Morgunblaðið - 30.01.1996, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996 41
BÆNDASKÓLINIM Á HÖLUM
FTogHólar
SAMSTARF Hólaskóla og Félags tamningamanna hefur aukist ár frá ári og stefnir í að inngöngu-
skilyrði í félagið verði nám á Hólum. í vetrarbyijun voru útskrifuð frá skólanum reiðkennaraefni
úr röðum félagsmanna og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri en þar eru í efri röð frá
vinstri Þórarinn Sólmundarson kennari á Hólum, Jón Bjarnason skólastjóri, Eyjólfur ísólfsson reið-
kennari á Hólum, Reynir Aðalsteinsson reiðkennari, Sigurbjörn Bárðarson prófdómari, Trausti
Þór Guðmundsson formaður FT og EgiII Þórarinsson tamningamður á Hólum. Reiðkennaraefnin
í fremri röð eru frá vinstri Valdimar Kristinsson, Benedikt Benediktsson, Höskuldur Jónsson,
Barbara Meyer, Svanhvít Kristjánsdóttir, Olil Amble og Vignir Jónasson.
nemendur koma betur undirbúnir í
grunngreinum en áður og hafa auk
þess í mörgum tilvika meiri starfs-
reynslu.
Byggjum á þekkingu
og reynslu FT
í vetur er ráðgert að hleypa af
stokkunum nýju framhaldsnámi við
skólann í samvinnu við Félag tamn-
ingamanna sem mun það hefjast
1. febrúar nk. Er þar um að ræða
fimm mánaða nám sem veitir mönn-
um þjálfararéttindi innan Félags
tamningmanna og reiðkennararétt-
indi C. Þessir áfangar hafa verið
kenndir á styttri námskeiðum með
prófum í lok námskeiðs á Hólum,
en einnig hafa þessi námskeið verið
haldin utan skólans á vegum félags-
ins. Samstarf skólans og félagsins
hefur staðið frá 1993 og fá þeir
nemendur sem útskrifast af hrossa-
ræktarbraut inngöngu í félagið með
frumtamningaréttindi. „Næsta
haust gerum við ráð fyrir að bjóða
svo upp á eiginlegt framhaldsnám
í reiðmennsku og reiðkennslu. Yrðu
þeir nemendur að mestu í hesta-
mennsku en tækju að sjálfsögðu
með greinar eins og kennslufræði
og fóðurfræði svo eitthvað sé nefnt.
Þarna verður farið að sérhæfa nám-
ið mun meira en gert er á hrossa-
ræktarbraut. Þetta starf mun
byggjast á þeirri verklegu þekkingu
og reynslu sem fyrir hendi er nú
þegar innan raða Félags tamninga-
manna,“ segir Jón í lokin en klykk-
ir út með því að minna á mikilvægi
þess að skólinn haldi góðu sam-
bandi við atvinnulífið, hlusti á og
fylgist með hvað er að gerast á
hveijum vettvangi, sama hvort það
er fiskeldi, hestamennska eðíf-8*
ferðaþjónusta. Segir hann það ekki
gæfuríkt að bjóða upp á eitthvað
sem takmarkaður áhugi er á eða
eitthvað sem ekki sé þörf fyrir eða
úr takt við raunveruleikann.
stofnun getur aldrei orðið trúverðug
ef hlutirnir eru ekki í lagi og helst
til fyrirmyndar og því hefur eitt af
aðalviðfangsefnunum hér verið að
búa staðinn þannig út að hann haldi
trúverðugleika sínum. Þótt aukin
áhersla hafí verði lögð á þessar
sérhæfðu greinar má ekki gleyma
því að við erum áfram með kennslu
í sauðíjárrækt. íslenskur landbún-
aður er byggður upp á blönduðum
búum. Hvað nautgriparæktinni við-
kemur höfum við gert samning við
kúabúið í Efra-Ási þar sem nemend-
ur fá þá verklegu kennslu sem þeir
þurfa. Með þessu móti höfum við
komist hjá að byggja nýtt fjós.
Verklega kennslu í sauðfjárrækt fá
nemendur hér á staðnum. Á skóla
sem þessum þarf að sjálfsögðu að
vera ákveðinn sveitabragur og þetta
litla fjárhús sem við byggðum er
líka liður í þvi að halda þessari
heildarmynd. Við leggjum áherslu
á að nemendur sem hér stunda nám
séu færir um að takast á við marg-
vísleg störf, við megum heldur ekki
gleyma því að þetta er bændaskóli,
þótt mikil áhersla sé lögð á þessar
sérhæfðu greinar."
Þær breytingar hafa orðið á bú-
fræðináminu á Hólum að kröfur um
undirbúningsnám hafa verið aukn-
ar, ódýrara er fyrir nemendur að
læra ýmsar grunngreinar heima hjá
sér. Segir Jón að felldar hafi verið
út ýmsar gamalgrónar framhalds-
skólagreinar og sérhæfðar greinar
teknar inn. Samfara þessu hefur
aldurstakmark verið hækkað í átján
ár, sem gerir það að verkum að
HÓLANEMAR læra járningar
og byrja þau með fætur af
föllnum hrossum. Útlending-
unum þykja járningarnar erf-
iðar en hagnýtar, því mjög
dýrt er að kaupa járningu
erlendis. Hér mundar Linn
Hemingby frá Noregi hóf-
hnífinn.
þeir hefðu brennandi áhuga á þess-
um reiðskóla. Ferðir þessar hafa
verið fjármagnaðar á ýmsan máta,
meðal annars með því að nemendur
fara á bæi í Skagafirði og moka
skít. Varð einni stúlkunni að orði
að líklega væri ekki til svo mikill
skítur á íslandi að hægt væri að
fjármagna ferð til Austurríkis með
skítmokstri.
Bleksprautuprentari
360x360 dpi
2,5 bls/mín
100 síðna
arkamatari
Sérstaklega
ódýr í rekstri
Geislaprentarar
Bleksprautuprentari
Hljóðkort
Sound Blaster
16 Pro
12.900
Hljóðkort
Margmiðlunarpakki
CD-ROM
IEPSONIEPSONIIEPSONÍ
Vöruhciti vcrö
US Robotics fax/modem ■ 9.900
Disklingabox (120 diskl.) 550
Disklingabox (80 diskl.) 400
Dísklingabox (40 diskl.) 250
PC stýripinnar róttá 750
Hátalarasett fiítá 1990
LQ-100 - 24 nála
LQ-150 - 24 nála
LX-100 - 9 nála
Verö frá
9.900
Öll verð eru staðgreiðsluverð með VSK.
TOLVUDEILD
ÞQR HF
Ármúla 1 1 - Sími 568-1500
BHHHHHHHHHMHIiHI
4x geisladrif I
2x geisladrif I Sound Blaster
m/ interface ■
veröfrá 7.900
16 Value
9.900
Sound Blaster
2x Discovery cd
19.900