Morgunblaðið - 30.01.1996, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Umræðufundur um fíkniefnavandann
Auka þarf
fræðslu, sam-
ræma löggæslu
o g marka stefnu
Viðhorf til fíkniefna virðist of jákvætt og
snúa þarf almenningsálitinu sterklega gegn
fíkniefnum. Jóhannes Tómasson segir
hér frá erindum um fíkniefnavandann en
það gekk eins og rauður þráður gegnum
þau að brýnast væri að efla forvamir og
sameina alla krafta í baráttu gegn
fíkniefnaneyslu.
Morgunblaðið/Kristinn
NOKKUÐ á annað hundrað manns sat umræðufundinn um fíkni-
efnavandann. Fundarmenn voru á öllum aldri.
BRÝNT er að auka og samræma
forvarna- og fræðslustarf um skað-
semi eiturlyfjaneyslu og styrkja yfír-
stjóm, en þó án þess að drepa niður
frumkvæði einstakra samtaka eða
hópa; nauðsynlegt er að lögreglu-
yfirvöld landsins og tollgæsla vinni
betur saman; stjómmálamenn verða
að veita meira fjármagni í forvarnir
og meðferðarúrræði; þyngja verður
dóma vegna fíkniefnaafbrota innan
þess refsiramma sem þegar er fyrir
hendi; snúa þarf almenningsálitinu
og tískunni gegn eiturlyfjum og yfir-
völd verða að marka sér skýra stefnu
í þessum málaflokki. Þetta var með-
al þess sem kom fram í erindum og
umræðum á almennum fundi fulltrú-
aráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík sl. laugardag undir yfirskrift-
inni: Fíkniefnavandinn - hvað er til
ráða?
Stjómmálamenn hafa möguleika
á að vekja menn - þeim ber skylda
til þess og þeir ættu fremur að auka
fjárveitingar til löggæslu og for-
varna í stað þess að auka fjárveiting-
ar til flokkanna, sagði Helgi Þórðar-
son meðal annars í erindi sínu en
sonur hans, Orri Steinn, varð eitur-
lyfjum að bráð sl. haust. Sagði hann
enga samræmda stefnu til hjá yfir-
völdum en hún væri nauðsynleg til
að ná árangri í baráttunni við fíkni-
efnin. Helgi rakti stuttlega sögu
sonar síns. Hann var venjulegur
unglingur, gekk vel í skóla, átti
marga kunningja og fáa vini og
skemmti sér eins og aðrir ef svo bar
undir. Helgi sagði að þau foreldrar
hans hefðu ekki merkt áfengis- eða
vimuefnaneyslu en vinir Orra Steins
hefðu sagt þeim frá vímuefnanotkun
hans sumarið 1994. Hann hefði
kynnst e-pillunni sem sölumenn
segðu hættulausa en neysla hennar
dró hann til dauða. - Fíkniefni fara
ekki í manngreinarálit, neyslan get-
ur komið upp í hvaða fjölskyldu sem
er, sagði Helgi ennfremur.
Nýta refsirammann betur
Björn Halldórsson lögreglufulltrúi
í fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík sagði umfang fíkniefna-
neyslu verulegt en um það vissi þó
í raun enginn. Sagði hann sölu eða
neyslu þekkjast um allt land en
umfangið væri þó mest á suðvestur-
horni landsins. Björn sagði fíkni-
efnamál að mörgu leyti sérstæð;
555-1500
Garðabær
Stórás
Gott ca 200 fm einbhús auk 35
fm bílskúrs. Mögul. á tveimur
íb. Ekkert áhv. Skipti mögul. á
3ja herb. íbúð.
Reykjavík
Baughús
Glæsil. ca 90 fm 3ja herb. íb. í
tvíbýli með góðu útsýni. Áhv.
ca 2,8 millj. húsbr. Verð 8,5
rnillj.
Kóngsbakki
Mjög góð 3ja herb. íb. ca 80 fm
á 3. hæð. Áhv. ca 3,1 millj.
Verð 6,8 millj.
Hafnarfjörður
Miðvangur
Gott raðhús ca 150 fm + 38 fm
bílsk. Möguleiki á 4 svefnh.
