Morgunblaðið - 30.01.1996, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 30.01.1996, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fékk gríðarþungt troll ofan á sig þegar krani valt „Hélt að hver sekúnda væri sú seinasta“ TUTTUGU og átta ára gamall maður, Arnþór Pétursson, slapp ótrúlega lítið meiddur þegar um fimm tonna þungt rækjutroll féll ofan á hann í Reykjavíkurhöfn um miðjan dag á laugardag. Troll- ið féll eftir að krani sem var að flytja það úr togaranum Hákoni yfir í geymslugám, sporðreistist undan þunganum og lagðist á hliðina. Búið var að svipta þakinu af gámnum og stóðu Arnþór og fé- lagi hans uppi á brún hans við vinnuna. Gat ekki forðað sér „Örfáum sekúndum áður en trollið datt á mig sá ég að eitt- hvað var óeðlilegt. Ég var á leið- inni niður af gámnum, við end- ann, þegar trollið skall á mér. Það gerðist svo hratt að maður gat ekkert forðað sér. Ég veit jafnvel ekki hvort ég var sjálfur á ferð eða hvort ég hef kastast til við höggið. Ég reiknaði ekki með að það kæmi svona hratt, enda vissi ég ekki þá að kraninn hefði oltið. Ég fann mikinn sársauka og varð skelkaður, enda ekki vanur að lenda í öðru eins. Ég hélt að þetta væri mitt síðasta,“ segir Arnþór. Félagi hans sá hins vegar að vonlaust var að komast undan trollinu og stökk ofan í botn gáms- ins. Trollið, sem er um 50-70 metrar í fullri lengd, lagðist að hluta til yfir gáminn en olli hinum manninum ekki skaða. Arnþór lá hins vegar undir farginu í um ARNÞÓR Pétursson og dóttir hans Auður Sif. klukkustund. Það hvfldi aðallega á höndum hans og höfðinu ofan- verðu, þar sem hann lá á magan- um ofan á einum tjakknum sem notaður var við að taka gáminn af flutningabílnum. Hann gat hins vegar hreyft annan fótinn lítil- lega. Eitthvað hélt verndarhendi „Hausinn var aðeins undir en hefði trollið lent fimm sentimetrum nær mér hefði ég fengið það ofan á mitt höfuðið eða bijóstkassann og þá hefði farið miklu verr.“ Morgunblaðið/Júlíus ARNÞÓR er talsvert meiddur á annarri hendi, en mildi þykir að ekki fór verr þegar hann festist undir um fimm tonna þungu rækjutrolli á laugardag. Arnþór segir að sjúkrabíll hafí verið fljótur á vettvang en á með- an hafí félagar hans stumrað yfir honum. Hann segir að óttinn sem greip hann hafí rénað fljótlega eftir að sjúkraflutningamennimir sprautuðu hann niður og einn þeirra sefaði hann með samræð- um.^ „Ég átti erfítt með að anda fyrst, var í losti og hélt að hver sekúnda væri sú seinasta. Ég ró- aðist þó og öndunin komst í lag með sprautunni og talinu,“ segir Arnþór. Björgunarmenn hans skáru og lyftu þunganum af hon- um eftir talsverða fyrirhöfn. Læknar á Borgarspítala segja að taugar í hægri hendi Amþórs séu klemmdar, en viðbrögð við snertingu bendi til að hann fái mátt að nýju í fínguma. Hann er hins vegar mjög bólginn og þarf að glíma við tímabundna lömun. Að öðru leyti er Arnþór lítið meidd- ur, aðallega flumbraður. „Ég er rosalega feginn að ekki fór verr og held að það sé engin spuming að eitthvað eða einhver hélt vernd- arhendi yfír mér,“ segir hann. Samþykktu samnmg með fyrirvörum RONTGENTÆKNAR á Landspít- ala snera til starfa í gær eftir að hafa verið frá vinnu í tvo mánuði. Röntgentæknar hófu störf að nýju eftir að Ríkisspítalar höfðu sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að ekki verði höfðað mál á hendur þeim eða Röntgentæknafélagi ísland fyrir þeirra hönd, en slík yfirlýsing var skilyrði þess að stjórn félagsins tæki samninginn til umfjöllunar. Stjómin staðfesti síðan í fyrradag samkomu- lag það sem röntgentæknar á Landspítala og Ríkisspítalar gerðu sín á milli 23. janúar sl., með vissum fyrirvörum þó. Jóna Gréta Einarsdóttir formaður RTÍ kvaðst ekki vilja greina frá hverjir þessir fyrirvarar eru, en þeir lúti þó meðal annars að yfírlýsingu Ríkisspítala. í henni hafi verið að fínna nokkrir liðir sem stjóminni hafí ekki fallið í geð. Skilyrði sett „Þetta er heillangt bréf og í því var ýmislegt sem .okkur líkaði ekki alls kostar, þar á meðal ákveðin skil- yrði fyrir því að hefja ekki málsókn, og þess vegna setjum við þessa fyrir- vara. Ef að Ríkisspítalar standa ekki við sitt, drögum við til baka sam- þykki okkar á samkomulaginu," seg- ir Jóna Gréta. „Loforð Ríkisspítala er hins vegar mjög jákvætt ef það verður efnt.