Morgunblaðið - 30.01.1996, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Framhaldsskólanemar gegn fíkniefnanotkun
Viljum jafningja-
fræðslu um ókomin ár
Konni í
Þjóðminja-
safnið
Þ J ÓÐMIN J AS AFNIÐ hefur
fengið Konna, brúðuna sem
Baldur heitinn Georgs búktalari
notaði á skemmtunum hérlendis
frá 1946-1964.
Baldur Georgs lést árið 1994
og í samtali við Morgunblaðið
sagði Þór Magnússon, þjóð-
minjavörður, að Rannveig dóttir
Baldurs hefði haft samband við
safnið og greint frá því að faðir
hennar hefði óskað þess, að
Konni yrði varðveittur á safninu
eftir sinn dag. „Konni var
merkilegt fyrirbæri í okkar
skemmtanalífi og gerði mikla
lukku,“ sagði Þór Magnússon.
Hann sagði að brúðan, sem
var sérsmíðuð í Bretlandi fyrir
Baldur, yrði varðveitt í safninu
en komið fyrir með því úrvali
af safnauka Þjóðminjasafnsins
sem árlega er sett til sýnis á
sérstökum stað í safninu.
Höfuð brúðunnar hefur verið
endurnýjað og Konni er ekki í
ÞÓR Magnúson með Konna
sömu fötum og við komuna til
íslands fyrir rúmum 50 árum
en búkur hans er í upphaflegu
ástandi.
„VIÐ viljum ekki að jafningja-
fræðslan verði einhver bóla, sem
springur eftir stuttan tíma. Við
ætlum okkur að byggja verkefnið
upp á þann hátt, að útbúið verði
námsefni, framhaldsskólanemar
sjái um að fræða félaga sína og
fræðslan haldi áfram um ókomin
ár,“ sagði Sigurður Orri Jónsson,
formaður Félags framhaldsskóla-
nema, í samtali við Morgunblaðið.
Framhaldsskólanemar hittust í
Selinu, húsi Menntaskólans í
Reykjavík við Hveragerði, um
helgina og lögðu þar á ráðin um
jafningjafræðsluna.
Sigurður Orri sagði að jafningja-
fræðslan ætti að bytja í framhalds-
skólunum í febrúar, en markmiðið
með henni er- að nemendur sjálfir
vinni að viðhorfsbreytingu meðal
framhaldsskólanema til neyslu tób-
aks, áfengis og annarra fíkniefna.
Jafningjafræðslan er samvinnu-
verkefni Félags framhaldsskóla-
nema og menntamá'aráðuneytisins
og hefur verið ákveðið að það standi
fram á vor og að því loknu verði
árangurinn metinn.
Vonandi 40 störf í sumar
Framhaldsskólanemar eru þegar
famir að hugsa lengra. „Við geng-
um á fund Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra og fórum
fram á að 40 nemendur fengju starf
á vegum borgarinnar við jafningja-
fræðslu í sumar. Þeir myndu þá
starfa í miðbænum, á tónleikum,
útihátíðum og annars staðar þar
sem ungt fólk safnast saman. Við
höfum líka hugmyndir um sumar-
búðir, þar sem krakkar í vinnuskól-
anum gætu komið og fengið
fræðslu. Við vonumst eftir svari
borgarstjóra sem fyrst, en Ingibjörg
Sólrún tók okkur mjög vel.“
Jafningjafræðslan fer þannig
fram, a.m.k. fyrst um sinn, að
myndaðir verða umræðuhópar
áhugasamra nemenda í hveijum
skóla og þeir sjá um að koma
fræðsluefni á framfæri í skólunum.
Það verður ekki gert á opnum fund-
um, heldur með fundum í hveijuni
bekk eða smærri hópum.
