Morgunblaðið - 24.01.1996, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996
FRÉTTIR; EVRÓPA
Herferð til að kynna Evrópumyntina
Reuter
Stuðningur almenn-
ings við evró eykst
Brussel. Reuter.
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Jarðflug
Reuter
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins hóf í vikunni herferð til
að kynna almenningi áform um sam-
eiginlega mynt aðildarríkjanna, evró,
sem á að taka upp 1. janúar 1999.
Herferðin hefst með ráðstefnu í
Brussel, en þar voru kynntar niður-
stöður tveggja skoðanakannana,. sem
sýna að stuðningur almennings við
upptöku sameiginlegrar mvntar hefur
vaxið, eftir að leiðtogar ESB völdu
Evrópumyntinni nafn í desember síð-
astliðnum.
Samkvæmt símakönnun, sem náði
til 15.500 manna úrtaks um allt Evr-
ópusambandið, eru 54% ESB-borgara
hlynntir upptöku evró, en 37% andvíg-
ir. Niðurstöður annarrar könnunar,
byggðar á persónulegum viðtölum við
31.600 manns, sýna að 47% eru
hlynntir nýju myntinni en 33% á
móti henni.
Báðar kannanir sýndu þó að í sex
aðildarríkjum er meirihluti almenn-
ings andvígur myntbandalagi. Þetta
eru Austurríki, Þýzkaland, Finnland,
Svíþjóð, Bretland og Danmörk. Síð-
astnefndu ríkin tvö eru undanþegin
þátttöku í Efnahags- og myntbanda-
lagi Evrópuríkja (EMU) og hyggst
framkvæmdastjómin sneiða hjá þeim
í herferð sinni.
ÞYSKA þingkonan Leni Fischer
var á mánudag kjörin forseti Evr-
ópuráðsins í Strassborg. Er hún
fyrsta konan sem gegnir því emb-
ætti en 38 ríki eiga nú aðild að
ráðinu.
Fischer tók við embættinu af
spænska sósíalistanum Miguel
Angel Martinez og mun gegna því
Meirihluti svarenda í hveiju aðild-
arríki telur evró „viðunandi" nafn á
nýju Evrópumyntina. Á heildina litið
sögðust 69% svarenda telja að við
nafnið mætti una.
Almenningsálit meiri
hindrun en Maastricht?
Jean-Luc Dehaene, forsætisráð-
herra Belgíu, sagði í ræðu á ráðstefnu
framkvæmdastjómarinnar að nauð-
synlegt væri að sannfæra almenning
um kosti hinnar nýju myntar. „Helzta
hindrunin í vegi EMU gæti orið al-
menningsálitið, fremur en skilyrði
Maastricht-sáttmálans," sagði Deha-
ene.
í tengslum við ráðstefnuna efndi
framkvæmdastjómin til myntsýning-
ar, þar sem rakin er þróun gjaldmið-
ils í Evrópu í aldanna rás. Á miðju
góifi sýningarsalarins stendur risa-
vaxið stundaglas, sem sýnir mynt
aðildarríkja ESB — líka danskar
krónur og brezk sterlingspund —
sogast niður í belg, sem á stendur
„1 _evró“.
Á sýningunni eru hins vegar engar
tillögur um útlit nýju Evrópumyntar-
innar. Það var talið of pólitískt við-
kvæmt mál.
í þijú ár. Hún er sextug að aldri
og hefur setið á þýska þinginu
fyrir flokk kristilegra demókrata
í Bæjaralandi (CSU) frá árinu
1976.
Hér tekur Fischer við árnaðar-
óskum Ernst MUhlemann frá
Sviss. Bretinn Sinsburg lávarður
fylgist með.
Fyrrum
ráðherra
óttast um
líf sitt
Bogota. Reuter.
FERNANDO Botero, fyrrverandi
vamarmálaráðherra Kólumbíu og
kosningastjóri Emesto Sampers for-
seta, segist óttast um líf sitt og fjöl-
skyldu sinnar. Botero hefur sakað
Samper um að hafa fjármagnað
kosningabaráttu sína með gróða af
fíkniefnasölu.
