Morgunblaðið - 24.01.1996, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Friðrik Pálsson, forstjóri SH,
um fjölgun starfa á Akureyri
Tvívegis
handteknir
á tæpri viku
Morgunblaðið/Kristján
Hestakonur á leið
í heimsókn
RANNSÓKNARLÖGREGLAN á Ak-
ureyri handtók tvo menn um tvítugt
með fíkniefni á mánudag. Þetta eru
sömu mennirnir og handteknir voru
í síðustu viku vegna gruns um aðild
að fíkniefnamáli. Þá viðurkenndu
þeir að hafa ætlað að verða sér úti
um fíkniefni til neyslu og sölu og
einnig að hafa neytt fíkniefna fyrir
skömmu. Þeir voru látnir lausir að
lokinni yfirheyrslu og málið talið
upplýst.
I fórum mannanna nú fundust um
4 grömm af amfetamíni en við yfir-
heyrslu viðurkenndu þeir að hafa
farið til Reykjavíkur og keypt amfet-
amín og E-töflur til eigin neyslu og
sölu. Málið telst þar með upplýst og
mennimir því látnir lausir öðru sinni
á tæpri viku.
I framhaldi málsins í síðustu viku
var ungur maður handtekinn á föstu-
dag og í fórum hans fundust um 12
grömm af hassi og 3 E-töflur. Alls
hafa komið upp 4 fíkniefnamál á
Akureyri í þessum mánuði en allt
árið í fyrra kom upp 21 slíkt mál.
Daníel Snorrason, lögreglufulltrúi,
segist vissulega hafa áhyggjur af
þróun fíkniefnamála í bænum. „Við
hvetjum fólk til þess að vera vel á
verði og hafa samband ef það býr
yfír einhverjum upplýsingum. Eins
að fóreldrar fylgist með bömum sín-
um og í hvaða félagsskap þau eru,“
sagði Daníel.
VINKONURNAR Diljá og Vala
voru að viðra sig og hestana
Leikni og Bjart í góða veðrinu
í gær. Þær riðu ofan úr hest-
húsahverfinu í Breiðholti og
voru á leið í heimsókn til kunn-
ingja sinna í Lækjagili. Diljá á
sjálf Leikni, en Vala hafði
fengið Bjart lánaðan, en báðar
sögðust þær hafa tekið hesta-
bakteríuna ungar að árum.
„Við erum búnar að vera í
þessu nánast frá því við mun-
um eftir okkur,“ sögðu þær.
„Það er alveg frábært að vera
úti í svona góðu veðri, það er
eiginlega líkara því að sé apríl
en janúar."
FULLTRÚAR Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna eru væntanlegir til
Akureyrar á morgun til fundar við
bæjarráð um stöðu mála varðandi
samning SH um flutning 80 starfa
til bæjarins. Á þessari stundu er
óvíst hvort af flutningi á hluta starf-
semi Umbúðamiðstöðvarinnar til
Akureyrar verður, eins og upphaf-
lega var rætt um. Hins vegar hefur
verið ákveðið að flytja sælgætisgerð
á vegum Nóa-Síríusar norður en
þeirri starfsemi fylgja um 20 störf.
Friðrik Pálsson, forstjóri SH, seg-
ir að fyrirtækið hafi lofað 80 störfum
og á fundi sem SH óskaði eftir með
bæjarráði verði farið yfir hvernig
þau mál standa. „Við erum mjög
ánægðir með það sem hefur verið
gert hingað til og erum á áætlun
að okkar mati. Málefni Umbúðamið-
stöðvarinnar eru enn í skoðun en
við erum hins vegar alveg sannfærð-
GUÐMUNDUR Stefánsson bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokks lagði á
fundi bæjarstjórnar í gær fram til-
lögu þar sem bæjarstjórn mótmæl-
ir um það, hvað sem aðrir kunna
að segja, að störf á vegum jafn
ágæts fyrirtækis og Nóa-Síríusar
eru jafn mikilvæg fyrir Akureyringa
og störf á vegum Umbúðamiðstöðv-
arinnar."
Friðrik segir að SH hafi alla tíð
lagt áherslu á að þau störf sem fyrir-
tækið stofni til á Ákureyri séu varan-
leg en ekki að þeim fylgi það mikið
óhagræði að óvissa verði um framtíð
þeirra.
Aðalfundur SH á Akureyri
Aðalfundur Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna verður haldinn í
íþróttahöllinni á Akureyri um mán-
aðamótin apríl/maí nk. Aðalfundur
SH er oftast haldinn í Reykjavík en
hann var síðast haldinn á Akureyri
fyrir 10 árum. Fundinn sækja um
200 manns og stendur hann í tvo
til þijá daga.
ir þeirri ákvörðun íjármálaráð-
herra að krefjast staðgreiðslu
vegna fjárhagsaðstoðar við ein-
stakiinga.
„Bæjarstjórn telur óeðlilegt að
innheimt sé staðgreiðsla af þessum
greiðslum, enda þær beinlínis mið-
aðar við raunverulegar þarfir við-
komandi og koma ekki að þeim
notum sem að er stefnt ef stað-
greiðsla er dregin af. Bæjarstjórn
bendir á að eðlilegra sé að skatt-
leggja þessar greiðslur við álagn-
ingu skatta, eftir á. Þá telur bæjar-
stjórn að sveitarfélög hafi ekki
setið við sama borð í þessum efnum
þar sem ljóst er að ekki hefur ver-
ið gengið eftir staðgreiðslu hjá öll-
um sveitarfélögum," segir í tillögu
bæjarfulltrúans og einnig að ekki
séu rök fyrir því að innheimta stað-
greiðslu af fjárhagssaðstoð fyrr en
fengist hefur niðurstaða úr viðræð-
um þeim sem nú fara fram milli
fjármálaráðuneytis og Sambands
íslenskra sveitarfélaga um þetta
málefni.
