Morgunblaðið - 24.01.1996, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKU DAGUR 24. JANÚAR 1996 27
UNGLINGAR OG VÍMUEFNI
BEKKURINN var þétt setinn á fundi Sjálfstæðisfélags Seltirninga um unglinga og fikniefni.
Meðalaldur neytenda
121/? ár eftir áratug?
UMMÆU
OG VIÐHORF
„EFTIR tíu ár gæti meðalaldur
þeirra, sem byija að drekka, verið
kominn niður í 12V2 ár. Fyrir tíu
árum var meðalaldurinn 15 ár, nú
er hann 14 ár. Hver segir að
botninum sé náð?“ spurði Einar
Gylfi Jónsson, sálfræðingur og
deildarstjóri forvarnadeildar SÁA,
í erindi sínu á fundi Sjálfstæðisfé-
lags Seltirninga.
Einar Gylfi sagði að áfengis-
neysla unglinga hefði aukist mjög
eftir að bjórsala var leyfð, framboð
vímuefna væri fjölbreytt og þau
væru nú hluti af veruleika ungl-
inga. „Bjórinn bættist ekki bara
við fyrri drykkju, heldur jókst
drykkja á sterku áfengi einnig.
Hálfu ári eftir að bjórinn var leyfð-
ur drukku 13-19 ára unglingar
40% meira en áður. Sú þróun hef-
ur svo haldið áfram.“
Einar Gylfi sagði að eitt sinn
hefði hassneysla verið bundin við
fáa háskólanema, en dópsalarnir,
líkt og fataframleiðendur, hefðu
fljótlega uppgötvað unglinga sem
neytendahóp. „Nú hefur ecstacy
(E-tafla) bæst í hópinn og ungl-
ingar hafa ótrúlegar ranghug-
myndir um skaðleysi efnisins. Það
er stórhættulegt. Aðgengi ungl-
inga að áfengi og fíkniefnum er
með ólíkindum, því þeir geta nálg-
ast þetta á öllum tímum sólar-
hringsins."
Einar Gylfi sagði að unglingar
nú væru ekkert verri en næsta
kynslóð á undan hefði verið. „Fyr-
ir einni kynslóð þurftu fæstir 16
ára un'glingar að taka afstöðu til
þess hvort þeir vildu fíkniefni. Þau
voru almennt ekki í boði. Og ef
við gætum hækkað aftur meðalald-
ur þeirra sem byija að drekka og
nota önnur fíkniefni um tvö ár, þá
leystum við mikinn vanda.“
Félagarnir mesti
áhrifavaldurinn
„Félagarnir eru mikilvægasti
áhrifaþátturinn, þegar unglingur
byijar neyslu. Það er áberandi, að
unglingur í neyslu telur neysluna
almennt miklu útbreiddari en hún
er, telur hana almennt viðurkennda
meðal unglinga, er sannfærður um
að aðrir félagar neyti, eða að þeir
neyti enn meira en þeir gera. Það
eru einnig áhættuþættir ef
foreldrar nota áfengi eða önnur
vímuefni, eða eru umburðarlyndir
gagnvart neyslu unglinga. Ofgar
í uppeldi, annað hvort ofstjórn eða
linkind, veldur einnig áhættu, en
jafnframt er slæmt ef
samverustundir foreldra og barna
eru fáar.“
Vísað úr skóla vegna drykkju
Einar Gylfi segir viðhorf samfé-
lagsins ýta undir neyslu unglinga.
Hann nefndi dæmi frá eigin æsku,
þar sem þremur skólafélögum
hans var vísað úr skóla, vegna
þess að þeir voru ölvaðir, þótt það
hefði verið utan skólalóðar og
skólatíma. „Þetta myndi ekki ger-
ast í dag og fullorðið fólk skiptir
sér ekki af ölvuðum unglingum,
þótt það séu börn nágranna eða
kunningja. Við þurfum að efla
vitund skólanna, félagsmiðstöðv-
anna og íþróttafélaganna, svo þar
sé ekkert umburðarlyndi gagnvart
neyslunni og áhrifamáttur þessi
aðila nýtist í baráttunni gegn
vímuefnanotkun. Við þurfum
einnig að efla umræðu unglinga
í 7. og 8. bekk grunnskólans, þar
sem enn er mjög sterk mótstaða
gegn neyslu og foreldrar þurfa
að fá fræðslu."