í bréfi, sem skrifað er til þjóðar-
innar og birtist í Bogota-blaðinu
E1 Tiempo í gær, skýrir Botero frá
því að hann hafi sent yngstu böm
sín úr landi þar sem hann teldi sig,
fjölskyldu sína og aðra vandamenn
í lífshættu vegna uppljóstrananna.
„í landinu okkar er útilokað að
tryggja öryggi fjölskyldu minnar,
náinna vina og lögmanna minna,“
ritaði Botero. „Mig langar ekki til
þess að verða næsta fómarlamb
ofbeldisins en hef þó ákveðið að
taka áhættuna svo að þjóðin megi
loks vita sannleikann," bætti hann
við;
í bréfinu ítrekar Botero ásakanir,
sem fram komu í viðtölum við hann
sem birt vom á tveimur sjónvarps-
stöðvum í fyrradag. Þar sagði hann,
að Samper hefði ítrekað logið að
þjóðinni er hann hefði neitað því að
hafa haft nokkra vitneskju um að
peningar frá Cali-fiknieftiahringn-
um hefðu verið notaðir til að fjár-
magna kosningabaráttu sína.
Botero heldur því fram, að Hum-
berto de la Calle varaforseti, sem
er sendiherra á Spáni, hafi hvergi
komið nálægt þessum þætti kosn-
ingabaráttunnar.
Botero lét af embætti varnar-
málaráðherra í ágúst sl. Hann var
bendlaður við fjármálahneyksli er
tengdist kosningabaráttunni og hef-
ur setið í fangelsi í herstöð í Bogota
frá í ágúst í fyrra.
FRAMTÍÐARFARARTÆKI séð
með auguni japansks lista-
manns. Um er að ræða nokkurs-
konar flugvél, eða öllu heldur
flugvélaskrokk, sem fer eftir
brautum neðanjarðar. Fujita-
fyrirtækið japanska kynnir nú
þessa nýstárlegu hugmynd sem
tálsmenn þess nefna, jarðflug“.
Vonast fyrirtækið eftir fjár-
hagsstuðningi svo að hægt verði
að þróa þessa hugmynd áfram.
Samkvæmt henni yrðu byggð
göng, um 50-60 metrar í þver-
mál, á milli Tókýó og Osaka sem
er um 550 km leið. Farartækið,
sem knúið yrði túrbóhreyflum,
fær á um 600 km hraða á
klukkustund og gæti borið um
400 manns.
O.J. sakaður
um að bera
ljúgritni
Los Angeles. Reuter.
O.J. SIMPSON, leikari og fyrrver-
andi íþróttahetja, var í fyrsta sinn
yfirheyrður sem eiðsvarið vitni í
Los Angeles á mánudag vegna
morðsins á fyrrverandi eiginkonu
hans, Nicole Brown Simpson, og
vini hennar, Ronald Goldman. Mic-
hael Brewer, lögfræðingur móður
Goldmans, sagði Simpson hafa
orðið tvísaga „í nokkrum veiga-
miklum málum“ og taldi hann hafa
borið ljúgvitni.
„Ég hef ekki talið neitt af því
sem Simpson hefur sagt hingað til
trúverðugt og skoðun mín hefur
ekki breyst eftir þennan vitnis-
burð,“ sagði Brewer.
Simpson var sýknaður af morð-
ákærunni fyrir sakadómi í fyrra
og hefur alltaf haldið fram sak-
leysi sínu en þurfti ekki að bera
vitni í réttarhöldunum. Fjölskyldur
Nicole Brown Simpsons og Ron-
alds Goldmans hafa hins vegar
höfðað einkamál á hendur honum
og sönnunarbyrðin er þá ekki jafn
þung og í opinberri saksókn. í
einkamáli er hægt að dæma hinn
ákærða sekan ef taldar eru „yfir-
gnæfandi líkur“ á sekt hans. Ekki
verður þó hægt að dæma Simpson
í fangelsi verði hann sakfelldur en
hann gæti þurft að greiða fjöl-
skyldunum sem svarar hundruðum
milljónum króna í skaðabætur.
