Morgunblaðið - 24.01.1996, Page 41

Morgunblaðið - 24.01.1996, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 41 GZJÐLA UG HÓLMFRÍÐUR JÓNASDÓTTIR + Guðlaug Hólmfríður Jónas- dóttir fæddist á Bakka í Fljótum 10. október 1901. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 16. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akureyrarkirkju 23. janúar. PERSÓNA Guðlaugar ömmu var stórbrotin og einkenndist af kjarki og heiðarleika. Hún hafði mikil og góð áhrif á okkur systkinin, enda ólumst við upp í nánu samneyti við hana og var sjaldan eitthvað um ■ að vera án þess að hugsað væri um I hvort Guðlaug amma gæti verið með okkur. Okkur langar að minn- ast hennar með örfáum orðum, en minningarnar hrannast upp núna þegar hún er látin og engan veginn hægt að gera þeim tæmandi skil í minningargrein. Guðlaug amma og Þórhallur afi kynntust í Eyjafirði og hófu búskap | á Hrafnagili í Eyjafirði. Einnig j bjuggu þau á Grund í Eyjafirði og á Völlum í Svarfaðardal, en fluttu ' til Akureyrar 1946 og byggðu sér hús í Glerárgötu 18. Bar það hús og allt umhverfi þess glöggt vitni um myndarskap ömmu, enda eyddi hún ófáum stundum í ræktun á garðinum við húsið. Var þetta einn af best hirtu görðum bæjarins og minnumst við þess að fólk dáðist að hve mikil rækt var í blómum hjá ( henni bæði utan dyra og innan. Hún ( kenndi okkur að bera virðingu fyrir umhverfinu og að skemma hvorki eigur okkar né annarra. Þegar Þór- hallur afi lést 1959 seldi amma neðri hæðina í Glerárgötu og keyptu foreldrar okkar hana og varð því mikill samgangur milli okkar og ömmu. Guðlaug amma var húsmóðir lengst framan af og sagði hún okk- ur margar sögur af því hvernig 1 húsmóðurstarfið var hjá henni í i sveitinni og hvernig lífsbaráttan var I háð „í gamla daga“. Þegar raf- magnið var rétt að verða sjálfsagð- ur hlutur á hverju heimili og engin „galdra-rafmagnstæki“ voru til. Við barnabörnin og seinna okkar börn sóttumst eftir að heyra þessar sög- ur og vildum við gjarnan heyra þær aftur og aftur. Þær einkenndust allar af því að kenna okkur vinnu- semi og það að enginn væri meiri en sá sem legði sitt af mörkum til 1 heimilisins og allir ættu að hjálpast að við það. Guðlaug amma gerði miklar kröfur til sín og einnig til annarra, enda varð vinnudagurinn oft langur því börnin hennar voru mörg og heimilið stórt. Seinna, þeg- ar þau voru flutt að heiman og höfðu stofnað sín heimili, var amma alltaf tilbúin að hjálpa til ef á þurfti að halda og taldi aldrei eftir þann tíma sem fór í það. Seinna hóf Guðlaug amma að starfa við saumaskap í verksmiðju Sambandsins og starfaði þar fram til sjötugs. Meðan amma starfaði þar var hún trúnaðarmaður hjá Iðju, félagi verksmiðjufólks, og tók með- al annars þátt í samningaviðræðum um kaup og kjör. Ninna amma starfaði líka við saumaskap í verk- smiðju Sambandsins og er ánægju- legt að minnast þess hve þær voru samrýndar og góðar vinkonur þó þær væru mjög ólíkar persónur. Báðar voru þær yndislegar ömmur og samtaka um að leiðbeina okkur systkinunum og hjálpa okkur á all- an þann hátt sem þær gátu. Þær voru báðar komnar á Dvalarheimil- ið Hlíð þegar þær létust núna í jan- úar með minna en viku millibili og er það skrýtin tilhugsun fyrir okkur systkinin að núna eru engar ömmur á Akureyri sem hafa ánægju af að fá okkur til sín. Því ætíð hefur ver- ið mjög ofarlega í huga okkar að sýna þeim umhyggju og