Morgunblaðið - 27.10.1995, Síða 37

Morgunblaðið - 27.10.1995, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 37 MIWNIIMGAR FINNUR BJÖRNSSON + Finnur Björns- son fæddist á Patreksfirði 6. ág- úst 1973. Hann lést af slysförum 14. september síðastlið- inn og fór útför hans fram á Pat- reksfirði 23. sept- ember. MEÐ ÖRFÁUM línum langar okkur fjölskyld- una að minnast Finns Bjömssonar, þess góða drengs sem við kveðjum nú í bili. Flestar minningar okkar um Finn tengjast þeim árum er við bjuggum á Patró. Mikill samgangur var þá milli okkar og fjöiskyldu hans og gátum við fylgt honum fyrstu tólf ár ævinnar. Helst koma nú upp myndir sem tengjast óeigingirni hans, hjálpsemi og úrræðasemi. Hann hefur varla verið meira en fimm ára gamall þegar hann var orðinn fastagestur í frystihúsinu og síðar á höfninni. Og hvar sem hann kom vildi hann endilega fá að hjálpa til. Á Brunnum 18 var því gjarnan boðið upp á fisk sem Finnur hafði þegið að launum fyrir vinnu sína. Ekki var gert hlé á þessari iðju þótt hann gisti hjá okkur á Mýrun- um. Reyndar þurfti Aldís að særa ungan drenginn einu sinni þegar hann hafði rogast heim með rauð- maga og vildi sjóða. Hún afþakkaði og hann varð hvumsa við og hneykslaður yfir van- þakklætinu. Þótt samverustund- irnar yrðu sýnu færri eftir að við fluttum voru þær þó nægar til að sjá þessi einkenni varðveit- ast er hann varð eldri. í hvert það skipti sem við komum vestur var hann tilbúinn til að snú- ast í kringum okkur eins og hann frekast gat. Einkum á Jón Páll góð- ar minningar frá bæði sjó- og bílferð- um í boði hans. Engin minningargrein fær lýst missi fjölskyldu Finns. Okkur kann að þykja ævi þans stutt en hún var nógu löng til að gefa okkur eilífa minningu um góðan dreng, nógu löng til að skapa honum eilífan sess meðal réttlátra manna. Við erum þess viss að honum sjálf- um líður vel í dag. Okkar sem minn- umst hans er nú að styrkja hvert annað. Guð blessi fjölskyldu Finns sem og fjölskyldur vina hans, þeirra Svans og Kristjáns. Haraldur, Aldís, Jón Páll og Álfheiður. Elskuleg móðir okkar, ÞORBJÖRG ÁSTA BLÖNDAL, Sundstræti 3SA, ísafirði, lést á Hrafnistu fimmtudaginn 26. október. Börnin. Háskóla- hátíð á morgun BRAUTSKRÁNING kandídata frá Háskóla íslands verður laugardag- inn 28. október í Háskólabíói. Kröflukvartettinn leikur við inn- ganginn en hátíðin sjálf hefst kl. 14 með því að blásarakvintett úr Tónlistarskólanum í Reykjavík leikur. Að því búnu ávarpar Svein- björn Björnsson háskólarektor kandídata og ræðir málefni Há- skólans. Að lokinni ræðu rektors fer fram brautskráning kandídata og í lokin syngur Háskólakórinn undir stjóm Egils Gunnarssonar nokkur lög. ------» ♦ ♦---- Basar og kaffisala í Sunnuhlíð HAUSTBASAR verður haldinn í Dagdvöl Sunnuhlíðar laugardag- inn 28. október kl. 14. Verða þar seldir ýmsir munir unnir af fólki í Dagdvöl, margt tilvalið til jólagjafa. Einnig verða heimbakaðar kökur og lukkupokar. Kaffisala verður í matsal þjónustu- kjama og heimabakað meðlæti á boðstólum. Allur ágóði rennur til styrktar starfsemi Dagdvalar þar sem eldra fólk dvelur daglangt og nýtur ýmissar þjónustu. -----♦ ♦ ♦----- ■ HLJÓMS VEITIN Kol leikur á veitingahúsinu Hanastéli við Ný- býlaveg í Kópavogi í kvöld, föstu- dagskvöld. Hljómleikarnir verða órafmagnaðir. Sögustund í Viðeyjarstofu Á ÞESSU ári munu 770 ár liðin frá stofnun Viðeyjarklausturs. Af því tilefni verður efnt til sögustundar í Viðeyjarstofu síð- degis fyrsta vetrardag, laugar- daginn 28. október nk. Dagskrá- in hefst kl. 14. Gunnar F. Guðmundsson sagnfræðingur, er nú vinnur að sögu miðaldakirkjunnar