvélar
að framanverðu.
Möguleiki á mynd í mynd (bætt í)
16:9 breiðtjaldsmöguleiki
Sjö fyrirfram stillt
umhverfis minni:
pro logic, normal,
music, club, hall,
stadium, speech
Einig fáanleg Nicam Stereo tæki frá kr. 109.900.
HLJÓMCO
Fákafeni 11. Sími 5688005
Þegar ijallað er í skáldsagnar- og lágt.“ (122.)
formi um jafn viðkvæmt viðfangs- Jafnframt þessu virðast viðtekn-
efni og kynferðislega misnotkun, . ar hugmyndir vera látnar útskýra
þá verður sú krafa að vera gerð orsakir og afleiðingar þessa ofbeld-
að textinn sýni, afhjúpi eða etji is eins og gefið er í skyn með hegð-
Að keppa
hlið við hlið
Jón Asgeirsson
Sýningu Bubba að ljúka