Morgunblaðið - 24.01.1996, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þórarinn Tyrfingsson, formaður SÁÁ, um aukna fíkniefnaneyslu hérlendis á síðasta ári
Höfum
misst tök á
vandamim
Framboð og eftirspum ólöglegra vímuefna
hér á landi hefur aldrei verið jafn mikið og
á síðasta ári. Margir sprauta efnunum í æð
og auka hættumar enn frekar. Stómeytend-
ur ólöglegra vímuefna voru því veikari árið
1995 en nokkru sinni fyrr, og fjöldi þeirra
meiri en verið hefur í átta ár.
Morgunblaðið/Ásdis
ÞÓRARINN Tyrfingsson, formaður SÁÁ og yfirlæknir á Vogi, kynnir tölulegar upplýsingar úr
sjúkraskrám Vogs fyrir árið 1995 og samanburð við fyrri ár á fundi með fréttamönnum.
AF ÞEIM 1.617 einstakling-
um sem komu á Vog árið
1995 höfðu 905 aldrei not-
að ólögleg vímuefni, eða 56%. Með-
alaldur þeirra var rúm 41 ár. Þann-
ig höfðu 712 einstaklingar því notað
ólögleg vímuefni, eða 44%. Af þeim
sem voru yngri en 20 ára höfðu
aðeins 22 þá sögu að segja að þeir
hefðu ekjri notað ólögleg vímuefni,
eða 16%. Það sem helst einkennir
árið 1995 er að amfetamínfíklum
fjölgar verulega, sprautufíklum hef-
ur fjölgað stöðugt í 5 ár, vart verð-
ur við E-töflur (ecstasy) í fyrsta
sinn og þá í miklum mæli, hass-,
LSD- og sveppaneysla eykst og 217
sprautufíklar hafa sýkst af lifrar-
bólgu.
Þórarinn Tyrfingsson, formaður
SÁÁ og yfirlæknir á Vogi, sagði á
fundi með fréttamönnum, þar sem
hann kynnti tölulegar upplýsingar
úr sjúkraskrám Vogs fyrir árið
1995, að amfetamínfaraldur hafi
verið hér á landi frá árinu 1983.
í þessum faraldri hefur fyrst orðið
vart sprautufíkla á íslandi og þeir
hefðu aldrei verið eins margir og
nú.
„Þessi faraldur er í mörgu
svipaður faraldri sem hefur átt sér
stað erlendis og einkennist af fjölda
sprautufíkla og lifrarbólgum í kjöl-
far þess með auknum vanda fyrir
heilbrigðisstarfsmenn og líka
aukningu á grófum ofbeldis- og
auðgunarbrotum sem eykur vanda
löggæslunnar,“ sagði Þórarinn.
Stórneytendum amfetamíns
fjölgaði verulega
Stórneytendum amfetamíns
fjölgaði verulega árið 1995 og þótt
þeir hafi verið hlutfallslega fleiri
árið 1985 er flöldi þeirra sami og
þá og miklu fleiri sprauta sig nú
með þessum efnum í æð. Þórarinn
sagði að amfetamín væri í sjálfu
sér engu betra efni en kókaín. Það
sem oft hefði ruglað menn
í þessu sambandi væri að
efnið væri notað sem lyf,
en ekki mætti rugla því
saman við það þegar verið
væri að markaðssetja efn-
ið ólöglega, og þá beinlínis
leitað eftir einstaklingum sem væru
veikir fyrir og reynt að gera þá að
fíklum. Við þessar aðstæður væri
efnið mjög hættulegt vímuefni.
Hann sagði að það sem vekti
athygli í aukningu á amfetamínfíkl-
um væri hversu margir af þeim sem
séu að leita sér meðferðar í fyrsta
sinn greinist amfetamínfíklar, en
1985 hafi amfetamínfíklarnir fyrst
og fremst verið „gamlir viðskipta-
vinir" sem hafi verið að finna sér
nýtt efni.
