Morgunblaðið - 24.01.1996, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 24.01.1996, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ UNGLINGAR OG VÍMUEFNI • Refsing mest 10 ára fangelsi • Lögreglan þarf þjálfun • Vísir að skipulagðri glæpastarfsemi® Bjór jók unglingadrykkju • Sérmeðferð fyrir unglinga mikilvæg aðgerðum, ört vaxandi fíkniefnavanda sem tortími lífí fjölda íslenskra ungmenna. Ragn- hildur Sverrisdóttir var á fundinum, þar sem frummælendur voru þeir Jón Friðrik Sigurðsson, sálfræðingur hjá Fangelsismála- stofnun, Bjöm Halldórsson, yfírmaður fíkni- efnalögreglunnar og Einar Gylfí Jónsson, deildarstjóri forvamadeildar SÁÁ. „Látum ekki fíkniefni tortíma bömum okk- ar“ var yfírskrift fundar, sem Sjálfstæðisfé- lag Seltiminga hélt í síðustu viku. Pjölmennt var á fundinum, en Seltimingar hafa áður látið þessi mál til sín taka. Þannig sam- þykkti bæjarstjómin ályktun í desember, þar sem skorað er á ríkisstjómina að mæta þeg- ar í stað, með kröftugum og raunhæfum Dæmi um heimsend- ingu á fíkniefnum „REFSING í fíkniefnamálum er mest 10 ára fangelsi. Þá er miðað við stærstu brot, stórfelldan inn- flutni'ng og dreifingu," sagði Björn Halldórsson, lögreglufull- trúi og yfirmaður fíkniefnalög- reglunnar, á fundinum á Seltjarn- arnesi. Björn sagði að fíkniefni hefðu fyrst skotið upp kollinum hér á landi um 1970 og þá voru það kannabisefni og LSD. Á árunum 1980-1983 hefði amfetamínið fest sig í sessi, kókaíns hefði orðið vart fyrst á árunum 1985-1987 og árið 1992 hefði E-taflan (ecstacy) fyrst komið á íslenskan markað. „Kókaín er dýrt efni og mest notað af hópum, sem lög- reglan hefur lítil afskipti af,“ sagði Bjöm. „LSD kemur í sveifl- um, hverfur stundum nær alveg, en kemst í tísku þess á milli.“ Björn segir að lögreglumenn, sem séu sérþjálfaðir til rannsókn- ar fíkniefnamála, starfi aðeins í Reykjavík. „Það þarf að þjálfa menn sérstaklega til starfa, því fíkniefnamálin koma ekki í ljós af sjálfu sér. Það þarf að leita þau uppi og safna upplýsingum frá þeim sem eru í þessum heimi.“ Vantar stefnumörkun Björn sagði að skilgreina þyrfti þann vanda sem við væri að kljást. „Það vantar stefnumörkun að of- an, plagg frá Alþingi, ríkisstjórn eða ráðuneytum, þar sem vandinn er skilgreindur, hveijir eigi að taka á honum og hvernig. Nú lít- um við mjög til nýrra lögreglu- laga, en frumvarp þess efnis er í smíðum. Við vonum að nýju lögin auðveldi okkur að samræma lög- reglustarf um allt land. Dóms- kerfinu hefur þegar verið breytt, svo það er hraðvirkara en áður og vonandi tryggja nýju lögreglu- lögin einnig breytingar í þá veru.“ Björn sagði að fíkniefna- markaðurinn hefði breyst undan- farin ár. „Neytendur, seljendur og innflytjendur verða æ yngri. Salan hefur líka breyst og núna eru meira að segja dæmi um heimsendingu á fíkniefnum. Sölu- mennirnir eru með símboða og farsíma, svo alltaf sé hægt að ná í þá og að þessu leyti er kominn upp vísir að skipulagðri glæpa- starfsemi. Þá hefur áhugi útlend- inga á íslandi sem stað fyrir brotastarfsemi aukist, líkt og hjá þjóðunum í kring, og það gæti breytt fíkniefnamarkaðnum enn frekar." í svari við fyrirspurn sagði Björn, að fíkniefnalögreglan næði ERINDI frummælendanna þriggja vöktu mikla athygli fundargesta. Fylgir hvorki stétt né stöðu Morgunblaðið/Ámi Sæberg BJORN Halldórsson, yfirmaður fíkniefnalögreglunnar, sagði að þjálfa þyrfti fleiri lögreglumenn til að vinna að fíkniefnamálum. „NEYSLA fylgir hvorki stétt né stöðu. Það er mjög undarlegt að verða vitni að því þegar venjulegur unglingur frá góðu heimili leiðist út í neyslu. Það er eins og að sjá flugu festast í kóngulóarvef. Unglingarnir ætla sér auðvitað ekki að ánetjast, en fá ekki við neitt ráðið,“ sagði Jón Friðrik Sigurðsson, sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun, í framsögu- erindi sínu. „stórlöxum" í fíkniefnaheiminum