Skipti mögul. á minni eign.
Flókagata
Góð 5-6 herb. íb. ca 125 fm
ásamt bílsk.
Flókagata
Einb. á fjórum pöllum, ca 190
fm, ásamt nýjum bílsk. og öðr-
um eldri. Mikið endurn. Útsýni.
Áhv. ca 2,5 millj. eldra byggsj-
lán. Ath. skipti á minni eign.
Álfaskeið
Einb. á tveimur hæðum með
hálfum kj., samtals 204 fm.
Mikið endurn. Lítið áhv. Ath.
skipti á lítilli íb.
Höfum kaupanda
að eldra einbýlishúsi í Hafnar-
firði.
Vantar eignir á skrá.
FASTEIGNASALA,
Strandgötu 25, Hfj.,
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugsson hdl.
kærur væru fátíðar, rannsókn hæfist
áður en brot væri framið og fórnar-
lamb sölunnar, þ.e. neytandinn, væri
einnig sakborningur. Þá sagði hann
ýmsar breytingar hafa orðið á síð-
ustu 10 til 15 árum, viðhorf væri
almennt hliðhollara eiturlyfjum,
neytendur væru sífellt yngri, styttri
tími liði oft frá fikti til dauða, þ.e.
frá því að menn kynntust eiturlyfjum
og þar til þau drægju menn til dauða,
fleiri efni væru í umferð, aukin
sprautunotkun og sjúkdómahætta
tengd henni. Björn sagði nauðsyn-
legt að þrír þættir héldust í hendur
til að ráðast mætti gegn vandanum:
Fræðsia, réttarvarsla og meðferðar-
úrræði. Sagði hann nauðsynlegt að
nýta betur fjárveitingar til fræðslu
og að meðferðarúrræðum þyrfti að
beina betur á hvern hóp, unga neyt-
endur, langtíma neytendur o.s.frv.
Þá sagði hann að samræma þyrfti
alla löggæslu í landinu í' þessari
baráttu. Björn sagði að hámarks-
refsing við fíkniefnabrotum væri 10
ára fangelsun og hefði henni aldrei
verið beitt nema að Hálfu. Það ætti
að teljast saknæmara að selja ung-
lingi eiturlyf eða stunda sölu í ná-
grenni staða sem unglingar sækja
og helst ætti að vera hægt að þvinga
unga neytendur í meðferð.
Einar Gyifi Jónsson sálfræðingur
ræddi um eðli vandans, neyslu ung-
linga, áhættu og áhrifaþætti. Sagði
hann menn ekki mega gleyma
áfenginu, neysla þess hefði aukist
mjög t.d. með tilkomu bjórs og að
aldrei hefði verið eins auðvelt að
nálgast áfengi og nú og það sama
gilti um fíkniefni. Þau væru hluti
af veruleika hins íslenska unglings
í dag. Neyslan færðist stöðugt neðar
í aldri og unglingar yrðu að taka
afstöðu til áfengis og vímuefna 13
til 14 ára, áður en þau hefðu náð
þroska til þess. Einar Gylfi nefndi
nokkur atriði sem ráðið gætu miklu
um það hvort unglingar ánetjuðust
fíkniefnum: Áfengisvandi í ijölskyld-
unni, aldur við upphaf neyslu, tengsl
við foreldra, áhugamál og félaga-
hópinn. Sagði hann vinahópinn
sterkan áhrifavald, vinir gætu verið
í neyslu eða unglingurinn teldi að
vinir væru í neyslu og hún væri al-
mennt viðurkennd í vinahópnum.
Viðhorf foreldra skiptu og miklu
máli, t.d. umburðarlyndi þeirra
gagnvart neyslu unglinga, hvort for-
eldrar neyttu sjálfir áfengis eða
vímuefna og fáar samverustundir
foreldra og unglinga.