ís- lensku, flytur erindi, sem hann nefnir Klaustur og klausturlíf á íslandi á miðöldum. Gunnar mun fjalla almennt um þetta efni, en einnig leitast við að bregða upp svipmyndum úr klausturlífinu. Ásdís Egilsdóttir bókmennta- fræðingur flytur síðan erindi, sem hún nefnir Klausturbók- menntir og Þorleifur Hauksson, bókmenntafræðingur fer með ljóð tengd þessu efni. Er þau þijú hafa flutt efni sitt verður boðið upp á kaffi- veitingar í Viðeyjarstofu. Að þeim loknum verður gengið út í Viðeyjarkirkju og þar munu klerkar og leikmenn úr söfnuði Kristskirkju í Landakoti flytja Þorlákstíðir. Bátsferðir til Viðeyjar verða kl. 13.30 og 13.45. Reiknað er með að samvera þessi taki ekki lengri tíma en svo, að farið verður í land um kl. 16.30. Kostnaður við að sækja sögu- stundina er ekki annar en feiju- tollurinn, sem er að veiiju 400 kr. og allir eru velkomnir með- an húsrúm leyfir. Kvennabarátta í 25 ár Opinber fyrir- lestur um kvenfrelsi og stjórnmál HELGA Siguijónsdóttir flytur op- inberan fyrirlestur í Norræna hús- inu laugardaginn 28. október nk. Hann hefst kl. 14, er ókeypis og öllum opinn. Fyrirlesturinn er flutt- ur í tilefni af því að í þessum mánuði er aldarfjórðungur liðinn síðan Rauðsokkahreyfingin var stofnuð hér á landi. í fyrirlestrinum kemur Helga víða við og leitar m.a. svara við eftirfarandi spumingum: Hvers vegna var ný kvennahreyfing stofn- uð í upphafi áttunda áratugarins? Hver varð þróun hreyfingarinnar og hvers vegna leið hún undir lok? Var Kvennalistinn arftaki hreyfíng- arinnar? Er Kvennalistinn sjálfstætt og frumlegt stjómmálaafl eða er hann hefðbundinn vinstri flokkur? Hvers vegna er ekki samfella í kvenfrelsisbaráttunni? Ber kvenna- barátta árangur? Er þörf fyrir nýja kvennahreyfíngu á nýrri öld? ♦ » ♦---- Aðalfundi og ráðstefnum RKÍ frestað STJÓRN Rauða kross íslands ákvað í gær að fresta aðalfundi félagsins sem hefjast átti í dag, föstudaginn 27. október, og standa til 29. október. Fundinum er frest- að til 17. nóvember nk. Jafnframt var ákveðið að fresta tveimur ráð- stefnum sem halda átti samhliða um skipulag sjúkraflutninga og um málefni flóttamanna. R AÐ AUGL YSINGAR Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Kirkjubraut 26, þingl. eig. Tryggvi Vilmundarson, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki íslands, 1. nóvember 1996 kl. 13.00. Sauðanes, Nesjahreppi, þingl. eig. Jarðasjóður ríkisins, Kristinn Pét- ursson og Rósa Benonýsdóttir, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður Aust- urlands og Stofnlánadeild landbúnaðarins, 1. nóvember 1995 kl. 17.00. Sunnubraut 4a, 0102, þingl. eig. Hannes Halldórsson, gerðarbeið-" endur Byggingasjóður ríkisins og Sýslumaðurinn á Höfn, 1. nóvem- ber 1995 kl. 14.00. Sunnubraut 4b, 0101, þingl. eig. Sigtryggur Benedikts, gerðarbeið- endur Byggingasjóður ríkisins og Sýslumaðurinn á Höfn, 1. nóvem- ber 1995 kl. 15.00. Sýslumaðurinn á Höfn, 25. október 1995. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Hörðuvöllum 1, Selfossi, þriðjudaginn 31. okt. 1995 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum: Eyrargata 13, Eyrarbakka, þingl. eig. Sigurður Þór Emilsson og Hafrún Ósk Gísladóttir, gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf. Finnheiðarvegur 8, úr Norðurkoti, Grímsn., þingl. eig. db. Sigurjóns Jónssonar, gerðarbeiðandi Grímsneshreppur. Heinaberg 9, Þorlákshöfn, þingl. eig. Jóhann B. Óskarsson, gerðar- beiðendur Ispan hf., Lifeyrissj. sjómanna og Vátryggingafélag ís- lands hf. Hrauntjörn 1, Selfossi, þingl. eig. Haraldur Skarphéðinsson, gerðar- beiðandi Bæjarsjóður Selfoss. Lóð nr. 18 úr Minni-Borg, Grímsn., þingl. eig. Ásbjörn Helgason, gerðarbeiðandi Landsbanki islands. Lóð nr. 23 í landi Klausturhóla, Grímsn., þingl. eig. Sverrir Þór Hall- dórsson og Kolbrún Þorláksdóttir, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki ís- lands. Lóð nr. 36 úr Hólaspildu, Hallkelshólum, Grímsn., þingl. eig. Bettý Guðmundsdóttir, gerðarbeiðendur Grímsneshreppur, Húsfél. Dalseli 24-48, Rvik og Sveinn Sveinsson. *Norðurtröð 26, Selfossi, talin eig. Haraldur Tr. Snorrason, gerðar- beiðandi Bæjarsjóður Selfoss. Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Heiðarbrún 25, Hveragerði, þingl. eig. Elín Ósk Wiium, gerðarbeið- endur Lögmenn Suðurlandi, Lffeyrissjóður landssambands vörubíl- stjóra, Sigríður Helgadóttir, Ingvar Helgason hf., Búnaðarbanki Is- lands og Lífeyrissjóður sjómanna, fimmtudaginn 2. nóvember 1995, kl. 14.30. Sýslumaðurinn á Selfossi, 26. október 1995. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 1, 3. hæð, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Aðalgata 10, efri hæð, Suðureyri, þingl. eig. Guðlaugur Björnsson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, 31. október 1995 kl. 14.00. Aðalstræti 32, n.h.a.e., ísafirði, þingl. eig. Pétur Ragnarsson og Jó- hannes Ragnarsson, gerðarbeiöandi Bæjarsjóður ísafjarðar, 31. október 1995 kl. 14.00. Dalbraut 1B, 0201, Isafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd ísafjarðar, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, 31. október 1995 kl. 14.00. Fjarðargata 30,0202, Þingeyri, þingl. eig. Þingeyrarhreppur, gerðarbeið- endur Byggingarsjóður verkamanna, 31. október 1995 kl. 14.00. Fjarðargata 30,0204, Þingeyri, þingl. eig. Þingeyrarhreppur, gerðarbeið- andi Byggingarsjóður verkamanna, 31. október 1995 kl. 14.00. Fjarðarstræti 2, 0201, ísafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd ísafjarðar og Steinn Leó Sveinsson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verka- manna, 31. október 1995 kl. 14.00. Hafraholt 4, Isafirði, þingl. eig. Landsbanki Islands, Ingibjörg Hallgríms- dóttir, Sigurður G. Karlsson og Rósa María Karlsdóttir, gerðarbeiðend- ur Bæjarsjóöur ísafjarðar, 31. október 1995 kl. 14.00. Hlíöargata 37, Þingeyri, þingl. eig. Þingeyrarhreppur, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, 31. október 1995 kl. 14.00. Mjallargata 1,0206, ísafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd isafjarðar, gerð- arbeiöandi Byggingarsjóður ríkisins, 31. október 1995 kl. 14.00. Pólgata 10, isafiröi, þingl. eig. Magnús Hauksson, gerðarbeiðandi Mál og menning, 31. október 1995 kl. 14.00. Sætún 12, 0202, Suöureyri, þingl. eig. Súðureyrarhreppur, gerðar- beiðandi Byggingarsjóður verkamanna, 31. október 1995 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á Isafirði, 26. október 1995. HÚSNÆÐI í BOÐI Til leigu Tvær íbúðir, hvor um sig um 51 fm að stærð, eru til leigu fyrir 63 ára og eldri að Þorragötu 5-9, 1. hæð. Upplýsingar gefnar í síma 562 5260. Til sölu - yfirfæranlegt tap Til sölu er félag á sviði fiskeldis með yfirfæranlegt tap að fjárhæð 2.350.000 kr. Félagið er með hreinan efnahagsreikning. Tilboð sendist afgreiðslu Mbl. merkt: „Félag - 17789“. ÁX SJALFSTÆDISFLOKKURINN I Í; l. A (i S S T A R l; Aöalfundur Aöalfundur Félags ungra -jálfstæöismanna í Hveragerði veröur hald- inn laugardaginn 28. október kl. 14.00, Austurmörk 2. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning landsfundarfulitrúa. 3. Önnur mál. Félagar eru hvattir til að fjölmenna og mæta stundvislega. Stjómin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.