Morgunblaðið/Kristján
ANTON Sölvason var ásamt félögum sínum að steypa plötu á hæfingarstöð við Þrastarlund í blíðviðri í gær.
Staðgreiðslu verði
ekki krafist
Fjögur fíkniefnamál
komið upp á árinu
Störfin sem stofnað
er til séu varanleg
Tíðin alveg
einstök
Akureyrarbær tekur þátt í rekstri Skólaþjónustu Eyþings
Forðast ber að búa
til nýja yfirbyggingu
„ÞETTA er alveg einstök tíð og
við reynum að nýta okkur hana,“
sagði Sigurgeir Arngrímsson
framkvæmdastjóri SJS verktaka
sem ásamt mönnum sínum var
önnum kafinn við að steypa plötu
á hæfingarstöð við Þrastarlund í
ágætis veðri í gærdag.
„Það hefur verið alveg kolvit-
laust að gera síðustu vikur, við
höfum reyndar verið heppnir og
alltaf haft næg verkefni,“ sagði
Sigurgeir. Fjöldi manns vann að
uppsteypunni í gær og sagði hann
að veðurblíðan undanfarna daga
gerði að verkum að hægt væri
að hafa allan mannskapinn úti
við.
500 fermetra hús
Hæfingarstöðin er um 500 fer-
metrar að stærð og buðust þeir
hjá SJS verktökum til að vinna
verkið fyrir um 52 milljónir
króna en því á að vera lokið
næsta haust.
Þá eru starfsmenn SJS að ljúka
við stórt verkefni í Krónunni, en
þangað á að flytja starfsemi
Náttúrfræðistofnunar, náttúru-
gripasafnið, embætti veiðimála-
stjóra, auk þess sem í húsnæðinu
verða læknastofur og fleira.
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti á fundi í gær að verði af
flutningi á rekstri grunnskólans til
sveitarfélaganna verði Akureyrar-
bær aðili að rekstri Skólaþjónustu
Eyþings, samtaka -sveitarfélaga í
Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslum.
Miklar umræður urðu um tillög-
ur Eyþings um stofnun Skólaþjón-
ustunnar á fundi bæjarstjórnar og
komu fram hörð mótmæli við þær.
Einkum beindust þau að því að
verið væri að búa til nýtt og óþarft
bákn kringum rekstur Eyþings og
einnig þóttu bæjarfulltrúum áhrif
Akureyrarbæjar í rekstri Skóla-
þjónustunnar of lítil.
Sigurður J. Sigurðsson oddviti
Sjálfstæðisflokksins mælti fyrir til-
lögu þess efnis að sú starfsemi sem
færist frá menntamálaráðuneyti og
fræðsluskrifstofu við tilfærslu
grunnskólans til sveitarfélaganna
verði unnin af Skólaskrifstofu Ak-
ureyrar og verði hún hluti af fé-
lags- og fræðslusviði bæjarins.
Fram kemur í tillögunni að ekkert
sé því til fyrirstöðu að veita öðrum
sveitarfélögum þjónustu á þessu
sviði.
Mikilvægt að varðveita
þekkinguna
Einnig kom fram hjá Sigurði að
það þjónaði ekki hagsmunum íbúa
á svæðinu að byggja upp nýtt
stjórnkerfi sem gengi þvert á hug-
myndir um hlutverk og verksvið
Eyþings eins og til þess var stofnað.
I tillögu sem samþykkt var á
fundi bæjarstjórnar og byggist að
mestu á bókun frá fulltrúum Al-
þýðubandalagsins segir að mikil-
vægt sé að varðveita þá þekkingu
sem áunnist hefur með starfsemi
fræðsluskrifstofunnar, en forðast
beri að búa til nýja yfirbyggingu á
vegum Eyþings. Bæjarstjórn beini
því þeim tilmælum til stjórnar Ey-
þings að fjármál og bókhald skrif-
stofunnar heyri beint undir for-
stöðumann hennar sem heyri aftur
milliliðalaust undir aðalfund Ey-
þings.
Björn Jósef Arnviðarson, Sjálf-
stæðisflokki, taldi tillögurnar fela
í sér verulegt framsal valds og
skyldna og jafnvel eigna. Þá var
hann ósáttur við að bærinn ætti tvo
af fimm fulltrúum í stjórn en væri
gert að greiða um 55% af kostnaði
við reksturinn.
Heimir Ingimarsson sagði þetta
arfleifð frá dögum Fjórðungssam-
bands Norðlendinga, Akureyringar
hefðu borgað mest en minnstu
fengið að ráða. Allir hefðu verið
sammála um að leggja sambandið
niður fyrir fáum árum, en nú væru
menn á góðri leið með að stofna
nýtt bákn á borð við gamla fjórð-
ungssambandið.
Ásta Sigurðardóttir, Framsókn-
arflokki, og Gísli Bragi Hjartarson,
Alþýðuflokki, viðurkenndu bæði að
vera ekki að fullu sátt við tillögurn-
ar, en til að tefja ekki framgang
málsins og yfirfærslu á rekstri
grunnskólans til sveitarfélaganna
væri farsælast að samþykkja þær
og sjá hvernig mál þróuðust á
næstu tveimur árum þegar til end-
urskoðunar kæmi.