af og til, en ekki bara „senditík- um“. Stórlaxarnir veltu milljónum eða tugum milljóna á ári, en það fé væri forgengilegt og nýttist þeim ekki endilega til eignamynd- unar. Því væri ekki víst að hugsanleg samvinna skattrann- sóknarstjóra og fíkniefnalögreglu skilaði árangri að þessu leyti. Þá væri oft mjög erfitt að sanna fjár- mögnunartengsl í fíkniefnaheim- inum og sönnunarbyrði gjarnan erfiðari í þessum málum en mörg- um öðrum. E-taflan ekki eftir dópmunstri Aðspurður um hugsanlegar skýringar á vinsældum E-töflu hjá unglingum, sem aldrei myndu neyta annarra fíkniefna, svaraði Björn að e.t.v. væri skýringin sú að E-taflan líkist hveiju öðru lyfi, en ekki því dópmunstri þegar kokkað væri í pípu, amfetamín skorið o.s.frv. Björn sagði að upplýsingar fíkniefnalögreglunnar hnigu allar í þá átt, að E-tafla, sem er ná- skyld amfetamíni, væri ekki fram- leidd hér á landi, heldur eingöngu flutt inn. Einhverjar sögur gengju um framleiðslu hér á landi, en þar væri ekkert fast í hendi. JAFNINGJA- FRÆÐSLA JAFNINGJAFRÆÐSLA í framhaldsskólum er sam- vinnuverkefni Félags fram- haldsskólanema og mennta- málaráðuneytis. Jafningja- fræðslan er tilraunaverkefni um fíknivarnir í framhalds- skólum og felst í því að nem- endur vinna sjálfir að við- horfsbreytingu meðal fram- haldsskólanema til neyslu tóbaks, áfengis og annarra fíkniefna. Auk þess markmiðs að breyta viðhorfi og draga úr neyslu tóbaks, áfengis og annarra fíkniefna er jafn- ingjafræðslunni ætlað að efla vitund framhaldsskóla- nema um áhættu áfengis- og fíkniefnaneyslu og auka þekkingu þeirra á skaðsemi hennar. Stuðla á að því að framhaldsskólar setji sér stefnu í áfengis- og fíkni- efnamálum og leitað verður leiða til þess að aðstoða nem- endur sem eiga í erfiðleikum vegna áfengis- og fíkniefna- neyslu. Kostir Jafningjafræðsl- unnar eru taldir þeir, að jafnaldrar eða skólafélagar geti oft haft meiri trúverð- ugleika gagnvart félögunum en t.d. foreldrar. Vinahópur hafi mikil áhrif á lífsstíl unglinga og þar á meðal á áfengis- og fíkniefnaneyslu. Jafningjafræðslan stend- ur fram að komandi vori, en þá verður reynt að meta árangur verkefnisins. Ef sýnt þykir að það beri árangur verður unnið að fræðslunni áfram. Jón Friðrik byijaði erindi sitt á að vitna til könnunar um tengsl af- brota og vímuefnanotkunar. „Afbrot verða æ algengari eftir því sem fíkni- efnaneysla er meiri. Samkvæmt könnunum hafa 75% fanga á aldrin- um 16-25 ára neytt flkniefna,“ sagði Jón Friðrik. Hann benti á að kannan- ir sýndu einnig að 5% grunnskóla- unglinga, 15 og 16 ára, neyttu fíkni- efna, en 20% 16-20 ára framhaids- skólanema. Talið við unglinga sem jafningja Jón Friðrik gaf foreldrum nokkur ráð um hvemig ætti að bregðast við, ef unglingurinn sýndi þess merki að vera að fara inn á braut vímuefna- notkunar. „Talið við unglinginn sem jafningja, setjið ykkur í hans spor, notið spurningar í stað fullyrðinga um hvað sé- rétt eða rangt og leggið áherslu á það sem er jákvætt í fari hans.“ Jón Friðrik sagði að unglingur í neyslu væri gagntekinn af reiði, sem beindist gegn foreldrum sem ekki skildu hann. „Unglingurinn er upp á kant við allt og alla og reiðin er mjög erfið, flókin og illviðráðanleg tilfínning. Hún getur brotist út í ofbeldi gagnvart öðrum, eða gagn- vart unglingnum sjálfum, sem skað- ar sig. Viðbrögð við reiði eru oft óraunsæ og óréttlát. Reiði unglings- ins kemur fram í námserfiðleikum, skrópi, gagnrýni á foreldra, skemmdarverkum, ofbeldi og fíkni- efnaneyslu.“ Jón F’riðrik sagði mikilvægt að benda unglingnum á að það hafí fleiri neikvæðar hliðar en jákvæðar að missa stjórn á skapi sínu. „Það þarf að kenna unglingnum að hugsa áður en hann framkvæmir, gefa sér tíma til að hafa stjórn á sér ef hann reiðist og hugsa um hvað er honum sjálfum fyrir bestu."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.