Morgunblaðið - 27.10.1995, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 39
AFMÆLI
lista Alþýðuflokksins í Reykjanes-
kjördæmi við Alþingiskosningar allt
til 1974 og sat á þeim tíma sem
varamaður á Alþingi. Hann hefur
átt sæti í flokksstjórn Alþýðuflokks-
ins frá árinu 1944 til 1974.
Þetta stutta yfirlit yfir starfsferil
Ragnars Guðleifssonar lýsir manni
sem er fullkomin andstæða hins
værukæra eiginhagsmunaseggs.
Öll voru þessi störf unnin í þágu
annarra, án þess að ætlast til nokk-
urrar umbunar, nema þeirrar
ánægju sem í því felst að vinna
öðrum vel. Samt fer því fjarri að
þar með sé öll sagan sögð. T.d. var
Ragnar einlægur trúmaður, sem tók
mikinn þátt í störfum sóknarnefnd-
ar og kirkju. Hann starfaði af áhuga
í Guðspekistúku og veitti forystu
Skógræktarfélagi Suðurnesja frá
stofnun þess. Alls staðar lét hann
gott af sér leiða.
Einu sinni heyrði ég sögu af
Ragnari Guðleifssyni sem e.t.v. lýsir
honum betur en mörg orð. Það var
á kreppuárunum, þegar fátæktin
svarf hvað harðast að alþýðuheimil-
unum í Keflavík. Ragnar var þá
nýtekinn við forystu félagsins og
stóð í ströngu við að fá félagið viður-
kennt sem samningsaðila við at-
vinnurekendur. Á þessum árum
hafði Ragnar það fýrir sið að senda
jólagjafir, nafnlausar, til þeirra
heimila í bænum, sem síst áttu gjafa
von. Þetta gerði hann sjálfur á eigin
kostnað en ekki í nafni félagsins.
Reyndar vissu meira að segja nán-
ustu vinir hans ekki af þessu fyrr
en mörgum árum síðar. Þannig er
Ragnar Guðleifsson. Verkin hans
lýsa honum best.
Ragnar Guðleifsson er tvíkvænt-
ur. Fyrri konu sína, Guðbjörgu Þórð-
ardóttur, missti hann eftir fárra ára
sambúð. Seinni konu sinni, Björgu
Sigurðardóttur, kennara, kvæntist
hann árið 1947 og eiga þau eina
dóttur, Sigrúnu tónlistarkennara.
Björg átti áður son, Sveinbjörn, sem
þau ólu upp sem sitt barn.
Ragnar Guðleifsson er fyrsti heið-
ursborgari Keflavíkurkaupstaðar.
Við það tækifæri flutti vinur hans,
Ásgeir Einarsson, ræðu til heiðurs
Ragnari. Hann sagðist ætla að þeg-
ar Ragnar liti yfír farinn veg, mætti
hann vera hreykinn yfír þeim ár-
angri, sem náðst hefur til þess að
gera æskuhugsjón hans að veru-
leika. En þegar hann hugleiddi líf
og störf Ragnars Guðleifssonar
kæmu honum í hug þessi þijú orð:
„Trúmennska, fómfysi og dreng-
íyndi“. - Það eru orð að sönnu. Feg-
urri umsögn samferðarmanna er
vart hægt að ávinna sér í lifanda
lífí. Við Alþýðuflokksmenn gerum
þessi orð Ásgeirs að okkar um leið
og við óskum Ragnari, Björgu konu
hans, bömum þeirra, afkomendum,
vinum og vandamönnum til ham-
ingju með afmæli hins ástsæla for-
ingja.
Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins.
RAGNAR
GUÐLEIFSSON
RAGNAR Guðleifs-
son, heiðursborgari
Keflavíkurkaupstað-
ar, er níræður í dag.
Ragnar var í meira en
40 ár helsti leiðtogi
okkar jafnaðarmanna
og verkalýðshreyf-
ingarinnar á Suður-
nesjum. Ragnar er
einhver ástsælasti og
farsælasti alþýðufor-
ingi sem Alþýðuflokk-
urinn hefur átt á að
skipa frá upphafi. Fyr-
ir hönd okkar jafnað-
armanna færi ég
Ragnari Guðleifssyni
og fjölskyldu hans hugheilar heilla-
óskir í tilefni afmælisins um leið
og við þökkum honum heilladijúgt
starf í þágu jafnaðarstefnunnar og
Alþýðuflokksins í meira en hálfa
öld.
