Morgunblaðið - 27.01.1996, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996 17
_______ERLEMT_____
Umdeildar konur
íHvítahúsinu
Abigail Adams Mary Lincoln
Eleanor Roosevelt Nancy Reagan
Washington. The Daily Telegraph.
ÞAÐ er ekkert einsdæmi í
sögu Bandaríkjanna að for-
seti komist í vanda vegna
konu sinnar þótt Hillary
Clinton hafi orðið fyrst til
að verða yfirheyrð sem eið-
svarið vitni fyrir kviðdómi
í opinberri rannsókn í gær.
Abigail Adams, eigin-
kona annars forseta Banda-
rikjanna, Johns Adams,
reitti til að mynda andstæð-
inga og samherja hans til
reiði með hvatvíslegum af-
skiptum af stjórnmálum
landsins. Reyndar var hún
áhrifamikil áður en maður
hennar var kjörinn í Hvíta
húsið árið 1796 því hún var
í nánum tengslum við
Thomas Jefferson, þá utan-
ríkisráðherra og síðar for-
seta, og ráðlagði honum
hvernig tryggja ætti lán í
Hollandi til að koma í veg
fyrir að ríkið kæmist í
greiðsluþrot.
Abigail Adams er á
margan hátt fyrirmynd
Hillary Clinton og var
einna næst því af samtima-
konum sínum að geta talist
femínisti. Hún átti til að
flytja reiðilestur yfir eigin-
manni sínum um skömm
þrælahaldsins og áminnti
hann um að „muna eftir
konunum“ við mótun stjórnar-
stefnunnar.
Mary Lincoln illræmdust?
Mary Lincoln var ef til vill ill-
ræmdasta forsetafrúin þótt mað-
ur hennar, Abraham Lincoln,
hefði verið einn ástsælasti forset-
inn í sögu Bandaríkjanna. Hún
þótti glæsileg, hnyttin og andrík
þegar hún var ung en var haldin
alvarlegri taugaveiklun eftir að
Lincoln var kjörinn forseti árið
1860. Hún varð mjög óvinsæl og
margir tortryggðu hana vegna
tengsla fjölskyldu hennar við
Suðurríkjasambandið, sem sagði
sig úr lögum við Bandaríkin
1860-61. Þegar þrælastríðið geis-
aði var hún gagnrýnd fyrir að
sóa fjármunum ríkisins í dýrar
veislur.,
Mary Lincoln var einnig þekkt
fyrir óhófleg fatakaup og reikn-
ingarnir vegna þeirra urðu brátt
hærri en laun forsetans. Þegar
Abraham Lincoln var myrtur
árið 1865 vildi hún ekki vera við-
stödd útförina og neitaði að flytja
úr Hvíta húsinu í fimm vikur.
Grunuð um morð
Julia Grant, kona Ulysses
Grant, var í vinfengi við illræmda
„ræningjaforingja", en svo
nefndust kapítalistar á 19. öld
sem voru taldir stunda skefja-
laust arðrán og brask í auðgun-
arskyni. Hún var sökuð um
aðild að ólöglegum gullvið-
skiptum nokkurra vina
hennar. Einn af samstarfs-
mönnum hennar sagði við
þingnefnd, sem rannsakaði
viðskiptin, að forsetafrúin
hefði hagnast verulega á
þeim.
Florence Harding, kona
Warrens Hardings, var svo
ráðrík og dramblát að for-
setinn kallaði hana „Her-
togaynjuna". Hún var við-
riðin flest hneykslismál
stjórnar hans og mörg
þeirra snerust um ólögleg-
ar leyfisveitingar í vin- og
olíuviðskiptum. Tortryggn-
in í garð hennar var svo
mikil í Washington að þeg-
ar forsetinn lést árið 1923
komst orðrómur á kreik um
að hún hefði eitrað fyrir
honum.
ísskápur veldur uppnámi
Eleanor Roosevelt var
gagnrýnd fyrir að hafa af-
skipti af stjórnmálaumræð-
unni og taka málstað fá-
tæklinga. Hún sætti einnig
gagnrýni vegna hárra
greiðslna fyrir blaðagrein-
ar.