Náms- og fræðsluefnið verður
samið í samvinnu við sérfræðinga,
eins og lækna, fíkniefnadeild lög-
reglunnar og fleiri, en framhalds-
skólanemar ætla að vinna á eigin
forsendum. „Áhugi framhalds-
skólanema á að starfa við svona
fræðslu er mjög mikill. í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti einum hafa
til dæmis 60 manns lýst áhuga á
þátttöku," sagði Sigurður Orri
Jónsson, formaður Félags fram-
haldsskólanema.
Heimsferðir til
Costa del Sol
HEIMSFERÐIR kynntu nú um
helgina í Morgunblaðinu vikulegt
flug til Costa del Sol í sumar. Sam-
kvæmt upplýsingum frá. Andra
Má Ingólfssyni komu viðbrögðin
þægilega á óvart. Á fjórum tímum
seldust kynningartilboðin upp og
er ákveðið að bæta við 150 við-
bótarsætum fyrir þá sem ekki náðu
sambandi.
Nú eru þijú ár síðan boðið var
upp á beint flug til Costa del Sol,
sem var langvinsælasti áfangastað-
ur íslendinga í fjölda ára. Feikna-
miklar breytingar tii góðs hafa átt
sér stað á Costa del Sol eftir að
ný borgarstjóm tók til starfa og
staðurinn og ströndin ekki litið jafn-
vel út í fjölda ára. Fjöldi mjög góðra
gististaða er í boði. Heimsferðir
bjóða vikulegt leiguflug frá 30. maí
til 26. september.
Fíkniefni
gerð upptæk
LÖGREGLAN í Ámessýslu gerði á
föstudagskvöld húsleit í þremur
húsum á Eyrarbakka og handtók
þijá menn í kjölfarið.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
var húsleit gerð með aðstoð fíkni-
efnadeildar lögreglunnar í Reykja-
vík. Smáræði af hassi, maríjúana
og amfetamíni fannst auk tækja og
tóla til neyslu. Þrír menn voru hand-
teknir og færðir til yfírheyrslu en
þeim sleppt að yfirheyrslum loknum.
Lögreglan í Vestmannaeyjum
fékk um helgina ábendingu um að
neysla og sala fíkniefna væri í gangi
í bænum. Við athugun fannst hálft
gramm af amfetamíni og áhöld til
neyslu fíkniefna. Fjórir menn á aldr-
inum 18-23 ára voru handteknir og
yfirheyrðir og stðan sleppt. Málið
er talið upplýst.
Morgunblaðið/Jón G. Svavarsson
Leitað er að upp-
runa salmonellu-
mengiínarinnar
SALMONELLUMENGUN hefur
ekki fundist í kjúklingum merkt-
um Gæðafugl á öðrum sláturdög-
um en 29. september 1995. Enn
er þó verið að rannsaka hvort
salmonellumengun finnist í kjúkl-
ingum sem slátrað var á öðrum
dögum. Gæðafugl er eitt af vöru-
merkjum sláturhússins Reykja-
garðs á Hellu en það er ekki fram-
leiðandi fuglsins. Húsið slátrar
kjúklingum fyrir marga framleið-
endur en í þessu tilfelli voru kjúkl-
ingarnir pakkaðir í poka sem
merktir eru Gæðafugl.
Grétar Hrafn Harðarson, hér-
aðsdýralæknir á Hellu, segir að
nokkrir innleggjendur séu í kjúkl-
ingasláturhúsinu á Hellu. „Þeir eru
ekki allir með framleiðslumerki.
Það er lítil framleiðsla hjá þeim
og þeir treysta sér ekki allir til
þess að vera með sitt eigið merki.
Gæðafugl getur verið frá hinum
ýmsu framleiðendum. Við höfum
allar sláturdagsetningar og fram-
leiðendanúmer og þannig vitum við
hver framleiðandinn er,“ sagði
Grétar Hrafn.
