Morgunblaðið - 30.01.1996, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
----x---
Auðkýfingiir
handtekinn
fyrir morð
Newtown Square. Reuter, The Daily Telegraph.
BANDARÍSKI auðkýfingurinn
John Eleuthere du Pont var hand-
tekinn á sunnudag eftir að lögregl-
an hafði setið um sveitasetur hans
í tvo sólarhringa.
Du Pont var ekki leystur úr haldi
gegn tryggingu og verður yfir-
heyrður á fimmtudag. Hann hefur
verið ákærður fyrir að hafa skotið
þjálfara í fjölbragðaglímu, Dave
Schultz, til bana.
Umsátrinu lauk þegar du Pont
fór út úr húsi sínu til að gera við
miðstöðvarketil og kynda húsið.
Sérsveitarmenn voru í felum við
húsið og handtóku hann.
Du Pont hafði reist íþróttahús á
landareign sinni, um 25 km frá
Fíladelfíu, þar sem einkum hefur
verið stunduð skotfími og fjöl-
bragðaglíma. Schultz, sem fékk
gullverðlaun í fjölbragðaglímu á
Olympíuleiknuum árið 1984, starf-
aði sem þjálfari glímuliðs Du Ponts
og var jafnframt að æfa fyrir
Ólympíuleikana í Atlanta í sumar.
Auðkýfmgurinn er sagður hafa ekið
að íbúðarhúsi Schultz á landareign-
inni og skotið hann. Eiginkona
Schultz segist hafa hlaupið út úr
húsinu og séð du Pont skjóta á
hann liggjandi á jörðinni. Ekki er
vitað um ástæðu morðsins, en
hermt er að mennimir hafi rifist
nokkru áður.
Nágrannar du Ponts lýstu honum
sem mjög sérvitrum manni, sem
hefði einangrast frá samfélaginu og
sjaldan farið af búgarðinum, einkum
eftir að móðir hans lést árið 1988.
Þeir sögðu hann hafa ánetjast eitur-
lyfjum og allt líf hans hefði snúist
um byssur, fjölbragðaglímu og sam-
kynhneigð. Hann er einnig sagður
hafa verið gagntekinn af geimverum
og óttast að njósnarar væru í felum
á landareigninni.
Frábær skytta
Du Pont er sagður frábær skytta
og var eitt sinn í ólympíuliði Banda-
ríkjanna í skotfimi. Hann hafði
mikinn áhuga á lögreglumönnum
síðustu árin og leyfði þeim að æfa
skotfimi á landareigninni og nota
einkaþyrlu hans. Hann átti stórt
vopnabúr og ók oftlega um land
sitt á bryndreka.
John du Pont er 57 ára og afkom-
andi E.I. du Ponts, sem auðgaðist
á púðurverksmiðju snemma á 19.
öld. Fyrirtækið dafnaði einkum í
þrælastríðinu og heimsstyijöldinni
fyrri og var orðið nær allsráðandi
á púðurmarkaðnum árið 1910.
Vegna stríðsgróðans var Q'ölskyld-
an nefnd „kaupmenn dauðans".
Fyrirtækið hóf mikil umsvif í vefn-
aðar- og efnaiðnaði á fjórða ára-
tugnum, var t.a.m. brautryðjandi í
framleiðslu á næloni, og varð eitt
af stærstu fyrirtækjum heims.
Reuter
JOHN du Pont (t.h.) fluttur á lögreglustöð í Newtown Square
eftir að hafa verið handtekinn vegna manndráps.
Olga Havlova
Olga
Havlova
látin
Prag. Reuter.
OLGA Havlova, eiginkona Vaclavs
Havels, forseta Tékklands, lést á
heimili þeirra í Prag á laugardag,
62 ára að aldri.
Havlova hafði verið undir eftirliti
lækna frá því í sumar vegna ótil-
greinds sjúkdóms og tékkneska
fréttastofan CTK sagði að hún hefði
látist af völdum krabbameins.
Havlova fæddist 11. júlí árið 1933
í Prag og starfaði m.a. sem verslun-
arkona og bókhaldari á yngri árum
sínum. Hún kynntist Havel árið 1957
og giftist honum sjö árum síðar.
