Morgunblaðið - 24.01.1996, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.01.1996, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Ha, ha, ha, okkur tókst að plata ykkur einu sinni enn. Fyrsti dagur umferðarkönnunar lögreglunnar á Suðvesturlandi Rúmur fimmtung- ur vissi ekki um hámarkshraða Rúmur tug- ur innbrota tilkynntur lögreglu LÖGREGLUNNI í Reykjavík var tilkynnt um nokkum íjölda innbrota á mánudag og þriðju- dagsmorgun. Brotist var inn í bíl við Hrísateig og úr honum stolið hátölurum. Farið var inn í vinn- uskúr við Kiapparstíg og stolið borvélum og fleiru. Ur númers- lausum bíl við Eirhöfða var stolið útvarpstæki. Talstöð, slökkvitæki og fleiru var stolið úr bíl við Viðarhöfða. Úr bíl við Bollagarða var stolið geislaspilara og geisladiskum. Farið var inn í bíl við Ármúla og stolið innkaupatösku með um 5.000 krónum og greiðslu- kortum. Brotist var inn í bóka- búð við Amtmannsstíg. Úr ólæstum bíl við Holta- garða var stolið ýmsum vörum. Brotist var inn í hús við Skip- holt og stolið peningum og fleiru auk þess sem skemmdir voru unnar á hurð. Úr bíl við Langholtsveg var m.a. stolið geislaspilara. Brotist var inn í bíl við Frostafold og stolið ýmsum verkfærum. Umferðar- óhöpp á Höfn Hornafirði. Morgunblaðið. TVÖ umferðaróhöpp urðu í fyrradag á þjóðveginum í ná- grenni Hafnar. í öðru tilfellinu var um útaf- akstur að ræða og var ökumað- ur fluttur suður með farþega- flugi. í hinu tilfellinu varð bíl- velta þar sem tveir voru í bíln- um en ekki urðu slys á fólki, en bíllinn er talinn ónýtur. Launhálka hefur verið á veg- um sem stafar af því að hita- stig hefur verið að rokka yfir og undir frostmarki og hefur verið að myndast hálka og hana tekið upp oft á sama sólar- hringnum. LÖGREGLAN á Suðvesturlandi hóf í gær þriggja daga sameiginlegt umferðarátak sem felst i því að ökumenn eru stöðvaðir og spurðir nokkurra spurninga. Magnús Einarsson, yfirlögreglu- þjónn í Kópavogi, sagði að könnun- in hefði farið vel af stað en búið var að spyija 48 ökumenn í Kópa- vogi þegar Morgunblaðið talaði við hann síðdegis í gær. 31 ökumanni var kunnugt um að lögreglan á Suðvesturlandi hefði með sér samstarf í umferðarmálum en 17 ekki. Aðspurðir um hvort ökumönnum fyndist að lögreglan ætti að auka umferðareftirlit frá því sem verið hefur sögðu 30 að þeim fyndist það hæfilegt, 18 sögðu að það mætti vera meira. 29 fannst DÓMSMÁLARÁÐHERRA kynnti á ríkisstjómarfundi í gær sérstakt átak í ávana- og fíkniefnavömum sem hann hyggst hleypa af stokkunum. Verkefnisstjóri átaksins verður Dögg Pálsdóttir hrl. og í verkefnis- stjórninni verða með henni Bjöm Halldórsson, lögreglufulltrúi, Erlend- ur Baldursson afbrotafræðingur, Jón Hákon Magnússon, bæjarfulltrúi, Ómar Smári Ármannsson, aðstoðar- yfíriögregluþjónn auk tveggja ung- menna sem tilnefnd verða af Félagi framhaldsskólanema annars vegar og samtökum ungmenna sem farið hafa í meðferð vegna áfengis- eða vímuefnaneyslu hins vegar. viðurlög við umferðarlagabrotum nægjanlega þung, 19 sögðu að þau mættu vera þyngri. Fjórða spurn- ingin var um leyfilegan hámarks- hraða á götunni sem ekin var. 37 svöruðu rétt til um hámarkshraða en 11 voru ekki vissir. 