Morgunblaðið - 24.01.1996, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996 43
FRÉTTIR
Breytingar á
erfðaefni í brjóst-
krabbameini
SIGURVEGARI Frístæl-keppninnar 1995 í einstaklingsdansi,
Ragndís Hilmarsdóttir frá Sauðárkróki.
Frístæl-danskeppni 1996
JÚLÍUS Guðmundsson, líffræð-
ingur, flytur fyrirlestur um MS-
verkefni sitt: Kortlagning á
brenglunum í erfðaefni litnings 11
í brjóstkrabbameini og BRCA2-
genið í íslenskum bijóstkrabba-
meinsfjölskyldum, mögulegur
sameiginlegur uppruni, stökk-
breytingar og fjölbreytileiki í æxl-
isgerðum.
í fréttatilkynningu frá Háskóla
íslands segir að verkefnið hafi
verið unnið á vegum raunvísinda-
deildar Háskólans. Kortlagðar
voru erfðabreytingar í litningi 11
sem eiga sér stað í bijóstvefnum
SÍMSÖLUDEILD Bókaútgáfunn-
ar Skjaldborgar efh. bryddaði á
síðasta ári upp á þeirri nýbreytni
að bjóða viðskiptavinum sínum að
taka þátt í getraunaleik. Þann 15.
janúar sl. var síðan dregið í annað
skipti í leiknum, sem er fólginn í
því að viðskiptavinir fyrirtækisins
svara einni léttri spurningu og
senda svarið til Skjaldborgar.
Vinningurinn í getraunaleikn-
við myndun æxlisins. Einnig var
leitað að tengslum við erfðan
áhættuþátt í sjö íslenskum fjöl-
skyldum. Stærstur hluti íslenskra
fjölskyldna með aukna áhættu á
bijóstkrabbameini virðist hafa
kímlínubreytingu í BRCA2-geni.
Kortlagning á erfðamunstri í ís-
lenskum bijóstkrabbameinsættum
var mikilvægt skref í einangrun
(klónun) BRCA2-gensins er lýst
var í desember síðastliðnum.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
Eirbergi við Eiríksgötu í dag, mið-
vikudaginn 24. janúar, kl. 16.
um er helgarferð fyrir tvo til París-
ar eða London að verðmæti 70.000
kr. Upp kom miði nr. 2325 en
hann á Ingibjörg Aðalsteinsdóttir,
Lágafelli 2, Felisbæ, og verður
henni sent gjafabréf frá Flugleið-
um þessu til staðfestingar.
Næst verður dregið í getrauna-
leiknum 15. júlí nk. og verður vinn-
ingurinn þá einnig ferð með Flug-
leiðum að verðmæti 70.000 kr.
ÍSLANDSMEISTARAKEPPNIN
í frjálsum dönsum (Freestyle)
fer fram í Tónabæ í febrúar.
Undankeppni fyrir stór-Reykja-
víkursvæðið fyrir unglinga
13-17 ára verður haldin 9. febr-
úar. Kynnir verður Anna Sig-
urðardóttir.
Úrslitakeppnin fyrir allt land-
ið verður síðan föstudaginn 16.
febrúar í Tónabæ, þar sem kynn-
ir verður Magnús Scheving.
Keppt verður í tveimur flokkum,
einstaklings- og hópdansi.
Frístæl-keppnin fyrir 10-12
ára fer fram 24. febrúar í
Tónabæ, þar sem kynnir verður
Magnús Scheving.
Skráning fyrir alla aldurs-
hópa fer fram í Tónabæ.
Lýst eftir
bílstjóra
LÖGREGLAN á Hvolsvelli óskar
eftir að hafa tal af ökumanni rauðr-
ar eða rauðbrúnnar jeppabifreiðar
sem fór um Suðurlandsveg á mánu-
dagsmorgun og lenti utan í fólksbif-
reið án þess að nema staðar.
Málavextir eru þeir að jeppabif-
reið og fólksbifreið var ekið austur
Suðurlandsveg og við afleggjarann
að Gunnarsholti gaf fólksbifreiðin
stefnuljós til hægri og ætlaði að
beygja inn á veginn. Áður en hann
beygði tók jeppinn fram úr en í
sömu andrá kom önnur fólksbifreið
á móti sem jeppinn straukst hressi-
lega við. Á vinstri hlið þess bíls
sést talsvert, en jeppinn hafði ekki
fyrir því að stöðva ferðina.
Lögreglan óskar þess að bílstjóri
jeppans gefi sig fram hið fyrsta.