Havel skrifaði konu sinni rúmlega
100 bréf þegar hann var í fangelsi
á árunum 1979-82 vegna andófs
gegn stjórn kommúnista og þau voru
síðar gefín út í bókinni „Bréf til
01gu“. í bréfunum kom fram að
Havel tók mikið mark á skoðunum
hennar og tillögum. Havel sá til
þess að hún íengi alltaf að hlýða á
leikrit hans og gagnrýna áður en
hann lét þau frá sér.
Havlova naut mikillar hylli meðal
Tékka eftir að Havel varð forseti,
þótti mjög iðin en forðaðist að vera
mikið í sviðsljósinu.
Baráttan fyrir forsetakosningarnar í Rússlandi
Borís Jeltsín á erfitt
verk fyrir höndum
Moskvu. Reuter.
Jeltsín Zjúganov
BORÍS N. Jeltsín, forseti
Rússlands, virðist staðráð-
inn í að bjóða sig fram til
endurkjörs í júní þrátt fyr-
ir hjartaáföll og annað
andstreymi. Ný skoðana-
könnun bendir til þess að
á brattann verði að sækja
fyrir forsetann, fjórir
frambjóðendur fengu
meira fylgi en Jeltsín.
Könnunina, sem birt var
á sunnudag og 1.600
manns tóku þátt í, gerði
Rússneska skoðanakann-
anastofnunin í Moskvu rétt
éftir að blóðugum bardög-
um rússneskra sérsveita
við uppreisnarmenn Tsjetsjena
lauk í þorpinu Pervomaískoje i
Dagestan. Efstur var Gennadí
Zjúganov, leiðtogi kommúnista,
hann fékk 11,3%, næstur var
Grígorí Javlínskíj, leiðtogi umbó-
taflokksins Jabloko, með 7,7%,
þá þjóðernissinninn Vladímír
Zhírínovskíj með 7,1% og Alex-
ander Lebed, þingmaður og fyrr-
verandi hershöfðingi, var með
5,5%. Jeltsín hlaut stuðning 5,4%
aðspurðra en ekki var getið um
svarhlutfall í fréttinni.
„í janúar voru allir stjórnmála-
skýrendur sammála um að þrátt
fyrir allt sem hann hefði glatað
myndi Jeltsín komast í seinni
umferð forsetakosninganna og
sennilega sigra Javlínskíj, Zhír-
ínovskíj, Zjúganov og Lebed,“
sagði stjómmálaskýrandinn Lílía
Sévtsova í tímaritinu Vek. Hún
sagði að atburðirnir í Pervoma-
ískoje hefðu gerbreytt stöðunni
og nú myndi enginn veðja öllu
sínu á að Jeltsín sigraði.
Javlínskíj, sem var formlega
útnefndur frambjóðandi Jabloko
á laugardag, sagði að tími Jelts-
íns væri liðinn, öll teikn væru á
lofti um það. Umbótasinnar virð-
ast nú flestir vera búnir að snúa
baki við forsetanum. Jegor Gajd-
ar, fyrrverandi forsætisráðherra
og einn af helstu frammámönn-
um umbótasinna fyrstu ár Jelts-
íns á forsetastólnum, lýsti í lið-
inni viku yfir því að hann styddi
hann ekki lengur. „Ég tel að
besta gjöfin sem kommúnistar
gætu fengið væri að útnefna
hann núna [sem forsetaframbjóð-
anda]“, sagði Gajdar sem missti
þingsæti sitt í kosningun-
um í desember.
Baráttan undirbúin
Jeltsín verður 65 ára á
fimmtudaginn og undan-
farna daga hefur hann
verið mjög áberandi í sjón-
varpsfréttum, látið mynda
sig á tali við almenning og
sýnt hefur verið frá skoð-
unarferð hans á bygginga-
lóð þar sem hann setti upp
hvítan öryggishjálm. Ný-
lega lét hann hækka eftir-
laun rífiega og auka stuðn-
ing við háskólanema.
Brottrekstur umbótasinna
úr ríkisstjórn virðist einnig eiga
að gegna því hlutverki að firra
forsetann ábyrgð á sársaukanum
sem fylgt hefur umskiptum frá
sovétkommúnisma til markaðs-
samfélags.