I svari við fyrirspurn úr sal, eft-
ir að framsöguerindum lauk, sagði
Einar Gylfi að misnotkun áfengis
væri almennt undanfari vímuefna-
notkunar. Hann lýsti óánægju með
þær hugmyndir að lækka áfengis-
kaupaaldur og sagði að þar sem
það hefði verið gert, til dæmis í
Bandaríkjunum, hefði aldurinn
verið hækkaður á ný vegna slæmr-
ar reynslu. Brýnna væri að hækka
forræðisaldur í 18 ár en lækka
áfengiskaupaaldur.
Mikilvægt að bjóða unglingum
sérstaka meðferð
Einar sagði einnig að hér á landi
væru hlutfallslega fleiri sjúkrarúm
undir áfengissjúklinga en hjá ná-
grannaþjóðum. Hins vegar hefðu
það verið mikil vonbrigði þegar
Tindum, meðferðarheimili fyrir
unglinga, var lokað. Aðspurður
hvort skaðlegt væri fýrir unglinga
að vera í meðferð með mun eldra
fólki svaraði hann, að mjög mikil-
vægt væri að bjóða unglingum upp
á sérstaka meðferð. Það væri þó
athyglisvert, að á meðan Tindar
störfuðu hafi jafn margir ungling-
ar leitað þangað og til SÁÁ. Með-
ferðin hjá SÁÁ hentaði sumum
unglingum vel.
Einar Gylfi sagði að unglingar
í neyslu gætu leitað hjálpar víða,
til dæmis hjá Rauða krossinum,
Vímulausri æsku, ráðgjöfum SÁÁ,
göngudeild Tinda og Félagsmála-
stofnun.
■ „EF allir unglingarnir, sem
eiga í vanda vegna vímuefna-
neyslu, væru í hrakningum á
Vatnajökli væri ekkerttil sparað
að koma þeim til hjálpar. Eg sé
í anda sjálfboðaliðana streyma
út úr hveiju húsi og allar fjár-
hirslur opnast. En þessir ungl-
ingar eru ekki svo sýnilegir og
því er auðvelt að loka augunum.
Þetta kemur ekki fyrir minn
ungling, heldur einhvern annan.
Og það er endalaust hægt að
spara á þessu sviði og engin
ástæða til að senda út björgun-
arlið. Ráðamenn sneiða bara hjá
miðbænum á kvöldin og um
helgar. Ef þeir sjá ekki vandann,
er ekki vandi.“
■ „ÞAÐ er gífurlegt magn af
hassi í umferð. Þegar framboðið
er svo mikið skyldi maður ætla
að verðið lækkaði. Það hefur
ekki gerst, heldur leggja dópsal-
arnir áherslu á að stækka mark-
aðinn. Þess vegna eiga þrettán
ára börn allt í einu greiðan að-
gang að hassi, alveg jafn greiðan
og að landanum. Og dópsalarnir
eru jafnaldrar þeirra.“
■ „ÞAÐ hefur verið afneitun á
hassi, en núna, þegar E-taflan
bætist við, þá er eins og menn
vakni. Ég þekki marga sem hafa
veikst mikið af að taka eitthvað,
sem þeir hafa haldið að væri
E-pillur. Þeim hefur verið selt
rottueitur."
■ „ÞRETTÁN ára strákur sem
ég þekki segir hiklaust að það
sé ekkert mál að reykja hass.
Það sé náttúruefni og beinlínis
hollt, alla vega miðað við tóbak,
sem valdi krabbameini og krans-
æðastíflu. Það þýðir ekkert að
benda honum á að tóbakið er
auðvitað náttúruefni líka, þótt
það geti drepið þig. Svona rang-
hugmyndir um hassið eru regla
fremur en undantekning hjá
unglingum."
■ „ÁTJÁN ára dóttir mín kom
til mín fyrir nokkrum dögum og
sagði mér að hún væri að fara
í meðferð. Hvorki ég né pabbi
hennar höfðum hugmynd um að
hún ætti í vanda. Hún hafði allt-
af staðið sig mjög vel í skóla og
var óskadóttirin á allan hátt.
Samt lenti hún í þessu og núna
er hún á Vogi. Það geta allir
lent í þessu.“
■ „MAÐUR nokkur ætlaði að
útvega sér spíra til að nota út í
kokteilinn í fímmtugsafmælinu.