Að sögn Ólafar Loftsdóttur, hjá
Hollustuvernd ríkisins, er ekki vit-
að nákvæmlega hvaðan salmon-
ellumengunin er upprunnin. Sýni
hafa verið send frá framleiðanda
kjúklingsins að Keldum þar sem
dýralæknir alifuglasjúkdóma er til
húsa. Sýni af kjúklingunum í'eldi
eru tekin áður en þeir fara í slátr-
un. Þessi sýni voru neikvæð. Mögu-
legt er að fuglinn hafi sýkst eftir
sýnatöku. Einnig hafa verið send
saursýni og fóðursýni frá framleið-
andanum en þau hafa ekki verið
rannsökuð enn.
Guðmundur Rafn
Geirdal í for-
setaframboð
GUÐMUNDUR Rafn
Geirdal nuddari hefur
lýst yfir framboði til
forseta íslands. Hann
sagði í samtali við
Morgunblaðið að henn
hefði „djúpa og ein-
læga löngun til að láta
gott af sér leiða“ og
þess vegna byði hann
sig fram.
Guðmundur Rafn
sagði að hann ætti
sjálfur frumkvæði að
því að bjóða sig fram
til forseta. Viðbrögð
við framboði sínu hefðu
hins vegar verið já-
kvæð. Sumir væru
hissa, en almennt tæki fólk forseta-
framboði sínu vel.
„Meginástæðan fyrir ákvörðun
minni er sú að með þessu hef ég
aukið tækifæri til að koma á fram-
færi hugsjón minni um frið á jörðu
og að mannkynið lifi í sátt og sam-
lyndi um ókomin ár. Ég lít þannig
á að okkur Islendingum hafí tekist
að þróa mjög frambærilegt þjóðfé-
lag friðar og getum myndað for-
dæmi öðrum þjóðum til eftirbreytni
Guðmundur
Rafn Geirdal
í þessa veru sagði,“
Guðmundur Rafn.
Guðmundur Rafn
sagði að íslendingar
væru þjóð einingarinn-
ar, með eina trú, tungu
og sögu. Hér væri gott
velferðarkerfi. Heil-
brigðiskerfið væri
frambærilegt og
menntunarhlutfall
hátt. íslendingar væru
sú þjóð sem hefði hvað
hæstar lífslíkur. Með
sama áframhaldi gæti
ísland orðið heilsuland
innan fárra ára.
„Þetta allt getum við
nýtt okkur til að skapa
okkur sterka sérstöðu á alþjóðavett-
vangi sem þróuð þjóð. Það fer vel
að þessi sjónarmið séu túlkuð og
þróuð af forseta þjóðarinnar og um
þau sé fjallað af frambjóðendum í
það embætti og það vil ég gera,“
sagði Guðmundur Rafn.
Guðmundur Rafn er 35 ára gam-
all. Hann er fráskilinn og á eitt
barn. Hann er skólastjóri eigin
nuddskóla. Hann hefur ritað fjöl-
margar greinar í blöð og tímarit.
■ lf í
mm.
Bestu
blaða-
ljósmynd-
irnar
SÝNING á bestu blaðaljós-
myndum ársins 1995 var opn-
uð í Gerðarsafni í Kópavogi á
laugardag og jafnframt voru
veitt verðlaun fyrir bestu
blaðaljósmyndirnir. Myndin
sýnir verðlaunahafana ásamt
formönnum Blaðaljósmynd-
arafélags íslands og Blaða-
mannafélags íslands. Taldir
frá vinstri: Þorvaldur Ö.
Kristmundsson, Ragnar Ax-
elsson, Sverrir Vilhelmsson,
Páil Stefánsson, Einar Falur
Ingólfsson, Þorkell Þorkels-
son, Árni Sæberg, Gunnar
Sverrisson og Lúðvík Geirs-
son.
Sýningin er opin frá klukkan
13 til 18 alla daga nema mánu-
daga tilll. febrúar.
I
[
I
I
l
I
I
I
\
I
I
I
i
I
i
(
I
-