Það eru engar ýkjur þegar full-
yrt er að Ragnar hafi notið vin-
sælda og virðingar þeirra, sem hann
þekktu og hans störf, umfram aðra
menn. Ungum að árum var honum
sýndur sá trúnaður að vera valinn
til forystu fyrir Verkalýðs- og sjó-
mannafélagi Keflavíkur. Hann var
formaður þess félags frá árinu
1935-1970 eða í 35 ár. Undir for-
ystu hans ávann félagið sér virðing-
arsess sem eitt traustasta verka-
lýðsfélag landsins. I höndum hans
og samstarfsmanna hans varð fé-
lagið lyftistöng framfara sveitarfé-
lagsins og Suðurnesja.
í tvö kjörtímabil (1938-1946) var
Ragnar annar tveggja fuiltrúa
verkalýðsfélagsins í hreppsnefnd,
uns þar kom að hann leiddi lista
Alþýðuflokksins í sveitarstjórnar-
kosningum 1946, þegar þeir félagar
hnekktu meirihlutavaldi Sjálfstæð-
isflokksins í fyrsta sinn. Eftir að
Keflavíkurkaupstaður fékk kaup-
staðarréttindi varð Ragnar fyrsti
bæjarstjóri kaupstaðarins upp úr
kosningum 1949. Hann sat alls 36
ár í sveitarstjórn. Allan þann tíma
var hann frumkvöðull að helstu
framfaramálum byggðarlagsins.
Hvert stórvirkið rak annað: Vatns-
veita, sjúkrahússbygging, barna-
skólabygging, dagheimili, íþrótta-
svæði, sundlaug, auk frumkvæðis
að eflingu atvinnulífs til sjós og
lands. Ragnar og félagar létu verk-
in tala. Þannig áunnu þeir sér
traust. Fylgi Alþýðuflokksins á
Suðurnesjum hefur alla tíð hvílt á
þeim trausta grunni síðan.
Saga Ragnars Guðleifssonar er
hin sígilda saga um mann sem
braust frá fátækt til mennta og
mannvirðinga fyrir einbeitni og elju,
eigið framtak og dugnað. Hann
lauk prófi frá Kennaraskólanum
árið 1933 og kostaði sig sjálfur til
námsins að öllu leyti með mikilli
vinnu, sparsemi og nægjusemi.
Þrátt fyrir margvísleg og tímafrek
trúnaðarstörf sem forystumaður
stettarfélags og sveitarstjórnar-
maður sinnti hann lengi kennslu-
störfum með öðrum störfum. Nem-
endur sögðu hann góðan kennara,
skipulegan, vandvirkan og réttsýn-
an.
Það orð fór snemma af Ragnari
sem formanni Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur að hann
léti sér fátt mannlegt óviðkomandi.
Hann þótti snemma hygginn og
útsjónarsamur samningamaður um
kjaramál. Sú staðreynd, að hann
þurfti sjaldan að beita verkfalls-
vopninu til þess að ná kröfum sínum
fram, staðfestir hversu laginn hann
var í samskiptum við atvinnurek-
endur.
Því fór líka fjarri að kjarabarátt-
an útilokaði önnur viðfangsefni.
Framan af bauð verkalýðsfélagið
studdi dyggilega upp-
byggingu aðstöðu til
íþrótta- og tómstunda-
iðju.
Á þessum árum
voru forystumenn Al-
þýðuflokksins og stétt-
arfélaganna gjaman
jafnframt í forystu fyr-
ir samvinnuverslun
bæjanna. Þannig hátt-
aði til í Hafnarfírði, á
ísafirði, á Siglufirði, í
Neskaupstað og víðar
á landsbyggðinni, fyrir
utan höfuðborgina
sjálfa. Ragnar átti hlut
að því að koma upp
verslun af þessu tagi í Keflavík;
fyrst í stað var þetta pöntunardeild
sem varð upphaf samvinnuverslun-
ar í Keflavík; Keflavíkurdeild
KRON varð síðan að Kaupfélagi
Suðurnesja árið 1945. Ragnar veitti
pöntunardeildinni forstöðu frá
1935-37 og Keflavíkurdeild KRON
frá 1937- 1943. Sem virkur sam-
vinnumaður sótti hann aðalfundi
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga í tæplega 30 ár.
