Morgunblaðið - 30.11.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 30.11.1995, Qupperneq 1
96 SÍÐUR B/C/D Clinton boðar aukna friðarumleitan eftir viðræður við Major í London Friðarframrás á heimsvísu gæti leitt deilur til lykta London. Reuter. BILL Clinton kannar heiðursvörð lífvarðar Elísabetar Bretlandsdrottningar við komuna í Bucking- ham-höll í London í gær í fylgd Filippusar drottningarmanns. BILL Clinton Bandaríkjaforseti sagðist í gær vera þeirrar skoðun- ar, að „friðarframrás á heimsvísu“ gæti bundið enda á deilur í Bosníu og á Norður-írlandi, svo og víðar. Lét hann svo um mælt eftir viðræð- ur við John Major forsætisráðherra Bretlands í Downingstræti 10 í gær. Hrósaði hann Major fyrir hug- rekki sem hann hefði sýnt með því að ná samkomulagi við Íra um að hefja aftur viðræður um frið á Norður-írlandi. Clinton hafði viðdvöl í Bretlandi í gær á fyrsta degi fimm daga ferð- ar um Evrópuríki. Heldur hann í dag til Belfast og verður þar með fyrstur bandarískra forseta til þess að heimsækja Norður-írland. í gær fundust tvær sprengjur skammt frá hótelinu sem forsetinn dvelst á í Belfast og voru þær gerðar óvirkar. Einn megintilgangur Evrópu- ferðar Clintons er að undirstrika nauðsyn þess að leiða til lykta lengstu átök í álfunni eftir seinna stríðið. Major bar lof á Clinton fyr- ir þátt Bandaríkjamanna við að koma á friðarsamningum fyrir Bosníu. „Vegna samstarfs okkar síðustu 50 árin, hafa þau gildi sem við höfum staðið vörð um öðlast viður- kenningu um heim allan. í dag ræddum við um leiðir til að efla samvinnu okkar um að fækka gjör- eyðingarvopnum, klekkja á hryðju- verkastarfsemi og þoka friðar- framrásinni á heimsvísu,“ sagði Clinton. Clinton minntist styijalda sem Bretar og Bandaríkjamenn hefðu háð og unnið. „Við höfum háð styij- aldir en nú skulum við beijast fyrir friði. Ég held að bestu stundir lýð- ræðis og frelsis bíði okkar, en þó því aðeins að við mætum þeirri áskorun sem bíður okkar og mætum henni sarnan," sagði Bandaríkjafor- seti. I ræðu í breska þinginu sagði hann að sú skylda hvíldi á herðum núverandi leiðtoga að þoka áfram þeim málstað sem svo margir hafa barist fyrir og týnt lífi fyrir í styij- öldum. „Á þessum nýju tímum eig- um við ekki að sinna herkvaðningu, heldur friðarkalli,“ sagði Clinton. Major lýsti stuðningi við tilraunir Clintons til að afla því fylgis meðal bandarísku þjóðarinnar og þingsins að 20.000 bandarískir hermenn verði sendir til Bosníu til þess að tryggja framgang friðarsamkomu- lagsins. „Mikilvægi þess er gríðar- legt fyrir Bosníu og mörg önnur ríki í framtíðinni,“ sagði Major. Staðfest var í gær, að friðarsamn- ingar fyrir Bosníu yrðu undirritaðir i París 14. desember. ■ Viðræður um N-írIand/20 FRÁ kjörstað í Kaíró. Brögð í tafli í Egypta- landi Kairo. Reuter. EGYPSKA stjórnarandstaðan hélt því fram, að „svívirðilegum brögðum" hefði verið beitt við framkvæmd þingkosninga þar í landi í gær af hálfu lögregl- unnar og stjórnarflokksins. Fjórir menn, a.m.k., biðu bana í átökum hjá kjörstöðum. Stjómvöld hétu því að kosn- ingarnar myndu verða bæði fijálsar og réttlátar. Stjórnar- andstaðan var annarrar skoð- unar. Fulltrúum hennar var meinaður aðgangur að fjölda kjörstaða, lögreglan handtók hundruð fylgismanna strangtrú- arsamtaka og fjöldi kjörkassa var sagður innihalda atkvæða- seðla