Morgunblaðið - 24.01.1996, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 23
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
VERK eftir Kaffe Fassett sem getur að líta 1 Hafnarborg.
Góð aðsókn að sýningu Kaffe Fassetts
Brúar kynslóðabilið
ÓVENJU góð aðsókn hefur
verið að sýningu bandariska
prjónahönnuðarins Kaffe
Fassetts í Hafnarborg, að sögn
Petrúnar Pétursdóttur for-
stöðumanns safnsins, en um sjö
þúsund manns stungu þar við
stafni á fyrstu tveimur vikum
sýningarinnar. Henni lýkur 19.
febrúar.
Að sögn Petrúnar stefnir í
aðsóknarmet í Hafnarborg, en
sýningin hefur farið mikla sig-
urför um heiminn og hlotið
metaðsókn, hvarvetna sem hún
hefur verið sett upp, að Ástral-
íu undanskilinni. „Fólk prjónar
víst ekki mikið á þeim slóð-
um,“ segir Petrún.
Höfðar til breiðs hóps
Petrún telur að þessar góðu
viðtökur stafi öðru fremur af
því að sýning Fassetts höfði til
breiðari hóps en flestar listsýn-
ingar. „Sýningargestir eru að
stórum hluta konur en annars
virðist fólk á öllum aldri hafa
áhuga á handavinnu sem þess-
ari. Það komu meðal annars
fjórir ættliðir saman að skoða
sýninguna nýverið, þannig að
hún virðist brúa kynslóðabilið.
Síðan vekur það vissulega at-
hygli að verkin skuli vera unn-
in af karlmanni."
Leikfélag Reykjavíkur
Manna- og
skipulags-
breytingar
verða gerðar
LEIKFÉLAG Reykjavíkur hefur
auglýst lausar stöður leikara og
leikstjóra á föstum samningum frá
og með næsta leikári en um er að
ræða samninga
til tveggja ára
sem framlengj-
ast um ár í senn
sé þeim ekki
sagt upp sex
mánuðum fyrir
upphaf nýs leik-
árs.
Viðar Egg-
ertsson, verð-
andi leikhús-
stjóri, sagði í
samtali við
blaðamann viðbúið að það yrðu ein-
hveijar mannabreytingar þegar
hann tæki við hjá leikfélaginu á
næsta leikári. „Það verða vissulega
mannabreytingar með nýjum
áherslum en hvetjar þær verða eða
hversu miklar get ég ekki sagt um
að svo komnu máli. Það hafa þegar
verið gerðar ákveðnar skipulags-
breytingar í húsinu. Ég hef ráðið
aðstoðarleikhússtjóra, leiklistar-
ráðunaut og markaðsstjóra. Einnig
hafa verið gerðar ákveðnar breyt-
ingar í daglegri stjórn hússins sem
eiga að miða að því að gera hana
skilvirkari. Einnig verða breytingar
í listrænni stjórn hússins sem eru
óhjákvæmilegar með nýjum leik-
hússtjóra. Að öðru leyti er lítið um
þessar breytingar að segja á þessu
stigi málsins.“
Þau þijú sem hafa verið ráðin til
leikhússins í fyrrnefndar stöður eru
Sigrún Valbergsdóttir, aðstoðar-
leikhússtjóri, Bjarni Jónsson, leik-
listarráðunautur, og Álfrún G. Guð-
rúnardóttir, makaðsstjóri.
------» ♦ ♦----
Viðar
Eggertsson
Nýjar hljómplötur
• NÝLEGA kom út geisladiskur-
inn Sortner du skyí Danmörku
með hljómsveitinni Klakka. í
Klakka eru Maria Bisgaard,
Nína Björk Eliasson, Martin
Brenghej og Hasse Poulsen.
Hljómsveitin var stofnuð fyrir
þremur árum. Leikur hennar ein-
kennist af blandaðri tónlist: klass-
ík, djass og þjóðlögum meðal ann-
ars. Lögin eru flutt bæði á ís-
lensku og dönsku. Nína Björk
Eliasson hefur samið lög við ljóð
nöfnasinnar Nínu Bjarkar Arna-
dóttur. Að auki eru íslensk þjóðlög
á disknum. Dönsku lögin eru eftir
Hasse Poulsen samin við ljóð eft-
ir Simon Grotrian og Lene
Henningsen.
Sigrún Guðbrandsdóttir hann-
aði umbúðir geisladisksins. Útgef-
andierAV-ARTrecords, en bóka-
forlagið Borgen dreifir disknum í
bókabúðir. Hér á landi fæst hann
hjá Japis.
MARAÞON EXTRA
sannar sig
BEST
í þvottavélum íslendinga!
Kröfuharðir lslendingar
vita að Maraþon Extra
þvær framúrskarandi vef7
Hlutlausar samanburðarprófanir
hafa mælt það og sannað. Maraþon Extra er framleitt með hliðsjón af
eiginleikum íslenska vatnsins til að uppfylla ströngustu gæðakröfur og
það er auk þess svo drjúgt að einn pakki dugar í allt að 50 þvotta.
Maraþon Extra er sannarlega jafngott og ódýrara
en leiðandi erlent þvottaefni á markaðinum.
Láttu Maraþon Extra sanna sig
í þvottavélinni þinni!
4fi!í!s)
^EIGIHLEIKA^
ÍSLENSKA
VATNSINS
YDDA F45.29/SÍA