Morgunblaðið - 24.01.1996, Page 4

Morgunblaðið - 24.01.1996, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Verkfall hjá Boeing setur strik í reikninginn hjá Flugleiðum Komu leiguflugvélar seinkar um átta vikur VERKFALL í Boeing-flugvélaverksmiðjunni í Se- attle i Bandaríkjunum fyrir jólin seinkar afhend- ingu nýrrar Boeing 757-leiguflugvélar til Flugleiða um átta vikur. Leigusamningur Flugleiða við ILFC, eitt stærsta flugvélaleigufyrirtæki í heimi, gerði ráð fyrir að flugvélin yrði afhent í janúar. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi, segir að belgísk leiguflugvél sömu gerðar hafi verið leigð í stað hinnar til febrúarloka. Hann segir að fyrst og fremst sé um óhagræði fyrir fyrirtækið að ræða. Einar sagði að með nýrri leiguflugvél væri ver- ið að mæta fjölgun ferða, t.d. vegna flugs til Halifax og Boston og meiri tíðni tii New York og Evrópu. Flugleiðir gerðu ráð fyrir að um 15% aukning yrði í farþegaflutningum á árinu. Tölu- verðri aukningu væri spáð í fraktflutningum vegna fiskflutnings til Boston og flutninga milli Halifax og Evrópu. Ekki bótaréttur Einar sagði að gert hefði verið ráð fyrir að nýja Boeing-vélin kæmi til landsins í janúar. Vegna frestunarinnar hefðu Flugleiðir hins vegar gripið til þess ráðs að leigja aðra flugvél og hefði belg- ísk flugvél sömu gerðar verið tekin á leigu til febrúarloka. Belgíska vélin hefði komið til landins 10. janúar og hefði aðallega verið í Ameríku- flugi, fyrst og fremst til og frá Flórída. Hin leigu- vélin er væntanleg síðla marsmánaðar. Um afleiðingar seinkunarinnar sagði Einar að hér væri fyrst og fremst um að ræða óhagræði fyrir félagið. Leiguverð belgísku vélarinnar væri væntanlega hærra en hinnar vélarinnar, en ekki væri um háar upphæðir að ræða. Hann sagðist gera ráð fyrir að ákvæði um óviðráðanlegar ástæð- ur væri í leigusamningi og því ætti fyrirtækið varla heimtingu á bótum vegna seinkunarinnar. Nýja leiguflugvélin frá Boeing-verksmiðjunni er væntanleg hingað til lands um mánaðamótin mars/apríl. Flugleiðir hafa gert langtímaleigu- samning um hana við ILFC sem er alþjóðlegt flug- vélaleigufyrirtæki með aðsetur í Kaliforníu. Mikil eftirspurn eftir peningabuddum við tilkomu 100 krónu myntar Morgunblaðið/Ásdls ANNA Pálsdóttír fy’á íslandsbanka við Háaleitísbraut við peningatalningarvél bankans sem flokkar og leggur saman mynt sem viðskiptavinir leggja inn. Talsvert um skipti yfír í seðla MIKIL eftirspurn hefur verið eft- ir peningabuddum eftir að 100 króna mynt kom á markaðinn og hafa fyrirtæki á því sviði vart annað eftirspurn. Berglind Ólafs- dóttir, framkvæmdastjóri Atson- leðuriðjunnar, segir að á síðasta ári hafi fyrirtækið framleitt og selt 1.110 slíkar buddur, þar af tæpan helming eftir tilkomu 100 krónu peningsins í lok síðasta árs. „Eg myndi segja að eftirspurn- in hafi aukist um helming á síð- ustu vikum miðað við það sem áður var, og við erum nú að fram- leiða 300 pyngjur sem eru seldar fyrirfram. Þetta byijaði í lok.nóv- ember og desember, og við skrif- um aukninguna alfarið á 100 króna peninginn," segir hún. „Um leið og ný mynt er slegin verður sveifla á þessum vettvangi. Pant- anir berast bæði frá bönkum, sparisjóðum og verslunum og frá einstaklingum í búðinni hjá okk- ur.