Stjórn Harrys Trumans
átti undir högg að sækja
um tima eftir að forsetafrúin,
Bess, þáði ísskáp að gjöf en hún
lét fjaðrafokið sér að kenningu
verða. „Hér eftir skal ég segja
nei þegar einhver býður mér ís-
mola.“
Andstæðingar Ronalds Reag-
ans veittust harkalega að konu
hans, Nancy, þegar hún stóð fyr-
ir endurbótum á Hvita húsinu
fyrir jafnvirði 60 milljóna króna
og kaupum á postulíni fyrir 13
milljónir króna, þótt ríldð hefði
greitt litinn hluta kostnaðarins.
Herferð forsetafrúarinnar gegn
eiturlyfjum jók hins vegar vin-
sældir hennar og hún naut jafn-
vel meiri hylli en Reagan um
mitt síðara kjörtímabilið.
ERCENCINN
í CARÐ
*
I 5KRUÐI!
Hlaðborðið í Skrúði svignar af fjölbreyttum mat
þessa dagana. Boðið verður upp á úrvals þorramat
fram að næstu helgi ásamt föstum réttum á hinu
rómaða hlaðborði okkar.
Verð í hádegi 1.450 kr. Verð á kvöldin 2.340 kr.
-þín saga!
Finnskur landbúnaður
Þriðjungs fækkun
búa nauðsynleg
Helsinki. Moreunblaðið.
HORFUR í finnskum landbúnaðar-
málum í kjölfar aðildar Finna að
Evrópusambandinu gefa til kynna
að allt að helmingur bænda þurfí
að hætta búskap fyrir 2005. Sam=
kvæmt bjartsýnustu áætlunum
þurfi að fækka búum úr 110.000
í 70.000, en jafngildir það að rúm-
lega þriðja hvert bú fari í eyði.
Telja sérfræðingar að þetta sé lág-
marksfækkun.
Eftir að Finnar gerðust aðilar
að Evrópusambandinu (ESB) fyrir
rúmu ári hafa kjör bænda snar-
versnað. Telja bændur að tekjur
þeirra hafí rýrnað um allt að 40%.
I aðildarsamningi Finna við ESB
var gert ráð fyrir framlögum til
bænda í norðursveitum landsins.
Hins vegar lentu þeir bændur sem
rækta korn í suðurhéruðum Finn-
lands í því að fá minni bætur en
starfsbræður þeirra í Danmörku
og Norður-Þýskalandi. Eru þó
náttúruskilyrði í Finnlandi langtum
lakari en á þeim svæðum.
Finnar reyna nú að hefja nýjar
viðræður við ESB um stuðning við
bændur í Suður-Finnlandi. Þykir
augljóst að um misrétti sé að ræða.
Viltu verða léttari?
Hann léttist um 120 kg.
Lausardasinn 27. ianúar kl 4.eh. í Tannlœknasalnum. Síðumúla 35
verður fundur með danska útvarpsmanninum Jprgen Quistgaard, þar sem hann mun
segja frá því, hvemig honum tókst að léttast um 120 kg og hvernig gengur að halda
árangrinum. Hvemig það er að láta fjarlægja 10 kg af húðfellingum, með 3 metra
skurðaðgerð, hvemig honum leið og hvemig honum líður í dag, hvemig hann hefur
farið um Danmörku og stofnað stuðningshópa fyrir fólk með þessi vandamál.
Þetta allt og miklu fleira mun verða tekið fyrir á fundinum.
íslenskur túlkur.
Látið ykkur ekki vanta. Þetta er eitthvað sem getur hjálpað.
Lyf ehf. Síðumúla 32 Sími: 588 6511
Hugsaðu vel uni húðina þína.
Marja Entrich sér um sína.
Gakktu við í Grænu linunni.
Græna línan
L a u g a v e g i 4 6
Hiiðr.iðgjöf - bætielnaráðgjöf