Forsetinn hefur heitið því að
lýsa yfir framboði ekki síðar en
15. febrúar ef hann láti af því
verða. Fáir vestrænir ráðamenn
virðast telja öruggt að timi hans
sé úti, Jeltsín hefur oft sýnt ótrú-
lega hæfíleika til að beijast í von-
lítilli stöðu en heilsufar hans gæti
þó sett strik í reikninginn.
Aðrir benda á að forsetinn
gæti reynt að fresta forsetakjör-
inu ef hann sjái fram á tap, hann
gæti borið við öryggisástæðum
ef t.d. Tsjetsjenar stæðu fyrir
hryðjuverkum í rússneskum borg-
um.
Unnt að af-
stýra hung-
ursneyð
MIKILL matarskortur er í
Norður- Kóreu en ekki er hætta
á stórkostlegri hungursneyð á
afrískan mælikvarða svo fremi
að landsmönnum berist aðstoð.
Simon Missiri, fulltrúi Alþjóða
Rauða krossins og Rauða hálf-
mánans, skýrði frá þessu í Seo-
ul í Suður-Kóreu í gær. Sagði
hann, að flóðin á síðasta sumri,
þau mestu í N-Kóreu á öldinni,
hefðu valdið því, að hálf milljón
manna væri á hungurmörkum.
Lítil aðstoð hefur borist til N-
Kóreu, meðal annars vegna tor-
tryggni í garð stjórnvalda þar.
Tyrkir og
Grikkir deila
TYRKIR og Grikkir eru nú
komnir í hár saman út af
óbyggðri klettaeyju í Eyjahafí
en hvorirtveggja gera tilkall til
hennar. Segjast Grikkir eiga
eyjuna samkvæmt tveimur
samningum, frá 1923 og 1947,
en Tyrkir segja, að samkvæmt
alþjóðalögum sé hún tyrkneskt
land. Hafa Grikkir lýst yfir, að
þeir muni ekki hika við að veija
eyjuna með vopnavaldi en bæði
ríkin eru aðilar að Atlantshafs-
bandalaginu, NATO.
Loftárás á
Kabul
AÐ minnsta fimm manns féilu
og nokkrir særðust í eldflauga-
og loftárás á Kabul, höfuðborg
Afganistans, í gær. Stjórnin í
Kabul á í höggi við tvær fylk-
ingar, sem ráða yfir flugvélum,
Taleban-hreyfinguna og fylgis-
menn Abduls Rashids Dostums
hershöfðingja, og situr sú fyrr-
nefnda um höfuðborgina. Þar
liggur við hungursneyð vegna
þess, að aðflutningsleiðum til
borgarinnar hefur verið lokað.
Birta áætlun
um Tævan
STJÓRNVÖLD í Kína ætla að
kynna í dag „afstöðu" sína til
forsetakosninganna á Tævan í
mars og birta jafnframt tímaá-
ætlun um sameiningu Tævans
og Kína. Skýrði blaðið Hong
KongEconomic Times frá þessu
í gær. Jiang Zemin, forseti Kína,
mun skýra frá þessu í ræðu en
fréttir um tilkynninguna birtust
í viðtali við Tang Shubei, fram-
kvæmdastjóra kínverskrar
stofnunar, sem sér um sam-
skiptin við Tævan. Sagði hann,
að eftir sameiningu Kína og
Hong Kong eftir mitt ár 1997
yrðu samskiptin milli Hong
Kong og Tævan í höndum kín-
verskra stjórnvalda.
Mikill ís á
Eyrarsundi
SUMUM feijuferðum milli
Kaupmannahafnar og Málm-
hauga var frestað í gær vegna
mikils ísreks á Eyrarsundi. í
frostunum, sem staðið hafa vik-
um saman, hefur marga firði
lagt í Danmörku og lítil skip
og bátar hafa lokast inni. Það
voru hraðskreiðu feijurnar,
sem hættu siglingum, en þeim
er mjög hætt í ísnum þar sem
byrðingurinn er afar þunnur.
Bílfeijurnar, sem eru miklu
stærri og þyngri, héldu hins
vegar áfram ferðum sínum eins
og ekkert hefði í skorist.