Undir forystu Ragnars lét Verka-
lýðs- og sjómannafélag Keflavíkur
til sín taka alls staðar þar sem
unnt var að tryggja hagsmuni fé-
lagsmanna. Félagið hafði t.d. for-
göngu um að stofna sjúkrasamlag
í Keflavík þegar árið 1942 og veitti
Ragnar því forstöðu á tímabili
(1943-1946) meðan það var að
festa sig í sessi. Sömu sögu er að
segja um stofnun lífeyrissjóðs á
vegum félagsins. Reyndar má leita
langt aftur að dæmum um félags-
legt framtak Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur sem til
þess var ætlað að létta félögunum
lífsbaráttuna á erfiðum tímum. Eitt
besta dæmið um það var að árið
1935 keypti félagið einn hektara
lands og skipti upp í jafna reiti og
útdeildi meðal félagsmanna til mat-
jurtaræktunar. Þessi starfsemi
hélst reyndar allt til ársins 1953
þegar vöxtur bæjarins kallaði á
meira byggingarland.
Á næsta ári minnast Alþýðusam-
bandið og Alþýðuflokkurinn 80 ára
afmælis síns. Á því afmælisári eru
liðin 60 ár frá því að Ragnar Guð-
leifsson, hinn ungi formaður Verka-
lýðs- og sjómannafélags Keflavík-
ur, sótti sitt fyrsta Alþýðusam-
bandsþing. Það þing var jafnframt
flokksþing Alþýðuflokksins. Fyrir
utan að vera óumdeildur leiðtogi
verkalýðshreyfingarinnar á Suður-
nesjum var Ragnar jafnframt for-
ystumaður í sveitarstjórnarmálum
í rúmlega hálfan fjórða áratug.
Eftir kjördæmabreytinguna 1959
átti hann jafnan sæti á framboðs-
sjálft fram í kosningum til sveitar-
stjórnar. í sveitarstjórn beitti Ragn-
ar áhrifum stéttarfélagsins til þess
að koma fram hagsmunamálum
umbjóðenda sinna í skóla- og dag-
vistarmálum, heilbrigðismálum og
félagsmálum, auk þess sem félagið
■ FLÓAMARKAÐUR Félags
einstæðra foreldra er að hefjast
á ný og byijar hann í Skeljahelli,
Skeljanesi 6, laugardaginn 28.
október frá kl. 14-17. Seldur verð-
ur fatnaður á alla fjölskylduna,
skartgripir, svefnbekkir og fleira.
Flóamarkaður hefur verið haldinn
á vegum FEF um áraraðir og er
ásamt jólakortum félagsins ein
helsta fjáröflun félagsins.
_______FRÉTTIR______
Málþing um ungl-
• •
mgamennmgu
HALDIÐ verður málþing um ungl-
ingamenningu í Hinu húsinu,
Aðalstræti 2, laugardaginn 28.
október kl. 14 og er það liður í
Unglist, listahátíð ungs fólks sem
nú stendur yfir.
Meginviðfangsefni málþingsins
verður sú sjálfsprottna unglinga-
menning sem tengst hefur miðbæ
Reykjavíkur megnið af 20. öld-
inni. Sex valinkunnir íslendingar
á ýmsum aldri munu hafa fram-
sögu um málið og segja frá því
hvernig miðbæjarlífið var á þeirra
unglingsárum.
Framsögumenn _eru þau Flosi
Ólafsson leikari, Ómar Ragnars-
s'on fréttamaður, Guðrún Ög-
mundsdóttir borgarfulltrúi, Einar
Örn Benediktsson fjölmiðlafræð-
ingur, Halldóra Geirharðsdóttir
leikkona og Sandra Ásgeirsdóttir,
nemi í Menntaskólanum í Harma-
hlíð. Þá verður einnig lesið úr verk-
um Þórbergs Þórðarsonar og Tóm-
asar Guðmundssonar, þeirra
skálda sem hvað best lýstu æsku-
fólki í miðbæ Reykjavíkur í upp-
hafi aldarinnar. Að loknum fram-
söguerindum verða pallborðsum-
ræður og hefur Gestur Guðmunds-
son umsjón með þeim.