ræktarsemi og gera það sem við höfum getað fyrir þær. Guðlaug amma hafði mikla ánægju af hannyrðum og kom það sérstaklega í ljós þegar hún hætti að vinna úti og hafði meiri tíma til að sinna sínum hugðarefnum. Kom þá í ljós mikið listfengi hjá henni og breytti hún gjarnan munstrum og litum eftir sínum smekk. Hún gaf gjarnan ættingjum sínum hann- yrðaverkin og eru mörg þessara verka hrein listaverk og dýrgripir fyrir þá sem þau eiga. Amma hafði líka mikið yndi af að ferðast og þekkti landið mjög vel. Við systkin- in buðum ömmu gjarnan með okkur ef farið var í ferðalög og/eða sum- arbústaði. Mjög minnisstæðar eru allar vikurnar á Illugastöðum með ömmu, en oft var farið þangað þeg- ar við vorum lítil. Síðan var sá hátt- ur tekinn upp aftur síðustu árin og hittumst við systkinin og okkar fjöl- skyldur þá í sumarbústaðnum og buðum ömmunum með. Þessar samverustundir í sumarbústaðnum eru ógleymanlegar, mikið var skraf- að, spilað og leikið sér, en hannyrð- imar voru ekki langt undan hjá ömmu, því aldrei féll henni verk úr hendi. Síðasta ferðalagið sem amma fór í var ferð í Bárðardalinn síðast- liðið sumar, en amma hafði lengi talað um að hún hefði ekki komið þangað. Aðdáunarvert var hve amma var dugleg að framkvæma hluti sem hana langaði til þó oft væri það frekar af vilja en mætti síðustu árin. Guðlaug amma var mjög ættræk- in og minnug á öll ættartengsl og sagði okkur gjarnan hver væri skyldur hveijum og hvernig. Hún vildi halda góðu sambandi við ætt- ingja bæði náskylda og fjarskylda og vildi gjaman að við heimsæktum frændfólk sem við höfðum aldrei séð til að kynnast því. Mjög ánægju- legt var að geta farið með henni á ættarmót síðastliðið sumar og hitta ættingjana. Guðlaug amma var stórglæsileg kona og bar sig á allan hátt með mikilli reisn og var sérstaklega tal- að um hve íslenski búningurinn fór henni vel. En það var alveg sama hveiju amma klæddist, nýju eða gömlu, hún var alltaf jafn fín. Amma var metnaðarfull kona, bæði fyrir sína hönd og annarra og þar á meðal okkar. Hún kenndi okkur að vera iðjusöm og að njóta lífsins en ekkert væri eðlilegra en að hafa þyrfti fyrir hlutunum. Guðlaug amma var afar sátt við sitt hlutskipti í lífinu þótt líf hennar hefði ekki alltaf verið auðvelt. Amma og afi misstu tvö barna sinna og við það myndast sár sem aldrei gróa. Gott var að eiga ömmu að þegar Helgi bróðir dó, því hún þekkti vel til sáranna sem myndast við að missa ástvin. Elsku Guðlaug amma, við þökk- um þér fyrir allar yndislegu sam- verustundirnar, alla góðvildina og umhyggjusemina og allt sem þú kenndir okkur að lifa eftir. Við þökkum fyrir að fá að hafa þig svona lengi hjá okkur. Far þú í friði. Sölvi, Ásta, Gunnlaug, Þórhallur, Kristín, Vilhelm og fjölskyldur. Að þú sért dáin amma mín er skrýtin tilhugsun. Þótt við vitum að enginn sé eilífur og árin þín orð- in mörg þá varstu alltaf þarna og manni fannst að þannig yrði það alltaf. Fyrir mörgum árum þegar ég kom inn í fjölskyldu þína sem tengdadóttir Auðar, dóttur þinnar, spurði ég þig hvort ég mætti ekki kalla þig ömmu og þó að þú ættir mörg ömmubörn fyrir var það sjálf- sagt, Síðan hefur þú verið mín eina amma með allri þinni hlýju og visku sem ömmur hafa. Þú hafðir frá svo mörgu að segja og miðla af þinni löngu ævi. Þú fylgdist svo vel með okkur öllum, hvað við værum að gera, hvað böm- in okkar væru að gera og hvernig okkur liði. Þú varst