Má ekki draga úr
meðferðarúrræðum
Ólöf Helga Þór forstöðumaður
Rauða kross hússins sagði að árlega
leituðu til hússins um 200 unglingar
vegna neyslu og að sá þáttur starfs-
ins hefði aldrei verið erfiðari en um
þessar mundir. Sagði hún brýnt að
byrgja brunninn áður en barnið
væri dottið í hann en því væri sjaldn-
ast að heilsa og nefndi dæmi um
það. Ekki mætti draga úr meðferð-
arúrræðum og sagði hún það slæmt
þegar starfsorka manna á með-
ferðarstofnunum færi í að beijast
fyrir starfsgrundvelli þeirra og fjár-
veitingum í stað þess áð geta ein-
beitt sér að umbótum og nýjungum
í meðferðarstarfinu sjálfu. Sigrún
Magnúsdóttir forstöðumaður dag-
deildar meðferðarstofnunarinnar
Tinda harmaði að sólarhringsdeildin
var lögð niður þar sem 39 unglingar
að meðaltali voru vistaðir árlega sem
hefði kostað um 50 milljónir króna
en dagdeild gæti aldrei komið í stað
sólarhringsdeildar. Þá sagði hún sið-
laust að meðferðarstofnanir stæðu í
samkeppni um fjármagn og taldi
brýnt að mæta meðferðarkosti ungl-
inga enda væri tvennt ólíkt að með-
höndla ungling og fullorðinn.
Hvað geta heimili, skólar og al-
menningur gert? var umfjöllunarefni
Áma Einarssonar framkvæmda-
stjóra Fræðslumiðstöðvar í fíkni-
vörnum. Sagði hann skólana hafa
verið vannýtta í þessum efnum og
námsefni takmarkað. Milli 10 og
15% foreldra keyptu áfengi fyrir
unglinga sína og í brauðstritlnu
hefðu foreldrar_ oft misst tökin á
unglingunum. Árni sagði foreldra
vilja axla ábyrgð en þeir yrðu að
eiga vísan stuðning yfirvalda og
spurði hvemig þeir ættu til dæmis
að túlka tillögu á Alþingi um að
lækka áfengiskaupaaldur. Einnig
sagði hann brýnt að auka rannsókn-
ir á þessu sviði og tengja þær betur
forvamastarfi.
Gunnar Jóhann Birgisson borgar-
fulltrúi ræddi hvernig stjórnvöld
gætu brugðist við. Sagði hann ótví-
ræða lagaskyldu hvíla á sveitar-
stjórnum og ríkisstjóm að stuðla að
forvörnum. Stjórnmálamenn gætu
ekki litið á þetta sem einhvern af-
gangsmálaflokk, of lengi hefðu verið
drifnar upp herferðir, skyndiátök og
nefndir skipaðar en nú yrði að koma
til aðgerða og koma á samræmdri
forvarnastefnu sem skilað gæti ár-
angri.
Alþjóðlegur vandi
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra sagði að hafin væri vinna í
ráðuneytinu við endurskoðun á öllum
þáttum er tengdust fíkniefnavandan-
um, löggjöf, þ.e. ákæru, dómsmeð-
ferð og fullnustu. Sagði hann að
styrkja þyrfti rannsóknarlögreglu,
athuga samræmingu og verkaskipt-
ingu ráðuneyta. Nýr vandi væri sí-
fellt yngri neytendur og sífellt full-
komnari söiutækni, menn hefðu
reyndar vitað af fíkniefnavanda lengi
en ef til vill hefðu menn sofið á verð-
inum. Fíkniefnamál væru alþjóðlegur
vandi, velta fíkniefnaheimsins væri
meiri en velta orkumála og aðeins
vopnaframleiðsla heimsins velti meiri
ijármunum. Ekki taldi hann nauðsyn-
legt að herða viðurlög en skilgreina
mætti sérstaklega brot er beindust
að ungu fólki og beita þyngri refsing-
um við þeim.
Að endingu talaði Björn Bjarna-
son menntamálaráðherra um for-
varnir í skólakerfinu. Sagði hann að
meira þyrfti til en eitt og eitt átak
í baráttu við fíkniefnasala og vinna
þyrfti stöðugt að forvörnum, fræða
kennara og foreldra en oft hefðu
kennarar ekki síst góða aðstöðu til
að uppgötva neyslu hjá nemendum
sínum. Þá sagði hann svokallaða
jafningjafræðslu í undirbúningi í
samstarfi við Félag framhaldsskóla-
nema en mikilvægt væri að ungling-
arnir fræddu sjálfir jafnaldra sína.