Aðgangur að málþinginu í Hinu
húsinu er heimill fólki á öllum aldri
og þeir sem vilja tjá sig um mál-
efni ungs fólks og miðbæjarins eru
sérstaklega hvattir til þess að
mæta.
Evrópumálin
séð frá bresk-
um sjónarhóli
AUSTIN Mitchell,
þingmaður breska
Verkamannaflokks-
ins fyrir Grimsby,
flytur erindi á sam-
eiginlegum hádegis-
verðarfundi Sam-
taka um vestræna
samvinnu (SVS) og
Varðbergs í Grillinu
á Hótel Sögu laugar-
daginn 28. október
kl. 12.
Mitchell mun
fjalla um evrópska
öryggis- og stjórn-
málaþróun og stöðn-
un í breskum stjórn-
málum í kjölfar flokksþinga
Verkamanna- og íhaldsflokks-
ins.
Austin Mitchell, sem er fædd-
ur árið 1934 í Yorkshire, er einn
af þekktustu þingmönnum
Verkamannaflokksins og mjög
eftirsóttur fyrirlesari. Hann er
ekki síður þekktur sem sjón-
varpsmaður en þingmaður. Hann
er annar tveggja stjórnenda við-
talsþáttarins „Target" á SKY
sjónvarpsstöðvarinnar og er
mörgum Islendingum góðkunnur
þaðan.
Mitchell var fyrst kjörinn á
þing fyrir Grimsby
árið 1977 en fram
að þeim tíma hafði
hann m.a. verið lekt-
or í stjómmálafræði
við Dunedin háskól-
ann í Nýja-Sjálandi
og síðar sjónvarps-
fréttamaður við
Yorkshire Television
í Bretlandi. Hann
hefur auk þess starf-
að við BBC sjón-
varpið þar sem hann
stjómaði m.a. þátt-
unum „Midwee“ og
„24 Hours".
Á breska þinginu
hefur hann gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum fýrir þingflokk
Verkamannaflokksins. Hann var
t.d. þingflokksformaður 1980 til
1985 og hefur verið talsmaður
minnihlutans í viðskipta- og iðn-
aðarmálum. Mitchell var um
tíma formaður þingnefndar sem
barðist fyrir breytingum á
bresku kosningafyrirkomulagi.
Hann hefur setið í fjölda þing-
og flokksnefnda og er m.a. for-
maður í þriggja flokka þingnefnd
sem heitir „All-Party Icelandic
Group“.
Fundurinn er öllum opinn.
Austin Mitcell
Landsþing
hestamanna
46. ÁRSÞING Landssambands ■
hestamannafélaga verður haldið í
Garðaskóla í Garðabæ 27. og 28.
október. Þing þetta sækja fulltrúar
frá öllum 48 hestamannafélögum
landsins, alls 124 fulltrúar.
Venja er að hvert þing sé til-
einkað ákveðnu þema og er þema
þessa þings: Framlag hestamanna
og hestamennskunnar til þjóðfé-
lagsins. Einnig er fjallað um ýmis
innri málefni hestamannafélaga
svo sem tilhögun landsmóta,
breyttar keppnisreglur o.fl.
Áð kvöldi 1. vetrardags verður
þingslitafagnaður sem fellur ao
þessu sinni saman við 30 ára af-
mælisfagnað Hestamannafélags-
ins Andvara. Veglegt hóf verður
haldið í íþróttamiðstöð Garðabæj-
ar, Ásgarði. Þríréttuð veisiumáltíð,
skemmtiatriði og dans við undir-
leik hljómsveitar Geirmundar Val-
týssonar. Veislustjóri verður Sva-
var Gestsson, alþingismaður.
Landsþing og lokahóf eru öllum
opin og fást miðar á hófið í hesta-
mannabúðum í Reykjavík og á
þingstað í Garðaskóla.
-leikur að Ittra!
Vinningstölur 26 Okt 1995
1*6*7 «9* 13* 18*24
Eldri úrslit á símsvara 568 1511
- kjarni málsins!