við opnun kjörstaða. Fréttamaður Reuters í borg- inni Toukh norður af höfuð- borginni Kaíró, sagðist hafa séð tvo 16 ára krakka greiða at- kvæði en kosningarétt öðlast Egyptar 18 ára. Toukh er vígi Atefs Sedki forsætisráðherra. Auk þeirra sem biðu bana slösuðust a.m.k. 60 manns í átökum hj-á kjörstöðuin en sums staðar var skotvopnum beitt. Lögreglan beitti táragasi tii þess að leysa upp mótmælaað- gerðir í Kaíró. Andreas Papandreou forsætisráðherra Grikklands þungt haldinn á sjúkrahúsi Haldið á lífi með öndunar- og nýmavélum Aþenu. Reuter. ÖLDRUÐ grísk kona með mynd af Maríu mey biður ásamt fjölda annarra fyrir Andreas Papandreou utan við Onassis-hjartastofn- unina í Aþenu í gærkvöldi. Karpov fram úr Kasparov GARRÍ Kasparov, heimsmeistari Atvinnumannasambandsins í skák (PCA), er fallinn úr efsta sæti á skrá Alþjóðaskáksam- bandsins (FIDE) yfir stigahæstu skákmeistara heims, í fyrsta sinn í áratug. Á nýjum lista FIDE er Ana- tolíj Karpov, heimsmeistari FIDE, í efsta sæti með 2780,60 stig en Kasparov í öðru sæti með 2777,10 stig. Ungverska stúlkan Judit Polg- ar er 110. sæti á FIDE-listanum með 2676,10 stig. Margeir Pét- ursson er eini íslenski stórmeist- arinn í hópi 100 sterkustu skák- manna heims. Er hann í 86. sæti með 2585,00 stig. Aðeins tveir Norðurlandabúar eru framar en Margeir. Svíinn Ulf Andersson er í 28. sæti með 2632,50 stig og Curt Hansen, Danmörku, í 47. sæti með 2613,40 stig. ANDREAS Papandreou, forsætis- ráðherra Grikklands, sem liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi, var í gær haldið á lífi með hjálp öndunar- vélar og hann var einnig settur í nýrnavél til að skilja að blóð og þvag- efni. „Forsætisráðherrann fékk aðra himnuskiljun. Ástand hans er í jafn- vægi og hann andar með hjálp önd- unarvélar," sagði einn af læknum Papandreous. Forsætisráðherrann, sem er 76 ára, gekkst undir hjartaaðgerð árið 1988. Hann var fluttur á Onassis- hjartamiðstöðina í Aþenu fyrir tíu dögum vegna lungnabólgu. Tals- maður sjúkrahússins sagði ástand Papandreous „erfitt" en vísaði á bug fréttum í grískum fjölmiðlum um að hann væri heiladauður. „Heilastarf- semin er eðlileg og hjartað starfar án vandamála," sagði hann. Reynt að styrkja lungun Læknar hafa sagt að Papandreou megi ekki vera of lengi í öndunarvél vegna hættu á að það skaði önnur líffæri. Forsætisráðherrann var mestan hluta vikunnar sem leið í öndunarvél en tekinn úr henni á föstudag eftir að hafa sýnt bata- merki. Læknarnir neyddust þó til að setja hann aftur í öndunarvélina og það jók hættuna á að nýrnabilun- in hefði áhrif á fleiri líffæri. Læknarnir sögðu að virtur banda- rískur næringarfræðingur kæmi á sjúkrahúsið til að reyna að styrkja lungun með sérstakri næringu. For- sætisráðherrann hefur fengið riær- ingu í æð frá því hann var lagður á sjúkrahúsið og grískir fjölmiðlar sögðu að hann hefði lést verulega. Afar ólíklegt þykir að Papandreou ljúki fjögurra ára kjörtímabili sínu þótt hann nái sér. Jafnvel áður en hann veiktist hafði hópur háttsettra félaga í Sósíalistaflokknum iátið í ljós efasemdir um að hann væri fær um að stjórna. Þeir sögðu hann á valdi eiginkonu sinnar, Dimitru Liani-Papandreou, sem er 36 árum yngri en forsætisráðherrann og hef- ur sætt gagnrýni fyrir ráðríki og valdafíkn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.