18 könnuð- ust við að lögreglan hefði þurft að hafa af þeim afskipti vegna umferð- arlagabrota en 30 sögðu að það hefði aldrei þurft. . Magnúsi fannst merkilegt hversu mörgum var ekki kunnugt um leyfi- legan hámarkshraða en hann væri 50 km á klst. í þéttbýli. Þar sem hann væri meiri eða minni væri það merkt sérstaklega. Hann væri minni á sumum íbúðargötum og meiri á sumum stórum umferðar- götum. Verkefnisstjóm skilar dómsmála- ráðherra áliti sínu og tillögum eigi síðar en 1. júní nk. en hún skal m.a. athuga hvort herða beri viðurlög við dreifingu ávana- og fíkniefna og hvort endurskoða þurfi meðferð ákæruvalds og dómstóla á brotum vegna ávana- og fíkniefna. Einnig skal hún huga að því að efla iög- gæslu og önnur úrræði gegn dreif- ingu og neyslu ávana- og fíkniefna og forvamir á sviði ávana- og fíkni- efna og skoða meðferðarúrræði fyrir ungmenni sem í tengslum við ávana- og fíkniefnaneyslu hafa leiðst út í afbrot og fengið refsidóma vegna þeirra. Átak í ávana- og fíkniefnavörnum Vinnuvernd barna Viðhorfin eru að breytast MARÍA segir kann- anir sýna að um- talsverð launa- vinna unglinga undir 16 ára aldri sé ekki lengur algeng hér á landi. Það ætti því að vera tiltölulega auðvelt að koma á sömu reglum hér og í grannlönd- unum, einna helst gætu ákvæði um takmarkanir á vinnutíma að sumarlagi valdið vanda. Helstu al- þjóðasamningar um þessi efni eru samningur AJ- þjóðavinnumálastofnunar- innar (ILO), félagsmála- sáttmáli Evrópuráðsins, Bamasáttmáli Sameinuðu þjóðanna og loks löggjöf Evrópusambandsins (ESB). Hið síðastnefnda tengist þátttöku landsins í Evrópska efnahagssvæð- inu og nefnd á vegum félagsmála- ráðuneytisins er að kanna þau mál. „ILO-samningurinn fjallar um lágmarksaldur barns í vinnu, hann er frá 1973 og ætlunin er að við fullgildum hann á þessu ári,“ seg- ir María. „Við fullgiltum félags- málasáttmála Evrópu 1976 en gerðum fyrirvara við 7. grein hans sem fjallar um vinnuvemd bama og ungmenna. Ætlunin er að bæta úr því á þessu ári eða næsta. Bamasáttmáli SÞ tók gildi hér 1992. Loks er það tilskipun ESB um vinnuvemd bama og ung- menna frá 1994, hana höfum við ekki tekið upp ennþá. Það stendur hins vegar til á árinn og jafnframt 7. grein félagsmálasáttmálans." -Hvers vegna vargerð undan- þága í sambandi við sáttmálann? „Það virðist sem menn hafí ekki talið nauðsynlegt að festa slík ákvæði í lög en annars er erfitt að fá svör við því. Menn hafa tal- ið að löggjöfín sem var fyrir hendi væri nógu góð og hentaði vel, Skýringin gæti einfaldlega verið önnur viðhorf íslendinga til vinnu bama. Það var ekki farið að hugsa svo mikið út í þessi mál um þetta leyti. Börn voru ekki talinn hafa mikinn rétt sem einstaklingar, ekki litið á þau sem sérstakan minnihlutahóp með sinn eigin rétt eins og gert er nú. Þetta er mikið að breytast núna, allt er að opnast og við erum farin að taka meira tillit til þjóðréttar." -Röksemdirnar hafa verið að tilskipun ESB kæmi í veg fyrir blaðsölu bama á götunum o. fl. Hvað segirðu um þetta? „í tilskipuninni kemur fram sú meginregla að börn yngri en 15 ára megi ekki stunda launavinnu. Frá