“ Vilja frekar seðla Maður sem hafði samband við Morgunblaðið sagðist ekki alls kostar sáttur við 100 króna pen- ingana, en hann hefur um þriggja vikna skeið tæmt vasa sína reglu- lega af smápeningum, aðallega 100 krónu peningum, og safnað þeim í skál. Fyrir fáeinum dögum settí hann peningana í poka og fór með í banka, þar sem samantalið reyndist um ríflega 13 þúsund krónur að ræða. Þór Símon Ragn- arsson útibússtjóri Landsbanka við Háaleiti segir talsvert um að viðskiptavinir biðji um að fá seðla frekar en mynt eða viþ'i skipta 100 SVARTA Pannan ehf., rekstraraðili Southem Fried Chicken við Tryggva- götu, hefur kært Boston kjúklinga við Grensásveg til Samkeppnisstofn- unar vegna auglýsinga sem birtar hafa verið í Sjónvarpshandbókinni og á dreifimiðum. Gísli Gíslason, lög- maður Svörtu Pönnunnar, segir að upplýsingar um verð á kjúklingum frá Southern Fried Chicken sem fram komi í téðum auglýsingum séu al- rangar og hafi skaðað rekstur fyrir- tækisins. Gísli segir að verði ekki þegar í stað hætt að notast við þá verðkönn- un sem fram komi í auglýsingunni verði krafist lögbanns á auglýsing- una. Svarta Pannan áskilji sér rétt til þess að krefjast skaðabóta vegna króna peningum í seðla. „Fólk tekur bæði klink úr vösunum og biður um seðla eða vill frekar seðla þegar gefið er til baka, þó svo að ekki sé um yfirþyrmandi faraldur að ræða,“ segir Þór Sím- on. „Við höfum ekki metið hversu mikið þetta er, en mörgum finnst myntin greinilega þung í vasa eða þeir kunna ekki við hana ennþá.“ Hann segfir reynslu bankastofnana vera þá að tíma taki fyrir almenn- ing að venja sig við breytingar í þessa veru, þ.e. að seðlum sé skipt út fyrir mynt eins og gerst hafí bæði í tilviki 10 króna seðilsins og 50 króna seðilsins á undanföm- um áratug. tjóns sem fyrirtækið telji sig hafa orðið fyrir vegna auglýsingarinnar. Verðkönnun sú sem Boston kjúkling- ar studdist við var gerð af dagblað- inu DV í desember sl. Svarta Pannan bauð, að sögn Gísla, kjúklingabita á 98 krónur hvern bita frá 1. október 1995 til 12. janúar 1996 en frá þeim degi á 125 kr. bit- ann. í auglýsingu í 1. tbl. 4. árg. „Þetta er þó misjafnlega langur meðgöngutimi og ég hugsa að 100 króna peningurinn sé þyngri í vasa þannig að viðskiptavinur sem fær t.d. fjóra slíka peninga finnur áþreifanlega fyrir þeim. Auk þess taka sjálfsalar almennt ekki við þessum peningum, sem komið er,“ segir hann. Utibússtíórar hjá Landsbanka í Vesturbæ og íslandsbanka við Laugaveg kváðust hins vegar ekki hafa tekið eftir miklum önnum gjaldkera við móttöku 100 krónu peninga, eða að viðskiptavinir veigruðu sér sérstaklega við því að fá þá í hendur. „Aðalkvartanir sem okkur hafa borist em þess efnis að eldra fólki Sjónvarpshandbókarinnar eru kjúkl- ingabitar frá Southem Fried Chicken sagðir á 175 kr. hver biti og sex bit- ar ásamt meðlæti á 1.640 krónur. Þarf að skipta um nafn Gísli segir að Sjónvarpshandbók- inni sé dreift í öll hús á höfuðborg- arsvæðinu og því sé Ijóst að auglýs- ing sem þessi hafi veruleg áhrif. finnst erfitt að sjá hvort um er að ræða 100 krónu pening eða 10 krónu pening, og við höfum verið á svipaðri skoðun," segir Kristín Rafnar hjá Landsbanka. Tregða í upphafi „Það er alltaf einhver tregða til að byija með þegar hlunkur kemur í staðinn fyrir seðil, en menn venjast þessu síðan. Við höfum hins vegar ekki orðið vör við að fólk komi í stríðum straum- um til að