kannski ekki alltaf sammála því sem við, yngra fólkið, vorum að gera en þú lést það bara í ljós á þinn hátt. Alltaf varst þú að gera eitthvað, ekki þýddi að sitja aðgerðarlaus og horfa út í loftið. Oft várstu að ptjóna eða hekla og þá gjarnan að nýta afganga, en nú síðustu árin fórstu að mála og sauma út dúka og myndir sem eru hreinustu lista- verk. Alveg er ég viss um það, amma mín, að ef þér hefðu boðist öll þau tækifæri sem okkur bjóðast í dag, þegar þú varst ung, þá hefð- ir þú orðið einhvers konar listakona. Aldrei man ég eftir að þú segðir við mig styggðaryrði, en ýmislegt sem þú sagðir mér um líf og sam- skipti fólks hefur reynst rétt. Elsku amma mín, ég mun geyma minning- una um kærleik þinn og hlýju alla tíð og það munu Kári og strákarnir mínir líka gera. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Hrafnhildur. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN ÞORGEIRSSON vélstjóri, Framnesvegi 63, lést á heimili sínu 9. janúar sl. Að ósk hans fór útförin fram í kyrrþey. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Unnur Fjóla Jóhannesdóttir, Þorgeir Þorsteinsson, Tanja Þorsteinsson, Jóhannes Þorsteinsson, Valgerður Einarsdóttir, Oddfríður Halla Þorsteinsdóttir, Christopher Evans, barnabörn og barnabarnabarn. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hlýhug og vin- áttu við andlát og útför HARALDAR TÓMASSONAR, Hvammsgerði 13, Reykjavík. Kristján Ingi Jónsson, Sóley Sveinsdóttir, Guðrún Tómasdóttir, Sigursveinn Tómasson, Sigríður Tómasdóttir, Anna Tómasdóttir. t ^ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÁSGEIR JAKOBSSON rithöfundur, andaðist á heimili sínu 16. janúar. Útför hans verður gerð frá Hallgríms- kirkju fimmtudaginn 25. janúar kl. 13.30. Bergrós Jóhannesdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Guðrún íris Þórsdóttir, Elsa K. Ásgeirsdóttir, Jón Ólafsson, Jóhannes Asgeirsson, Kolbrún K. Karlsdóttir, Bergrós Ásgeirsdóttir, Jakob F. Ásgeirsson og barnabörn. t Við þökkum innilega öllum þeim, sem auðsýndu okkur vináttu og samhug við fráfall og útför föður okkar, ÓLAFS PÁLSSONAR fyrrv. mælingarfulltrúa, Hrafnistu í Reykjavík. Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki Hrafnistu fyrir hlýhug og einstaka um- hyggju. Jón Ólafsson, Jóhanna Ólafsdóttir, Helga Ólafsdóttir og fjölskyldur. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móð- ur okkar, tengdamóður og ömmu, ÁGÚSTU JÓNSDÓTTUR, Vogatungu 87, Kópavogi. Bergur Lárusson, Kristfn J. Harðardóttir, Sigurður Konráðsson, Hörður Á. Harðarson, Elín Bergsdóttir, Brynja Bergsdóttir og barnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRBJÖRN AUSTFJÖRÐ JÓNSSON, Maríubakka 12, Reykjavfk, lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 22. janúar. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 30. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Slysavarnafélag Islands. Guðmunda Árnadóttir, Birgir Þórbjarnarson, Guðrún Garðarsdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir, Sigurður Óli Sigurðsson, Ásdfs Þórbjarnardóttir, Guðbrandur Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ömmu minnar, BJARNVEIGAR HELGADÓTTUR, Dalbraut 27, Reykjavík. Kristfn Bjarnveig Reynisdóttir. Lokað Lokað verður í dag frá kl. 11.30 vegna jarðarfarar ÁRNÝJAR INGVALDSDÓTTUR. Málmsteypan Hella hf., Kaplahrauni 5, Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.