“ Hún kveðst fagna því mjög að búið sé að binda enda á átta vikna langa vinnudeilu og vonast eftir því að frekari framhald verði ekki á. Framræsluskurð- ir stífiaðir og votlendi búið til Framkvæmdir hefjast á tveimur til þremur ríkisjörðum í sumar UNNIÐ er að því að í sumar verði hægt að hefjast handa um að end- urheimta mýrar sem ræstar voru fram á nokkrum bújörðum í ríkise- igu sem ekki eru lengur í notkun til landbúnaðar. Að sögn Björns Sigurbjörnssonar, ráðuneytis- stjóra í landbúnaðarráðuneytinu, er stefnt að því að stífla fram- ræsluskurði á 2-3 ríkisjörðum í sumar. Björn sagði að upphaf málsins væri það að Árni Waag, formaður Fuglaverndarfélags íslands, hefði skrifað ráðuneytinu erindi í sumar og bent á að margar mýrar á ríkis- jörðum sem voru ræstar fram á sínum tíma, væru ekki lengur í notkun til landbúnaðar. Á hinn bóginn hefði landið þornað upp svo að votlendisfuglar og lífríki vot- lendis væri horfið. Björn sagði að málið hefði hlot- ið góðar undirtektir í ráðuneytinu og hefði verið leitað samráðs við umhverfisráðuneytið um að velja 2-3 jarðir, þar sem mýrar hafa verið ræstar fram, til að láta stífla þar framræsluskurði og sjá hvern- ig til tækist og hvort votlendi myndaðist þar að nýju. Stefnt væri að því að þetta yrði gert í sumar en ekki væri ljóst um hvaða jarðir yrði að ræða. Björn nefndi þó sem dæmi að í landi Mávahlíðar í Lundarreykjad- al hefði mýri verið ræst fram í tengslum við þjóðargjöfina 1974 og síðan hefði verið fylgst ná- kvæmlega með og skýrslur gerðar um breytingar sem orðið hefðu á lífríkinu ár frá ári. Til greina kæmi að stífla framræsluskurði þar og fylgjast á sama hátt með hvort og hvernig votlendið sækti á að nýju. Hann sagði að málið yrði unnið í sátt og samlyndi við bændur. Um væri að ræða jarðir sem ekki væri lengur í notkun til landbúnað- ar og væntanlega yrði leitað sam- ráðs við búnaðarsambönd um framkvæmdina. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar Sjöfn í fram- boð gegn Grétari Jóni SJÖFN Ingólfsdóttir, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborg- ar, segist að sjálfsögðu ætla í fram- boð gegn Grétari Jóni Magnússyni, sem uppstillingarnefnd hefur gert til- lögu um sem formann félagsins. Sjöfn segir að Grétar Jón sé for- maður uppstillingamefndar og hann greiði atkvæði með tillögu þar sem honum er stillt upp sem formanni. „Þetta gerðist á síðasta fundi nefnd- arinnar þegar búið var að ganga frá öllum öðrum atriðum, eins og upp- stillingu til stjórnar. Hlutverk upp- stillingarnefndar er fyrst og fremst að stilla upp mönnum sem fyrir eru og hafa gegnt trúnaðarstörfum. Framboð gegn þeirri uppstillingu hefur vanalega gerst í framhaldinu. En tillaga um nafn Grétars Jóns til formanns kom fram á síðasta fundi uppstillingarnefndar. Það voru greidd atkvæði og eins og menn sjá af tölunum er oddaatkvæðið frá for- manni nefndarinnar," sagði Sjöfn. Hún segist ekki vita til þess að neinn málefnalegur ágreiningur sé innan félagsins sem geti skýrt þetta mál. „Ég skal ekkert um það segja hversu hörð kosningabaráttan verð- ur en það verður reynt af minni hálfu að standa heiðarlega að henni,“ sagði Sjöfn. Kosning fer fram í febrúar. ------» » ♦------ Biskup íslands Fallist á beiðni Flóka um frestun BISKUP íslands hefur veitt sr. Flóka Kristinssyni, sóknarpresti í Lang- holtskirkju, frest til að skila inn um- sögn vegna deilnanna í kirkjunni til 14. febrúar. Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður sr. Flóka, fór fyrir hans hönd fram á frest til að skila inn umsögninni til 14. febrúar nk. Um ástæðuna segir m.a. samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins í bréfí Sigurðar til biskups að deilan varði að verulegu leyti grundvallarspurningar um helgihald í þjóðkirkju íslands og hver hafi forræði slíkra mála í einstökum prestaköllum landsins. Biskup hefur fallist á beiðnina. Jón Stefánsson, organisti, sagðist óánægður með að málið væri dregið á langinn með þessum hætti enda væri ástandið í kirkjunni engan veg- inn viðunandi. Ekki var leikið á orgel- ið í Langholtskirkju við messu á sunnudaginn. ------» ♦ ♦------ Ráðstefna um rannsóknir og nýsköpun RÁÐSTEFNA Stúdentaráðs um rannsóknir og nýsköpun hófst í há- deginu í gær með kappræðu í Odda, þar sem íjallað var um efnið: Á menntakerfið að vera undanþegið niðurskurði. í hádeginu í dag, þriðjudag, verður í Lögbergi 101 fjallað um Háskólann og atvinnulífíð. Fyrirlesarar: Þor- steinn Gylfason heimspekiprófessor, „Hinn íslenski hleypidómur er sá að háskólar séu fyrst og fremst til að þjálfa fólk til starfa, eins konar út- ungunarstöðvar fyrir atvinnulífið' • Þorkell Sigurlaugsson, frani- kvæmdastjóri Eimskipafélags Is- lands, „Nemandi í háskóla er að læra það sem hann telur að muni nýtast honum í framtíðinni og þá þarf að hafa þarfír þjóðfélagsins og atvinnu- lífsins í huga“. I > I I I I I i I t: Í I: i ( i t Í 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.