Hlutfall stórneytenda f hópi ungra
sjúklinga á Vogi (yngri en 20 ára)
'86 '87 '88 ‘89 ‘90 '91 '92 ‘93 '94 '95
Hlutfall sprautufíkla meöal
sjúklinga á Vogi 1984-1995
%
18
16
14
12
10
8
6
4
2
0
i f* **■*>
/
f- -\a. etiai 198 7-19 90 y\ Virkir sprautufíklar
i i r
'84 ‘85 '86 ‘87 '88 '89 '90 ‘91 '92 '93 '94 ‘95
Hlutfall stðrneytenda kannabls- efna meðal sjúklinga á Vogi
%
201
10
10 ~ fi I m
5 -J 1 r T
u,84 '85 '86 '87 '88 '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95
Sjúklingar á Vogi 1995
sem notað höfðu Ecstacy
Hlutfall af
Aldur Karlar Konur Alls aldurshópi
Yngri en 20 9 22 31 22,6%
20-24 ára 16 34 50 19,1%
25-29 ára 7 10 17 8,4%
Eldri en 29 0 5 5 2,2%
Samtals: 32 72 103
Afþessum 103 höfðu:
98 nolað önnur ólögieg vímuefni
71 greinslstórneylenduramletamins og/eða hass
58 greinst stórneytendur amtetamíns og 52 stórneytendur hass
34 sprautað sig í æð og þar at21 sprautað sig reglulega í æð
Af þessum 103 voru 52 að leita sér meðferðar í fyrsta sinn
Af 35 „reglulegum neytendum“ ecstacy voru 20 í fyrstu meðferð
Amfetamín í
sjálfu sér
engu betra
efni en kókaín
Af þeim einstaklingum sem
komu á Vog í fyrra höfðu 15%
sprautað sig einhvern tíma, en
1983 reyndust 1,5% sjúklinganna
hafa sprautað sig. Á árunum 1991
til 1995 komu á Vog 520 einstakl-
ingar sem höfðu sprautað sig í æð,
og hjá þessum einstaklingum
greindust 217 tilvik af
lifrarbólgu C. Um 150
þessara einstaklinga
höfðu veiruna enn í
þlóðinu og eru því að
sögn Þórarins með
íangvinna og smitandi
lifrarbólgu.
Þórarinn sagði að allir þessir
sprautufíklar hafi byrjað í amfet-
amínneyslu og ljóst sé að helming-
ur stórneytenda amfetamíns verði
sprautufíklar sem sprauti sig
reglulega. Hin seinni ár hafi
sprautufíklar sótt í vaxandi mæli
í sterk verkjastillandi lyf sem ávís-
að sé af læknum. Um 20% af þeim
118 einstaklingum sem sprauta sig
reglulega og komu á Vog 1995
notuðu þessi efni reglulega.
35 reglulegir
neytendur E-töflu
Af þeim sem komu á Vog 1995
höfðu 103 einstaklingar reynt E-
töflur og af þeim voru 35 regluleg-
ir neytendur, þ.e. höfðu notað efnið
10 sinnum eða oftar á síðustu þrem-
ur mánuðunum fyrir innlögn á Vog.
Árið 1994 töluðu innan við 10 ein-
staklingar sem lögðust inn á Vog
um að hafa notað E-töflur, en á
síðasta ári kom efnið skyndilega inn
á markað hér, og þá líklega mest
á miðju ári.
Efnið í E-töflum er efnafræðilega
náskylt amfetamíni og því framleitt
í sömu ólöglegu efnaverksmiðjun-
um. Það hefur mjög áþekka verkun
og amfetamín en auk þess breytir
það skynjun manna. Nokkuð er s’íð-
an farið var að framleiða E-töflur
fyrir ólöglega amfetamínmarkaðinn
erlendis, en með tilkomu'efnisins
er höfðað til fleiri en áður, og flest-
ir sem nota þetta efni oftar en 10
sinnum eru verðandi stórneytendur
amfetamíns, að sögn Þórarins.