Yfirheyrslumar eru liður í undir-
búningi réttarhaldanna og þau
hefjast 2. ápríl. Brewer spáði því
að yfirheyrslumar tækju fimm til
sjö daga.
Uppsögii ritarans
áfall fyrir Díönu
London. The Daily Telegraph.
PATRICK Jephson, ritari Díönu
prinsessu, sagði upp starfi sínu á
mánudag en hann hefur verið
nánasti ráðgjafi hennar um átta
ára skeið. A sama tíma bíða lög-
fræðingar Tiggy Legge-Bourke,
bamfóstru sona Díönu og Karls
Bretaprins er þeir dvelja hjá föður
sínum, svara frá lögfræðingum
prinsessunnar vegna kvörtunar
Legge-Bourke um að Díana hafí
dreift „ósönnum sögusögnum"
um hana.
Að mati sérfræðinga verður
það forgangsverkefni fyrir Díönu
að ráða sem fyrst nýjan ritara í
stað Jephsons þar sem að viðræð-
ur um skilnað við Karl og framtíð-
arhlutverk prinsessunnar munu
brátt komast á mikilvægt stig.
Þetta er annar starfsmaður
prinsessunnar er lætur af störfum
á skömmum tíma en blaðafulltrúi
Díönu, Geoff Crawford, sagði
starfi sínu lausu á síðasta ári eft-
ir að prinsessan lét BBC taka við
sig sjónvarpsviðtal að honum for-
spúrðuin. Þegar er búið að finna
nýjan blaðafulltrúa og verður
greint opinberlega frá ráðningu
hans irman skamms. Það gæti þó
orðið erfiðara að ráða nýjan rit-
ara.
Jephson sagði á mánudag að
„engin ein ástæða" Iægi að baki
uppsögninni og Díana sagði í yfir-
lýsingu að henni þætti það „mjög
leitt“ að Jephson léti af störfum.
Jephson hefur staðið við hlið
Díönu í hveiju erfiðu málinu á
fætur öðru en hann er sagður
hafa íhugað uppsögn eftir sjón-
varpsviðtalið þar sem honum var
ekki heldur sagt frá því fyrirfram.
Uppsöfnuð
óánægja
„Þetta hefur verið að safnast
upp,“ segir heimildarmaður. „Það
kom að því að Patrick taldi nóg
komið. Hann hefur verið prinsess-
unni einstaklega traustur um
margra ára skeið og það er mik-
ið áfall að hann hætti."
Á sama tíma hafa lögfræðing-
ar Legge-Bourke farið þess á leit
að prinsessan dragi ummæli um
hana til baka. Ummælin á Díana
að hafa látið falla jafnt í símtölum
sem beinum samtölum. Mun vera
um mjög persónulegar ásakanir
að ræða er Legge-Bourke er sögð
hafa tekið afar nærri sér. „Þetta
voru mjög óþægilegar ásakanir
og algjör þvæla," sagði einn vina
hinnar þrítugu barnfóstru.
Legge-Bourke er sögð hafa
leitað ráða hjá lögfræðingum eft-
ir að bresk dagblöð fengu upplýs-
ingar um ásakanimar. Ritaði lög-
fræðingur hennar, Peter Carter-
Ruck, þá helstu ritstjórum blaða
bréf.
Lögfræðingum Díönu mun
einnig hafa verið sent bréf þar
sem hún er beðin um að draga
ásakanimar til baka en ekkert
svar mun enn hafa borist. Ef
ummælin verða ekki endurtekin
er talið víst að Leggc-Bourke
muni láta málið niður falla frekar
en að höfða mál.
Reuter
Fischer forseti Evrópuráðsins
Strassborg. Reuter.