skipta eða biðja um seðla, nema að það sé komið með svo marga peninga að þeir jafngilda 500 krónum eða 1.000 krónum," segir Þorsteinn Bryiyólfsson hjá íslandsbanka. Einnig hafi komið í Ijós að auglýsing þessi sé einnig notuð á miðum sem dreift er í fyrirtæki í nágrenni veit- ingastaðarins. Bjami Þór Þórhallsson, eigandi Boston kjúklinga, segir að sjálfsagt sé að hætta að notast við verðkönnun DV sé hún ekki rétt. Hann kveðst ekki hafa kynnt sér verð á kjúklinga- bitum Southem Fried Chicken sjálfur. Veitingahúsakeðjan Boston Chick- en í Bandaríkjunum hefur krafist þess að fyrirtæki Bjama Þórs hætti að nota nafnið Boston. Bjami Þór sagði að náðst hefði samkomulag í þessu máli. „Við þurfum að breyta nafninu í BK kjúklinga og það verður gert um næstu mánaðamót," sagði Bjami. Halldór ræðir við ESB-menn í Brussel HALLDÓR Ásgrímsson utan- ríkisráðherra, sem fer nú með formennsku í EFTA-ráðinu, mun á morgun, fimmtudag, eiga fundi með þremur fram- kvæmdastjórnarmönnum Evr- ópusambandsins í Brussel. Halldór mun ræða tvíhliða sam- skipti íslands við sambandið og samskipti EFTA og ESB, einkum á sviði samningsins um EE_S. Á fundi með Hans van den Broek, sem fer með utanríkis- mál í framkvæmdastjórninni, ræðir Halldór samskipti EFTA og ESB yfírleitt og ýmis tví- hliða samskipti ESB og EFTA- ríkjanna. Hann ræðir við Sir Leon Brittan, sem fer með ut- anríkisviðskiptamál, um verzl- unar- og viðskiptamál, sem snúa að Islandi og öðrum EFTA-ríkjum. Fundur Halldórs með Emmu Bonino, sem fer með sjávarútvegsmálin, mun hins vegar einkum snúast um samskipti Íslands og Evrópu- sambandsins. Rætt um bókun 9 Sennilegt er að á meðal umræðuefna Halldórs og fram- kvæmdastjórnarmannanna verði deila EFTA og ESB um gildi bókunar 9 við EES-samn- inginn og túlkun öryggis- ákvæða, sem ESB hefur nýtt til að setja lágmarksverð á inn- fluttan lax frá EFTA-ríkjum. Þá má búast við að ESB reki á eftir samþykkt löggjafar, sem taka á upp í EES-samninginn, til dæmis tilskipana ESB um vinnuvemd og vernd barna og unglinga. FIH sendir sr. Flóka bréf BJÖRN Th. Árnason, formaður Félags íslenskra hljómlistar- manna, segir að í bréfi til sr. Flóka Kristinssonar, sóknar- prests í Langholtskirkju, verði farið fram á að hann fari ekki aftur út fyrir verksvið sitt. Sr. Flóki fékk annan organ- ista í stað Jóns Stefánssonar til að leika á orgel Langholts- kirkju sl. sunnudag. Jón leitaði til FIH á mánu- daginn. í framhaldi af því sat hann fund með Bimi, Láru V. Júlíusdóttur, lögfræðingi FÍH, og Kjartani Siguijónssyni, for- manni Félags organista, í gær. Björn kvaðst vona að sr. Flóki sæi að sér. Nú væri í hans höndum hvað ganga þyrfti langt. Presturinn hefði brotið ráðningarsamning Jóns og félagið myndi gæta hags- muna organistans. Elduríbíla- geymslu SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var síðdegis í gær kallað að bílageymslu í Selási. Þegar að var komið kom í ljós að eldur var í timburaf- göngum og rusli á gólfi bíla- geymslunnar, sem er ný og ekki farið að nota sem slíka. Eldurinn var slökktur og bíla- geymslan síðan reykræst. Sam- kvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu varð lítið tjón á húsnæðinu. Southern Fried Chicken kærir Boston kjúklinga til Samkeppnisstofnunar Segja rangt verð í auglýsingum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.