Björn sagði að skólar og nemendur
ættu að vera friðhelg fyrir fíkniefn-
um og sagði að skömm þeirra væri
mikil sem réðust á þessi helgu vé í
gervi sölumanna dauðans.
Stuðningur við mannrækt
í pallborðsumræðum kom fram
að til að ná fíkniefnasölum verði að
sanna á þá sölu og því þurfi að veija
miklum tíma í að fylgjast með grun-
uðum sölumönnum til að geta staðið
þá að verki. Þá voru menn sammála
um að hækkun forræðisaldurs úr 16
í 18 ár gæti auðveldað mönnum að
taka á alvarlegum vanda hjá ungl-
ingum. Bjöm Halldórsson sagði að
stundum færi mikill tími hjá lögregl-
unni í smærri málin og minni tími
væri þá til að rannsaka skipulagða
og umfangsmikla dreifingu eitur-
lyija. Varpað var fram þeirri hug-
mynd að fá stuðning atvinnulífsins
til aukins fræðslustarfs í fíknivörn-
um, hvort það gæti ekki stutt mann-
rækt eins og skógrækt eins og sum
fyrirtæki gerðu. Þá kom einnig fram
að þrátt fyrir alvarlegan vanda og
þær neikvæðu hliðar sem menn
hefðu rætt á þessum fundi væri Ijóst
að íslenskir unglingar væru upp til
hópa fyrirmyndarfólk.
C[l) 11ÍII ÍÍO 107(1 LÁRUS Þ VMOIMARSSON, FRAMKVAMDASlJORI
UUL I luU'uUL lu/U KRISTJAN KRISTIANSSON, ioggiitur fasteignasaii
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Einbýlishús - úrvalseign - mikið útsýni
Steinhús ein hæð 153 fm auk bílsk. rúmir 40 fm á vinsælasta stað í
norðurbænum í Hafnarf. rétt við hraunið. Tilboð óskast.
Ný endurbyggð - ódýr risíbúð
í reisulegu steinh. á vinsælum stað í gamla austurbænum 2ja herb.
íbúð um 50 fm. Þvottakrókur á baði. Verð aðeins kr. 4,2 millj.
Ný og glæsileg - hagkvæm skipti
Sólrík suðurfbúð á 3. hæð við Víkurás 83 fm. 40 ára húsnæðislán kr.
2,5 millj. Skipti æskileg á 2ja herb. íb. „niðri í bæ“.
Höfum kaupanda að
3ja herb. íb. í Heimahverfi eða nágr. Skipti mögul. á 5 herb. sérh.
3ja herb. góðri íb. á 1. eða 2. hæð í Hafnarf. Skipti mögul. á 5-6
herb. úrvalsíb. á vinsælum stað.
• • •
Höfum trausta kaupendur
að fasteignum í vestur-
borginni, gamla bænum
og sérbýlum á einni hæð.
IMokkur sérstæð fyrirtæki
1. Blómabúð við hliðina á stórum vörumarkaði.
Stórir sýningargluggar, blómakælir.
Laus strax.
2. Gjafavöruverslun á besta stað í borginni.
Mjög þekkt verslun og sérstæð.
Miklir möguleikar.
3. Heildverslun með gjafavörur, leikföng, fönd-
urvörur og búsáhöld. Hægt að hafa í bílskúr
heima hjá sér. Mikil álagning.
4. Lítil sólbaðsstofa með 4 bekkjum og gufu.
Selst á lágu verði af sérstökum ástæðum,
eða aðeins kr. 950 þús.
5. Sælgætisgerð sem framleiðir brjóstsykur
Vélar í góðu standi og góð framleiðsla.
Mikil framleiðni.
6. Húsnæði fyrir sjoppu til leigu.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASHLAN
SUÐURVE R I
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
HU6IVE9118 S. 552 1151-552 137»