Hann sagði að með tilkomu E-
töflunnar til íslands í fyrra hafi
ástandið því versnað verulega frá
því sem áður var. Af þeim hópi sem
kom á Vog hafi neytendur E-töflu
ekki verið óvanir fíkniefnaneytend-
ur, en af þeim 103 sem notað höfðu
efnið höfðu 98 notað önnur ólögleg
vímuefni. ________
„Það sem bendir til þess
að þarna sé verið að mark-
aðssetja efnið á nýjan hóp
er í fyrsta lagi það sem
við sjáum, þ.e. hversu
margir sem notað hafa
ecstasy eru að leita sér meðferðar
í fyrsta sinn, en meira en helming-
urinn af þessum 103 er fólk í þeim
sporum. Af reglulegu neytendunum
voru 20 að leita sér meðferðar í
fyrsta sinn,“ sagði Þórarinn.
Hann sagði að þó E-töflur væru
framleiddar í sömu verksmiðjum og
ólöglega amfetamínið sem er á
markaðnum, og komi að öllum lík-
indum frá Hollandi og séu liður í
þessum ólöglega amfetamínmark-
aði sem íslendingar séu í miðjum,
þá sé líklega verið að stefna á stærri
hóp með þessu efni og við aðrar
aðstæður.
Líklega versta árið
„Umræðan í þessu og það sem
maður heyrir um þetta efni minnir
mjög á þegar við vorum að bytja
að sjá kannabisefnin. Þótt ég vilji
alls ekki bera þessi efni saman, því
ég tel ecstasy vera miklu hættulegra
efni, þá eru svona tvískipt skilaboð.
Annars vegar það að gamlir neyt-
endur sem eru vanir neytendur segja
að það sé kannski ekki svo mikið
varið í efnið, en það er alls ekki
algilt og sumir vanir neytendur
hrósa þessu efni í hástert.
Það er greinilegt af þessum tölum
að það hefur eitthvað mikið gerst
á síðasta ári og okkar skýrsla á
næsta ári verður mjög svört. Ég tel
að það séu beinlínis tölulegar upp-
lýsingar um það að við höfum misst
tök á vandanum á síðasta ári. Við
vorum með tölulegar upplýsingar
um að við kannski héldum í horfínu
oft á tíðum þótt við sæjum slæm
merki eins og það að sprautufíklum
fjölgaði og fólk var að verða veik-
ara á vissan hátt, þá samt sem
áður eru það þessar tölulegu upp-
lýsingar sem segja okkur að við
höldum ekki í horfinu. Líklega er
þetta versta árið, þótt við höfum
séð fleiri neytendur ólöglegra vímu-
efna, líklega á árunum 1985-1987
þegar kannabisneyslan var sem
mest í landinu. Þá voru menn að
nota kannabis, en nú eru þeir að
nota önnur efni og þeir nota þau á
annan hátt, en það eru mjög marg-
ir sem sprauta í æð. Við erum því
með miklu veikara fólk nú,“ sagði
Þórarinn.
Þörf á breiðu og alhliða átaki
Kannabisneytendum fjölgaði á
nýjan leik í nær öllum aldurshópum
í fyrra, en þó mest í aldurshópnum
20 ára og yngri. Þórar-
inn sagði að menn hefðu
verið að gera því skóna
að kannski mætti skýra
nokkra minnkun á notk-
un ólöglegra vímuefna á
árunum 1992-1994 út
frá miklu umfangi og ólöglegri sölu
á landa sem kannski hefði ýtt frá
verslun með þessi efni. Hún hefði
svo skyndilega opnast aftur og
sömu aðilarnir verið í dreifingunni.
Þórarinn sagði að það sem af
væri þessu ári hefði enn bæst í hóp
ecstasy-neytenda sem komið hefðu
til meðferðar á Vogi og engin
ástæða væri til að ætla annað en
að aukning yrði á því nema til
kæmi mjög breitt og alhliða átak í
þjóðfélaginu gegn þessari þróun.
Neytendum
kannabisefna
fjölgaði á nýj-
an leik í fyrra