Gengið suður
í Skerjafjörð
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir kvöldgöngu í kvöld,
miðvikudagskvöldið 24. janúar, frá
Hafnarhúsinu kl. 20 suður í Skeija-
fjörð með Tjörninni og um Vatns-
mýrina og til baka um Melana.
Farið verður í stutta heimsókn í
byijun ferðar. Þegar komið er suður
í Sketjafjörð gefst þátttakendum
kostur á að finna út kjörgöngu-
hraða sinn í hópi í stuttri göngu
eftir strandstígnum. Allir velkomn-
ir.
Samkirkjulega
bænavikan
Yann Parísarferð
í getraunleik
„SS naggar ekki það
sama og Naggar“
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi
athugasemd frá Ásgeiri Baldurs, markaðs-
stjóra Kaupfélags Þingeyinga:
„Athugasemd var birt í Morgunblaðinu 20.
janúar frá Sláturfélagi Suðurlands, sem er
gerð við Nagga auglýsingu Kjötiðju KÞ sem
birtist í Morgunblaðinu 19. janúar. í athuga-
semdinni er því haldið fram að í auglýsingu
Kjötiðju KÞ sé farið með rangt mál og eru
staðreyndir málsins, að mati Sláturfélags
Suðurlands, raktar. Ennfremur er reynt að
gera lítið úr vöruþróunarstarfi Kjötiðju KÞ
og Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins,
sem vann ötullega að vöruþróun á Nöggunum
og öðrum vörum úr endurmótuðu kjöti, sem
við reyndar kjósum að kalla formað kjöt.
í athugasemd Sláturfélags Suðurlands er
farið með rangt mál og skal það leiðrétt hér
með.
Sláturfélag Suðurlands sakar Kjötiðju KÞ
um að orðið Naggar sé ágæt samsvörun við
erlenda orðinu „Nuggets" sem McDonalds
fyrirtækið selur. Það er rétt, og skarplega
athugað hjá Sláturfélagsmönnum. Hins vegar
var það sem við lögðum til grundvallar Nagga
nafninu lögun okkar vöru og fannst nafnið
Naggar eiga vel við lítinn og samanrekinn
hlut sem Naggar eru, en það sama á ekki
við um vöru Sláturfélags Suðurlands sem
þeir kalla nagga. Þeirra vara líkist meira
fiskiputtum sem eru vel þekktir í Bretlandi.
Naggar - lítill klettur
Sláturfélag Suðurlands tekur í athugasemd
sinni dæmi um að ekki sé hægt að sækja um
einkaleyfaskráningu á nafni sem er lýsandi
orð úr málinu sem öllum er heimil notkun
á, og tekið dæmi um orðið reiðhjól. Það er á
engan hátt hægt að segja að orðið Naggar
hafi verið lýsandi orð um forsteikta tilbúna
kjötbita fyrr en Kjötiðja KÞ fór að nota orð-
ið um framleiðsluvöru sína. Samkvæmt Orða-
bók Háskóla íslands er skýringin á orðinu
naggur-naggar „lítill klettur" eða „smávax-
inn harðskeyttur maður“. Samkvæmt Orðs-
ifjabók Háskóla íslands er til skýring á orð-
Svar við athugasemd
Sláturfélags
Suðurlands
inu naggur sem er biti eða afbitið stykki. í
athugasemdum sínum sem Sláturfélag Suður-
lands hefur sent til Einkaleyfastofu iðnaðar-
ráðuneytisins vísa þeir til þessarar skýringar,
þ.e.a.s. að naggur sé lítill biti. Þess má geta
að varla er hægt að segja að sú vara sem
Sláturfélag Suðurlands kallar nagga sé lítill
biti og held ég að flestum neytendum finnist
þetta vera heldur stór biti. Fumið og fátið
hjá Sláturfélagi Suðurlands við að koma eftir-
líkingu á Nöggunum á markað var slíkt að
þeir höfðu ekki einu sinni fyrir því að verða
sér úti um rétt mót svo bitarnir yrðu eðlileg-
ir að stærð í samræmi við þessa „litlu bita“
nafngift sem þeir byggja málflutning sinn á.
Sláturfélag Suðurlands sakar Kjötiðju KÞ
um að taka upp óhróður í fjölmiðlum, en
ræðst síðan ómaklega ekki bara að vöruþró-
unarstarfi KÞ, heldur líka að því góða starfi
sem Rannsóknarstofnun landbúnaðarins hef-
ur unnið í sambandi við endurmótun á kjöti
og möguleika á því að.vinna tilbúna rétti úr
lambakjötshlutum.