Vinur hans tannlæknirinn, sem
var vanur að útvega slíkt, átti
engan sþíra. Nú voru góð ráð
dýr, enda afmælisdagurinn runn-
inn upp, laugardagur og vínbúðir
lokaðar. Unglingurinn á heimil-
inu lyfti símanum og skömmu
síðar var landinn kominn, afhent-
ur við dyrnar. Það var jafn mikið
mál fyrir unglinginn að panta
landa og að panta sér pizzu.“
■ „FYRIR tveimur árum kom
fulltrúi fíkniefnalögreglunnar á
fund með okkur foreldrum ungl-
inganna. Þá var ekki minnst einu
orði á E-pillu, hún þekktist varla,
en núna eru þessi krakkar okkar
komnir í menntaskóla, þar sem
E-pillan tröllríður öllu. Hvernig
eiga foreldrar að geta varast
þetta, ef alltaf koma nýjar teg-
undir? Verður eitthvað allt annað
vinsælast eftir önnur tvö ár?
Kannski heróín eða krakk, sem
þekkist varla núna?“
■ „ÞAÐ hefur verið svo mikið
af E-töflum undanfarið að það
ganga sögur af unglingum sem
fara niður í bæ um helgar og
tína upp pillur, sem aðrir hafa
misst. Þessir unglingar eru með
fullar lúkur af dópi eftir kvöldið.
Þetta eru nútíma þjóðsögur, sem
unglingarnir okkar skemmta sér
við að segja hver öðrum á kvöld-
in og þykir ekki tiltökumál."
■ „VINKONA mín vinnur á
skemmtistað í Reykjavík. Hún
sagði mér að þar væri farið að
selja vatnið, af því að enginn
keypti lengur áfengi. Það væru
allir á E-töflum. Ég trúði þessu
varla, svo ég fór einu sinni með
manninum mínum á þennan
skemmtistað. Við vorum þar í
næstum tvo tíma, en sáum varla
neinn kaupa áfengi. Það var
vatnslaust í krönum á baðher-
bergi og krakkarnir keyptu vatn
á barnum. Sala ÁTVR á áfengi
til þeirra staða, þar sem E-taflan
er vinsælust, hlýtur að hafa
hrunið. Er ekki hægt að kanna
þetta og ráðast beint að þessum
stöðum?“
FélagLöggh.tra Bifreiimsai.a
BÍLATORG FUNAHÖFDA V S: SS7-7777
Félag Löggiltra Bifreioasala
Cadillac Eldorado árg. '81, gulur. Einn
virðulegur með öllu. Verð 930.000,
Ford Econoline 250 4WD árg. '90, hvít-
ur, 30" dekk, svefnbekkur.6 cyl. 300 EFI.
Bíll með mikla möguleika,
Verö 2.180.000. Skipti.
Mercedes Benz 260E árg. '92,
blásans., ríkulega útbúinn bíll, ek. 80
þús. km. Verð 3.750.000. Skipti.
Hyundai Pony 1500 GLSi árg. '93,
grænsnans., ek. 28 þús. km.
Verð 690.000.
Peugeot 205 árg. '95, rauður, ek. 25
þús. km. Verð 860.000.
MMC Pajero Superwagon árg. '91,
grásans./blásans., sjálfsk., sóllúga, 31"
dekk, álfelgur, ek. 86 þús. km.
Verð 2.100.000. Skipti, ástandsskoðun.
Chevrolet Blazer árg. '91, blásans.,
sjálfsk., álfelgur, ABS. Gullfallegur bíll.
Verö 2.180.000. Skipti á dýrari.
Ástandsskoöun.
Toyota Landcruiser GX árg. '95,
vínrauður/grár, sjálfsk., 33" dekk, álfelg-
ur, ek. 36 þús km. Verð 4.600.000.
Skipti á ódýrari.
Opel Omega 3.0 árg. '95, blásans., bill
meö öllum aukahlutum sem, hægt er
að fá. Sjón er sögu ríkari. Ek. 16 þús.
km. Verð 3.950.000.1.000 I. af bensíni
fyigja
Subaru Legacy 2000 Artic árg. '92,
hvítur, álfelgur, sjálfsk. Gullfallegur blll.
Verð 1.590.000. Skipti, góð kjör,
ástandsskoöun.
MMC Galant 2000 GLSi 4WD árg. ‘92,
hvítur. Gullfallegur bíll, ek. 89 þús. km.
Verð 1.330.000. Skipti á dýrari.
Ástandsskoöun.
Toyota 4Runner árg. '91, rauður, 35"
dekk, upphækkaður. ek. 85 þús. km.
Verð 2.250.000. Fallegt eintak. Skipti á
ódýrari.
MIKIÐ URVAL AF BILUM - GREIÐSLUKJOR EÐA SKIPTI VIÐ ALLRA HÆFI