þessu eru svo margar undan- tekningar. Bömum er heimilt að starfa við leiksýningar og ýmsa aðra menningarlega starfsemi, iðnnemar og aðrir slíkir fá undan- þágu. Akvæði eru um að 13 og 14 ára böm megi vinna en ekki þegar þau eru í skóla. Þau mega vinna en þá eingöngu hættulítil ----------- störf allt að tvo tíma á dag með skóla og alls 12 tíma á viku. Á sumrin mega þau vinna allt að 35 stundir " ” í viku, hámark sjö tíma á dag. Þau verða að fá frí einn dag vikunnar og ef þau vinna í sumarfríum verða þau að fá frí í eina eða tvær vikur áður en skólinn byrjar á ný. Þetta á við 13 og 14 ára unglinga og í vinnuskóla Reykjavíkurborgar er farið eftir sams konar reglum. Vinnueftirlit ríkisins hefur gefíð út bækling þar sem tilgreint er hvað ýmis störf fela í sér. Annars vegar er sagt hvað teljist létt, hættulítil störf og hins vegar hvað María Erla Marelsdóttir ► María Erla Marelsdóttir er 26 ára gamall lögfræðingur, í sambúð en barnlaus. Hún lauk námi sl. vor og hefur unnið að ýmsum verkefnum er snerta barnavernd og ákvæði um hana í þjóðrétti, m.a. fyrir Umboðs- mann barna og Mannréttinda- skrifstofu íslands. Einnig var hún fulltrúi Rauða kross íslands á ráðstefnu í Póllandi um alþjóð- leg mannúðarlög. Sl. haust vann María að verkefni fyrir Gunnar G. Schram prófessor um vinnu- vernd barna og ungmenna og fékk til þess tveggja mánaða styrk úr nýsköpunarsjóði náms- manna. í verkefninu, sem unnið var að nokkru í London, ber María saman ákvæði þjóðréttar- samninga um þessi mál við ís- lensk ákvæði. Viðhorf tii vinnu barna eru misjöfn teljist vera hættulegar vélar og aðstæður. Þar er að fínna leiðbein- andi reglur. Æskilegt væri að gef- in væri út reglugerð um þessi efni, það væri í samræmi við alþjóða- samningana.“ -Stundum er talað um reglu- gerðafargan. Er aldrei hægt að treysta því að fullorðið fólk beiti eigin skynsemi og siðgæði? „Ef upp koma ágreiningsmál er æskilegt að geta vísað til reglu- gerða. Dómgreind flestra ætti að duga en ef vafi kemur upp finnst mér að einstaklingar eigi að geta séð með skýrum hætti hvað teljist hættuleg störf og hver teljist hættulítil, mat fólks er alltaf mis- jafnt. Þá kæmust menn ekki upp með að láta börn vinna hættuleg störf. Á hinum Norðurlöndunum gegnir vinnueftirlit einnig þvi hlut- verki að fara í skóla og kynna bömum og unglingum réttarstöðu sína í vinnu og fleira tengt vinnu- markaðnum. Þetta þyrfti að gera hér og það stendur til að Vinnueft- irlit ríkisins geri það.“ -Er kynbundið launamisrétti í barnavinnu? --------- „Ég hef undir hönd- um skýrslu sérfræðinga Evrópuráðsins þar sem gerður er samanburður á barnavinnu á Norður- _ löndunum og í öðrum löndum. í skýrslunni er sagt að reglum um launajafnrétti, sömu laun fyrir sömu vinnu, sé yfirieitt fylgt hér á landi nema í frystihús- unum. Þar komi fram launamis- munur milli pilta og stúlkna og notaður sé sá fyrirsláttur að um ólík störf sé að ræða. Piltar sjái um að frysta en stúlkur að snyrta og pakka en skýrsluhöfundar líta á þetta sem fyrirslátt. Það er ansi hart að launamisrétti byrji strax hjá börnum.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.