Sláturfélag Suðurlands fékk afrit af
skýrslu RALA
Sláturfélag Suðurlands státar af því að það
hafi liðið þtjár vikur frá því að ákvörðun var
tekin um framleiðslu þessa vöruflokks þar
til hægt var að hefja framleiðslu. Ekki vekur
það mikla aðdáun hjá þeim sem þekkja þetta
mál, því .að allar upplýsingar um vöruþróun
Nagganna hjá Kjötiðju KÞ voru gerðar opin-
berar f skýrslu Rannsóknarstofnunar land-
búnaðarins um þetta verkefni, og var Slátur-
félag Suðurlands fyrst fyrirtækja til að biðja
um afrit af þeirri skýrslu. Það kemur því
dálítið spánskt fyrir sjónir að Sláturfélag
Suðurlands nýtir sér afrakstur þessarar vöru-
þróunar Kjötiðju KÞ og Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins en sér síðan ástæðu til að
gera lítið úr starfi hinna sömu aðila í fjölmiðl-
um.
Framkvæmdastjóri Sláturfélags Suður-
lands sér líka ástæðu til að setjast í dómara-
sæti og segja að þeirra vara sé í hæfilegum
umbúðum en vara Kjötiðju KÞ í stórum um-
búðum. Þetta er vægast sagt mjög skrýtin
fullyrðing, því Naggar Kjötiðju KÞ eru í 400
g umbúðum, en umbúðir Sláturfélags Suður-
lands eru um 396 g. Þetta er ekki mikill
munur en samkvæmt þessu skilja 4 g að stór-
ar umbúðir og hæfilegar umbúðir.
Naggarnir frá Kjötiðju KÞ eru gæðavara
úr lambakjöti sem eru tilbúnir beint í ofn eða
á pönnu og eru matreiddir á innan við 10
mínútum. Naggar eru frystivara þannig að
þú getur átt þá til og gripið til þeirra þegar
þér hentar, en vöru Sláturfélags Suðurlands
verður að borða innan skamms tíma frá því
að hún var keypt, annars verður hún óneyslu-
hæf.
Skaðar ímynd Nagga nafnsins
Við hjá Kjötiðju KÞ erum ekkert að amast
við vöru Sláturfélags Suðurlands sem slíkri,
en við getum ekki sætt okkur við að þeir
setji vöru á markað undir okkar nafni, sem
við höfum sótt um einkaleyfi á og við notum
sem sérnafn. Ennfremur inniheldur vara Slát-
urfélags Suðurlands minna af kjöti og meira
af hjúpefnum og raspi en okkar Naggar.
Teljum við að það komi verulega niður á
gæðum vörunnar, sem þeir kalla nagga. Þar
með er ekki einungis verið að stela okkar
nafni heldur líka að skaða ímynd Nagga
nafnsins. Samkvæmt skilgreiningu Kjötiðju
KÞ eru Naggar beinlausir, tilbúnir lamba-
kjötsbitar, þeir eru ekki svínakjötsbitar, nau-
takjötsbitar eða kjúklingabitar.
Eg tek undir það sem Sláturfélag Suður-
lands segir í lok sinnar athugasemdar og
hvet neytendur til að dæma um ágæti var-
anna, en minnist þess að hinir einu sönnu
Naggar eru frá Kjötiðju KÞ.“
Samkoma í
Kristskirkju í
kvöld
NÚ stendur yfir samkirkjuleg
bænavika og verður samkoma í
kvöld, miðvikudag 24. janúar, í
Kristskirkju í Landakoti, og hefst
hún kl. 20.30.
Ræðumaður verður hinn nýi bisk-
up Kaþólsku kirkjunnar á Islandi,
herra Jóhannes Gijsen.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
■ FUNDUR verður haldinn hjá
Neistanum, aðstandendafélagi
hjartveikra barna, fimmtudaginn
25. janúar nk. kl. 20.30 í Selja-
kirkju. Á dagskrá verður kynning
á störfum landssöfnunarnefndar,
lögð verður fram til samþykktar
skipulagsskrá fyrir styrktarsjóð
hjartveikra barna og loks verða
rædd önnur mál sem félaga varða.
Námskeið fyrir þá sem vilja lengra:
NútímaForkitun
VisualBasic er kjaminn í nútima forritun í
gluggaumhverfi. Enginn sem á annað borð
vill nýta tölvuna og forritin betur gemr verið
án þekkingar á VisualBasic!
36 klst námskeið, kr. 44.900,- stgr.
Námskeið á fimmtudögum og laugardögum
■ Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuráögjof • námskeið • utgáfa
Grensásvegi 16 • simi 568 8090
hk 960219 Raögrciöslur FAiro/VISA |
-leikur að lœra!
Vinningstölur 23. jan. 1996
1 «4*5® 6 »22 «28* 30
Eldri úrslit á símsvara 568 1511